uk

Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

News IS ↓ Епізодів: 661

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: rauda-bordid.simplecast.com

Автор

Gunnar Smári Egilsson

Категорія

News

Сайт подкасту

rauda-bordid.simplecast.com

Останній епізод

9 жов 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Rauða borðið - Helgi-spjall: Dóra Jóhanns 07.03.2026
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 10 06.03.2026

Föstudagur 6. mars Vikuskammtur: Vika 10 Gestir Maríu Lilju í vikuskammti að þessu sinni eru þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarkona, Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari, Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu og Helga Þórey Jónsdóttir menningarfræðingur og framhaldsskólakennari.

Rauða boðið 5. mars - Einhverfa, offita, reynsluboltar og 80’s 05.03.2026

Fimmtudagur 5. mars Einhverfa, offita, reynsluboltar og 80’s Guðrún Eva Bell Jónsdóttir og Hjörtur Hlífar, einhverfur sonur hennar, ræða áskoranir í stuðnings kerfunum við Ragnheiði Davíðsdóttur. María Lilja fær til sín félagsráðgjafann og aðgerðarsinnann Töru Margréti Vilhjálmsdóttur en hún gagnrýnir nýjar tillögur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um sérstaka aðgerðaáætlun vegna offitu. Rey...

Rauða borðið 4. mars - Áföll, heilsugæslan, barnavernd, góðvild og andóf 04.03.2026

Miðvikudagur 4. mars Áföll, heilsugæslan, barnavernd, góðvild og andóf Flosi Þorgeirsson tónlistarmaður og sagnfræðingur í Draugum fortíðar ræðir við Björn Þorláks um kvíða og kulnun, raðáföll í æsku og listina að lifa af. Nýtt verk, Heilsugæslan, verður frumflutt á næstu dögum. Lýður Árnason læknir leikstjóri og höfundur verksins, Rakel Björk Björnsdóttir og Elfar Logi Hannesson leikarar ræða sty...

Rauða borðið 3. mars - Ríkisútvarpið, kvennamáttur, ofbeldi og leiklist 03.03.2026

Þriðjudagur 3. mars Ríkisútvarpið, kvennamáttur, ofbeldi og leiklist Brynjar Níelsson skýtur föstum skotum á Ríkisútvarpið og vill stórminnka umfang Rúv en bæta stuðning við einkamiðla. Björn Þorláks ræðir við hann. Jódís Skúladóttir, Sirrý Hallgríms og Kolbrún Halldórsdóttir spjalla við Sigurjón Magnús um sterkar skoðanir kvenna og kvenréttindi. María Lilja ræðir ofbeldi við Eygló Harðardóttur, f...

Rauða borðið 2. mars - Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar 02.03.2026

Mánudagur 2. mars Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar Innrásarstríð Bandaríkjanna og Ísrael í Íran hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með heimsmálunum. María Lilja fær til sín þau Kjartan Orra Thorsson Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Íran, Anahita Babaei aðgerðarsinna frá Íran og Magneu Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðing til að ræða stöðuna. Þa...

Synir Egils 1. mars - Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt 01.03.2026

Sunnudagurinn 1. mars Synir Egils: Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt Að venju verður farið yfir helstu fréttir líðandi stundar með góðum gestum. Rætt um nýja frambjóðendur og þá líka sem flokkar hafna. Ekki síst hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík þar sem reyndum borgarfulltrúum er fórnað fyrir nýja. Meðal helstu frétta sem verða til umfjöllunar eru 60 milljarða stað...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Oddný Harðar 28.02.2026

Laugardagur 28. febrúar Helgi-spjall: Oddný Harðar Oddný G. Harðardóttir ræðir lífshlaup sitt og feril og kryfur í leiðinni samnfélagið. Oddný er fyrrverandi þinkgkona og ráðherra en lætur samfélagið sig miklu varða. Björn Þorláksson ræðir við hana.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 9 27.02.2026

Föstudagur 27. febrúar Vikuskammtur: Vika 9 Gestir að þessu sinni eru þeir: Óli Dóri, plötusnúður og athafnamaður Davíð Roach, fjölmiðlamaður Þorsteinn V. Einarsson, karlmaður og Bragi Páll, rithöfundur. Í vikunni sem leið var ýmislegt að frétta. Eins og td: Viðtal Þóru Tómasdóttur við Margrét Löf, sem varð föður sínum að bana, flokkarnir héldu áfram að birta lista fyrir sveitastjórnir, dóru björt...

Rauða borðið 26. feb - Reynsluboltar, Vinstrið, Bekkurinn, Kúba og lífsorka 26.02.2026

Fimmtudagur 26. febrúar Reynsluboltar, Vinstrið, Bekkurinn, Kúba og lífsorka Reynsluboltar í kvöld ræða þjóðmál og fréttir. Þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Páll Valsson rithöfundur og Jón Trausti Reynisson, blaðamaður á Heimildinni spjalla um umdeild efnistök Rúv í morðmáli og fleira. María Lilja fær til sín Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Líf Magneudóttur til samtals á stöðu vinstrisins í upp...

Rauða borðið 25. feb - Trumptíminn, pólitíkin í Englandi, fákeppni, spilling og búsvæðing 25.02.2026

Miðvikudagur 25. febrúar Trumptíminn, pólitíkin í Englandi, fákeppni, spilling og búsvæðing Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Magnús Helgason, sagnfræðingur mæta í Trumptímann sem er í umsjón Maríu Lilju að þessu sinni. Guðmundur Auðunsson, heiðursfréttaritari Samstöðvarinnar í Englandi ræðir við Maríu Lilju um vendingar í pólitíkinni ytra í kjölf...

Rauða borðið 24. feb - Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind 24.02.2026

Þriðjudagur 24. febrúar Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind Gunnar Salvarsson ræðir við Sigurjón Magnús um breytingar á höfuðborgarsvæðinu. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál og réttarheimspeki þar sem mál Margrétar Löf kemur meðal annars við sögu og viðtal við hana á Rúv í gær. Doktor Þóroddur Bjarnason ræðir byggðir landsins í tengslum við tæknium...

Rauða borðið 23. feb - Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál 23.02.2026

Mánudagur 23. febrúar Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál Einar Steingrímsson, stærðfræðingur og virkur í athugasemdum ræðir við Maríu Lilju um mann -og kvenréttindi og umræðuhefðina á netinu. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla blandar sér í leik þeirra sem vilja ræða stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Kolbeinn Þorsteinsson rifjar upp erfiða æ...

Synir Egils 22. feb - Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin 22.02.2026

Sunnudagurinn 22. febrúar Synir Egils: Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Drífa Snædal talskona Stígamóta, Brynjar Níelsson lögfræðingur og fyrrum þingmaður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og ræða fréttir vikunnar o...

Rauða boðið: Helgi-spjall: Arna Magnea 21.02.2026

Laugardagur 21. febrúar Helgi-spjall: Arna Magnea Danks Arna Magnea Danks leikkona, áhættuleikari og aktivisti segir frá æsku sinni og uppruna, afleiðingum þess að fæðast sem stelpa í líkama stráks, dugnaðinum sem hún erfði frá foreldrum sínum höfnuninni sem hún upplifði, áföllum og sigrum.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8 20.02.2026

Föstudagur 20. febrúar Vikuskammtur: Vika 8 Í Vikuskammt við Rauða borðið mæta í dag þau Borgar Magnason tónskáld og bassaleikari, Lína Thoroddsen klippari, Pétur Ben tónlistarmaður og Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandinu og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af falli úr háum söðli, stéttakúgun, illri meðferð á börnum, hótunum um hernað, átökum og ásökunum.

Rauða borðið 19. feb - Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur 19.02.2026

Fimmtudagur 19. febrúar Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur Við hefjum leik á mengaðri borg. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Diljá Ámundadóttir, móðir langveiks barns og Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks ræða svifryk og fleira, stöðuna og úrbætur. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, Ágúst Borgþór Sverrisson fréttastjóri DV og Björ...

Rauða borðið 18. feb - Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga 18.02.2026

Miðvikudagur 18. febrúar Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga Jón Gnarr þingmaður og Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi ræða við Gunnar Smára um vændi, slaufun, ábyrgð og annað sem tilheyrir umræðunni um átök milli kynjanna. Gunnar Sigurðsson leikstjóri og ferðaþjónustuaðili segir sögu sína í samtali við Björn Þorláks en Gunnar va...

Rauða borðið 17. feb - Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi 17.02.2026

Þriðjudagur 17. febrúar Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi Doktor Ársæll Arnarsson setur Bakkakotsmálið í samhengi í spajlli við Björn Þorláks. María Lilja ræðir við Tamilu Gaméz Garcell, kennara um ástandið á Kúbu en þar ríkir mikil mannúðarkrísa. Áföll og aðstandendur verða helsta umræðuefni doktors Ólafs Ævarssonar geðlæknis og Björns Þorlákssonar í fjórða þætti þeirra félaga um ge...

Rauða borðið 16. feb - Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa 17.02.2026

Mánudagur 16. febrúar Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður landsfélagsins Rósarinnar, aðildarfélags Samfylkingarinnar og formaður Afstöðu ræðir mögulegt klofningsframboð í Reykjavík en fulltrúum Rósarinnar var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður...

Synir Egils 15. feb - Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin 15.02.2026

Sunnudagurinn 15. febrúar Synir Egils: Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Pawel Bartozsek formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og ræða f...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Bjarni Harðar 14.02.2026

Laugardagur 14. febrúar Helgi-spjall: Bjarni Harðar Bjarni Harðarson bóksali er gestur vikunnar í helgi-spjalli Samstöðvarinnar. Hann hefur sett mark sitt á menningar- og útgáfumál og var um tíma þingmaður svo fátt eitt sé nefnt. Björn Þorláks ræðir við Bjarna.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 7 13.02.2026

Föstudagur 13. febrúar Vikuskammtur: Vika 7 Í Vikuskammti föstudaginn 13. febrúar ræða fréttir vikunnar þau Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður, Hallur Magnússon atvinnurekandi, Hanna Kristín Skaftadóttir háskólakennari á Bifröst og Elva Dögg Hafberg uppistandari. Umræðuefni verða ásamt fleiru ofsagróði bankanna, mölvuð heilbrigðisþjónusta, umhverfismál, formannsslagur í Framsókn, Kúba, ólga á Bifrö...

Rauða borðið 12. feb - Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan 12.02.2026

Fimmtudagur 12. febrúar Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan Nýs formanns Framsóknarflokksins, sem kosinn verður um helgina, bíður það erfiða verkefni að reisa flokkinn við til fylgis við nýja tíma. Flokkurinn er í kreppu og mælist með lágt fylgi. Af er sem áður var í þeim efnum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fer yfir samtímann og sögu flokksins í spjalli við Björn Þ...

Rauða borðið 11. feb - Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki 11.02.2026

Miðvikudagur 11. febrúar Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki Margir lýsa vaxandi áhyggjum af staðsetningu nýja Landspítalans. Hildigunnur Sverrisdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks ýmis álitaefni er tengjast staðsetningunni og mikilvægi geðverndar. Hún deilir jafnframt persónulegri sögu. Þau Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Bryndís Ísfold Hlöðv...

Слухайте подкаст Rauða borðið у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали