Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: rauda-bordid.simplecast.com
Автор
Gunnar Smári Egilsson
Категорія
Сайт подкасту
Останній епізод
9 жов 2026
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar 16.04.2026 3:15:35
Fimmtudagur 16. apríl Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar Tótla I. Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir við Maríu Lilju um mál barnanna sem liggja utan kerfis, án þjónustu, eftir að málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd voru færð frá sveitafélögunum yfir til ráðuneyta og undirstofnanna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórkostlegri byggð á Noðurnesinu á Á...
Rauða borðið 15. apríl - Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba 15.04.2026 4:42:12
Miðvikudagur 15. apríl Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba Vala Höskuldsdóttir listakona segir Ásdísi Olsen frá einstakri reynslu sinni af líknardauða móður sinnar í Reykjavík, sem leiddi til handtöku og vistunar í fangaklefa. Þröstur Ólafsson þjóðhagfræðingur segir í samtali við Björn Þorláks að íslenska krónan sé mikið mein og standi framförum fyrir þrifum.. Kjartan...
Rauða borðið 14. apríl: Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist 14.04.2026 2:17:46
Þriðjudagur 14. apríl Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist Lítill áhugi virðist meðal almennings á sveitarstjórnarkosningunum fram undan ef marka má óformlega athugun Samstöðvarinnar. Fæstir segjast þora að tjá sig um viðkvæm pólitísk deilumál. Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi ræðir réttarhöld og tímamótadóm í sakamáli gegn Smáríkinu. Ólögleg sala einnar hvítvínsbelju gæti orðið þúfa...
Rauða borðið 13. apríl - Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna 13.04.2026 4:32:18
Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfir...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynja Péturs 28.03.2026 1:03:20
Laugardagur 28. mars Helgi-spjall: Brynja Péturs Dansarinn og frumkvöðullinn Brynja Pétursdóttir segir Maríu Lilju frá ástríðu sinni fyrir hipp hopp tónlist og dansi, en hún hefur helgað líf sitt því að kenna ungu fólki á íslandi allt um þann dans og menninguna sem hann sprettur úr.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 13 27.03.2026 1:31:01
Föstudagur 27. mars Vikuskammtur: Vika 13 Gestir Laufeyjar Líndal eru að þessu sinni Ægir Máni Bjarnason, listarmaður og aðgerðarsinni, Davíð Sól Páls, kennari og aktivisti, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur og ráðgjafi og Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína og eftirlaunamaður.
Rauða borðið 26. mars - Samstöðvarsigur og litróf listarinnar 26.03.2026 1:48:23
Fimmtudagur 26. mars Samstöðvarsigur og litróf listarinnar Þátturinn er stuttur í kvöld, en veðurofsi fyrri part dags setti dagskrána aðeins úr skorðum, svo í þessum síðasta þætti Rauða borðsins fyrir Páska bjóðum við upp á tvö viðtöl við tvo góða gesti. Fyrst fær Björn Þorláks til sín góðvin Rauða borðsins, Gísla Tryggvason. Innslagið Réttur er settur, sem þeir félagar hafa haldið úti í vetur fja...
Rauða borðið 25. mars - Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál 25.03.2026 4:00:10
Miðvikudagur 25. mars Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál Marinó G Njálsson ráðgjafi hefur verið skipaður af ráðherra formaður stýrihóps um nýtt húsnæðislánakerfi. Marínó vill losna við verðtryggingu. Björn Þorláks ræðir við hann. Viðar Eggertsson leikari, Ólafur Arnarson blaðamaður og Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands kryfja fréttir og þjóðmál í umræðuþæ...
Rauða borðið 24. mars - Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn 24.03.2026 2:58:17
Þriðjudagur 24. mars Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn Aðalsteinn Kjartansson fréttastjóri Heimildarinnar og Sigmundur Ernir Rúnarsson komu til að ræða pólitík og helstu fréttir. Þarna voru vanir menn sem fóru vítt og breytt um fréttasviðið hér og út í hinum stóra heimi. Grímur Atlason hjá Geðhjálp ræðir könnun um fordóma, geðsjúkdóma og fíkn. Krísur ungs fólks ber á góma se...
Rauða borðið 23. mars - Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan 23.03.2026 2:30:39
Mánudagur 23. mars Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan Sonja Ýr Þorgeirsdóttir, BSRB og Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, ræða neikvætt viðhorf gegn opinberum starfsmönnum og atlögu að vernd þeirra í starfi. Inniskór koma við sögu. Björn Þorláks ræðir við þær. Flosi Þorgeirsson, gítarleikari í Ham með meiru, ræðir eigin kulnun og hlaðvarpið Draugar fortíð...
Synir Egils 22. mars - Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn 22.03.2026 1:51:00
Sunnudagurinn 22. mars Synir Egils: Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn Fyrst koma Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM. Vallár og formaður Samtaka iðnaðarins koma til okkar í fyrri hluta þáttarins. Efnahagsmálin verða í forgrunni, og er víst að þessir fínu gestir okkar hafa margt um það...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynhildur Guðjóns 21.03.2026 1:55:20
Laugardagur 21. mars Helgi-spjall: Brynhildur Guðjóns Brynhildur Guðjónsdóttir leikari fer yfir ævi og störf. Bernskan, áskoranir, listin og gleðin verða til umræðu. Björn Þorláksson ræðir við Brynhildi.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 12 20.03.2026 1:33:39
Föstudagur 20. mars Vikuskammtur: Vika 12 Gestir mæta við Rauða borðið til að ræða fréttir vikunnar sem að þessu sinni einkenndust af meiri stríðum, meiri öfgum, meiri átökum og hærra vaxtastigi, en einnig af tónlist, sveitarstjórnarkosningum og ýmsu öðru. Þau Arna Magnea Danks, leikkona og kennari, Jasmina Vajzovic, ráðgjafi, Bjarki Hjörleifsson, Varaformaður VG og Bogi Reynisson, hljóðmaður tækl...
Rauða borðið 19. mars: Efnahagsóvissa, ESB, eldhugi og áföll 19.03.2026 3:30:31
Fimmtudagur 19. mars Efnahagsóvissa, ESB, eldhugi og áföll Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, bregst við umælum fjármálaráðherra í dag um að of miklar launahækkanir séu aðalhvati verðbólgunnar. Finnbjörn segir í samtali við Björn Þorláks stöðuna ekki bjarta og ræðir málin með gagnrýnum hætti. Magnús R. Einarsson leiðsögumaður og fyrrum dagskrárgerðarmaður til áratuga á Rúv, ræðir samanburð líf...
Rauða borðið 18. mars - Spilling, Trump, Reynsluboltar og leiklist 18.03.2026 4:02:22
Miðvikudagur 18. mars Spilling, Trump, Reynsluboltar og leiklist Útboðsspilling, einkum tengd verkfræðistofum, er fyrsta umræðuefni Rauða borðsins í kvöld í samtali Björgvins Víglundssonar byggingarverkfræðings við Björn Þorláksson. Dæmi eru um að hið opinbera greiði meira en tuttugufaldan verkkostnað vegna tengsla. Finnur Dellsén heimspekingur, Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Þorsteinn Þ...
Rauða borðið 17. mars: Öfgahreyfingar, kjaramál, Bretland, fjölmiðlar og Íslensk menning 17.03.2026 4:08:33
Þriðjudagur 17. mars Öfgahreyfingar, kjaramál, Bretland, fjölmiðlar og Íslensk menning Ef íslenskir stjórnmálaflokkar eru að taka við fé frá erlendum öfgahreyfingum til að bjaga og rugla upplýsingar, ætti það nánast að kalla á lögreglurannsókn. Þetta segir Atli Þór Fanndal blaðamaður. Björn Þorláks ræðir við hann. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, nýr framkvæmdastjóri BSRB, ræðir kjaramál og helstu v...
Rauða borðið 16. mars - Alræði, mið-austurlönd, geðveiki, systkinaofbeldi og Laufey 17.03.2026 3:38:26
Mánudagur 16. mars Alræði, mið-austurlönd, geðveiki, systkinaofbeldi og Laufey Alræðistaktar stjórnvalda í Bandaríkjunum verða til umræðu þegar Valur Gunnarsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um ástandið í heimsmálunum í sögulegu tilliti. Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild HÍ og sérfræðingur í mið-austurlöndum, fer yfir stöðuna fyrir botni miðjarðarhafs. Laufey Línda...
Synir Egils 15. mars - Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður 15.03.2026 1:26:02
Sunnudagurinn 15. mars Synir Egils: Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður Að þessu sinni taka þátt í umræðunni þau; Einar Kárason rithöfundur, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ og Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi. Eðlilega er margt á málaskrá. Stjórnmál, stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísrael og viðbrögð við honum,...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynjar Níelsson 14.03.2026 1:40:11
Laugardagur 14. mars Helgi-spjall: Brynjar Níelsson Gestur vikunnar í helgi-spjalli er umdeildur, hefur stundum hátt og skoðanir hans eru ekki allra. En hann á sér líka gríðarlegan fjölda stuðningsmanna, fyrrum dómari, þingmaður og verðandi borgarfulltrúi. Brynjar Níelsson ræðir persónusögu sína, bernskuna og manneskjuna á bak við þá opinberu mynd sem jafnan birtist almenningi. Björn Þorláks ræðir...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 11 13.03.2026 1:27:20
Föstudagur 13. mars Vikuskammtur: Vika 11 Farið verður yfir fréttir vikunnar og þar kennir ýmissa grasa. Gestir verða þau: Karen Kjartansdóttir, sérfræðingur, Brynjar Karl, körfuboltaþjálfari DJ Katla Ásgeirsdóttir og Frosti Logason, fjölmiðlamaður. Það sem bar hæst í vikunni var ma. ESB, Ísland tekur þátt í máli S-Afríku gegn Ísrael, fjölgun alvarlegra ofbeldisbrota (Kleini), Íran og efnahagsáhri...
Rauða borðið 12. mars - Þjóðtungudeila, hópmorð, villuáróður, þolmörk ferðaþjónustu og kynusli 12.03.2026 4:03:31
Fimmtudagur 12. mars Þjóðtungudeila, hópmorð, villuáróður, þolmörk ferðaþjónustu og kynusli Eiríkur Rögnvaldsson íslenskumaður hefur verið sakaður um að láta pólitískar skoðanir villa sér sýn þegar hann svarar fyrirspurnum á Vísindavefnum er varða íslenska tungu. Eiríkur bregst við í samtali við Björn Þorláks og ræðir einnig stöðu íslenskrar tungu. Þórdís Ingadóttir lagaprófessor, Hjálmtýr Heiðdal...
Rauða borðið 11. mars: Reynsluboltar, hópnauðgun, íþróttastefna og lögfræði 11.03.2026 3:12:44
Miðvikudagur 11. mars Reynsluboltar, hópnauðgun, íþróttastefna og lögfræði Jenný Kristín Valberg, framkvæmdastýra Bjarkarhlíðar og Guðný S Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar ræða hópnauðgun, fjölgun alvarlegra brota og tregðu stjórnvalda að setja meinta gerendur í gæsluvarðhald. María Lilja ræðir við þær. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Andrés Skúlason Lan...
Rauða borðið 10. mars - ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf 10.03.2026 3:10:16
Þriðjudagur 10. mars ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, efast ekki um að í efnahagslegu tilliti gæti verið eftir miklu að slægjast fyrir Ísland að ganga í ESB. Þórður Snær ræðir við Björn Þorláks. Doktor Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur ræðir í spjalli við Björn Þorláks þátt hins opinbera í þjóðaröryggismálum o...
Rauða borðið 9. mars - VG, einhverfa, gervigreind og kosningar 09.03.2026 2:35:16
Mánudagur 9. mars VG, einhverfa, gervigreind og kosningar Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún var kjörin með rússneskri kosningu. Rósa hefur áður verið í VG, en sagði úr flokknum þegar Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Eyrún Halla Kristjánsdóttir nemi, Guðlaug Svala Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og einhverfufræðari, Halldóra Hafsteins, stuð...
Synir Egils 8. mars - Evrópusambandsaðild eða ekki 08.03.2026 1:11:09
Sunnudagurinn 8. mars Synir Egils: Evrópusambandsaðild eða ekki Þátturinn verður einþáttungur að þessu sinni, en til Sigurjóns mæta þau Ólafur Adolfsson, María Rut Kristinsdóttir, Magnús Skjöld og Birgir Ármannsson. Eftir óheyrilegt basl tókst að fá þessa fjórmenninga svo þátturinn verður eins þátta að þessu sinni. Þarna eru tvær fylkingarinnar. Birgir og Ólafur saman sinnis og svo María og Magnús...
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали