uk

Lyfjastofnun

Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Health IS ↓ Епізодів: 34

Fjallað um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhóli

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com

Автор

Lyfjastofnun

Категорія

Health

Сайт подкасту

soundcloud.com

Останній епізод

11 лис 2024

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

34. Hugtakið lyf - Viðar Guðjohnsen 11.11.2024

Þótt flestir telji sig vita hvað lyf er, skiptir skilgreining hugtaksins miklu mál. Það getur til að mynda komið við sögu í sakamálum og einnig þegar verið er að greina á milli fæðubótarefna og lyfja. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og sérfræðingur hjá Lyfjastofnun rýndi í hugtakið lyf í ritgerð sinnitil ML gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst í vor. Hann segir frá í þessum þætti hlaðvarpsins...

33. ADHD lyf í stórum skömmtum - Vilhjálmur Hjálmarsson; sérfræðingar Lyfjastofnunar í lyfjagát 27.05.2024

Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi byggja á. Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar er rætt um þessi mál við Vilhjálm Hjálmarsson, formann ADHD samtakanna, og Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðrúnu Selmu Steinarsdóttur, sérfræði...

32. Lyfjaendurskoðun - Einar Stefán Björnsson 16.11.2023

Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í m...

31. Um heiti lyfja - Brynjar Örvarsson 20.09.2023

Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

30. Að ferðast með lyf - Viðar Guðjohnsen 06.07.2023

Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þ...

29. Lyf við sumartengdu ofnæmi - Erla Hlín Henrysdóttir 12.06.2023

Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðin...

28. Að þiggja ódýrari valkost í stað ávísaðs lyfs - Ólöf Þórhallsdóttir 08.02.2023

Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem lækn...

27. Lyf fyrir lítil börn í Afríku - Sveinbjörn Gizurarson 21.12.2022

Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

26. Líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður - Páll Þór Ingvarsson og Sveinbjörn Gizurarson 09.11.2022

Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður. Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja. -Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor...

25. Aðgerðir Lyfjastofnunar til að sporna gegn lyfjaskorti - Rúna Hauksdóttir Hvannberg 14.10.2022

Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja. Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að dr...

24. Lyf, ferðalög og sól - Jana Rós Reynisdóttir 16.06.2022

Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til langs tíma á ferðalögum til útlanda, og síðan er vakin athygli á því að sum lyf geta valdið húðútbrotum ef sá sem þau notar er óvarinn fyrir sólarljósi. -Jana Rós Reynisdóttir er deildarstjóri...

23. Ópíóíðar - Magnús Karl Magnússon og Sigríður Zoëga 15.03.2022

Í byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum sem rekja má til vafasamrar markaðssetningar framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu Oxycontin. Í þessum hlaðvarpsþætti er fjallað um ópíóíða. Hvers konar lyf eru þetta, hvernig verka þau á l...

22. Hvernig er metið hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar ? – Hrefna Guðmundsdóttir 19.01.2022

Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í þessum hlaðvarpsþætti er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga; hvernig unnið er að því að meta hvort lyf og b...

21. Saga bólusetninga á Íslandi - Haraldur Briem 17.12.2021

Fjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards Jenner. Síðan rakið hvenær byrjað var að bólusetja gegn helstu smitsjúkdómum á Íslandi, í frásögn Haraldar Briem fyrrverandi sóttvarnalæknis. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

20. COVID-19: Örvunarbólusetningar - Björn Rúnar Lúðvíksson 24.11.2021

Rætt er við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Björn Rúnar skýrir hvers vegna örvunarskammtur til viðbótar við fullbólusetningu er mikilvægur, hvaða rannsóknir liggja fyrir um áhrif örvunarskammts, og hverjar niðurstöður þeirra eru. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

19. COVID-19: Bólusetning barna og unglinga 12-15 ára - Valtýr Stefánsson Thors 27.08.2021

Rætt við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni um hvað rannsóknir segja um bólusetningu þessa aldurshóps, um aukaverkanir bæði algengar og sjaldgæfari, hugsanlegar áhyggjur foreldra, og mat á því hvort kostir bólusetningar vegi þyngra en mögulegir ókostir. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

18. Meira um bóluefni gegn COVID-19 - Ingileif Jónsdóttir 18.06.2021

Nú er tæplega hálft ár síðan fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 fékk íslenskt markaðsleyfi, sem og frá bólusetningarátakinu sem hófst nokkrum dögum síðar. Við ætlum því að nýju að ræða um bóluefnin í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar, þau bóluefni sem hafa verið notuð hérlendis. Um með hvaða hætti þeim er ætlað að ræsa ónæmiskerfið til varna, um virkni þeirra, og hugsanlegar aukaverkanir sem þeim geta fylgt. -...

17. Bóluefni gegn COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbeinn Guðmundsson 15.12.2020

Fjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig þeim bóluefnum sem hafa komið við sögu hjá EMA fram til þessa er ætlað að verka í líkamanum til að kalla fram ónæmi gegn sjúkdómnum. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra Lyfjastofnuna...

16. Lyf á meðgöngu og við brjóstagjöf - Guðrún Stefánsdóttir 06.10.2020

Þegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast flest lyf sem mælast í blóði móður, í gegnum fylgjuna til fóstursins. -Rætt er við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, teymisstjóra í matsdeild Lyfjastofnunar, og einn helsta sérfræðing stofn...

15. Covid-tengd umræða - Klínískar lyfjarannsóknir. Kolbeinn Guðmundsson og Hjalti Kristinsson 16.06.2020

Nú á tímum Covid-19 faraldursins heyrist oftar en áður talað um klínískar rannsóknir á lyfjum og bóluefnum, rannsóknir sem ýmist eru að hefjast eða þegar hafnar. En hvað eru klínískar lyfjarannsóknir, hvernig fara þær fram, hverjir taka þátt í þeim, hvernig er eftirliti með þeim háttað ? –Í þessum hlaðvarpsþætti Lyfjastofnunar útskýra tveir af sérfræðingum stofnunarinnar, þeir Kolbeinn Guðmundsson...

14. Verkefni Lyfjastofnunar á tímum COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbein Guðmundss. 17.04.2020

Á tímum COVID-19 hefur starfsemi Lyfjastofnunar að stærstum hluta snúist um verkefni sem tengjast heimsfaraldrinum. Hér er rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra um hvernig unnið hefur verið að því að tryggja lyfjabirgðir í landinu og koma í veg fyrir skort vegna hamsturs. Þá er rætt við Kolbein Guðmundsson lækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun um samvinnu lyfjastofnana í Evrópu við að flýta...

13. Lyfjaskortur - ástæður og úrræði - Hjalti Kristinsson 20.01.2020

Síðustu misseri hefur í auknum mæli verið fjallað um lyfjaskort í fjölmiðlum enda hefur vandi vegna lyfjaskorts farið vaxandi. -Lengi var viðtekinn skilningur hér heima sá, að lyfjaskorts yrði sérstaklega vart á Íslandi og einangrun væri um að kenna en svo er ekki; lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál. Hér er rætt við Hjalta Kristinsson deildarstjóra lyfjaöryggisdeildar Lyfjastofnunar. Talað erum á...

12. Aukaverkanatilkynningar - Guðrún Stefánsdóttir 28.11.2019

Aukaverkanatilkynningar veita miklivægar upplýsingar um verkun og öryggi lyfja. Rætt við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, einn helsta sérfræðing Lyfjastofnunar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. M.a. fjallað um hvernig tilkynningar um aukaverkanir eru unnar og meðhöndlaðar, hverju slíkar tilkynningar skila, og spurt hvort ekki séu til nein lyf sem eru án aukaverkana. Umsj. Hanna G. Sigurðard...

11. Sýklalyfjaónæmi - Kolbeinn Guðmundsson 21.11.2019

Dagana 18. -24. nóvember 2019 stendur yfir alþjóðleg vitundarvika um sýklalyfjaónæmi og skynsamlega notkun sýklalyfja. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar um hvernig sýklalyf verka, og hvernig ónæmi gegn sýklalyfjum getur orðið til. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

10. Insúlín - alþjóðlegur dagur sykursýki - Hrefna Guðmundsdóttir 14.11.2019

Þann 14. nóvember er árlega haldinn alþjóðlegur dagur sykursýki til að vekja athygli á sjúkdómnum. Sykursýki stafar af ójafnvægi í insúlínbúskap líkamans, eða jafnvel algjörum skorti á insúlíni. Úr því þarf að bæta með lyfjagjöf. -Rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

Слухайте подкаст Hlaðvarp Lyfjastofnunar у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали