Lyfjastofnun
Hlaðvarp Lyfjastofnunar
Fjallað um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhóli
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
9. - Hlutverk Lyfjastofnunar - Rúna Hauksdóttir Hvannberg 01.11.2019 15:57
Þegar þetta hlaðvarp fer í loftið eru nákvæmlega 19 ár frá því að Lyfjastofnun hóf starfsemi. Af því tilefni er fjallað um hlutverk og starfsemi stofnunarinnar. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, sem segir frá ýmsum áskorunum í starfinu svo sem lyfjaskorti, eftirliti með lækningalækjum og Brexit. Einnig eru nefndar til sögunnar systur tvær frá Sjanghæ ! Umsj. Hanna G. S...
8. Netverslun með lyf – Sindri Kristjánsson 03.10.2019 20:15
Verslun og viðskipti á netinu færast í vöxt, og lyf eru seld þar eins og hver annar varningur. Og þó - því lyf eru ekki eins og hver annar varningur að því leyti að um framleiðslu þeirra, dreifingu og geymslu gilda strangari reglur en um flestar aðrar vörur. Allt er það með öryggi notandans í huga, því afleiðingar af notkun lyfs sem ekki hefur fengið vottun lyfjayfirvalda um ítrustu kröfur, geta v...
7. Samheitalyf – þau lúta sömu gæðakröfum og frumlyf - Rúnar Guðlaugsson 30.08.2019 15:56
Hefur þér verið boðið samheitalyf í apóteki og þú verið á báðum áttum ? Hér er skýrt hvað samheitalyf eru og að hvaða leyti þau eru frábrugðin frumlyfinu sem þau eru byggð á. –Rætt við Rúnar Guðlaugsson lyfjafræðing, sérfræðing á upplýsingadeild Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
6. Fylgiseðlar lyfja - uppáhaldslesningin þín ? - Jana Rós Reynisdóttir 26.07.2019 11:24
Öllum lyfjum sem eru á markaði fylgja upplýsingar fyrir notendur. Í pakkningum lyfja eru þannig prentaðir fylgiseðlar á blaði, en fylgiseðla má líka nálgast rafrænt á serlyfjaskra.is -En hvaða upplýsingar geymir fylgiseðillinn ? Jana Rós Reynisdóttir deildarstjóri hjá Lyfjastofnun fer yfir það og segir litla dæmisögu sem sýnir hve mikilvægt er að lesa fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið....
5. Lyf við biti lúsmýs, geitungastungum og frjókornaofnæmi - Kolbeinn Guðmundsson 05.07.2019 9:53
Fjallað er um sumartengt ofnæmi og lyf við því. Lúsmý og viðbrögð við biti þess eru sérstaklega í sviðljósinu að gefnu tilefni, en einnig koma við sögu geitungar og frjókorn. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
4. Varasöm lyf í blóði ökumanna - Adam Erik Bauer 11.06.2019 28:15
Rætt við Adam Erik Bauer réttarefnafræðing og verkefnastjóra á Rannsóknastofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræði. Hann hefur tekið saman niðurstöður rannsókna síðustu sex ára á blóðsýnum ökumanna sem reynst hafa verið undir áhrifum lyfja í akstri. Fjölgun slíkra tilvika er ógnvænleg. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
3. Lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál - Cathrine Klerck 28.05.2019 13:01
Umræða um lyfjaskort hefur verið talsvert áberandi í íslenskum fjölmiðlum síðustu misseri. Spurt hefur verið um ástæður og úrræði, og stundum látið að því liggja að um séríslenskan vanda sé að ræða. -Hér er rætt við Cathrine Klerck, teymisstjóra lyfjaskortsteymis hjá norsku lyfjastofnuninni, NOMA. Í máli hennar kemur fram að um alþjóðlegan vanda er að ræða. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
2. Lyfjaskil og förgun lyfja - Brynhildur Briem 11.04.2019 13:05
Fjallað um mikilvægi þess að skila afgangslyfjum til förgunar, og hverjir sjá um að taka á móti þeim og eyða. Einnig vangaveltur um hvort skilalyf geti eða hafi hugsanlega ratað á svarta markaðinn. Rætt við Brynhildi Briem deildarstjóra á eftirlitssviði Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
1. Bóluefni - Hrefna Guðmundsdóttir 27.03.2019 15:55
Hlaðvarp Lyfjastofnunar kynnt í samtali við Jönu Rós Reynisdóttur deildarstjóra upplýsingadeildar, og rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing á Lyfjastofnun um bóluefni. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали