uk

Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ Епізодів: 365

Podcast by Handkastið

Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com

Автор

Handkastið

Категорія

Sports

Сайт подкасту

soundcloud.com

Останній епізод

2 жов 2026

Де слухати?

Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаром

Подкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти

Завантажити з Google Play Встановіть безкоштовно Android майже 10 млн завантажень · рейтинг 4,8 iOS незабаром

Епізоди

Allt um nýju þjóðarhöllina, landsleikir við Grikki og Oddur Grétarsson á línunni 14.03.2024

Fengum Þórð Má Sigfússon skipulagsfræðing (Höllin er úrelt) til okkar að segja okkur allt frá nýju Þjóðarhöllinni. Landsleikir um helgina gegn Grikkjum sem eftir allt saman verða sýndir í Handboltapassanum. Hringdu svo í nýjasta liðsmann Þórs AK, Odd Grétarsson og ræddum við hann um vistarskiptin í sumar.

Valur vængjum þöndum og The Benedikt Gunnar Show! 09.03.2024

Farið fyrir úrslitaleiki Final 4 helgarinnar í Höllinni.

Engar flugeldasýningar í undanúrslitunum karlamegin 07.03.2024

Undanúrslitin í Final4 voru gerð upp í þættinum. Valur og ÍBV mætast karlamegin í úrslitum og Valur og Stjarnan mætast kvennamegin. Ponzan fór síðan með okkur í Evrópurúnt.

Dauðakippir á Selfossi og er Halldór Jóhann að trufla HK-inga? 03.03.2024

18.umferðin var gerð upp í þessum þætti. - HK-ingar mættu á Selfoss með skóflurnar og grófu upp Selfyssinga - Andri Berg er að elda eitthvað svakalegt í Safamýrinni - EuroLalli var með hausinn á Söngvakeppninni - Leikbann Ágústar Inga reyndist Gróttumönnum dýrt - Ungu strákarnir hjá KA fengu hjálp frá þeim eldri til að ná prófinu - Martröð HK í hornafærunum heldur áfram - Aron Pálmarsson mætti með...

Valur og Haukar koma á flugi inn í Final 4 og við þurfum betri leikmenn 29.02.2024

Ragnar Hermannsson kíkti til okkar og fór yfir leiki í Olísdeild karla og þá leiki sem framundan eru. Fórum yfir landsleik Íslands og Svíþjóðar í undankeppni EM2024. Æfingaleikir við Grikki framundan en væri kannski betra að spila bara gegn Pressuliði Olísdeildarinnar?

Haukar elska að sjokkera & leikþáttur Basta gekk ekki upp 25.02.2024

17.umferð Olís-deildar karla var gerð upp af Sérfræðingnum, Gaupa og Benna Grétars. - Valsmenn unnu torsóttan sigur í Garðabænum - Lítil sem engin framþróun á liði KA á milli ára - Óli Gúst þarf CBD olíu og það strax - Hvað gengur mönnum til í Haukum? - Gróttan gat fagnað í sólarhring - Leikþáttur Basta gekk enganveginn upp gegn FH - Afturelding náði fram hefndum í Eyjum - Hvort vilja Fram eða Hau...

Basti bastar yfir sig & sigur Framara dýrkeyptur 22.02.2024

16.umferðin var gerð upp í þætti kvöldsins auk þess sem fyrsti leikur 17.umferðar var gerður upp. Farið var yfir Evrópuboltann og hringt til Þýskalands þar sem afmælismonsinn, Arnór Snær Óskarsson leikmaður Gummersbach var á línunni.

Hvíl í friði Selfoss - Víkingarnir lifa í voninni 19.02.2024

Olís-deildar umræða, Evrópubikarinn, Strákarnir okkar í mennskunni og hitað upp fyrir næstu leiki. Hugur okkar er á Selfossi þessa dagana þar sem mikið svartnætti ríkir. Ekki er staðan betri fyrir norðan hjá gulklæddum KA-mönnum. Eyjamenn skelltu sér á Irish-man Pub eftir kærkominn sigur um helgina og Víkingarnir lifa í voninni um að halda sér uppi.

Stjarnan féll á prófinu & Selfyssingar í braaaaasi 15.02.2024

16.umferðin í Olís-deild karla hófst í kvöld með leik Stjörnunnar og Aftureldingar. Valsarar voru síðasta liðið til að tryggja sér í Final4 í Höllinni. Hvar endar Alli Eyjólfs og Selfyssingar virðast vera í þjálfaraleit fyrir næsta tímabil. Teitur Örn Einarsson var í símaviðtali frá Þýskalandi.

Enn einn bikarinn rennur úr greipum Steina Arndal - Bikarmeistararnir rassskelltir í Eyjum 12.02.2024

Farið var yfir sigur Hauka á FH, ÍBV á Aftureldingu og Stjörnunnar á KA og miklu meira til.

Vond ára yfir Rúnari Kára - Rasimas spilar fyrir áframhaldandi veru í Olís 08.02.2024

15.umferðin í Olís-deildinni var gerð upp í þætti kvöldsins. Slúðurmolarnir voru fjölmargir og áhyggjuefnin ekki færri. Hvaða fimm félög heyrðu í Halldóri Jóhanni? Hvert fer Einar Baldvin? Rasimas hefur fengið kveðjubréfið á Selfossi og AP4 hefur fengið hvíld fyrir bikarleikinn gegn Haukum. Sjö umferðir eftir og staðan í fallbaráttunni er stórhættuleg.

Skammt stórra högga á milli í Olís og Halldór Jóhann á línunni 05.02.2024

Það er þétt spilað í Olísdeildunum þessa dagana og var farið yfir allt það helsta sem gerðist um helgina og framundan er. Halldór Jóhann Sigfússon, nýráðinn þjálfari HK, var á línunni frá Danmörku. Íslendingar erlendis á sínum stað.

Olísdeildin komin af stað og sjaldan launar kálfurinn ofeldið 01.02.2024

Olísdeildin er komin aftur af stað eftir EM pásu. 4 leikir fóru fram í kvöld og voru þeir gerðir upp af strákunum í Handkastinu. Farið var yfir viðtali við Snorra Stein og mótið gert upp í lok þáttarins.

Maður á mann - Snorri Steinn gerir upp EM 31.01.2024

Snorri Steinn Guðjónsson gerir upp EM´24 með Sérfræðingnum.

Hálfleikur frá helvíti drap Ólympíudrauminn 24.01.2024

Tómas Þór Þórðarson kíkti til okkar í Dominos stúdíóið og fór yfir lokaleik Íslands á Evrópumótinu í handbolta. Farið var yfir leik liðsins gegn Austurríki og rýnt í frammistöðu leikmanna. Undir lok þáttar var það ljóst að Ísland næði ekki Ólympíusæti.

Sögulegur sigur og frammistaðan sem þjóðin hefur beðið eftir 22.01.2024

Patrekur Jóhannesson og Ásgeir Jónsson kíktu á Stymma Klippara í Dominos stúdíóið og fóru yfir sögulegan sigur Íslands á Króatíu. Rýndum í framhaldið og hvað yrði að falla með okkur svo Ólympíusætið væri möguleiki. Patti rýndi einnig í gott gengi sinna gömlu lærisveina í Austurríki.

Vörnin brást en miði er möguleiki - Handkastið x Siggi Bond 20.01.2024

Siggi Bond kíkti í Dominos Stúdíóið og fór yfir leikinn gegn Frökkum og framhaldið hjá Strákunum okkar. Við eigum ennþá möguleika á umspilssæti fyrir ÓL2024 en til þess þarf margt að falla með okkur. Slúðurmolar úr Olísdeildinni en það styttist í að hún fari aftur af stað.

Snorri hlustaði á Séffann & fáfræðin er víða 18.01.2024

Strákarnir okkar voru einum röngum dómi, fjórum vítaköstum og töluvert af dauðafærum frá því að ná að minnsta kosti stigi gegn Þjóðverjum í fyrsta leik milliriðilsins í kvöld. Sérfræðingurinn, Stymmi klippari og Einar Ingi Hrafnsson gerðu upp leikinn og miklu meira til. Sigfús Sigurðsson var á (síma)línunni og ræddi frammistöðu landsins á mótinu og Gunni Birgisson frá RÚV hitaði upp fyrir næsta le...

Heilladísirnar halda okkur inná EM - Algjört afhroð gegn Ungverjum 16.01.2024

Svartfjallaland tryggði íslenska landsliðinu sæti í milliriðil á EM fyrr í dag. Farið yfir leik Íslands og Ungverjalands sem tapaðist með átta mörkum. Logi Geirsson var á línunni frá Þýskalandi og fór yfir þetta allt saman með Sérfræðingnum, Ponzunni og Gunnari Birgissyni lýsanda stóru leikjanna á RÚV. Framundan eru fjórir leikir í milliriðli þar sem allt getur gerst. Vonin um verðlaunasæti lifir...

Sigur er sigur - Handkastið x Unglingastarf Dr. Football 14.01.2024

Stymmi Klippari fékk þá Jóa Má og Arnar Svein til sín í Dominos Stúdíóið til að fara yfir leik Íslands og Svartfjallalands. Ræddum frammistöðu Íslands í leiknum og mótinu til þessa og hvernig framhaldið liti út. Nocco leikmaður leiksins var valinn ásamt Skitu leiksins. Fórum yfir úrslit í Olísdeild kvenna og ræddum brotthvarf Basta frá HK í lok tímabilsins.

Byrjendamistök Snorra Steins - Mike hefur engar áhyggjur af framhaldinu 13.01.2024

Sérfræðingurinn, Ponzan og Mike gera upp leikinn gegn Serbíu beint frá Hofbrauhaus í Munchen.

"Þetta var þungt" - Handkastið x Steve Dagskrá 12.01.2024

Handkastið gerði upp leik Íslands og Serbíu sem fram fór á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi í kvöld. Steve Dagskrá bræðurnir, Andri Geir og Vilhjálmur, kíktu til Stymma Klippara og fóru yfir leikinn. Sérfræðingurinn var á línunni beint frá Munchen og hafði sitt að segja um leik landsliðsins.

Gleðilegt EM - Handkastið x Dr. Football 10.01.2024

EM í Þjóðaríþróttinni hefst í dag og það var því tilvalið að fá sjálfan Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, til okkar í stúdíó og fórum yfir hans uppáhalds stórmót, draumalið og fleira. Hituðum upp fyrir fyrsta leik strákanna okkar gegn Serbíu á föstudaginn, Stymmi Klippari henti í veðmál. Björgvin Páll er að gefa út nýtt Podcast og eru "Strákarnir Okkar" vannýtt vörumerki?

4 dagar í fyrsta leik - Leikirnir gegn Austurríki krufnir að beini 08.01.2024

Íslenska landsliðið vann báða leikina gegn Austurríki um helgina. Farið var yfir frammistöðu liðsins af Sérfræðingnum, Ponzunni og Jóhanni Gunnari Einarssyni sem var gestur þáttarins.

Stóri Upphitunarþátturinn 04.01.2024

Þáttur af lengri gerðinni enda færðu allt sem þú þarft að vita um Evrópumótið í honum. Í þættinum fórum við yfir öll 24 liðin sem taka þátt á Evrópumótinu í Þýskalandi. Hringdum um alla Evrópu og leituðum í viskubrunn sérfræðinga.

Слухайте подкаст Handkastið у Replaio

Радіо та подкасти в одному застосунку - безкоштовно й без реєстрації. Встановіть уже сьогодні та не пропустіть запуск

Завантажити з Google Play

Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали