Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Rán í Garðabænum, ÍR-ingar unnu nýliðaslaginn og skráningarvandamál nýrra leikmanna 06.09.2024 1:17:42
Stymmi Klippari fékk þá Ásgeir Jónsson og Ásgeir Gunnarsson til sín í stúdíó til að fara yfir fyrstu umferðina í Olísdeild karla og kvenna. Félögin virðast flest koma vel undan sumri og eigum við vona á æsispennandi móti í allan vetur.
Veislan er að byrja - Spá Handkastsins fyrir tímabilið opinberuð 01.09.2024 1:12:42
Keppnistímabilið í Olísdeildinni fer af stað í vikunni og Handkastið hefur opinberað spá sína en það þurfti tvær tökur til. Meistarakeppni kvenna fór fram um helgina þar sem Valur hafði betur. Verið með okkur í allan vetur.
Tímabilið handan við hornið og við erum mættir aftur! 21.08.2024 1:23:38
Enn eitt tímabilið er að hefast og Handkastið verður að sjálfsögðu með ykkur í allan vetur. Ásgeir Jónsson og Einar Ingi Hrafnsson kíktu í stúdíóið til Stymma og ræddu sumarið og félagsskiptin í sumar. Verið með okkur í allan vetur.
Hlustendaverðlaun Handkastsins og Steini Arndal í viðtali 02.06.2024 1:21:41
Sigursteinn Arndal þjálfari Íslandsmeistara FH kíkti til okkar í spjall um tímabilið. Hlustendaverðlaun Handkastsins voru einnig veitt. Takk fyrir tímabilið.
FH Íslandsmeistari og leiðin greið í undanúrslit á HM2025! 30.05.2024 1:11:31
Fórum yfir úrslitaeinvígi UMFA og FH þar sem FH-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn 3-1. Dregið var í riðla fyrir HM2025 þar sem Ísland mun spila í Króatíu.
Valsmenn Evrópumeistarar og FH einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum 26.05.2024 1:03:04
Fengum Aðalstein Eyjólfsson til okkar í stúdíó-ið að ræða leik FH og UMFA. Valsmenn skrifuðu söguna með því að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn þegar þeir unnu Olympiakos í vítakastkeppni.
Innkoma Arons breytti öllu og félagsskiptaglugginn farinn á fullt 22.05.2024 57:55
Fórum yfir leik UMFA og FH í fyrr í kvöld þar sem innkoma Arons breytti öllu. Farið var yfir félagsskipti innanlands og velt því upp hvort UMFA spili með 3 markverði innanborðs á næsta tímabili.
FH-ingar vankaðir eftir fyrsta höggið - Valsmenn nálgast fyrirheitnalandið 19.05.2024 1:00:46
Afturelding leiðir í baráttunni við FH um Íslandsmeistaratitilinn og Valsmenn eru í góðri stöðu fyrir seinni úrslitaleikinn í Grikklandi næstu helgi.
Mosfellsbærinn leyfir sér að dreyma - Hárblásari Gústa Jó kveikti í Valsstelpunum 16.05.2024 58:01
Afturelding er komið í úrslitaeinvígið eftir að hafa slegið út Val í undanúrslitum og mætir þar Aroni Pálmarssyni og félögum í FH. Tímabilinu er þó ekki lokið hjá Val sem mætir Olympiacos í fyrri úrsitaleik Evrópubikarsins um helgina. Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa sópað úrslitakeppninni.
Ísland á HM og allt undir á Hlíðarenda 12.05.2024 1:12:38
Ísland er komið á HM áttunda mótið í röð eftir þægilega sigra á Eistum. Fagmannleg frammistaða og loksins vinnur Ísland sannfærandi sigur á útivelli. Stefán Rafn Sigurmannsson fyrrum leikmaður Hauka og íslenska landsliðsins var gestur þáttarins ásamt Guðjóni Guðmundssyni. Hitað var upp fyrir það sem koma skal í úrslitakeppninni og farið yfir stöðuna í úrslitaeinvíginu kvennamegin.
Enn eitt stórmótið bíður strákana okkar 09.05.2024 47:53
25 marka sigur strákanna okkar á Eistlandi gefur góð fyrirheit fyrir seinni leikinn um helgina. Sæti á HM í janúar bíður. Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna er farið af stað og það með miklum látum. Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var gestur þáttarins.
Eyjabölvuninni í Krikanum aflétt og Mosfellingar í lykilstöðu 05.05.2024 1:10:05
Við settumst niður með Ásgeir Jónssyni og fórum yfir undanurslitaeinvígin í Olís deild karla. FH-ingar eru komnir í úrslit og Mosfellingar eru í lykilstöðu í sínu einvígi gegn Val. Kíktum á úrslitaeinvígið hjá stelpunum og skúbbuðum nýju þjálfarateymi hjá nýliðum Fjölnis í Olísdeildinni.
Eyjan beit frá sér með aðstoð dómaranna & Kiddi Bjé kveikti í Fjölnismönnum 02.05.2024 1:22:03
Geðveikin í Eyjum og hrun Mosfellinga var til umræðu í þættinum. Auk þess var sjónvarpsmálin rædd í 100x skipti og ótrúleg endurkoma Fjölnismanna sem eru mættir í Olís-deildina.
Eyjagrýlan mætti í Krikann og Óskar Bjarni leyfir Valsmönnum að dreyma 28.04.2024 50:25
FH-ingum mistókst að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins þegar þeir tóku á móti ÍBV. Valsmenn eru komnir í úrslit í Evrópubikarnum eftir auðvelt einvígi gegn Baia Mare. Hiti í umspilinu karlamegin og það verður vel fylgst með skrefunum hjá Haukastelpunum gegn Fram á Verkalýðsdaginn.
Eyjamenn þurfa að skila skömminni - Yfir 25.000 heimili horfa á þjóðaríþróttina 25.04.2024 1:13:59
Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn er í fullum gangi. FH-ingar eru komnir með níu fætur í úrslitaeinvígið og það yrði þjálffræðilegt afrek hjá Gunna Magg að koma Aftureldingu ekki í úrslitaeinvígið. Umspilið, úrslitakeppni kvennamegin og meira til - allt í Handkastinu og allt í Handboltapassanum.
Valur nálgast það að skrifa söguna og FH-ingar áttu fyrsta höggið 21.04.2024 1:12:49
FH-ingar eru komnir í 1-0 í einvíginu gegn ÍBV eftir sigur í Kaplakrika áðan. Valsmenn unnu 8 marka sigur í Evrópudeildinni í kvöld á heimavelli og færast nær því að vera fyrsta íslenska liðið til að vinna evrópukeppni. Undanúrslit í Olís kvenna fara af stað á þriðjudaginn og Einar Jónsson þjálfari Fram kíkti í heimsókn til okkar.
Fjögur bestu berjast um þann stóra - Basti ræðir tímann hjá HK 16.04.2024 1:30:17
Mosfellingar eru mættir í undanúrslitin. Fjögur bestu lið landsins munu því berjast um þann stóra. Gestur þáttarins var Sebastian Alexandersson sem fer yfir tíma sinn hjá HK í lokþáttar og skrautlegar samningaviðræður við stjórn HK á tímabilinu.
Eyjavélin farin að malla og við fáum oddaleik! 14.04.2024 1:23:48
Fórum yfir leiki í 2.umferðar í 8 liða úrslitum úrslitakeppninar í Olísdeildinni. Þrjú lið kvöddu okkur og við fáum FH - ÍBV enn eitt árið. Við vorum bænheyrðir og fengum oddaleik í 8 liða úrslitum. Kíktum á Grill66 umspilið og 6 liða úrslit í kvennaboltanum. Strákarnir okkar gerðu það gott í Þýskalandi um helgina.
Playoffs bbaby! Fáum við einn, tvo eða þrjá odda? 11.04.2024 1:03:55
Úrslitakeppnin er farin af stað! Farið var yfir leikina í 8-liða úrslitunum og spáð í spilin í framhaldinu. Úrslitakeppnin kvenna megin er að fara af stað einnig.
Nú hefst veislan - Hverjir voru bestir? Úrvalslið tímabilsins opinberað 05.04.2024 1:08:03
Olís-deildin að baki og nú hefst úrslitakeppnin. Úrvalslið Olís-deildarinnar opinberað, bestu leikmenn hvers liðs valdir og spáð í spilið fyrir 8-liða úrslitin.
Selfyssingar og Víkingar kveðja Olís - Fyrsti titill Steina Arndal 02.04.2024 1:29:53
Farið yfir 21.umferðina í Olís-deild karla með Bjarna Fritz þjálfara ÍR sem er mættur á nýjan leik í Olís-deildina.
Hvað er í gangi í Krikanum og ungstirnin björguðu HK-ingum 27.03.2024 1:12:46
20.umferðin í Olís-deild karla gerð upp og spáð í spilin fyrir lokaumferðirnar. - Þarf að gera þjálfarabreytingar í Krikanum? - Loksins fengu efnilegustu leikmenn HK sénsinn - Vængbrotnir Mosfellingar fóru illa með norðanmenn - Lloyd Christmas getur ekki einu sinni bjargað Selfyssingum - Fram U + Rúnar Kára óheppnir í sumarbústaðnum - Grótta nýttu sér ekki mikið álag Valsmanna
Átta stiga leikur í Djúsmýrinni & breytinga er þörf 25.03.2024 1:12:14
Farið var yfir stóru málin í Handkastinu að þessu sinni. Hitað var upp fyrir 20.umferðina í Olís-deild karla og úrslitin skoðuð í Olís-deild kvenna sem lauk um helgina. Grill66-deildin lýkur á fimmtudaginn og þá kemur það í ljós hvaða lið endar í 2.sæti og fer beint upp í Olís-deildina. Seinni helmingurinn er síðan fyrir lengra komna þar sem djúp umræða myndaðist um Venslafélögin og U-liðin. Einni...
Bensínljósið að kvikna hjá Val? Allt í steik í Kórnum! 22.03.2024 1:10:14
Farið var yfir leiki í 19.umferð Olísdeildar Karla. Grill 66 hornið. Lokaumferð Olísdeildar kvenna framundan.
Landsleikirnir í Grikklandi slógu engin áhorfsmet og HSÍ kveður Kempa? 18.03.2024 1:00:30
Þátturinn um allt og ekkert. Landsliðsumræða - Olís-deild karla - Olís-deild kvenna og miklu meira til. Hvert fer Bjarni Ófeigur? Hvert fer Skarphéðinn Ívar? Hvert fer Ólafur Ægir? Skolphreinsun Ásgeirs fékk frí í vikunni og ætlar að nýta sér styttingu vinnuvikunnar. Á sama tíma var að koma út nýr BodyFuel drykkur - sem Sérfræðingurinn segir vera þann besta hingað til.
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали