Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Bjöggi á Bessastaði og vinnum við til verðlauna eins og Gaupi spáði? 02.01.2024 1:10:40
8 dagar í EM og 10 dagar í fyrsta leik Íslands á EM! Logi Geirsson og Mikael Nikulásson ræddu allt milli himins og jarðar sem tengist íslenska landsliðinu og gott betur en það.
Uppskeruhátíð og Chris O'Reilly rödd EHF TV hitar upp fyrir EM 28.12.2023 1:09:02
Handkastið gerði árið 2023 upp og fór yfir allt sem tengdist handboltanum á Íslandi og erlendis. Við ræddum einnig við Chris O'Reilly, rödd EHF TV og stjórnanda handbolta podcastsins (Un)informed Handball Hour um komandi Evrópumót sem hefst í Þýskalandi í janúar, möguleika landsliðsins og hverjir munu koma á óvart.
Eftirminnilegustu stórmótin í þjóðaríþróttinni 25.12.2023 1:15:14
Jólagjöfin í ár. Sérfræðingurinn, Theodór Ingi Pálmason, Einar Örn Jónsson og Guðjón Guðmundsson fara yfir þeirra eftirminnilegustu stórmót í gegnum tíðina. Átta stórmót urðu fyrir valinu. 8:00 HM 1986 14:00 ÓL 1992 20:00 HM 1997 28:30 EM 2002 36:00 EM 2006 42:00 HM 2007 55:00 EM 2010 1:03:00 EM 2014
Rúnar Sigtryggs hitar upp fyrir EM - Hverjir verða í landsliðinu 2030? 21.12.2023 1:08:02
22 dagar í EM - Rúnar Sigtryggsson þjálfari Leipzig fer yfir stöðu mála hjá landsliðinu, spáir í spilin og ræðir væntingarnar fyrir EM sem framundan er. Stefán Árni Pálsson er gestur þáttarins og velur sína uppáhalds landsliðsmenn frá upphafi. Á sama tíma valdi Ponzan fimm leikmenn sem spila í Olís-deildinni sem verða bókað í landsliðinu árið 2030. Að lokum hringdum við til Ísafjarðar og heyrðum í...
Formaðurinn þögull sem gröfin - Víkingarnir spara aurinn en kasta krónunni 18.12.2023 52:36
Olís-deild karla er komin í jólafrí og Snorri Steinn hefur valið 20 manna æfingahóp fyrir EM. Kraftröðun í Olís-deild karla í boði Tix.is. Hvernig spiluðu strákarnir okkar erlendis um helgina? Nocco leikmaður 13.umferðar og Skita umferðarinnar í boði Skolphreinsun Ásgeirs.
Hverjir verða í hópnum hjá Snorra og hvað er til ráða á Ásvöllum? 15.12.2023 1:08:12
Sérfræðingurinn, Teddi Ponza og Ásgeir Jónsson gera upp þá fjóra leiki sem fram fóru í 13.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Stelpurnar okkar eru fastar með Forsetabikarinn í Danmörku þökk sé flugumferðarstjórum og á sama tíma frestaðist það að Snorri Steinn gæti tilkynnt landsliðshópinn fyrir EM þökk sé sömu meisturum.
32 dagar í EM veisluna & Barátta við Kongó um þann stóra 11.12.2023 59:57
Stelpurnar okkar eru komnar í úrslit um Forsetabikarinn þar sem þær mæta Kongó. Upphitun fyrir síðustu umferðina í Olís fyrir jól. Handkastið er farið að hita upp fyrir EM veisluna sem framundan er. Milliriðilinn gæti verið smá vesen en við sleppum við Roland Mikler í riðlinum.
Einelti á Ásvöllum, óléttan bjargaði fjárhag Framara - Svindl á HM? 08.12.2023 1:10:48
12.umferðin í Olís-deild karla er gerð upp í þættinum. Stelpurnar okkar eru á fleygiferð í Danmörku og stefna á Forsetabikarinn. Nocco-leikmaður 12.umferðar og landsliðsins var valinn og Skolphreinsun Ásgeirs gæti verið á leiðinni til Króatíu.
Forsetabikarinn heim, bananahýði fyrir norðan og þjálfarabreytingar á Ásvöllum? 04.12.2023 1:03:18
Stelpurnar okkar voru hársbreidd frá því að komast í milliriðla en nú tekur við nýtt ævintýri. Forsetabikarinn býður og við sækjum hann. Svava Kristín Grétarsdóttir var gestur Handkastsins að þessu sinni og við hituðum einnig upp fyrir 12.umferðina. Strákarnir okkar eru sjóðandi í Evrópu - það er rúmlega mánuður í mót og við erum á leiðinni á pall!
Ásgeir Örn siglir í strand og fyrsta korterið drap Stelpurnar Okkar 30.11.2023 1:11:28
Fóru yfir fyrst leik hjá Íslenska kvenna landsliðinu á Heimsmeistaramótinu í handbolta þegar þær töpuðu gegn Slóvenum. Gerðum upp 11.umferð í Olís deild karla ásamt því að fara yfir Meistaradeild Evrópu. Síðan henti Bjöggi í Status.
Sturluð botnbarátta framundan - Boltabloggið hitar upp fyrir HM 27.11.2023 55:31
Hitað var upp fyrir 11.umferðina í Olís-deildinni þar sem áhugaverðir leikir fara fram í vikunni. Þá heyrðum við í Ragnari Hermannssyni, Boltablogginu sjálfu sem fór yfir landsleikina hjá kvennalandsliðinu í aðdraganda HM og það sem koma skal. Umfjöllunin um kvennalandsliðið er í boði Vogue - fyrir heimilið.
Basl á KFUM félögunum og þjálfaði ekki Gummi Gumm. Bahrain? 23.11.2023 1:08:42
Það voru óvænt úrslit í 10.umferðinni sem gerð var upp í þættinum. Kvennalandsliðið er komið af stað í undirbúningi sínum fyrir HM og íslensku liðin verða í eldlínunni í Evrópu um helgina. Farið var yfir nýjasta styrktarsamning HSÍ.
ÍH reif í gikkinn og KA svífa vængjum þöndum norður 21.11.2023 1:08:08
Í þætti kvöldsins fórum við yfir stóra ÍH daginn og síðustu 2 leikina í 16liða úrslitum. 10. umferð Olís deildar karla hófst í kvöld með þrem leikjum, þeir voru gerðir upp og spáð í spilin fyrir síðustu 3 leikina í umferðinni. Sérstakur gestur þáttarins var Einar Ingi Hrafnsson.
Yfirvinna hjá Skolpinu í Garðabænum - Geta Haukar unnið í Krikanum? 17.11.2023 1:00:30
Olís-deild karla er í fríi þessa vikuna. Olís-deild kvenna fer í frí eftir daginn í dag. Fagleg umfjöllun um Olís-deild kvenna. Vönduð umfjöllun um bikarkeppnina. Hringt í Mosfellsbæinn þar sem við fengum að vita ástæðuna afhverju félög selja heimaleiki sína í Evrópukeppnunum. Stjarnan er á botni Olís-deildar kvenna og þjálfari liðsins var í viðtali. Nocco leikmaður vikunnar og skita vikunnar í bo...
Væntingastjórnun er dyggð - HM í hættu hjá Hafdísi? 14.11.2023 1:02:14
Það er stórvika hjá strákunum í Handkastinu. Stóri ÍH-dagurinn er framundan og var þátturinn litaður af því. Fjallað var um bæði kynin í þættinum. Strákarnir okkar erlendis eru að gera misgóða hluti og Elliði Snær Viðarsson var á línunni, símalínunni.
Jón Batman með næringu í æð og gulu spjöldin á lofti 11.11.2023 1:11:19
Yfirferð yfir þá fimm leiki sem búnir eru í 9.umferð Olís-deildar karla. Nocco leikmaður umferðarinnar og Skita umferðarinnar i boði Skolphreinsun Ásgeirs. Þorsteinn Leó er farinn í Porto og Atli Steinn er mættur í Olís. Erfiður dagur hjá Björgvini Páli á meðan Aron Pálmarsson dældi boltunum á Jón Bjarna.
HSÍ svarar fyrir sjónvarpsmálin - Rýnt í El Clasico með Gaupa 07.11.2023 1:24:32
9.umferðin í Olís-deild karla er framundan eftir landsleikjapásu. El Clasico í Hafnarfirðinum. Gaupi rýndi í stórleikinn. Nýliðaslagur í Kópavoginum. Í veikindaleyfinu fór Teddi að hugsa til allra góðu útlendingana sem spilað hafa hér frá aldamótum. Stymmi klippari bauð upp á svakalegan seðil. Sérfræðingurinn settist niður með Bjarka Sigurðssyni tímabundnum verkefnastjóra HSÍ í sjónvarpsmálunum og...
Snorri ósigrandi og Eyjakonur hefðu átt að vita betur 05.11.2023 49:44
Landsliðið sigraði Færeyinga í tvígang um helgina. Farið var yfir frammistöðu liðsins. Velkominn Haukur Þrastarson. Elliði Snær geggjaður og í lokþáttar drógum við út í treyjuleik Elliða og Handkastsins. 8.umferðin í Olís-deild kvenna var gerð upp. Hitamál í kvennaboltanum var rætt. Eigið góða vinnuviku.
Landsliðin okkar í brennidepli og handboltaæði í Færeyjum 01.11.2023 58:22
Stútfullur þáttur. Rætt um bæði karla og kvennalandsliðin okkar. Úrvalslið 1-8 umferðar Olís-deildar karla. Uppgjör um leikina í 7.umferð Olís-deildar kvenna. Sérfræðingur Handkastsins um kvennaboltann á línunni. Finnur Hansson á línunni frá Færeyjum og almenn gleði. Enginn Teddi - bara gleði.
Aron Pálmars mættur til leiks - Basti í heitu sæti? 28.10.2023 1:10:00
Heil umferð að baki. 8.umferðin gerð upp. Landsleikjapása framundan og baráttan á toppi og botni deildarinnar sjóðandi.
Íslensku liðin taka yfir Evrópu - Do or die umferð framundan 24.10.2023 55:48
Upphitun fyrir svakalega umferð sem framundan eru. Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar á línunni og Evrópu-ævintýri íslensku liðanna skoðað. Það styttist í næsta landsliðsverkefni - hvernig voru landsliðsmennirnir að spila um helgina?
Grótta er alltaf Grótta í Gróttu og Selfoss flúði James Bond 21.10.2023 59:07
Uppgjörsþáttur 7.umferðarinnar þrátt fyrir að hún klárist á morgun sökum árshátíðar Herjólfs. Velkominn aftur Atli Ævar - Ponzan hvetur þig til þess að kíkja á Svavar í FitnessSport á meðan Sérfræðingurinn ætlar að næla sér í ostapizzu á Dominos annað kvöld. Örskýrsla frá Serbíu og kraftröðun í boði Tix.is. Altis leikmaður umferðarinnar og Skita umferðarinnar í boði Skolphreinsun Ásgeirs.
Svartur dagur hjá HSÍ - Snorri Steinn í viðtali 18.10.2023 1:19:40
7.umferðin fór af stað með látum og það eru svakalegir leikir framundan. Það var allt svart í Hafnarfirðinum og hjá HSÍ í dag. 30 leikmenn hættu í handbolta í sumar og það var til umræðu í þættinum. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands var í viðtali í lok þáttar.
Sjónvarpslaus fimmtudagur og Evrópuævintýri íslensku liðanna 15.10.2023 1:08:23
6.umferðin í Olís-deildinni lauk á föstudaginn - og fjögur íslensk lið voru í eldlínunni í Evrópubikarnum. Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV og Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals voru á línunni frá Lúxembúrg og Eistlandi.
Bad time for timeout í Mosó og Steini Arndal á línunni 11.10.2023 1:11:43
Farið yfir fyrri hluta 6.umferðar í Olísdeild Karla. Evópuævintýri Íslendingaliðanna skoðuð. Steini Arndal á línunni. Íslendingar erlendis og margt fleira
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали