Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Обов'язково відвідайте сайт подкасту та підтримайте його автора: soundcloud.com
Де слухати?
Подкасти в застосунку Replaio Radio Уже незабаромПодкасти незабаром з'являться в застосунку. Встановіть уже зараз і першими побачте зовсім новий погляд на подкасти
Епізоди
Enginn Aron, Ekkert Ves - Enginn Þórir, Mikið Ves! 05.10.2023 56:27
Fimm leikir fóru fram í 5.umferð Olísdeildar Karla og voru þeim gerð góð skil. Atli Báruson kíkti í heimsókn á strákana í Handkastinu.
Patrekur Jóhannesson í viðtali, Íslendingar erlendis og hitað upp fyrir næstu umferð 03.10.2023 58:42
Patrekur Jóhannesson í viðtali, Íslendingar erlendis og hitað upp fyrir 5.umferð Olísdeildar karla og 4.umferð Olísdeildar kvenna gerð upp.
Eyjamenn þykja ekki markaðsvænir og ferskur blær fyrir Norðan 29.09.2023 1:05:33
4.umferð Olísdeildar karla gerð upp, Altis leikmaður umferðarinnar valinn ásamt skitu umferðarinnar. Farið yfir Meistaradeild Evrópu.
Breytingar á Ásvöllum og Arnar Birkir á línunni frá Svíþjóð 26.09.2023 1:04:36
Lokaleikur 3.umferðar gerður upp, hitað var upp fyrir 4.umferð Olís deildar karla, kíkt á hvað Strákarnir Okkar eru að gera í Evrópu, Olís deild kvenna gerð upp og Arnar Birkir á línunni frá Svíþjóð.
Þjálfurum sagt að halda kjafti og feðgar á ferð 23.09.2023 1:07:39
Uppgjörsþáttur eftir 3.umferðina - yfirferð yfir 2.umferðina í Meistaradeildinni og örskýrsla frá Nabblanum.
Óvæntar uppeldisbætur og Sigvaldi ræðir erfiða tíma í sumar 19.09.2023 56:47
Það styttist í 3.umferðina í Olís deild karla.
Árleg skita Eyjamanna, sá grænlenski mætti og hvar er Lalli? 15.09.2023 53:20
Sérfræðingurinn stóð fyrir sínu og klúðraði fyrri tökunum. Þessi þáttur var því beinskeittari fyrir vikið. 2.umferðin í Olís olli engum vonbrigðum.
Aron Pálmars féll á prófinu og Arnar Freyr ræðir Peking-vörnina 12.09.2023 58:19
Það er ekki tekið út með sældinni að vera tveir metrar - 118 kg og þurfa spila þrist varnarlega á 11 metrum. Í þættinum ræðir Arnar Freyr Arnarsson hvernig það var að spila Peking vörnina hans Gumma Gumm. með landsliðinu.
Svart og hvítt hjá Hafnarfjarðarliðunum og áhorfsmet sett í 1.umferð 09.09.2023 1:02:57
Þjóðaríþróttin er farin af stað og það með látum. Í lokþáttar gáfum við Nantes treyju frá Viktori Gísla til heppins hlustenda.
Upphitunarþáttur part 2 - Róbert Geir í símaviðtali 05.09.2023 1:21:16
Héldum áfram að hita upp fyrir veisluna sem framundan er í Olís-deild karla. Róbert Geir framkvæmdastjóri HSÍ var síðan spurður út í sjónvarpsmálin.
Upphitunarþáttur part 1 - frá austri til vesturs 31.08.2023 1:17:32
Þríeykið hitar upp fyrir Olís-deildina. Förum yfir sex lið í þættinum.
Handkastið snýr aftur 27.08.2023 1:00:00
Gleðifréttir fyrir alla sem þora. Þríeykið snýr aftur beittara sem aldrei fyrr.
Gamla góða heimilið - heimili þjóðaríþróttarinnar 26.08.2023 1:37
Verið velkomin á gamla góða heimili Handkastsins - heimili þjóðaríþróttarinnar. Við hlökkum til að vera með ykkur í allan vetur.
HM Handkastið - Bless bless! 24.01.2021 1:13:02
HM er lokið hjá íslenska landsliðinu. Sigrar gegn Alsír og Marokkó en síðan ekki söguna meir. Tómas Þór Þórðarson og Jóhann Skúli Jónsson fara yfir frammistöðu liðsins ásamt Sérfræðingnum og Snickers-inu. Af einhverri ástæðu fór mikill tími um að ræða Guðmund Þórð Guðmundsson. Útaf dotlu.
HM Handkastið x Steve Dagskrá 18.01.2021 1:30:52
HM Handkastið x Steve Dagskrá by Handkastið
HM Handkastið með Hjamma og King Ploder 14.01.2021 1:00:18
HM er farið af stað. Sérfræðingurinn og Snickers-ið fóru yfir fyrsta leik Íslands á mótinu gegn Portúgal með þeim Hjálmari Erni Jóhannssyni og Agli Ploder. Í lok þáttar drógum við út í Skruf-leiknum. Handkastið í samstarfi við Skruf verða með gjafaleiki á samfélagsmiðlum Handkastsins í kringum leiki Íslands á HM,
HM Handkastið - Upphitun fyrir enn eitt stórmótið 11.01.2021 1:17:10
HM í Egyptalandi hefst í vikunni. Sérfræðingurinn og Stymmi Snickers fengu þá Benedikt Grétarsson og Jóhann Gunnar Einarsson til sín og fóru yfir landsliðið stöðu fyrir stöðu og möguleika þess á mótinu. Auk þess kom Sérfræðingurinn með mola beint frá Frakklandi um einn af landsliðsstrákunum okkar sem og molunum rigndi inn úr Garðabænum. Þátturinn er í boði Skruf.
Viðhafnarútgáfa - Landsliðs og Olís umræða 05.11.2020 1:30:54
Uppáhalds þríeyki þjóðarinnar mætti í stúdíó-ið með grímur og sprittbrúsa að vopni. Allt fyrir ykkur, Bless´ykkur.
Félagsskiptaglugginn krufinn og ótímabær spá 24.05.2020 1:45:31
Í þættinum fórum við yfir félagsskiptagluggann, öllum liðum gerð góð skil og farið yfir ótímabæra spá. Gestur þáttarins var gamla kempan Andri Berg Haraldsson. Þátturinn er í boði BK-kjúklings.
Sérfræðingurinn í Olís - Viðtal við Adda Tedda og Nökkva Fjalar 09.04.2020 1:15:58
Þátturinn var smekksneisafullur þrátt fyrir að enginn handbolti sé spilaður þessa dagana. Við slógum á þráðinn til Arnars Freys Theodórssonar, umboðsmanns Íslands og fórum yfir landslagið í evrópskum handbolta. Við fórum yfir ákvörðun HSÍ um að slaufa tímabilinu. Slúðurmolarnir voru á sínum stað og Nökkvi Fjalar datt í óvænt spjall. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Uppgjöfsþáttur. 31.03.2020 1:51:32
Sérfræðingurinn, Ponzen og Snickers-ið settust niður og fóru yfir mál líðandi stundar í handboltanum. Á að slaufa handbolta tímabilinu hér heima eða bíða lengur með ákvörðun? Hvað á HSÍ að gera ef þeir þurfa að slaufa mótinu vegna Covid19? Við fengum álitsgjafa til að segja sína skoðun og síðan ræddum við málið ítarlega. Auk þess gerðum við upp Olís-deild karla, völdum úrvalslið deildarinnar, vonb...
Bikarþynnka er vandamál og hvar var Kári Garðars? 12.03.2020 1:26:49
20. umferðin í Olís-deild karla var rædd og steinum velt varðandi málefni líðandi stundar og áhrif Covid-19 á Íslandsmótið. HK er fallið og veltum við því fyrir okkur hvað verður um leikmannahóp liðsins. Þátturinn er í boði BK - Kjúklings.
Final4 uppgjör og upphitun fyrir Olís 08.03.2020 1:17:59
Final4 helgin er að baki og fórum við yfir bikarúrslitin bæði í karla og kvennaflokki. Jóhann Gunnar Einarsson er gestur þáttarins. Eins fórum við yfir stuðlabergið á Coolbet fyrir næstu umferð í Olís-deild karla en einungis þrjár umferðir eru eftir af deildinni og spennan fyrir úrslitakeppninni eykst með hverjum deginum. Við óskum bæði ÍBV og Fram til hamingju með bikarmeistaratitilinn. Þátturinn...
Finnur Ingi í legkökunudd, Raggi Jó á Selfoss og Prinsinn á línunni 24.02.2020 1:17:09
19. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þætti kvöldsins, slúðurmolarnir voru fjölmargir og Fjölnismenn voru kvaddir úr deildinni. Eyjamaðurinn, Benóný Friðriksson var í símaviðtali frá Eyjum þar sem hann fór yfir mál líðandi stundar. Við ræddum í lokin Final4 og Olís-deild kvenna. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.
Haukar orðnir bensínlausir og Nökkva Fjalars effect heldur áfram 17.02.2020 1:35:12
Farið var yfir 18.umferðina í Olís-deild karla með Ingvari Erni Ákasyni, Byssunni sjálfri. Rætt var um árangur Vals í Evrópu og stóra ferðakostnaðarmálið í tengslum við bikarleik Harðar og Þórs. Einnig ræddum við heimavöll Stjörnunnar í umferðinni, gamla góða Ásgarðinn. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Схожі подкасти
Replaio не є видавцем подкастів; назви шоу, обкладинки та аудіо належать їхнім авторам і поширюються через публічні RSS-канали