RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 871 avsnitt

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.ruv.is

Skapare

RÚV

Kategori

Arts

Poddens webbplats

www.ruv.is

Senaste avsnittet

8 okt 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

Birnir Jón Sigurðsson 15.01.2025

Birnir Jón Sigurðsson, sviðslistamaður og rithöfundur, segist ekki hafa átt sterkar fyrirmyndir á unga aldri. En hann dáist almennt að listafólki sem er áhugasamt, jákvætt, spennt og drífandi. Honum líður best í óvissunni, þegar það er ekkert handrit, og planar aldrei langt fram í tímann. Kannski þess vegna er hann svo hrifinn af samsköpun í leikhúsinu. Birnir hefur gefið út bækurnar Strá og Fugla...

Fermented Friendship, Ljósmyndahátíð Íslands og Veðrun 14.01.2025

Píanóleikarann Magnús Jóhann Ragnarsson og saxófónleikarann Óskar Guðjónsson þarf vart að kynna fyrir hlustendum. Leiðir þessara tveggja listamanna hafa legið saman í gegnum ólík verkefni en nú í vetur gáfu þeir saman út plötuna Fermented Friendship þar sem afrakstur samtals þeirra fær að njóta sín. Við heyrum af samstarfinu í þætti dagsins, og einnig vináttunni sem gerjaðist í sköpunarferlinu. Ei...

Tóma rýmið, Molly Drake og Kundera: Vesturlönd í gíslingu/rýni 13.01.2025

Í yfirgefnu bílaverkstæði við Skeljanes í Reykjavík hefur hópur sviðslistafólks komið sér fyrir með starfsemi undir yfirskriftinni Tóma rýmið. Þar hafa þau æfingaaðstöðu og rými til þess að prófa áfram og sýna verk á mismunandi stigum í undirbúningsferlinu. Hluti af starfsemi Tóma rýmisins felst í mánaðarlegum tilraunakvöldum, þar sem meðlimir hópsins bera á borð verk í vinnslu eða gera tilraunir...

Vínartónleikar, Áslaug Jónsdóttir og Yerma/rýni 09.01.2025

Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunk...

Ifigenía í Ásbrú, Unnar Örn í Óminnissafni, Moldin heit/rýni 07.01.2025

Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í...

Mörsugur, Augljós í Neskirkju, Köttur á heitu blikkþaki / rýni 06.01.2025

Við hefjum þáttinn á því að fara í kirkju. Augljós kallast sýning sem opnaði þann 8.desember í Neskirkju og stendur yfir fram til 20.janúar. Þar sýnir Þórdís Erla Zoega ljósaverk sem sækja innblástur í kirkjuglugga og vinnur með sjónrænar skynvillur sem hvetja áhorfandann til að líta inn á við. Við kynnum okkur einnig nýtt verk, Mörsugur, óperu fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggða á...

Víðsjá og Lestin líta yfir farinn veg og til framtíðar - Fyrri hluti 02.01.2025

Sameiginlegur þáttur Víðsjár og Lestarinnar í upphafi ársins 2025. Í þáttum dagsins höldum við úr húsi, förum inn í lágvöruverslunina Prís í Kópavogi, verslunarmiðstöðina Eiðistorg á Seltjarnarnesi, vöðum slabbið út í strætóskýli og tökum líka upp tólið og hringjum út á land: austur, vestur, norður og suður. Hvað var fólk í Prís að hugsa rétt eftir jólin og hvað finnst unglingum á Eiðistorgi um bæ...

Menningarárið 2024 30.12.2024

Víðsjá og Lest setjast niður í hljóðstofu og rifja upp árið 2024.

Jólalag ríkisútvarpsins 2024, Guðrún Hannesdóttir - Kallfæri, Sporðdrekar/rýni, Himintungl yfir heimsins ystu brún/rýni 19.12.2024

Í lok Víðsjár verður jólalag ríkisútvarpsins árið 2024 frumflutt, ásamt kynningu höfundar á laginu. Frá því í október hafa umfjallanir um bækur raðast inn í vikurnar í Víðsjá, eins og jólaskraut á tré. Bókarýnarnir okkar þrír hafa tínt upp úr jólakistlinum fjölbreyttar gjafir flóðsins og fært í samhengi og í dag veljum við úr kistlinum dýrindis gripi. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldsögu...

Bára Gísladóttir í Svipmynd, Flaumgosar / rýni 18.12.2024

Bára Gísladóttir tónskáld og kontrabassaleikari er fædd í Reykjavík árið 1989. Fjölskyldan fluttist í nokkur ár til Noregs þegar Bára var fimm ára og það var þar sem hún hóf nám á fiðlu. Hún segist þó aldrei hafa náð tengingu við fiðluna og það var ekki fyrr en hún kynntist kontrabassanum 17 ára gömul í Nýja Sjálandi að hún upplifði djúpa og sterka tengingu við hljóðfæri. Bára nam tónsmíðar við Li...

Rifsberjadalurinn, Tríó Esja, Friðsemd / rýni 17.12.2024

Ásdís Óladóttir samdi sitt fyrsta ljóð níu ára gömul en sýndi það ekki nokkurri manneskju. Hún tók upp þráðinn á ný átján ára gömul og byrjaði þá markvisst að skrifa. Ásdís var greind með geðklofa rúmlega tvítug og síðan þá hefur skáldskapurinn verið haldreipi hennar í lífinu. Hún hefur gefið út níu ljóðabækur og í þeirri nýjustu sem kallast Rifsberjadalurinn fjallar Ásdís í fyrsta sinn um þá lífs...

Æskuteikningar Alfreðs Flóka, Veður í Æðum og Þegar sannleikurinn sefur/rýni 16.12.2024

Ragnheiður Lárusdóttir steig fram á ritvöllinn 2020 með ljóðabókina 1900 og eitthvað og hlaut í kjölfarið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og tilnefningu til Maístjörnunnar. Þessi fyrsta ljóðabók hennar byggði á bernskuminningum að vestan, en sú næsta, Glerflísakliður, fjallaði meðal annars um veikindi móður Ragnheiðar og erfiðan skilnað. Í síðustu bók sinni, Kona/Spendýr sem kom út 2022 be...

Parabóla Finnboga Péturssonar, jól í 12 tónum, Kul / rýni, Innanríkið Alexíus /rýni 12.12.2024

Parabóla nefnist ný sýning eftir Finnboga Pétursson, myndlistarmann, sem opnuð var í Gerðarsafni í október. Tómas Ævar lagði leið sína í safnið og ræðir í þættinum við Finnboga. Við lítum einnig inn til Lárusar Jóhannessonar í 12 tónum og heyrum af jólatónlist. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Kul eftir Sunnu Dís Másdóttur en við hefjum þáttinn á rýni Sölva Halldórssonar í Innanríkið Alexíus ef...

Þórarinn Eldjárn - Svipmynd 11.12.2024

Þórarinn Eldjárn fæddist í Reykjavík árið 1949. Megnið af uppvaxtarárunum bjó hann í Þjóðminjasafninu, eða þar til að faðir hans, Kristján Eldjárn, varð forseti Íslands og fjölskyldan flutti á Bessastaði. Heimilislífið einkenndist af húmor og unun af skáldskap og bestu tilsvörin voru í bundnu máli. Þórarinn lærði bókmenntafræði og heimspeki í Lundi í Svíþjóð og segist kannski meðvitað hafa reynt a...

Auður Lóa Í rósrauðum bjarma, Múffa / rýni, jazzperlur í Múlanum 10.12.2024

Hakk og spagetti af blendnum tilfinningum, segir Auður Lóa Guðnadóttir um sýninguna Í rósrauðum bjarma / In watermelon sugar sem nú stendur yfir í gallerí Þulu í Marshallhúsinu. Auður Lóa sækir fanga víða þegar kemur að innblæstri, en í verkunum má sjá þekkt minni úr dægurmenningunni. Vinnuaðferðir hennar vísa í keramikhefð og það sem hefur löngum verið kallað kvennalist, og segist Auður Lóa að ei...

Gluggagallerí, Stargate og Leiðin í hundana 09.12.2024

Við höfum aðeins spilað og rætt um jólalög og jólatónlist, sem er sérstaklega til þess fallin að koma okkur í jólaskapið á aðventunni. Og við höfum vissulega rætt um bækur og hið svokallaða jólabókaflóð, þó þar séu fáar bækur sem beinlínis teljast jólasögur. En það leynist samt amk ein slík í flóðinu, norska skáldsagan Stargate, eftir Ingvild Rishøi. Sagan minnir um margt á eina þekktustu jólasögu...

Ásta Fanney til Feneyja 2026, Mikilvægt rusl /rýni, Nokkur jólaleg lög, leikhús í Helsinki 05.12.2024

Í gær var tilkynnt að Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær þar sem kampavín og kaka komu við sögu. Við ræðum við Ástu Fanneyju í þætti dagsins. Fyrir skömmu sendu GDRN og Magnús Jóhann frá sér sönglagaplötuna Nokkur jólaleg lög. Á plötunni flytja þau þekkt jólalög og vetrarlö...

Einar Falur Ingólfsson / Svipmynd 04.12.2024

Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari kom í heiminn árið 1966 í Keflavík. Hann fékk sína fyrstu almennilegu myndavél í fermingargjöf og var farinn að skrifa fréttir fyrir Morgunblaðið 15 ára gamall. Stuttu síðar hófst ferill Einars Fals við blaðið sem átti eftir að spanna 40 ár, sem blaðamaður, ljósmyndari og síðar myndstjóri. Meðfram störfum sínum á Morgunblaðinu hefur Einar Falur gefið út ljósmynda...

Rakarinn frá Sevilla, Snorri Ásmundsson, Eldri konur/rýni 03.12.2024

Í dag leggjum við leið okkar á rakarastofu í Reykjavík til þess að hitta þau Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, söngvara og forsprakka sviðslistahóspins Óðs, sem sem sýnir nú Rakarann frá Sevilla í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Við setjumst einnig niður við píanóið með Snorra Ásmundssyni, myndlistarmanni og besta píanóleikara heims og heyrum rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Eldri...

Jötnar hundvísir, Bókin bókauppboð, Móðurást: Draumþing/rýni, Magnea Guðmundsdóttir 02.12.2024

Heimildirnar sem við eigum um norræna goðafræði eru yfirleitt hliðhollar ásum, þeir eru fulltrúar þess ákjósanlega, skipaninni. Í þeirri tvíhyggju uppstillingu eru jötnarnir þá hálfgerð skrýmsli og það sem þeir standa fyrir jafnvel óæskilegt. En myndin er ekki svo einföld, því jötnar eru í raun vitrir, fjölkunnugir og ríkir. Ingunn Ásdísardóttir skoðar norrænu sagnirnar út frá sjónarhorni jötna í...

Lyssna på podden Víðsjá i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden