RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 1167 avsnitt

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.ruv.is

Skapare

RÚV

Kategori

Arts

Poddens webbplats

www.ruv.is

Senaste avsnittet

24 nov 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android 10 mn+ nedladdningar · betyg 4,7+ iOS snart

Avsnitt

Endalok svefns í Slökkvistöð, Atómstöðin, Lesbíur óskast/rýni 24.11.2026

Í Slökkvistöðinni í Gufunesi opnuðu Theresa Himmer og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir nýverið sýninguna Endalok svefns. Sýningin hefur verið tvö ár í vinnslu og er unnin sérstaklega inn í sýningarýmið sem starfrækt hefur verið undanfarin ár með sérstaka áherslu á verk eftir áhugafólk um arkitekúr og rýmislist. Þær Ingunn Fjóla og Theresa sýna þarna verk í ólíkum miðlum en byggja þau á sameiginlegu rann...

Jes Einar Þorsteinsson, Kartafla jólabók Blekfjelagsins, Haukur Þorgeirsson 23.11.2026

Hönnunarsafnið opnaði fyrr í mánuðinum sýningu á verkum arkitektsins Jes Einars Þorsteinssonar. Jes Einar nam arkitektúr í París á árunum 1954–1967 og það er óhætt að segja að höfundareinkenni hans séu sterk. Meðal þekktari verka hans eru Skeiðalaug og heilsugæslan og tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi. Við ræðum við sýningarstjórana Katrínu Heiðar og Hauk Hafliða Nínuson í þætti dagsins. Haukur Þo...

Fullkomnun (frh.), Hrafnkell Sigurðsson og Hjá Leyningsvötnum/rýni 19.11.2026

Þátturinn í gær var lagður undir eina bók: Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico í þýðingu Þóru Arnórsdóttur. Fullkomnun kom út á Ítaliu 2022 og hefur farið sigurför um heiminn síðan. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem eyðir mikilli orku í að gera umhverfi sitt fallegt og deila þeirri fegurð á samfélagsmiðlum. Þau Halla og Tómas fengu til sín þrjá góða gesti í gær til að ræða þessar bækur...

19.11.2026
Fullkomnun e. Vincenzo Latronico/ Svipmynd af bók 18.11.2026

Víðsjá hefur verið með hugann við bók síðustu daga: Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico sem kom fyrst út á Ítalíu 2022. Hún var tilnefnd til Booker-verðlauna í fyrra og kom nýverið út í íslenskri þýðingu Þóru Arnórsdóttur. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem leitar hamingjunnar í heimi sem hefur færst að miklu leyti yfir á internetið. Þau vinna á netinu og hafa komið sér fyrir í Berlín í...

Erla Þórarinsdóttir í Listval, Grettissaga, Natasha S. 17.11.2026

„Þetta er frá tímabili, miklu breytingaskeiði hvað varðar okkar heimsmynd. Og það hefur mikið slæðst inn hérna . Það er Gaza, Grindavík, kólóníalismi og terrorismi. Og bara plís lets talk about peace. Þetta slæðist inn á meðan maður er að teikna, en þegar ég er að teikna þá kem ég mér í ástand, bara einbeitingu,“ segir Erla Þórarinsdóttir sem opnaði nýverið sýninguna Enduróm í Listval. Þar sýnir h...

KOK sýningarstjórnun, Tom Waits, Enginn deyr í Ikea/rýni 16.11.2026

„Sýningarstjóri er aðili sem tekur þátt í því að miðla til áhorfenda og vera í þessu samneyti á milli listaverka, áhorfenda og listamanna. Sýningarstjórinn er ákveðin ljósmóðir, eða rökkurmóðir,“ segir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir um hlutverk sýningarstjórans, en hún ásamt þeim Becky Forsythe og Helenu Sólveigar Aðalsteinsbur eru KOK, kúratora kollektív sem vill efla samtal um stöðu sýningarstjó...

Ítalskir bíódagar, Brothætt og Þegar Trölli stal jólunum/rýni. 12.11.2026

Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá fjölbreyttri dagskrá helgarinnar í Víðsjá dagsins, sem lituð er ítölskum tónum. Þriðji og síðasti ritúalinn í verkaseríu Steinunnar Knúts, Brothætt fer fram í Dómkirkjunni í kvöld. Ritúalinn nefnist F...

Guðmundur Lúðvík hönnuður / Svipmynd 11.11.2026

Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka. Hann má ekki öskra; hér er ég og sjáið mig. Því ef það standa hundrað stólar í rými og allir eru að öskra og æpa þá verða svo mikil læti.“ Þetta segir Guðmundur Lúðvík sem var á dögunum tilnefndur til Hönnunarverðlau...

Jón Kalmann og gotneska. 10.11.2026

Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma sér fyrir í íbúð á Bræðraborgarstíg og bíður þar eftir komu pípara til að setja upp nýtt klósett en hún grípur líka niður í ævisögu Jesú Krists á mótunarárum sínum, rétt áður en hann gengur nánast fullskapaður inn á svið G...

Vísur Svantes, Fullkomnun og Dagar löngunar 09.11.2026

Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes, en þar er saga skáldsins sögð og vísum hans gerð skil í riti og söng. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi þýðir, spilar og stendur að útgáfunni, hann verður gestur Víðsjár í dag. Fullkomn...

Bedroom Community 20 ára, Elías Rúni um Fyrsta skiptið, Míkadó/rýni, 27/rýni 05.11.2026

Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum heims hafa komið og unnið að sinni tónlist, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Damon Albarn, Brian Eno og Kanye West. Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri kom hlj...

Guðjón Ketilsson, Högni Egilsson og Straumur 04.11.2026

Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki. Við hittum Guðjón í Ásmundarsal í þætti dagsins. Stórver...

Dauðadæmd, Natasha S., Varkár/rýni 03.11.2026

„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvast og höfuðið sett á stjaka. „...

Gerður Kristný, Páll Ragnar og Tui Hirv og Púðlusafnið 02.11.2026

Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem inniheldur blöndu af eistneskum, íslenskum, skandinavískum og enskum þjóðlögum, kom út á dögunum og Páll og Tui mættu í hljóðstofu til að segja frá samstarfinu, ferlinu og hvernig rætur þeirra úr pönki og kórastarfi birtast í...

Lyssna på podden Víðsjá i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden