RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 346 avsnitt

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.ruv.is

Skapare

RÚV

Kategori

News

Poddens webbplats

www.ruv.is

Senaste avsnittet

10 okt 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

67 | Réttað yfir Derek Chauvin og landamærabörnin í Bandaríkjunum 13.03.2021

Heimskviður staldra við í Bandaríkjunum þessa vikuna. Réttarhöldin yfir Derek Chauvin, lögregluþjóninum sem myrti George Floyd í maí í fyrra, hófust í vikunni. Guðmundur og Birta ræða um hvað gerðist í kjölfar morðsins á Floyd, Black Lives Matter, og sjálf réttarhöldin, í fyrri hluta þáttarins. Á síðasta ári hefur fylgdarlausum börnum, sem freista þess að komast yfir landamærin frá Mexíkó til Band...

66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell 06.03.2021

Í Heimskviðum vikunnar höldum við Tyrklands, Sádí-Arabíu og Lundúna. Tæp tvo og hálft ár eru síðan Sádí-arabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var myrtur í sendiráði Sádí-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Khashoggi hafði talað opinskátt fyrir opnara og gagnsærra stjórnkerfi í heimalandinu, og gagnrýnt krónprinsinn Mohammed bin Salman fyrir spillingu og mannréttindabrot. Prinsinn hefur ítrekað þvertek...

65 | Fótboltamót í skugga mannréttindabrota og verkefni Joe Bidens 27.02.2021

Í Heimskviðum vikunnar er meðal annars að fjalla um mannréttindabrot í Katar og helstu verkefni nýkjörins Bandaríkjaforseta, Joe Biden. Tæp tvö eru þar til heimsmeistaramót karla í fótbolta verður haldið í þessu smáríki á Arabíuskaganum. Íslendingar vonast til að vera þar meðal þátttökuþjóða, en undankeppni HM hefst í næsta mánuði þegar Íslendingar mæta Þjóðverjum ytra. Þetta er í fyrsta sinn sem...

64 | Dyatlov-leiðangurinn og lokun Guantanamo fangabúðanna 20.02.2021

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Rússlands og Kúbu, en fjöllum þó ekkert um sósíalisma. Ráðgátan um örlög níu ungra Rússa sem fundust látin í Úralfjöllum árið 1959 gæti verið ráðin. Vinnsla við eina þekktustu Disney mynd síðari tíma virðist hafa hjálpað til við að leysa þessa lífseigu ráðgátu. Þá leituðu rannsakendur sömuleiðis í gagnabanka þekkts bílaframleiðanda við uppljóstrun málsins. Birt...

63 | Mannréttindabrot í Téteníu og kjarnorkuver í Hvíta-Rússlandi 13.02.2021

Í síðasta þætti fjölluðum við um nágrannaríkin Mjanmar og Bangladesh. Í þættinum í dag ætlum við að dvelja í Austur-Evrópu. Við fjöllum um jafn ólíka hluti og kjarorku annars vegar og svo ofsóknir gegn samkynhneigðum hins vegar. Við byrjum í Téténíu. Mál tveggja tétenskra karlmanna komst í hámæli í vikunni, en þeir voru teknir höndum í Rússlandi þar sem þeir voru grunaðir um samkynhneigð, að er vi...

62 | Valdarán í Mjanmar og spilling í Bangladess 06.02.2021

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Bangladess og Mjanmar, nágrannaríkja sem eiga sér ólíka sögu. Og sögur vikunnar frá þessum ríkjum eru einnig ólíkar. Við greinum frá nýlegri uppljóstrun Al-Jazeera fréttastofunnar, sem leiddi í ljós samvinnu glæpasamtaka við öryggissveitir ríkisins í Bangladess. Aðalleikarar þessa sögu eru auk forsætisráðherra landsins fjórir bræður, sem eru ýmist hátt settir e...

61 | Bobi Wine, fjölmiðlar, og Covid-19 gagnagrunnur 30.01.2021

Í Heimskviðum vikunnar er fjallað um forsetakosningarnar í Úganda, sem fram fóru 14. janúar síðastliðinn. Tónlistarmaðurinn Bobi Wine hlaut einungis 38% atkvæða og því heldur forsetinn Yoweri Musveni velli, en hann hefur setið á forsetastóli síðastliðin 35 ár. Bobi Wine hef véfengt niðurstöður kosninganna og það hafa alþjóðleg mannréttindasamtök gert líka. Guðmundur Björn segir frá. Care Internati...

60 |Stormasamar vikur í Bandaríkjunum og réttað yfir mafíósum á Ítalíu 23.01.2021

Í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar Heimskviða er atburðarrás síðustu vikna í Bandaríkjunum í forgrunni. Símtalið í Georgíuríki, árásin á þinghúsið og nýr Bandaríkjaforseti. Já, vika, eða nokkrar, eru sannarlega langur tími í pólitík. Þá er einnig fjallað um ein umfangsmestu réttarhöldum í sögu Ítalíu. Það þarf að fara áratugi aftur í tímann til að finna hliðstæðu í umfangi. Sakborningarnir eru á fjó...

59 | Lokaþáttur: Stóri gagnalekinn og kynlífshneyksli þingmanns 18.12.2020

Í fimmtugasta og níunda og síðasta þætti Heimskviða fjöllum við meðal annars um aðför ungverskra stjórnvalda að fjölmiðlafrelsi og Evrópuþingmanninn sem sótti kynlífspartý með öðrum karlmönnum á meðan hann freistar þess að takmarka réttindi hinsegin fólks. Þá segjum við frá raunverulegum möguleikum þess stóra gagnalekans, áhyggjur sem mörg viðruðu eftir að þjónusta Facebook og Google bilaði á dögu...

58 | Njósnaskandall í Bretlandi og fá fátækustu ríkin bóluefni? 11.12.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um eina flóknustu og dýrustu opinberu rannsókn í sögu Bretlands, um stöðu fátækustu ríkja heims þegar bóluefni gegn Covid 19 eru annars vegar og um framtíð orkugjafa nú þegar reynt er að draga úr brennslu kola. Þegar upp komst að breski umhverfisaðgerðasinninn Mark Stone væri í raun leynilögreglumaðurinn Mark Kennedy óraði fáa fyrir því að uppgötvunin myndi leiða af...

57 | Minnkaklúðrið, norðurslóðir og Fairytale of New York 04.12.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um framtíð samstarfs á Norðurslóðum og áhrif kórónuveirufaraldursins á þau sem þar búa, um framtíð loðdýraræktar og svo segjum við frá sögu jólalagsins sem nú er búið að ritskoða fyrir eina af útvarpsrásum BBC. Loftslagsbreytingum hefur fylgt vaxandi áhugi á málefnum Norðurslóða, en Ísland er nú í forystu þeirra ríkja sem vinna saman á svæðinu þar sem Bandaríkin og R...

56 | Átökin í Tigray, yfirgefin Palestína og var Maradona guðlegur? 27.11.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um hálfguðinn Diego Armando Maradona, sem lést í vikunni, um framtíðarhorfur í Palestínu og átök í Tigray héraði í Eþíópíu. Einn dáðasti knattspyrnumaður sögunnar, Diego Armando Maradona, lést á miðvikudag, sextugur að aldri. Guðmundur Björn Þorbjörnsson fjallar um skrautlegan æviferil Maradona með aðstoð Helga Hrafns Guðmundssonar, sagnfræðings, sem bjó lengi í Arge...

55 | Nagorno-Karabakh, norræn krísa og bjargvætturinn Dolly Parton 20.11.2020

Í Heimskviðum í dag verður fjallað um aðdraganda ástandsins í Nagorno-Karabakh héraði, um bresti í norrænu samstarfi á tímum kórónuveirunnar og gleðigjafann Dolly Parton og hlutverk hennar í þróun bóluefnis gegn kórónuveirunni. Nagorno-Karabakh, lítið hérað í Suður-Kákasusfjöllunum, hefur verið bitbein Armeníu og Aserbaísjan áratugum saman. Nýlega kom til harðra átaka þar, sem endaði með friðarsam...

46 | Brexit, #MeToo og Julian Assange 18.09.2020

Í Heimskviðum í dag erfjallað um næsta kafla í sögunni endalausu, úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, Julian Assange og #MeToo í Danmörku. Brexit-sagan endalausa tók á sig nýja mynd í síðustu viku þegar Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands lagði fram nýtt frumvarp, sem brýtur í bága við alþjóðalög og útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Margir hafa brugðist ókvæða við, þar á meðal Evrópusa...

45 | Leitin að bóluefni, Navalny og Tyrkland Erdogans 11.09.2020

Í Heimskviðum í dag segjum við frá kapphlaupinu að bóluefni gegn Covid-19, kynnum okkur stöðuna í Rússlandi í aðdraganda héraðskosninga þar um helgina, og segjum frá ferli eins þekktasta stjórnarandstæðings landsins, Navalny. Þá segjum við frá mannréttindum í Tyrklandi í sögulegu samhengi. Heimsmet í bóluefnaframleiðslu er handan við hornið en þúsundir vísindamanna keppast nú um að verða fyrstir t...

44 | Öryggi fréttamanna, hin pólitíska NBA deild og Hvíta-Rússland 04.09.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um öryggi blaðamanna í heiminum, sem víða er verulega ábótavant og segjum frá samblandi íþrótta og aktívsima eftir að leikmenn NBA neituðu að spila leiki á dögunum í mótmælaskyni vegna kynþáttamisréttis í Bandaríkjunum. Og svo fáum við nýjustu fréttir frá ástandinu í Hvíta-Rússlandi. Í vikunni hófust í París réttarhöld yfir mönnum sem sakaðir eru um aðild að skotárás...

43 | #FreeBritney, sýn Repúblikana og sjálfsvíg á Grænlandi 28.08.2020

Í þriðja þætti haustsins er fjallað um sjálfsvíg ungs fólks á Grænlandi, sýn Repúblikana á Donald Trump og um hreyfinguna FreeBritney, sem er mönnuð stuðningsfólki tónlistarkonunnar Britney Spears. Er Britney Spears fangi föður síns? Þessu trúa þau sem fylgja #FreeBritney-hreyfingunni. Í tólf ár hefur þessi heimsfræga tónlistarkona, sem er oft kölluð prinsessa poppsins, ekki haft yfirráð yfir fjár...

42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan 21.08.2020

Í öðrum þætti haustins er fjallað um flóttann yfir Ermasundið. Þúsundir flóttamanna hafa það sem af er ári farið frá Frakklandi til Bretlands yfir Ermasundið á misgóðum bátum, rétt eins og gerðist við Miðjarðarhaf fyrir fimm árum, til að óska eftir hæli í Bretlandi. Þegar hefur orðið eitt dauðsfall af þessum sökum. Stjórnmálamenn kenna glæpagengjum og öðrum stjórnmálamönnum um, en hjálparstofnanir...

41| Trump í vanda, æfir Hvítrússar og framtíð Líbanon 14.08.2020

Í fyrsta þætti annarrar þáttaráðar Heimskviða er komið við í Bandaríkjunum, Hvíta-Rússlandi og Líbanon. „Donald Trump og Repúblikanaflokkurinn eru í miklum vandræðum,“ segir stjórnmálaprófessorinn James Thurber, í viðtali við Bjarna pétur Jónsson. Thurber segir sömuleiðis að fyrirhugaðar forsetakosningar í Bandaríkjunum verði mikil prófraun fyrir lýðræðið þar í landi. Svo gæti farið að eftir 80 da...

Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd 07.08.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í áttunda og síðasta sumarþættinum er Mið-Austurlönd. Fjallað er um dauða Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, eða ISIS. Samtökin eru ekki svipur hjá sjón í dag miðað við það sem áður var. Langur vegur er þó frá því a...

Sumarútgáfa: Deilur og átök 31.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjöunda sumarþættinum eru deilur og átök. Fjallað er umdeilda friðaráætlun Bandaríkjastjórnar og Ísraelsstjórnar fyrir Palestínu, af hverju svo margir Bandaríkjamenn falli ár hvert í skotárásum, og nýja heimastjórn á Norður-Írlandi. Heimskviður er fréttaskýringaþá...

Sumarútgáfa: Suður-Ameríka 24.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjötta sumarþættinum er Suður-Ameríka. Fjallað er um þá vaxandi óánægju sem gætir meðal almennings út í ríkjandi stjórnvöld víða í álfunni, morðið á argentíska saksóknaranum Alberto Nisman, og bræðraþjóðirnar Kólumbíu og Venesúela. Heimskviður er fréttaskýringaþát...

Sumarútgáfa: Spilling 17.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fimmta sumarþættinum er spilling. Fjallað er um spillingu í Suður-Afríku, Líbanon og morð á virtum blaðamanni á Möltu. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þátt...

Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál 10.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fjórða sumarþættinum er glæpir og sakamál. Fjallað verður um morðið á Olof Palme, servéttu sem varð morðingja að falli í Bandaríkjunum, hvarf Önnu Elisabeth Hagen og almennan áhuga fólks á sakamálum. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og l...

Sumarútgáfa: Skemmtanaiðnaðurinn 03.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er skemmtanaiðnaðurinn. Óskarsverðlaunin veitt 9.febrúar, í 92. sinn. Það er ekki ósennilegt að stór hluti þjóðarinnar verði óútsofinn í vinnu og skóla á mánudag, þau sem vilja fylgjast með því hvort Hildur Guðnadóttir bæti ekki síðustu og stær...

Lyssna på podden Heimskviður i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden