RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 346 avsnitt

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.ruv.is

Skapare

RÚV

Kategori

News

Poddens webbplats

www.ruv.is

Senaste avsnittet

10 okt 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

91 | Ár frá árásinni á þinghúsið. Hvað svo? 08.01.2022

Fyrir ári sínu ruddu dundruðir stuðingsmanna Donalds Trump sér leið inn í þinghúsið í Washington D.C. þar sem þau freistuðu þess að koma í veg fyrir að öldungadeildin staðfesti kjör Joe Bidens til Bandaríkjaforseta. Síðan hefur liðið heilt ár, en eftirköst þessara atburða marka djúp spor í bandarísku samfélagi, atburða sem hefðu þótt óhugsandi að gætu gerst. Donald Trump þáverandi forseti var í kj...

90 | Svíþjóðardemókratar, Tikhanovsky og arfleið Angelu Merkel 18.12.2021

Eftir áratugi úti í kuldanum, virðist stjórnmálaflokkurinn Svíþjóðardemókratarnir nú smám saman vera að komast inn í hlýjuna í sænskum stjórnmálum. Flokkurinn, sem lengst af hafði nær ekkert mælanlegt fylgi, mælist nú ýmist annar eða þriðji stærsti flokkur landisins. Aðrir flokkar hunsuðu Svíþjóðardemókratana lengi, þar sem flokksmenn voru sakaðir um útlendingaandúð, jafnvel rasisma og hægriöfgast...

89 | Havana-heilkennið og tyrkneska lýran í frjálsu falli 11.12.2021

Havana heilkennið eru veikindi sem fyrst varð vart árið 2016. Ólikt flestum öðrum sjúkdómum virðast veikindin fara í manngreiningarálit. Um 200 tilkynningar um veikindin hafa borist bandarískum yfirvöldum. Um helmingur þess hóps eru starfsmenn leyniþjónustu Bandarikjanna og fjölskyldur þeirra, hinn helmingurinn dreifist jafnt á milli starfsmanna varnarmálaráðuneytis og utanríkisráðnuneytis Bandarí...

88 | Frystar eignir Afgana og ferðalag Sómalíu til lýðræðis 04.12.2021

Hryðjuverkin 11. september árið 2001 breyttu sannarlega heimsmyndinni og nú 20 árum síðar eru eftirmálar þeirra enn í fréttum. Fyrir utan ástandið í Afganistan eftir að bandaríkjaher yfirgaf landið og Talíbanar tóku völd er líka margt ennþá óuppgert í Bandaríkjunum. Ættingjar fórnarlamba hryðjuverkanna höfðuðu skaðabótamál fyrir 20 árum sem hafa ekki verið útkljáð. Um 150 ættingjar krefjast þess n...

87 | Grænlensku tilraunabörnin og hvar er Peng Shuai? 27.11.2021

Við hefjum Heimskviður í dag í Kína. Kínverska tennisstjarnan Peng Shuai greindi frá því í upphafi mánaðar að hátt settur kínverskur ráðamaður og fyrrum varaforseti landsins, hefði brotið á henni kynferðislega. Peng greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Weibo, og einungis 30 mínútum síðar var færsla hennar horfin. Ekkert spurðist til Peng svo vikum skipti. Í fyrri hluta þáttarins er rætt við Öldu...

86 | Þingmaður sem öllu ræður, ráðist á fótboltakonu, konur í myndlist 20.11.2021

Hver hefur raunverulega völdin í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum? Þó að Joe Biden sé forseti hefur einn af flokksbræðrum hans í öldungadeildinni, Joe Manchin, verið ötull við að nýta sér þann nauma meirihluta sem Demókratar hafa þar til að knýja fram ýmsar breytingar á málum sem forsetinn hefur lagt fyrir þingið - og jafnvel stoppa þau. Eitt af þeim eru miklar umbætur í loftslagsmálum sem núna virðas...

85 | Göngutúr í Addis Ababa og sár í norrænu samstarfi 13.11.2021

Þann 3. nóvember í fyrra brutust út átök á milli stjórnarhersins í Eþíópíu og frelsishers Tigray, TPLF, í Tigray héraði. Átökin hafa því staðið í heilt ár. Þúsundir hafa látið lífið í átökum síðastliðin árs og yfir tvær milljónir hrakist fráa heimilum sínum, hluti íbúa landsins glímir nú við mikla hungursneyð. Á þessu ári sem hefur liðið frá því átökin hófust hafa fregnir borist af hræðilegum mann...

84 | Assange, Kína og American Pie 06.11.2021

Við hefjum Heimskviður á umfjöllun um réttarhöldin yfir Julian Assange, stofnanda Wikileaks, en þau héldu áfram í síðustu viku á millidómstigi í Bretlandi. Bandarísk stjórnvöld freista þess að fá Assange framseldan. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, blaðamaður, var viðstaddur réttarhöldin. Frá Bretlandi höldum við til Bandaríkjanna. Lagið American Pie eftir Don McLean, varð 50 ára á dögunum. Lagi...

83 | Sviptingar í Súdan, Gop26 og útför Elísabetar Englandsdrottningar 30.10.2021

Súdanski herinn tók völdin í þessu stríshjráða Afríkuríku á sunndag, og tóku nokkra stjórnarliða höndum, þar á meðal forsætisráðherran Abdalla Hamdok, sem nú hefur verið sleppt. Stjórnskipanin í Súdan er nokkuð ólík því sem við eigum að venjast, en þar hafa herinn og fulltrúar almennra borgara deilt völdum síðastliðin tvö ár - og áttu að gera það fram að kosningum á næsta ári. Nú er allt önnur sta...

82 | Drónaárásir Bandaríkjahers og arfleið Colins Powell 23.10.2021

Stríðið gegn hryðjuverkum sem George W. Bush lýsti yfir í kjölfar hryðjuverkaárásanna þann 11. september 2001 hefur gengið forseta á milli alla tíð síðan. Drónahernaður hefur gegnt lykilhlutverki í því stríði. Hundruð almennra borgara hafa verið drepin í drónaárásum Bandaríkjahers, árásum sem herinn hefur oft reynt að afneita þar til rannsóknarblaðamenn hafa leitt sannleikann í ljós. Ólöf Ragnarsd...

81 | Christina Lamb og vafasöm kaup Sáda á Newcastle United 16.10.2021

Þrátt fyrir að kynferðisofbeldi sé beitt í nær öllum hernaðarátökum hafa sárafáir dómar fallið fyrir slíka glæpi. Christina Lamb, yfirmaður erlendra frétta hjá The Sunday Times, hefur ferðast um allan heim og heyrt frásagnir þessara kvenna. Hún segir að lítið sem ekkert breytist í þessum efnum fyrr en stjórnvöld um allan heim láti sig málið varða, hingað til virðist þó alltaf eitthvað annað þykja...

80 | Rodrigo Duterte og blóðsýni Elizabeth Holmes 09.10.2021

Í þessum þætti er fjallað um komandi baráttu um forsetastólinn á Filippseyjum og manninn sem ætlar að láta af embættinu eftir sex ára skrautlega valdatíð. Rodrigo Roa Duterte fæddist í mars árið 1945 í borginni Maasin á eyjunni Suður-Leite, einni af þeirri ríflega sjö þúsund og sex hundruð eyjum sem teljast til Filippseyja. Hann hefur verið forseti landsins í fimm ár af þeim sex sem kjörtímabil í...

79 | Kúbverjar vilja breytingar og er hetjan frá Rúanda skúrkur? 02.10.2021

Í upphafsþætti haustsins höldum við Kúbu og Rúanda. Þann ellefta júlí síðastliðinn braust út röð mótmæla á eyjunni Kúbu, en þar eru mótmæli almennings gegn stjórnvöldum fátið. Frá árinu 1959 hafa kommúnistar verið við völd á Kúbu og hvers kyns andóf gegn stjórnvöldum kyrfilega barið niður. Kúba er eins og tímavél, fátt hefur breyst eftir að þeir Fidel Castro og Che Geuvara komstu valda eftir bylti...

78 | G7, Rússland, Bandaríkin og litið um öxl 12.06.2021

Í lokaþætti þessa misseris af Heimskviðum förum við um víðan völl. Í fyrri hluta þáttarins tekur Bogi Ágústsson til máls. Joe Biden Bandaríkjaforseti fór í vikunni í fyrstu utanlandsferð sína frá því að hann tók við embætti í janúar. Hann situr fund leiðtoga G7-ríkjanna á Englandi um helgina. G7-ríkin eru stærstu efnahagsveldi heims í hinum svokallaða vestræna heimi, Rússum var hent út úr þessum f...

77 | Eitthvað er rotið í Danaveldi og endalok Netanyahus 05.06.2021

Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Danmerkur og Ísraels. Það eru ekki bara minnkar sem rotna í Danaveldi, ó nei; það er fleira rotið í Danaveldi. Á sunnudagskvöld fyrir viku greindi danska ríkisútvarpið frá því að leyniþjónusta danska hersins, Forsvartes Efterretningstjeneste eða FE, hefði aðstoðað þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, við njósnir á háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í...

76 | Framtíð Afganistan og lífseig metsölubók 29.05.2021

Í fyrri hluta Heimskviða verður rætt við Brynju Huld Óskarsdóttur, öryggis- og varnarmálafræðing um framtíð Afganistan, en í september næstkomandi verður herlið Bandaríkjanna og NATÓ að fullu horfið frá þessu stríðshrjáða landi, eftir 20 ára viðveru. Margir Afganar óttast að Talíbanir eflist við brotthvarf herliðsins eru þegar farin að flýja land. Ein af mest seldu skáldsögunum í Bretlandi í síðus...

75 | Blinken, Jón Ormur og vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs 22.05.2021

Heimskviður vikunnar eru undirlagðar af fréttum frá Ísrael og Palestínu, en samningar um vopnahlé náðust í vikunni eftir 10 daga af hörðum átökum. Birta ræðir við Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um hvernig Bandaríkin hyggjast beita sér fyrir friði við botn Miðjararhafs. Í síðari hluta þáttarins ræðir Guðmundur Björn við Jón Orm Halldórsson, stjórnmálafræðing og sérfræðingum málef...

Sagan endalausa í Palestínu og Ísrael, og pólitískar hliðar Eurovision 15.05.2021

Það liggur mis beint við hvað við veljum til umfjöllunar í þessum vikulega þætti. En í þessari viku var valið ekki mjög erfitt, eftir stöðugar fréttir frá Palstínu og Ísrael þar sem staðan er síst að batna vildum við beina kastljósinu þangað. Og þá erum við svo heppin að vinna með konu sem er sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda. Hún er góðkunningi þáttarins svo ekki sé meira sagt, og heitir Ól...

73 | Óeirðir í Kólumbíu og ástarsambönd við fanga 08.05.2021

Í Heimskviðum vikunnar höldum við Kólumbíu og Danmerkur. Gríðarleg mótmæli hafa geysað í Kólumbíu síðustu daga og tugir látist í átökum við lögreglu og herinn. Uppspretta mótmælanna eru umdeildar breytingar á skattalöggjöf og heilbrigðiskerfi landsins. Forseti landsins, Ivan Duque, hefur dregið lagafrumvörpin til baka, en skaðinn er skeður og ekkert lát virðist á mótmælaöldunni sem teygir sig út a...

73 | Fyrstu 100 dagar Bidens og þjóðarmorðið á Armenum 01.05.2021

Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Tyrklands, Armeníu og Bandaríkjanna. Joe Biden Bandaríkjaforseti er fyrirferðamikill í Heimskviðum þessa vikuna. Síðustu vikuna hafa verið skrifaðar ófáar fréttir af því að títtnefndur Biden, breytti orðalagi forvera sinna í starfi og kalla framgöngu Tyrkja gegn Armenum árið 1915 þjóðarmorð. Á laugardaginn kom boðuð yfirlýsing frá Bandaríkjaforseta þar sem seg...

72 | Chauvin dæmdur og Rússland Pútíns 24.04.2021

Í Heimskviðum þessa vikuna höldum við til Bandaríkjanna og Rússlands. Eitt stærsta fréttamál vikunnnar er án efa dómurinn sem féll yfir fyrrverandi lögreglumanninum Derek Chauvin á þriðjudag, sem myrti George Floyd í maí síðastliðnum. Tólf manna kviðdómur úrskurðaði Chauvin sekan í öllum þremur ákæruatriðunum. Ákæruatriðin voru þrjú, annarar gráðu morð, morð af þriðju gráðu og svo manndráp. Stöldr...

71 | Skuggahliðar Amazon og skuldasöfnun Afríku 17.04.2021

Í Heimskviðum vikunnar fjöllum við um tæknirisann Amazon og hin ýmsu vandamál sem steðja að ríkjum Afríku, þá sér í lagi Kenýa. Jeff Bezos ætlar síðar á þessu ári að hætta sem forstjóri bandaríska bók- og tæknirisans Amazon. Hann verður þó áfram stjórnarformaður fyrirtækisins, en Bezos hefur hagnast gríðarlega síðustu tvo áratugi og er í dag ríkasti maður heims. Stafsmenn Amazon eru 750 þúsund. St...

70 | Boko Haram sækir í sig veðrið og 27 ár án Kurt Cobain 10.04.2021

Í Heimskviðum þessa vikuna fjöllum við um hrðyjuverk, og tónlist. Að minnsta kosti áttatíu saklausir borgarar hafa verið myrtir af íslömsku hryðjuverkasamtökunum Boko Haram í norðurhluta Kamerún síðan í desember á síðasta ári. Samtökin komust í heimsfréttirnar fyrir nokkrum árum þegar liðsmenn þeirra rændu tæplega þrjúhundruð skólastúlkum í Chibok héraði í Nígeríu í apríl 2014. Frá 2013 hafa yfir...

69 | Stíflaður Suesskurður og Grænlendingar að kjörborðinu 27.03.2021

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Egyptalands og Grænlands. Við byrjum í Súes-skurðinum, þar sem flennistórt flutningaskip strandaði í vikunni. Það er umtalsvert vesen, sérstaklega ef það dregst eitthvað á langinn að losa skipið. Við fjöllum um sögu Súes-skurðsins og mikilvægi hans. Grænlendingar ganga að kjörborðinu þriðjudaginn eftir páska. Boðað var til kosninga þó að kjörtímabilið renni ekk...

68 | Áratugur af stríði í Sýrlandi og March 4 Justice 20.03.2021

Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Ástralíu og Sýrlands. Fjölmenn mótmæli fóru fram í Ástralíu og á Bretlandi fyrr í vikunni. Þó að sitthvort málið hafi verið mótmælendum innblástur þá eiga þau það sameiginlegt að snúast um ofbeldi gegn konum. réttlæti. Í um 40 borgum vítt og breitt um hina víðfemu Ástralíu komu konur saman og tóku þátt í hinni boðuðu samstöðu. Kveikjan nú eru tvö mál sem mikið...

Lyssna på podden Heimskviður i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden