Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: fotbolti.net
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
Hugarburðarbolti GW 20 Er Brian Mbeumo sonur Bob Marley? 07.01.2025
2-2 jafntefli í veislu á Anfield hjá erkifjendunum Liverpool og Man Utd. Brian Mbeumo með sýningu á St. Mary's. Brighton náði í stig gegn Arsenal í annað skiptið í vetur. Ipswich náði í stig gegn Fulham á Craven Cottage. Aston Villa lönduðu þremur punktum gegn nýliðum Leicester á heimavelli. Matz Sels er stigahæsti markvörðurinn í fantasy og ekki að ástæðulausu.
Enski boltinn - Alvöru slagur þegar erkifjendur mættust 06.01.2025
Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United áttust við í ensku úrvalsdeildinni í gær og enduðu leikar með jafntefli í fjörugum leik. Það má svo sannarlega telja þetta til óvæntra úrslita þar sem flestir bjuggust nú við öruggum sigri Liverpool. Drummerinn sjálfur, Jóhann D Bianco, var ekki einn þeirra en hann er mikill stuðningsmaður Manchester United og hafði trú á sínum mönnum fyrir leikinn. Jo...
Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra og enska hringborðið 04.01.2025
Elvar Geir og Tómas Þór í fyrsta þætti ársins 2025. Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina afhjúpuð og farið yfir fréttir úr íslenska boltanum. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins í enska boltanum velur sérstakt úrvalslið og hitar upp fyrir viðureign Liverpool og Manchester United.
Hugarburðarbolti GW 19 Versta byrjun nýs stjóra Man Utd í 103 ár! 02.01.2025
Liverpool svífa hátt á toppi deildarinnar! Þeir kjöldrógu Hamrana á útivelli. Ipswich unnu fyrsta heimasigur sinn í úrvalsdeildinni síðan 2004 þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Chelsea 2-0. Öskubusku ævintýri Notthingham Forest ætlar engan endi að taka. Morgan Rogers heldur áfram góðri spilamennsku og þakkar fantasy spilurum traustið. Tottenham og Man Utd halda áfram að vera í v...
Enski boltinn - Man Utd gælir við falldrauginn eftir vonlaus jól 02.01.2025
Gleðilegt nýtt ár! Enski boltinn var á fleygiferð í kringum jólahátíðina en í þessum þætti er farið yfir það helsta. Manchester United er mikið á milli tannana á fólki þessa dagana en falldraugurinn gælir við liðið. Það er aðeins sjö stig í fallsvæðið eftir þrjá tapleiki í röð. Liðið er hreint út sagt ömurlegt og það er dimmt yfir Old Trafford. Liverpool er sem fyrr á toppnum, Arsenal átti góð jól...
Útvarpsþátturinn - Kæfan 2024 28.12.2024
Gleðin er við völd í Kæfunni þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni í síðasta þætti ársins frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestur þáttarins er hinn þrælskemmtilegi og öflugi markvörður Jökull Andrésson. Einnig kemur Breki Logason í heimsókn og Tómas Meyer er á línunni.
Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Víkingur vs FH 25.12.2024
Þetta er lokaþáttur 8 liða úrslitana og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti FH og Víking. Fyrir FH keppti Böðvar Böðvarsson en fyrir Víking keppti Davíð Örn Atlason.
Tveggja Turna Tal - Óli Jóh & Sigurbjörn Hreiðars 25.12.2024
Jólaspjall Tveggja Turna Tals var við tvo af skemmtilegri mönnum Íslands og þótt víðar væri leitað. Óli Jóh og Bjössi Hreiðars gáfu sér tíma í jóla amstrinu og fóru yfir allt sviðið. Það bar ekki á miklu jólastressi á þeim félögum. Það var ekki rædd vitleysan í stúdíó í þetta skiptið - allavega ekki allan tímann. Þeir félagar ræddu hvað er gaman við þjálfun, hvað traust skiptir miklu máli þeg...
Tveggja Turna Tal - Kári Ársælsson 23.12.2024
Kári Ársælsson er fyrsti fyrirliði Breiðabliks til að lyfta Íslands og Bikarmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í fótbolta. Það gerði hann á lágmarkslaunum! Kári var 16 ára keyptur af Ásgeiri Elíassyni í Þrótt þar sem hann sat stundum á bekknum þegar Þróttarar féllu úr efstu deild eftir að hafa verið efstir eftir fyrri umferðina. Hann stundaði nám í Alabama í Bandaríkjunum og er þekktur "trash...
Enski boltinn - Björn Bragi gestur og svört jól í Manchester 22.12.2024
Síðustu leikirnir fyrir jól í ensku úrvalsdeildinni voru leiknir núna um helgina. Síðasti leikurinn var stórslagur Tottenham og Liverpool sem endaði með mikilli markasúpu. Það verða svört jól í Manchester þar sem bæði City og United eru í slæmum málum. Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Björn Bragi Arnarsson er sérstakur gestur þáttarins en hann hefur verið að gera virkilega skemmtilega hluti að unda...
Hugarburðarbolti GW 17 Liverpool á toppnum um jólin! Er Pep ráðalaus? 22.12.2024
Össi Árna mætti sem gestur í þáttinn. Manchester liðin halda áfram að tapa leikjum. Allt galopið á Tottenham Hotspur Stadium. Liverpool á toppnum yfir jólin. Nottingham Forest liðar áfram á góðu róli í 4.sæti deildarinnar. Sigur í fyrsta leik Vitor Perreira með Úlfana á King Power. Og Alexander Isak sökkti nýliðum Ipswich með snyrtilegri þrennu á Portman Road.
Útvarpsþátturinn - Ari Sigurpáls, Gísli Gotti og landsliðsþjálfaraleit 21.12.2024
Jólaþáttur Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. desember. Gestir eru svo Ari Sigurpálsson og Gísli Gottskálk Þórðarson, hinir ungu leikmenn Víkings. Fjallað er um Evrópuævintýri Víkinga sem ætlar engan enda að taka og rætt við þá um tímabilið, framtíðina, lífið utan vallar, enska boltann og fleira. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal landsliðsþjálfaraleitina. Hver er núna líklegastur til a...
Tveggja Turna Tal - Grétar Sigfinnur Sigurðarson 19.12.2024
Grétar Sigfinnur Sigurðarson er margfaldur Íslands og bikarmeistari í fótbolta. Vinir hans nefna hann þann vanmetna því hann er raðsigurvegari sem þó hefur ekki alltaf fengið það hrós sem hann á skilið. Við fórum yfir ferilinn, Grétar sagði sögur af mönnum og málefnum auk þess sem hann lýsir einstöku hugarfariþGrétar þurfti að fara krókaleið til að komast í KR-liðið, upplifði mikla höfnum þar en e...
Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Fylkir vs Fótbolti.net 18.12.2024
8 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fylki og Fótbolti.net. Fyrir Fylki keppti Ragnar Bragi Sveinsson en fyrir Fótbolti.net keppti Stefán Marteinn Ólafsson.
Hugarburðarbolti GW 16 Er Amad Diallo næsta ofurstjarna Man Utd? 17.12.2024
Amad Diallo kláraði Man City í borgarslagnum á Etihad. Chelsea setur pressu á Liverpool þar sem Fulham náði í sterkt stig á Anfield. Arsenal ráðalausir gegn Everton á heimavelli. Crystal Palace fyrstir til að leggja Brighton í Brighton. Bæði Gary O'neil og Russel Martin voru reknir um helgina.
Enski boltinn - Ótrúlegt hrun Man City, óskarsverðlaunadýfa og tveir reknir 16.12.2024
Það var nóg um að ræða eftir leiki helgarinnar í enska boltanum. Ótrúlegt hrun Manchester City hélt áfram er þeir töpuðu gegn nágrönnunum í United í gær, Arsenal og Liverpool töpuðu stigum á meðan Chelsea heldur áfram að vinna. Þá voru tveir stjórar reknir. Jón Kaldal og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin ásamt Guðmundi Aðalsteini.
Tveggja Turna Tal - Helgi Jónas Guðfinnsson 16.12.2024
Helgi Jónas Guðfinnsson á um margt áhugaverðan feril. Hann varð Íslandsmeistari í körfubolta með Grindavík bæði sem leikmaður og þjálfari og varð svo í haust Íslandsmeistari í fótbolta sem lykilmaður í þjálfarateymi Breiðabliks. Hann var atvinnumaður í körfubolta, spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild í knattspyrnu 26 ára, hannaði Metabolic æfingakerfið og hefur skrifað bækur! Það er augljóst að...
Útvarpsþátturinn - Arnór Smára, Júlli Magg og fréttir vikunnar 14.12.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. desember. Tómas Þór og Benedikt Bóas stýrðu þættinum í dag en Elvar Geir er í fótboltaferð í Þýskalandi. Arnór Smárason sem spilaði með ÍA í sumar en lagði svo skóna á hilluna var í vikunni ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Val. Hann kíkti í heimsókn og spjallaði við þá Tómas og Benedik Bóas. Landsliðsmaðurinn Júlíus Magnússon sem spilar með Fredriksta...
Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Stöð 2 vs Þungavigtin 11.12.2024
8 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Stöð 2 og Þungavigtinni. Fyrir Stöð 2 keppti Valur Páll Eiríksson en fyrir Þungavigrtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.
Hugarburðarbolti GW 15 Cole Palmer bætti met! 10.12.2024
Cole Palmer sýning á Tottenham Hotspur Stadium. Bætti met Yaya Toure með því að skora úr 12 vítum í röð. Það er farið að hitna sætið hjá Big Ange hjá Spurs. Flottur Mbeumo gegn Newcastle í 4-2 sigri. Bæði Man City og Arsenal misstigu sig um helgina. Man Utd töpuðu á heimavelli gegn Forest. Og Everton - Liverpool var frestað vegna óveðurs.
Enski boltinn - Óreiða á Old Trafford og stærstu mistök Guardiola 10.12.2024
Óreiðan á bak við tjöldin hjá Manchester United er augljós en Dan Ashworth, sem hafði starfað sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, var rekinn eftir tap gegn Nottingham Forest um síðastliðna helgi. Menn virðast ekki vera að ganga í sama takt á Old Trafford en hjá Chelsea er allt í blóma þessa stundina. Er ekki hægt að fullyrða að Cole Palmer sé næst besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar? Fre...
Tveggja Turna Tal - Teitur Þórðarson 09.12.2024
Gestur vikunnar er Teitur Þórðarson. Teitur breytti þjálfunaraðferðum í knattspyrnu í Noregi, á Íslandi og í Eistlandi. Hann þjálfaði líka í Kanada og spilaði í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Teitur hefur flutt 27 sinnum! Teitur var frábær leikmaður. Stór, sterkur og fljótur með ríkt dugnaðargen í skrokknum. Við fórum yfir fullt af hlutum. Árin í Noregi, hvernig það var að spila undir Arsene Wenger...
Útvarpsþátturinn - Stjörnumaðurinn Andri og Elías um brjálæðið á Skaganum 07.12.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. desember. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar og fá svo tvo góða gesti í heimsókn. Andri Rúnar Bjarnason kvaddi Vestra og gekk í raðir Stjörnunnar nýlega. Elías Ingi Árnason dómari ræðir um dómgæsluna og mistökin sín sem gerðu Skagamenn bálreiða.
Hugarburðarbolti Þáttur 15 GW14 Er Mo Salah besti knattspyrnumaður heims? 06.12.2024
Þvílík skemmtun á St. Jamse's Park í 3-3 trylli. Fyrsta tap Ruben Amorim kom á Emirates gegn Arsenal. Ollie Watkins var sterkur gegn Brentford. Lopetegui verður að vinna næsta leik annars missir hann starfið hjá West Ham. Bournemouth lagði Tottenham á suður ströndinni 1-0 og Fulham sigraði Brighton.
Enski boltinn - Er Ödegaard þá Charlie Adam? 05.12.2024
Arsenal fór með sigur af hólmi gegn Manchester United í gær og var það fyrsta tap Rúben Amorim sem stjóra United. Hornspyrnurnar fóru illa með Man Utd. Arsenal hefur verið kallað hið „nýja Stoke City" eftir sigurinn en það er fyndinn samanburður. Liverpool gerði þá 3-3 jafntefli við Newcastle í ótrúlegum leik, Chelsea spilaði blússandi sóknarbolta og Manchester City komst aftur á sigurbraut....
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden