Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: fotbolti.net

Skapare

Fotbolti.net

Kategori

Sports

Poddens webbplats

fotbolti.net

Senaste avsnittet

25 nov 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android 10 mn+ nedladdningar · betyg 4,7+ iOS snart

Avsnitt

38 umferðir - Kominn tími til að svipta Haaland fyrirliðabandinu 25.11.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 12. umferð. Einar tæknimaður frá Livey hélt áfram að kynna nýja grafík til leiks og því góð ástæða til að taka þennan þátt í mynd.

Stefan Ljubicic ræðir skrefið í Breiðablik 24.11.2026

Stefan Alexander Ljubicic var gestur Kára Snorrasonar í hljóðveri þar sem rætt var um vistaskipti hans til Breiðabliks. Einnig var farið yfir gott gengi Keflavíkur í sumar, tíma Stefans hjá Brighton og hæfileika hans við píluspjaldið.

Enski boltinn - Íslendingar í úrvalsdeildina og Manchester í Championship 23.11.2026

Lífið verður æ erfiðara fyrir stuðningsmenn Manchester United. Niðurstaðan var 4-0 tap gegn erkifjendunum í Liverpool í gær. Sjáum við bæði Manchester-liðin í Championship-deildinni á næsta tímabili? Þá er umræða um að Íslendingar séu á leið í ensku úrvalsdeildina. Rætt var um helstu sögulínur í kringum enska boltann í Coke stúdíóinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sigurjón Árni fór...

Útvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytingar hjá bikarmeisturunum 20.11.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frumfluttur á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, félagaskipti í Bestu deildinni, landsliðið og fleira. Gestur þáttarins er Flosi Eiríksson formaður Breiðabliks. Hann ræðir um tímabilið í Kópavogi, þjálfarabreytingarnar og landslagið í íslenska boltanum.

Guðjóns Þórðarsonar minnst og sagan af kossinum fræga 19.11.2026

Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Ingólfur Hannesson ræddi við Kára Snorrason og fór yfir feril og kynni sín af Guðjóni Þórðarsyni sem lést á dögunum. Ingólfur starfar jafnframt hjá ÍTF og var farið lauslega yfir stöðu Bestu deildarinnar undir lok þáttar.

38 umferðir - Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít 18.11.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.

Innkastið - Lúxus landsliðsgluggi og takk Aron 16.11.2026

Landsliðsútgáfa af Innkastinu. Ísland er komið aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og goðsögnin Aron Einar Gunnarsson kvaddi í frostinu á Laugardalsvelli. U21 landsliðið tapaði á grætilegan hátt í Grikklandi og EM draumurinn er úti. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Thule jólabjór (léttöl) og Eimskip bjóða upp á þáttinn.

Útvarpsþátturinn - Gauja Þórðar minnst eftir fimm stjörnu frammistöðu í Búlgaríu 14.11.2026

Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta. Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum. Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og leikurinn verður gerður upp. Elvar Geir Magnússon og Arnar Gunnlaugsson á línunni. Farið er yfir fréttir vikunnar, bæði hér heima og úti. Mauricio Pochettino er að taka við Manchest...

Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum 12.11.2026

Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum. Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Andra Lucas Guðjohnsen. Thule léttöl og Eimskip bjóða þér upp á þáttinn.

38 umferðir - Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry 11.11.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti splúnkunýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.

Beint frá Benidorm - Horfast í augu við mistökin 09.11.2026

Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag. Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða líklegt byrjunarlið og spilað er viðtal við fyrirliðann Orra Stein Óskarsson sem tekið var á La Finca hótelsvæðinu. Landsliðsmenn tala agabrot síðasta glugga ekkert niður og horfast í augu við mi...

Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu 08.11.2026

Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu. Guðmundur Aðalsteinn og Haraldur Örn fara yfir helstu sögulínur eftir tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Everton er á flottu róli þrátt fyrir erfiðleika utan vallar en til að fara yfir það...

Útvarpsþátturinn - Enginn í agabanni og lið fá einkunnir 05.11.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni. Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir tímabilið. Rætt er um valið á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni og spilað viðtal við Arnar Gunnlaugsson. Hvað er Bubka Sports Lab? Hallgrímur Heimisson s...

38 umferðir - Pálínuboð 04.11.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke stúdíóinu en Pálína er frábær fantasy spilari og hefur farið vel af stað þetta tímabilið.

Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir 01.11.2026

Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik og eru í hrikalega góðum málum. Manchester United er hins vegar ekki í góðum málum og eru bara fyrir ofan fallsvæðið á markatölu. Michael Carrick heldur sér samt í starfi. Brighton...

Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum 31.10.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special! Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum. Það er aðalmálið í þættinum í dag. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta og formaður fótboltans í Garðabænum, Halldór Orri Björnsson, kemur í heimsókn.

38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro 27.10.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao...

Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið 27.10.2026

Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.

Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick 25.10.2026

Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað? Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarin...

Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð 24.10.2026

KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.

Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands 24.10.2026

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.

Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu? 21.10.2026

Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og veitti hann jafnframt innsýn í það starf.

38 umferðir - Engilbert Aron special 21.10.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð. Einnig...

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla 19.10.2026

Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.

Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð 19.10.2026

Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu. Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn Króa...

Lyssna på podden Fotbolti.net i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden