RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Allt frá hatti oní skó, Hvít hljóð og Allt sem við hefðum getað orðið/rýni 01.12.2025 49:42
Í gallerí SÍM við Hafnarstræti 16 stendur nú yfir samsýning myndlistarkonunnar Kristínar Elvu Rögnvaldsdóttur og ljóðskáldsins Guðbjargar Guðmundsdóttur, Hvít hljóð og nokkur Ílát. Þar fá ílát sem alla jafna er hent út á heimilum landsmanna óvænt mikilvægi og teiknaðar tilfinningaveirur stökkva fram úr ljóði sem skrifað var á vökudeildinni. Kvennasagan, og götin í henni, spilar líka stórt hlutverk...
Piparmeyjar, Wadada Leo Smith, jólakettlingar í Eyjafirði og Þegar mamma mín dó/rýni 27.11.2025 47:07
Nýlega lék jazzgoðsögnin Wadada Leo Smith á stappfullum tónleikum í Iðnó, í lok sinnar síðustu tónleikaferðar um Evrópu eftir 60 ára feril. Wadada hefur sótt Ísland heim í nígang og haft mikil áhrif á íslensku jazzsenuna og Tumi Árnason ætlar að segja okkur af því í þætti dagsins. Við hringjum líka norður í Eyjafjörð, því þar tekur myndlistarkonan Aðalheiður Eysteinsdóttir vel á móti fólki á aðven...
Sigurður Ámundason / Svipmynd 26.11.2025 51:23
„Listamenn eru eins og prestar,” segir Sigurður Ámundason myndlistarmaður, sem fylgir Víðsjá út í Gróttuvita í dag. „Við fjöllum um mannlega breiskleika, samfélagið og tölum um tilfinningar. Munurinn á myndlistarmönnum og prestum er að myndlistarmenn predika ekki. Við felum alltaf það sem við erum að reyna að segja.” Sigurður sýnir um þessar mundir í vitanum og vitavarðahúsinu. Sýningin sem kallas...

Úlfar Þormóðsson, Rán Flygenring, Arkitektúr og geðheilbrigði 25.11.2025 52:53
Úlfar Þormóðsson kemur til okkar með nýja bók. Bókina sendi hann frá sér fyrir stuttu en til þess þurfti hann að leita til annars forlags en því sem vanalega hefur verið með hans bækur á sínum snærum. Í bókinni fjallar Úlfar um endurkomu stóra málverkafölsunarmálsins inn í íslenska umræðu; segir frá viðbrögðum sínum og tilfinningum en einnig ýmsu fleiru og sumu átakanlegu. Blaka er nýjasta hugarsm...

Helga Páley Friðþjófsdóttir í Þulu, Tríó Sunnu Gunnlaugs, Þú sem ert á jörðu/rýni 24.11.2025 49:19
Við höldum í Gallerý Þulu á sýninguna Í hringiðu alls, þar sem Helga Páley Friðþjófsdóttir sýnir ný málverk. Málverkið hefur lengi verið kjarninn í hennar listrænu nálgun, þar sem óhlutbundinn veruleiki verður til í gegnum marglaga ferli þar sem spuni, innsæi og endurtekning leika stóran þátt. En líka tíminn og auðvitað efinn. Sunna Gunnlaugsdóttir jazzpíanisti verður einnig gestur okkar í dag en...
Heima Judith Hermann, RDF rýni, myndlistarpistill Rögnu og hafnar.space 20.11.2025 52:45
Minna fer fyrir þýddum bókum en íslenskum í jólabókaflóðinu, en við ætlum að bæta úr því í þætti dagsins og fá til okkar einn af okkar færustu þýðendum í hljóðstofu, Elísu Björgu Þorsteinsdóttur. Hún þýddi nýlega skáldsögu Judith Hermann, Heima, en Hermann er einn fremsti höfundur hins þýska bókmenntaheims og mörgum íslenskum lesendum vel kunn. Katla Ársælsdóttir fór nýverið á Reykjavík Dance Fest...

Guðrún Hannesdóttir - svipmynd 19.11.2025 49:15
Guðrún Hannesdóttir fæddist þann 18. júní árið 1944 og fagnaði því áttræðisafmæli sínu í fyrra. Hún nam listasögu í Lundi og síðar bókasafnsfræði við Háskóla Íslands, starfaði lengst af sem bókasafnsfræðingur og hafði meðal annars umsjón með bókasafni Myndlistarskólans í Reykjavík. Fyrsta ljóðabók Guðrúnar, Fléttur, kom út árið 2007, og sama ár hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör. Síðan hefur Guðrún ge...
Jötunsteinn Andra Snæs, Ásmundur Ásmunds í Glerhúsinu og Staðreyndirnar/rýni 18.11.2025 56:23
Í Glerhúsinu opnaði nýverið einkasýning Ásmundar Ásmundssonar, sem hann vann í samstarfi við ofurgreindina og myndræn verkfæri hennar. Kveikjan að verkinu er skemmdarverkið á Nord Stream 2 gasleiðslunni í september árið 2022, umfangsmiklu umhverfis og efnahagshryðjuverki sem hefur dvalið í djúpinu og undirvitundinni síðan, en Ásmundur gerir tilraun til að kalla fram með samtali við nútímavölvuna....

Dularfullar raddir skelja, Frumbyrjur, Booker og arkitektúr og fegurð 17.11.2025 55:03
Um helgina opnaði nýtt innsetningarverk Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Af dularfullum röddum skelja, í Náttúrusafni Kópavogs. Tilefnið er að margrómað skeljasafn Jóns Bogasonar er þar nú aftur til sýnis. Við hlustum eftir röddum skelja í Víðsjá dagsins og heyrum líka þrettánda pistil Óskars Arnórssonar um arkitektúr, sem tileinkar þennan síðasta pistil sinn arkitektúr og fegurðinni. En við byrjum...
Ora verksmiðjan, The Selkie Poetry Reading og Flóðreka/rýni 13.11.2025 50:28
Reykjavík Dance Festival hófst í gær og stendur yfir fram á sunnudag, með fjölda viðburða. Í kvöld stígur dansdúettinn Beauty and the beast, uppskálduð hljómsveit og lífstíðarsamstarf danshöfundanna Amöndu Apetrea og Höllu Ólafsdóttur, á svið Iðnó með sýningu sem þær nefna The Selkie Poetry Reading, og við tökum á þeim stöllum púlsinn. Við heyrum einnig rýni í dans í þætti dagsins, Trausti Ólafsso...

Ingi Garðar Erlendsson / Svipmynd 12.11.2025 51:41
Ingi Garðar Erlendsson básúnuleikari, tónskáld, kennari og Reykvíkingur ársins, brennur fyrir tónlistarkennslu. Sjálfum var honum rétt básúna í tónlistarskóla Keflavíkur þegar hann var tíu ára, hljóðfæri sem hefur fylgt honum síðan. Hann lærði kennslu, tónsmíðar og hljóðfræði í Reykjavík og Den Haag, og hljóðfæraviðgerðir í Wales. Ingi Garðar stofnaði ásamt félögum sínum Slátur, samtök listrænt ág...

Maðurinn í skiltinu, arkitektúr og kapítalismi, Ottoman tónlistarhefð 11.11.2025 51:52
Við hefjum þáttinn á því að hringja til Danmerkur og kynna okkur bók sem var að koma út hjá Angústúru, skáldsöguna Maðurinn í skiltinu eftir chileska rithöfundinn María Jose Ferrada. Jón Hallur Stefánsson þýddi og segir frá höfundi og verki. Einnig fjallar Óskar Arnórsson fjallar um tengsl arkitektúrs og kapítalisma og Ásgeir Ásgeirsson segir frá heimi tyrkneskrar ottóman tónlistar.

Frá ómi til hljóms, Land til sölu og Hamlet/rýni 10.11.2025 51:12
Frá ómi til hljóms kallast heimildamynd eftir Ásdísi Thoroddsen sem nú er í sýningu í Bíó Paradís. Tónlistin á dögum Sveins Þórarinssonar amtskrifara er undirtitill kvikmyndarinnar en hún fjallar um þá miklu byltingu sem átti sér stað í tónlistarlífi landsins á 19.öldinni. Katla Ársælsdóttir rýnir í leikgerð Kolfinnu Nikulásdóttur á Hamlet Shakespears, sem frumsýnd var nýverið á litla sviði Borgar...

Flóðreka, Tíðir og myndlistarpistill Rögnu Sigurðardóttur 06.11.2025 51:07
Á laugardag frumsýnir Íslenski dansflokkurinn glænýtt verk, Flóðreka, á Nýja sviði Borgarleikhússins. Flóðreka sprettur upp úr samstarfi danshöfundarins Aðalheiðar Halldórsdóttur, Jónsa úr Sigur Rós og ÍD, en verkið er innblásið af rómaðri sýningu Jónsa, Flóði, sem sýnd var í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári. Við stígum inn í heim náttúruaflanna með danshöfundinum, Aðalheiði Halldórsdóttur, í...

Sóley Stefánsdóttir - svipmynd 05.11.2025 55:30
Þegar Sóley Stefánsdóttir þreytist á því að semja á píanóið, með sína jöfnu stillingu og fyrirframgefnu ramma, tekur hún upp harmónikkuna, sem andar inn og út og krefst þess að hugsað sé í hendingum. Hún hefur á eftirtektarverðum ferli flysjað af sér íhaldsamari hluta tónlistaruppeldisins en nýtt sér þá gagnlegri til að draga fram einstaka rödd, sitt eigið djúphugsaða tónlistartungumál sem segir h...

Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice