Hlaðvarp

Trúnó

Hlaðvarp um lífið, tilveruna, normin, ónormin, óöryggi, geðheilsu, mótandi minningar og allt hið ósagða í ofantöldum efnum. Trúnó er í umsjón Tómasar Valgeirssonar og Nínu Eck. Nína er Mastersnemi í félagsráðgjöf, IPS jafningjaþjálfari og teymisstjóri jafningja á Geðsviði LSH. Tómas er fjölmiðlamaður, græjukall og söngleikjanörd. Samtölin kunna að vera hljóðrituð. Vertu með í trúnóinu.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: podcasters.spotify.com

Autor

Hlaðvarp

Categorie

Society

Site-ul podcastului

podcasters.spotify.com

Cel mai nou episod

7 ian. 2024

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Kerfið og kvíðinn 07.01.2024

'Season tvö' af blaðvarpi Trúnós er hafið ásamt glænýju ári. Nína og Tómas snúa aftur í spjall eftir viðburðaríka fjarveru í lífi þeirra beggja. Nína skaust til Ástralíu og hefur nýlokið MA ritgerð sinni um rannsókn hennar á innleiðingu jafningjastuðnings í geðheilbrigðisþjónustu. Tómas hefur verið á fullu í nýrri vinnu og að hlaupa á milli kvikmyndasetta. Síðan voru víst einhver jól þarna...

Hin hliðin á hatrinu 02.10.2023

Breen-istar, hatursorðræður, fordómar, þjóðarskömm, íslensk smábæjarhyggja, innlendir fréttamiðlar, prakkaralegir pólitíkusar og merku ættartengsl Nínu. Þetta ku vera hinn víði völlur sem þau Tómas kryfja á einlægum nótum. Hvössum líka. Vitaskuld. Innihald innslagsins að sinni er í persónulegri kantinum. Samtalið kann að hafa verið hljóðritað. Alveg óvart.

Hvílík Geðveiki™ 18.09.2023

Hvað þýðir það að vera 'geðveikur?' Hvað þýðir að vera 'eðlilegur?' Hver er munurinn á eðlilegum hugsanagangi og 'ofhugsara'? Nína fer yfir sín hjartans mál í gegnum lífsleið sína á meðan bæði þau Tómas mikla fyrir sér stærri spurningum lífsins. Samtalið var vissulega hljóðritað - Þáttastjórnendum óafvitandi.

Viðbjóðslega óþægilegar og persónulegar spurningar 11.09.2023

Nína og Tómas kölluðu eftir alls konar ‘heimskulegum’ spurningum, frá hlustendum og víðar. Því persónulegri, því betra. Það er nefnilega ekkert til sem heitir heimskuleg spurning. En sérdeilis verða málin persónuleg. Samtalið gæti hafa verið hljóðritað. Hjálpi okkur.

Gerendameðvirkni.is 04.09.2023

Mál gerenda og þolenda eru ávallt viðkvæm sama hvar þau eru rædd. Nína lýsir frá persónulegri upplifun sinni á meðan Tómas spyr hana spjörunum úr (afsakið orðbragðið) í tengslum við hitamál og skoðanir sem margir hafa gagnrýnt hana fyrir - og þá bara nokkuð nýverið. Það er eðli Trúnós að taka óþægilegri umræðurnar og þessi er svo sannarlega í þeim stíl. Glætan að þetta samtal hafi verið hljóðritað...

Passaðu þig á internetinu! 28.08.2023

Nína og Tómas mikla fyrir sér gagnlega gildi dagbóka úr æskunni, samfélagsmiðla, börnin og komandi kynslóðir YouTube’ara. Þá er stórri spurningu jafnframt svarað í upphafi þáttar og annar þáttastjórnandinn gerir heiðarlega tilraun að átaki í miðri upptöku. Ætli það hafi nokkuð verið kveikt á míkrafóninum?

Hver hugsar um börnin? 21.08.2023

Nú skal 'settla' málin (endanlega vonandi) um Sound of Freedom, hina vægast sagt umdeildu endursögn af svaðilförum fyrrum leyniþjónustumannsins Tim Ballard. Þá er mansal, barnaníð, áfallastreita og alls konar kristilegt kanaþvaður í brennidepli. Nína skoðar myndina út frá sálfræðilegu sjónarmiði og Tómas gramsar aðeins í hlið kvikmyndagerðarinnar. Í sameiningu reyna þau að komast til botns...

Um Barbídúkkur, reiði og paranir 14.08.2023

Hvað er það sem við sækjumst eftir í pörun við aðra? Hvað er ‘eðlileg’ krafa og hvenær eða hvar erum við að tapa hluta af okkur sjálfum? Og af hverju í kvensköpunum eru bíómyndirnar Sound of Freedom og Barbie að skipta fólki í svona sterkar, ólíkar fylkingar? Nína og Tómas grandskoða þessar pælingar út frá eigin reynslum. Samtalið gæti hafa verið hljóðritað.

Vantraust til Neyðarlínunnar 07.08.2023

Gervigreind og mannleg tengsl við spjallbotta er umræða til upphitunar áður en Nína úskýrir reynslu sína af verkferlabrotum Neyðarlínunnar. Það sem hófst sem einföld og eðlileg starfsumsókn með kennslu varð fljótlega að dæmisögu um hvernig ófagleg vinnubrögð hjá fjarskiptaþjónustunni (auk brot á persónuverndarlögum getur valdið vantrausti á þjónustu sem ofar öllu á að stuðla að því að hjálpa. Tóma...

Farming Simulator og sjálfsvígshugsanir 31.07.2023

Heilinn er magnað fyrirbæri en þarf gjarnan að hlúa vel að honum á verstu tímabilum. Í öðrum þætti Trúnós segja Nína og Tómas sögur sínar af ýmsum botnum og erfiðleikum. Einnig er sérstök áhersla lögð á hin mögnuðu samtímagildi tölvuleiksins Farming Simulator og hversu ólíkar myndir geta fylgt því að kalla á hjálp þegar heilinn (og sálarorkan) er nálægt því að gefast upp. Athugið að samtalið gæti...

Satt og ósagt 24.07.2023

Í fyrsta þætti hlaðvarpsins Trúnó stúdera þáttastjórnendur ýmis konar ‘brot’ úr fortíð sinni, stefnumótaforrit, kynjamyndir og viðhorf Íslands til útlendinga (enda þau Nína og Tómas sjálf útlensk…). Þá veltur dúóið líka fyrir sér 'Like þumalinn' alræmda, hvað er við hæfi í samskiptum almennt og hvernig er best að tækla það þegar eitthvað liggur… eða ‘lyktar’ í loftinu.

Ascultă podcastul Trúnó în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice