Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.thjodmal.is

Cel mai nou episod

8 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#24 – Unga fólkið á Kúbu vill ekki sósíalisma – Byltingin er búin að éta börnin sín 21.07.2021

Alejandra Franganillo hefur verið áberandi á samfélagsmiðlun vestanhafs að undanförnu og talað fyrir málstað þeirra sem vilja losna undan oki kommúnistastjórnarinnar á Kúbu. Hún býr í Flórída í Bandaríkjunum en afi hennar og amma flúðu frá Kúbu á 7. áratugnum og faðir hennar síðar. Hún segir okkur frá daglegu lífi á Kúbu, mýtunni um fyrirmyndar heilbrigðis- og menntakerfi og hvað það var sem ýtt a...

#23 – Arnar í Sante fjallar um baráttuna við ÁTVR og ríkið – Aldrei nein alvara að baki frelsismálum 20.07.2021

Arnar Sigurðsson, víninnflytjandi og stofnandi Sante, fjallar í hlaðvarpi Þjóðmála um tildrög þess að hann opnaði erlenda vefverslun með vín sem slegið hefur í gegn. Hann fjallar um furðulegar ásakanir ÁTVR og segir enga alvöru að baki þeim málum sem fram hafa komið um breytingar á áfengislöggjöfinni á liðnum árum. Þá er fjallað um undarlega andstöðu hagsmunasamtaka og fyrirtækja gegn breytingum á...

#22 – Viðtal - Sigmundur Davíð í sólskinsskapi og bjartsýnn fyrir kosningar 16.07.2021

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fv. forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálum, ríkisstjórnina sem kann kallar stjórn stöðnunar, nýaldarstjórnmál umbúða og ímynda eins og hann orðar það, hann segir flesta flokka vera að breytast í Samfylkinguna og fæstir þori að takast á við alvöru málefni. Þá ræðir hann um „ybbana“, um hatursorðræðu, meintan popúlisma og margt fleira.

#21 – Allt í henglum í Samfylkingunni – Hver stjórnar umræðunni fyrir kosningar? 08.07.2021

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir vandræðagang Samfylkingarinnar, sem einu sinni átti að verða hinn turninn í tveggja turna tali stærstu stjórnmálaflokkanna en er í dag kofi sem er við það að fjúka um koll, landlausa krata, helstu áherslumál flokkanna fyrir kosningar, hvernig ríkisstjórnarsamstarfið hefur gengið fyrir sig og hvort það sé líklegt til að halda áfram, hvaða kanínu Si...

#20 – Sigurður Már fjallar um sósíalismann og þær skelfilegu afleiðingar sem hann hefur 01.07.2021

Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir í hlaðvarpi Þjóðmála um sósíalismann og þann skaða sem hugmyndafræðin hefur valdið út um allan heim. Sigurður Már hefur um árabil skrifað um þróun mála í ríkjum á borð við Kína, Venesúela, Kúbu, Níkaragva og fleiri og þekkir vel hvernig sósíalisminn hefur leikið þau ríki. Þá fer hann yfir mýtuna um sósíaldemókratískar hugmyndir á Norðurlöndunum sem gjarnan eru...

#19 – „Nýja“ stjórnarskráin verður aldrei að veruleika - Stjórnarskráin á sig sjálf og ver sig sjálf – Kristrún Heimisdóttir fjallar um stjórnarskrána og þann listræna gjörning sem hún í raun er 28.06.2021

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur fjallar um aðdraganda þess að unnin voru drög að nýrri stjórnarskrá, sem þó verður aldrei að raunveruleika. Í hlaðvarpi Þjóðmála fjallar Kristrún einnig um hættuna af því að hverfa frá stjórnarskrárbundnu lýðræði eftir áföll á borð við fjármálakrísu, hvernig vinna Stjórnlagaráðs var í raun óþörf, hvernig stjórnarskráin ver sig sjálf fyrir öfgafullum og illa ígrun...

#18 – Uppgjörið – Allir í partý eftir Covid – Vel heppnað útboð í Íslandsbanka – Rugludallar í Sósíalistaflokknum 25.06.2021

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir þau tímamót sem urðu í dag þegar öllum takmörkunum vegna Covid var aflétt, yfir vel heppnað útboð í Íslandsbanka og þá undarlegu gagnrýni sem hefur komið fram eftir útboðið, yfir helstu verk ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu og horfurnar framundan og loks um varnarviðbrögð Sósíalistaflokksins þegar búið var að afhjúpa st...

#17 – Kristján Þór kveður stjórnmálin sáttur eftir 35 ára feril 15.06.2021

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á að baki langan feril í stjórnmálum – fyrst sem bæjarstjóri í rúm 20 ár og síðar sem þingmaður og ráðherra. Í hlaðvarpi Þjóðmála ræðir hann um ferilinn, árin í stóli bæjarstjóra, stórar ákvarðanir sem hann tók á meðan hann var heilbrigðisráðherra, umræðuna um landbúnað og sjávarútveg og það að velja sér ráðuneyti sem eru ekki endilega...

#16 – Úrslit prófkjöra – Brynjar lítill í sér en jafnar sig – Tilfinningastjórnmál smáflokkanna – Niðurlæging Bensa – Alvöru mál sem bíða 08.06.2021

Þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, blaðamenn á Morgunblaðinu, fara yfir pólitíska umræðu sem ræðst frekar af tilfinningahita en málefnum, aðdragandann og úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í nokkrum kjördæmum, uppstillingu Viðreisnar á lista og raunveruleg mál sem bíða þess að á þeim sé tekið en enginn þorir að ræða.

#15 – Úr öruggu dómaraembætti í stjórnmál – Arnar Þór Jónsson ræðir um fullveldið og þátttöku í stjórnmálum 02.06.2021

Arnar Þór Jónsson héraðsdómari gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. í hlaðvarpi Þjóðmála ræðir hann um hættuna á því að erlendir embættismenn setji Íslendingum lög, mikilvægi þess að standa vörð um fullveldið og lýðræðið, þátttöku dómara í þjóðfélagsumræðu og ástæðu þess að hann fór úr öruggu dómarasæti í stjórnmálin.

#14 – Villi Árna vill vekja Suðurlandið til lífsins 22.05.2021

Vilhjálmur Árnason alþingismaður sækist eftir því að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í Hlaðvarpi Þjóðmála fer hann yfir áskoranirnar og tækifæri í kjördæminu, uppbygginu fjölbreytts atvinnulífs, það hvernig stefna heilbrigðisráðherra hefur skert þjónustu og loks hvernig hægt er að boða nýja hluti þrátt fyrir að hafa setið átta ár á þingi.

#13 – Albert Jónsson fer yfir stöðuna í alþjóðakerfinu og ólíka hagsmuni stærstu ríkjanna 19.05.2021

Albert Jónsson , fv. sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í utanríkismálum, fjallar um ráðherrafund Norðurskautsráðsins sem nú fer fram á Íslandi, heimsókn og fund utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands, samskipti þeirra ríkja og stirð samskipti stórra ríkja í alþjóðakerfinu. Við ræðum einnig um það hvort og þá hvaða hlutverki Ísland gegnir í samstarfi vestrænna þjóða, um áskorani...

#12 – Ákvörðun dómsmálaráðherra breytti öllu – Birna Ósk og Jóhannes Þór ræða stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar 12.05.2021

Þó svo að það sé erfitt ár að baki hjá ferðaþjónustunni þá er ákveðin bjartsýni í greininni. Ferðmenn eru byrjaðir að koma til landsins og fljúga yfir lifandi eldgos þegar þeir lenda í Keflavík. Þau Birna Ósk Einarsdóttir , framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair, og Jóhannes Þór Skúlason , framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræða í Hlaðvarpi Þjóðmála um stöðu og framtíð ferðaþj...

#11 – Guðrún Hafsteinsdóttir – Hagsmunabarátta er ekki feimnismál 07.05.2021

Guðrún Hafsteinsdóttir , fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og markaðsstjóri Kjörís, býður sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í samtali við hlaðvarp Þjóðmála fer hún yfir aðdraganda þess að hún ákvað að gefa kost á sér í stjórnmálum, pólitískar áherslur sínar, hvort rétt hafi verið að ljúka aðildarviðræðum að ESB eða ekki og margt fleira. Hún fjallar einn...

#10 – Brynjar Níelsson – Duglegastur allra þingmanna 05.05.2021

Brynjar Níelsson alþingismaður fjallar um aðförina að Samherja, misbeitingu valds af hálfu Seðlabankans í gjaldeyrismálum, mikilvægi þess að standa vörð um réttarríkið, stöðuna í stjórnumálum, það handónýta plagg sem hin svokallaða nýja stjórnarskrá er, vinnubrögð sín í þinginu og það hvort hann hyggist gefa kost á sér á ný. Þá svarar hann þeim pólitísku andstæðingum sem sakað hafa hann um leti í...

#9 – Uppgjörið – Fjölbreyttar túlkanir á orðum Ásgeirs – Ekki eru allir viðhlæjendur vinir – Öll börn dreymir um að verða ríkisstarfsmenn 30.04.2021

Hörður Ægisson , ritstjóri Markaðarins, og Stefán Einar Stefánsson , fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, fjalla um ummæli Ásgeir Jónssonar seðlabankastjóra um hagsmunahópa og rangtúlkanir á þeim sem vörðu í tæpa viku, um hækkandi laun ríkisstarfsmanna, hvaða afleiðingar hærri verðbólga hefur, það hvort að stjórnmálamenn falli á stöðugleikaprófinu þegar nær dregur kosningum og margt fleira áhug...

#8 – Pólitíkin – Andrés og Jóhanna Vigdís fara yfir pólitíska landslagið á lokaspretti kjörtímabilsins. 28.04.2021

Andrés Magnússon , blaðamaður á Morgunblaðinu, og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir , fréttamaður á RÚV, fara yfir pólitíska landslagið, nýafstaðin og komandi prófkjör og uppstillingar á lista, stjórnarsamstarfið og síðustu vikurnar á þinginu. Kratarósin liggur í jörðinni og enginn virðist ætla að taka hana upp, íhaldið er í vandræðum með endurnýjun en það er slagur framundan í Reykjavík, Viðreisn þarf...

#7 – Hannes Hólmsteinn – Frjálshyggjumenn eiga ekki að hata ríkisvaldið 26.04.2021

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fjallar um nýútkomna bók sína um frjálslynda íhaldsmenn, hugmyndir um hið frjálsa markaðshagkerfi og viðhorf frjálshyggjumanna til ríkisvaldsins, það hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið varð til og hvernig það hefur bætt hag landsmanna, átökin um samkeppni hugmyndanna sem búið er að úthýsa úr háskólasamfélaginu, vondar hugmyndir um alþjóðlega sk...

#6 - Stefnan í heilbrigðismálum skerðir lífsgæði – Óli Björn Kárason fer yfir hættuna á tvöföldu heilbrigðiskerfi og stöðuna á síðustu mánuðum kjörtímabilsins 16.04.2021

Óli Björn Kárason , þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fjallar um það hvernig stefna heilbrigðisráðherra skerðir lífsgæði hér á landi, hættuna af tvöföldu heilbrigðiskerfi, mikilvægi þess að fólk fái þá þjónustu sem það á rétt á að fá og möguleika á auknu atvinnufrelsi og fjölbreytni í heilbrigðiskerfinu. Þá fjöllum við um síðustu mánuði kjörtímabilsins, það sem áunnist hefur og það sem miður hefur f...

#5 - Við fengum hjarðhegðun í stað hjarðónæmis – Björn Ingi og Viggó Jónsson ræða sóttvarnaraðgerðir og umræðuna sem fæstir vilja taka vegna Covid-faraldursins. 13.04.2021

Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður og Viggó Jónsson ráðgjafi ræða um aðgerðir í sóttvörnum, umræðuna í kringum sóttvarnir og aðgerðir yfirvalda, hverjir það eru sem stýra landinu í raun og veru og hversu lengi þetta ástand mun hafa áhrif á líf okkar.

#4 - Efnahagsmál – Ásdís Kristjánsdóttir og Jón Bjarki Bentsson fara yfir stöðuna 07.04.2021

Það eru rúmlega 20 þúsund manns á atvinnuleysisskrá, tekjur ríkisins eru um 60% af útgjöldum og skuldir ríkisins hækka verulega og við vitum ekki hvenær hagkerfið tekur við sér. Ásdís Kristjánsdóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Jón Bjarki Bentsson , aðalhagfræðingur Íslandsbanka, ræða stöðuna í efnahagsmálum og útlitið framundan, það hvort að aðgerðir hins opinbera hafi g...

#3 - Viðtal - Katrín Atladóttir 31.03.2021

Katrín Atladóttir , borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, ræðir um það hvernig það kom til að hún tók sæti á lista flokksins, hvernig það er að vera í minnihluta, pólitískar hugsjónir sínar, samgöngumál og ósætti milli ólíkra borgarhluta, hvernig það er að vera kölluð samfylkingarkona í eigin flokki og stöðu ungs fólks í stjórnmálum.

#2 - Uppgjörið – Bólusetningarklúðrið, spurningarnar sem ekki má spyrja og brandarabók Samkeppniseftirlitsins. 26.03.2021

Hörður Ægisson , ritstjóri Markaðarins, og Stefán Einar Stefánsson , fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, ræða um bólusetningaklúðrið hér á landi, spurningar sem ekki má spyrja um aðgerðir stjórnvalda og loks um skringilega hegðun Samkeppniseftirlitsins gagnvart atvinnulífinu og háar greiðslur til óháða kunnáttumannsins.

#1 - Viðtal - Halldór Benjamín Þorbergsson 23.03.2021

Halldór Benjamín Þorbergsson , framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), er gestur í fyrsta þætti Þjóðmála hlaðvarps. Í þættinum ræðir Halldór um hlutverk SA í samfélaginu, hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum, mikilvægi þess að styðja við frjálst markaðshagkerfi, samkeppnishæfni Íslands og margt fleira.

Ascultă podcastul Þjóðmál în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice