olibjorn
Óli Björn - Alltaf til hægri
Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er alltaf til hægri.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: olibjorn.podbean.com
Autor
olibjorn
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
8 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Thomas Sowell: Hugmyndir sem ögra valdinu - III. 08.11.2026 28:25
Hver veit best hvernig við eigum að lifa lífinu? Stjórnmálamaðurinn sem setur lögin, embættismaðurinn sem semur reglugerðirnar eða einstaklingurinn sem þarf að lifa með afleiðingunum ákvarðana sem teknar eru? Hver hefur þekkinguna og hver ber ábyrgðina þegar ákvarðanir reynast rangar? Þessar spurningar eru rauður þráður í skrifum Thomas Sowells, eins þekktasta og jafnframt umdeildasta hugsuðar ban...
Thomas Sowell – Marxistinn sem snerist til frelsisins - II. hluti 03.11.2026 23:37
Hvað fær sannfærðan marxista til að snúa baki við sósíalismanum og verða einn áhrifamesti málsvari frjáls markaðar og einstaklingsfrelsis? Thomas Sowell hafði kynnst sárri fátækt, atvinnuleysi og kynþáttafordómum. Á yngri árum heillaðist hann af kenningum Karls Marx, sem honum þóttu veita sannfærandi skýringar á efnahagslegu misrétti og óréttlæti. Hann trúði því að sósíalisminn gæti skapað betra o...
Thomas Sowell – Frá fátækt til frama - 1. þáttur 30.10.2026 16:33
Hvernig verður fátækur drengur, sem hættir í framhaldsskóla og þarf ungur að sjá fyrir sér sjálfur, einn áhrifamesti hugsuður bandarískrar frjálshyggju? Thomas Sowell fæddist árið 1930 í Norður-Karólínu, inn í samfélag þar sem fátækt og kynþáttaaðskilnaður settu blökkumönnum þröngar skorður. Hann missti foreldra sína ungur, ólst upp hjá ættingjum og fluttist síðar til Harlem í New York. Þar kynnti...
Skilvirk leið til að eyðileggja 09.10.2026 11:42
Nóbelsverðlaunahafinn Gunnar Myrdal, sem oft er sagður arkitekt hugmyndafræði sænskra jafnaðarmanna í velferðarmálum, hélt því fram að þak á leiguverð sé eitt skýrasta dæmið um vonda stjórnarstefnu í mörgum vestrænum löndum. Assar Lindbeck, landi Myrdals og einn áhrifamesti hagfræðingur Svíþjóðar í áratugi, var sannfærður um að leiguþak sé skilvirkasta leiðin til að eyðileggja borg fyrir utan loft...
Villigötur valdsins 29.09.2026 26:19
Almenna bókafélagið gaf fyrir nokkru út bókina Villigötur valdsins - Til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Þetta er sjöunda bókin mín og er ádeila á útþenslu ríkisins og pólitískan rétttrúnað en um leið persónulegur vegvísir að hugsjónum hægri manns sem hafnar hugmyndafræði ríkishyggjunnar sem nýtur velvildar í öllum stjórnmálaflokkum. Of mörgum finnst þægilegra að se...
Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum 26.08.2026 29:19
Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda. Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel. Heimurinn er stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtu...
Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum 16.08.2026 13:53
Á árs afmæli lýðveldisins 17. júní 1945 flutti Bjarni Benediktsson (1908–1970) ræðu sem á erindi við okkur í dag ekki síður en fyrir 81 ári. Stjórnmálamenn samtímans gætu mikið lært en ekki síður við öll sem með einum eða öðrum hætti tökum þátt í opinberri umræðu, hvort heldur er í blaðagreinum, í kommentakerfum netmiðla eða með sleggjudómum á samfélagsmiðlum. Bjarni varaði sérstaklega við dómhörk...
Tímasprengja sem ógnar stöðugleika og lífskjörum í ESB 18.07.2026 17:13
Lífeyrisskuldbindingar eru eitt stærsta og erfiðasta verkefni sem stjórnvöld í Evrópu standa frammi fyrir. Fátt ógnar framtíð Evrópusambandsins meira en ósjálfbærni lífeyriskerfisins í einstökum löndum. Þegar Íslendingar velta því fyrir sér hvort rétt sé að ganga til liðs við Evrópusambandið verða þeir að átta sig á því hvernig líklegt er að sambandið takist á við erfiða stöðu þegar kemur að lífey...
Að selja Ísland fokdýrt er eina markmiðið sem er ljóst 01.07.2026 17:10
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, vill að þjóðin veiti þeim umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að hefja aðlögunarviðræður við ESB án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði. Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa um markmið stjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu. Engu er líkara en í hugum þeirra sé eðlilegt og sk...
Pólitísk orðaverkstæði 27.05.2026 16:27
Orð og skilgreiningar skipta máli. Þetta vita snjallir vinstri sinnaðir hugsjónamenn betur en flestir aðrir og þess vegna hafa þeir lagt áherslu á að breyta merkingu orða eða hreinlega smíða ný orð og orðasambönd. George Orwell varaði við því að sannleikurinn yrði fórnarlamb þegar tungumálið er misnotað. Í ritgerð sem hann birti árið 1946, „Stjórnmál og enska tungan“, hélt hann því fram að villand...
Sveiflan til hægri 20.05.2026 13:22
Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega...
Ævintýri í Norðurhöfum 01.05.2026 11:07
Í október 2010 setti ég fram þá hugmynd, í Morgunblaðsgrein, að Íslendingar ættu að hafa frumkvæði að því að mynda nýtt fríverslunarsvæði á norðurslóðum. Markmiðið er ekki aðeins að mynda fríverslun milli sjö landa (Bandaríkjanna, Kanada, Noregs, Bretlands, Færeyja, Grænlands og Íslands) heldur ekki síður að búa til formlegan samstarfsvettvang vegna nýtingar auðlinda, náttúruverndar og sameiginleg...
„Atvinnustefnuráð“ er lausnarorðið 24.04.2026 20:56
Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur samþykkt sérstaka atvinnustefnu fyrir landið sem er sögð sú fyrsta hér á landi. Markið er sett hátt og stóru orðin eru ekki spöruð frekar en fyrri daginn til að lýsa stefnunni. Atvinnustefna Íslands er sögð vera vaxtarplan til 10 ára sem lýsi því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífinu og samfélaginu að aukinni verðmætasköpun. Markvi...
Endursýning á pólitísku leikriti 17.04.2026 25:56
Árið 2009 var sett á fjalirnar pólitísk leiksýning sem stóð yfir tæp fjögur ár. Þá, líkt og nú, var reynt að telja almenningi trú um að um sérstakar samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins væri að ræða. Byggt var undir þá von að Íslendingar gætu samið um breytt regluverk Evrópusambandsins – að Evrópusambandið myndi aðlaga sig að sérþörfum Íslendinga. Forystumenn vinstri stjórnarinnar v...
Antonin Scalia: Maður textans 09.04.2026 16:25
Antonin Scalia var einn áhrifamesti hæstaréttardómari Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldar og fram á þá 21. Hann var fæddur árið 1936 og var skipaður dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna árið 1986 af Ronald Reagan. Scalia lést 13. febrúar 2016 og voru fréttir af andláti hans fluttar um allan heim. Fáar andlátsfréttir hafa vakið meiri athygli á síðustu árum nema þá fréttir af fráfalli helstu þjóðar...
Hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins 01.04.2026 39:33
Forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, rithöfundur, leikritaskáld, listamaður, útvarpsmaður, blaðamaður og ritstjóri. Hægt er að nota öll þessi starfsheiti til að lýsa Davíð Oddssyni sem lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars aðeins 78 ára að aldri. Með Davíð er genginn einhver áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldisins – stjórnmálamaður sem hafði ekki aðei...
Ríkisstjórn brostinna vona 25.02.2026 28:39
Það er ekki sérlega óvæginn dómur yfir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, eftir 14 mánuði í stjórnarráðinu að segja að stjórnin hafi komið litlu í verk og að staða flestra heimila og fyrirtækja sé verri nú en þegar ríkisstjórnin tók við völdum í desember 2024. Hástemmdar yfirlýsingar í upphafi eru annað hvort gleymdar eða hljóma líkt og háðung fyrir ríkisstjórnina. Hin fögru fyrirheit hafa að me...
Endurheimtum stöðu okkar í heiminum 19.02.2026 17:05
Sem utanríkisráðherra ber Marco Rubio ábyrgð á að framfylgja utanríkisstefnu Donalds Trumps Bandaríkjanna með trúverðugum hætti og á traustum grunni. En hann nálgast verkefnið út frá eigin sannfæringu. Frá því hann tók sæti í öldungadeildinni árið 2011 hefur hann verið haukur í öryggis- og varnarmálum, gagnrýnt einræðisríki á borð við Kína, Rússland, Íran, Kúbu og Venesúela og lagt áherslu á fælin...
Kerfisbundið niðurrif borgaralegra réttinda 11.02.2026 14:49
Hafi einhver efast um eindreginn ásetning kínverska kommúnistaflokksins að virða að vettugi almenn mannréttindi þá hlýtur efinn að hafa horfið eftir að 20 ára fangelsisdómur var kveðinn upp yfir Jimmy Lai, 78 ára útgefanda og stofnanda dagblaðsins Apple Daily. Dómurinn jafngildir lífstíðardómi. Jimmy Lai, sem er einn þekktasti baráttumaður mannréttinda í Hong Kong, hefur setið í fangelsi í rúm fim...
Forræðishyggja gegn fjárhagslegu sjálfstæði launafólks 21.01.2026 16:40
En þrátt fyrir skýran vilja mikils meirihluta landsmanna og þá ekki síst þeirra sem nú eru á leigumarkaði, er verið að ryðja braut félagshyggjunnar. Sameiginlega fjármuni borgaranna skal nota til að byggja upp félagslegt íbúðakerfi. Með góðu og illu, fjárhagslegum hvötum og þvingunum, skal almenningi beint inn á leigumarkaðinn. Kjörorðið er: Leiga ekki eign. Forræðishyggjan er allsráðandi með svip...
Hugsaðu sjálfstætt: Konan sem ögraði rétttrúnaði fjölmiðla 13.01.2026 22:12
Bari Weiss er án nokkurs vafa ein áhrifamesta fjölmiðlakona Bandaríkjanna. Hún hefur skapað sér áhrifastöðu í bandarísku þjóðlífi með baráttu gegn pólitískri rétthugsun og „wok-isma“, og skýrri hugmyndafræði um grunngildi blaðamennsku: sanngirni, hlutlægni og réttar upplýsingar. Bari hefur byggt upp eigin fjölmiðil - The Free Press - og sett ný viðmið í fjölmiðlun. Miðillinn byggir á hugmyndum um...
Harðstjóri fjarlægður - óvissa og vonir 07.01.2026 14:52
Óvissan um hvort lýðræði komist aftur á í Venesúela er mikil þótt vonir almennings hafi vaknað eftir handtökuna á Mudoro. Valdakerfi sósíalista stendur óbreytt. Varaforsetinn, Delcy Rodríguez, hefur tekið við og hún er sannfærður sósíalisti og harður andstæðingur Vesturlanda og Bandaríkjanna sérstaklega. Rodríguez hefur verið í innsta hring valdakerfis sem byggt var upp á valdatíma Hugo Chávez og...
Ríkisútvarpið fest í setti 30.12.2025 21:11
Hafi einhver borið þá von í brjósti að spilin á íslenskum fjölmiðlamarkaði yrðu raunverulega stokkuð upp með sérstakri aðgerðaráætlun menningarmálaráðherra, hefur sá hinn sami orðið fyrir miklum vonbrigðum. Tillögur ráðherra undir hatti aðgerðaráætlunar í málefnum fjölmiðla, sem ríkisstjórnin hefur gert að sínum, taka mið af því að fyrst skuli staðið vörð um Ríkisútvarpið og síðan reynt að styðja...
Þyngri byrðar vinstri stjórnar 20.12.2025 10:40
Fjárlög komandi árs eru fyrstu fjárlög vinstri stjórnar Kristrúnar Frostadóttur – samsteypustjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins. Á grunn þeirra birtist pólitísk stefna stjórnarinnar: Aðalverkfæri ríkisstjórnarinnar er ekki sleggjan, sem Kristrún ætlaði að nota, heldur aukin skattheimta til að standa undir gríðarlegri aukningu ríkisútgjalda. Og aukin ríkisútgjöld eru ekki vegna óvænt...
Leitin að nýjum og nýjum málstað 13.12.2025 13:42
Hægt er að draga sögu vestrænna sósíalista frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar saman í eina setningu: Stöðug og endurtekin leit að nýjum málstað í baráttunni gegn gildum vestrænna samfélaga og kapítalisma – markaðshyggju. Allar hugmyndir, hvert verkefni, hver krossferð snýst í grunninn um eitt og hið sama – djúpa tortryggni á frjálsu framtaki, frjálsum markaði og baráttu gegn þjóðskipulagi sem he...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice