Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: podcasters.spotify.com

Autor

Snorri Björns

Categorie

Health

Site-ul podcastului

podcasters.spotify.com

Cel mai nou episod

22 sept. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

59. Sigrar RM 21,1km og bestur í skíðagöngu - Dagur Benediktsson 02.09.2025

Dagur mætti inná skrifstofu til framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækis fyrir 8 árum, þá 20 ára gamall, og lagði fyrir hann áætlun um markmið fyrir glæstan skíðagönguferil sem hann þurfti hjálp við að framkvæma. Í dag er hann besti skíðagöngumaður landsins, hleypur 10km á 33:28 og sigraði hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst síðastliðnum. Dagur er hér krafinn um svör við þjálffræði, álags...

ÍBR svarar fyrir sig 26.08.2025

Óánægju gætir innan hlaupasamfélagsins með framkvæmd á Reykjavíkurmaraþoninu, en í fyrsta skipti í 40 ára sögu hlaupsins voru hlauparar ræstir í tveimur flokkum: keppnis- og almennum flokki. Ringulreiðin sem því fylgdi bitnaði á upplifun og frammistöðu keppenda. Hrefna Hlín, sviðsstjóri viðburðarsviðs ÍBR, gefur okkur innsýn inn í ákvörðunartöku og framkvæmd hlaupsins og segir sína hlið á málinu.

58. Hlynur & Baldvin: RM, maraþonæfingar, single threshold, lyfjapróf og 100km 24.08.2025

Hlynur og Baldvin mæta á DURA drykkjarstöðina degi eftir Reykjavíkurmaraþonið til að gera upp viðburðinn, brautarmet Baldvins, vonbrigði Hlyns og allt því sem viðkemur því að skara fram úr í hlaupum - þvert á vegalengdir!

57. Sprengjur í RM, léleg ITRA stig, maraþon vs. Laugavegur og Andrea vs. Elísa 20.08.2025

Við fylgjum eftir viðtölum við Baldvin Þór og Hlyn Andrésson með sjóðheitri umræðu um Reykjavíkurmaraþonið. Viktor Orri mætti á DURA drykkjarstöðina til að ræða möguleika Baldvins og Hlyns til að slá met, Elísu á móti Andreu í hálfu, hvað hlaupahaldarar þurfa að gera til að fá skráningu í hlaupin sín, hvað 100km afrekið hans Arnars fær mörg stig í samanburði við önnur met íslenskra hlaupara, "illa...

55. Baldvin Þór í vígahug fyrir RM 19.08.2025

Hann er ekki hér til þess að taka þátt. Hann er hér til að hlaupa hröðustu 10 kílómetra í Íslandssögunni og hann langar að gera það á Íslandi! Íslandsmetið, sem Baldvin sjálfur á, er 28:51 og hann mætir hingað í settið til að fara yfir leikplanið og hvernig æfingar hafa gengið síðustu mánuði.

56. Hlynur reynir við hraðasta maraþon á Íslandi 19.08.2025

Brautarmetið í Reykjavíkurmaraþoninu var sett um það leyti sem Hlynur Andrésson var að fæðast. Hann er búinn að strengja saman góðar æfingavikur og mánuði og er tilbúinn í atlögu að metinu. Hlynur fer hér yfir breytingar í æfingum fyrir maraþonið, „maraþon specific“ æfingar, hvernig sumum tekst ekki að höndla síðustu 12km af maraþonvegalengdinni, skóbúnaðinn sinn og zone æfingar.

54. Halli Gilli & Sigfinnur – 100km haus, magaflóran, líkamsklukkan og Laugavegurinn 04.08.2025

Haraldur Gísli og Sigfinnur kláruðu Gyðjuna um helgina og komu í stúdíóið til að ræða hlaupið, æfingarnar, motivationið, andlegu áskorunina, magaflóruna (Kilian er kominn á vagninn), líkamsklukku hlauparans og Laugavegshlaupið.

53. Elísa Kristinsdóttir – Viðstöðulausar bætingar, frá 10km upp í 400km 02.08.2025

Elísa vann í dag Súlur Vertical Gyðjuna 100km á tímanum 10:45. Hún tekur brautarmetið af Andreu Kolbeinsdóttur og slær það um rúmar 90 mínútur. Óstaðfestar tölur gefa henni hæsta ITRA stig sem íslensk kona hefur náð. Ever. Planið var þó allt annað komandi inn í þetta hlaup… Elísa ræðir hlaupið, hvað fór úrskeðis og hvað fór vel, lægðina eftir 400km bakgarðinn í október, að snúa baki við bakgarðshl...

52. Hugarfarsbreyting eftir heilaæxli: 50 ára sjómaður verður Íslandsmeistari í hjólreiðum - Þorsteinn Bárðarson 23.07.2025

Þorsteinn Bárðarson hefur varið lífi sínu á sjónum. Hann kepptist við að vera aflamestur, fór út í öllum veðrum og tók lengri róðra en hinir með þeim afleiðingum að hann klessti á vegg og þurfti að breyta um lífsstíl til að lágmarka streitu og hámarka heilsu. Á sama tíma koma hjólreiðar inn í líf Þorsteins en hann rekur söguna af því hvernig hann náði að para saman sjómennsku og erfiðar æfingar á...

Andrea Kolbeinsdóttir - Sigurvegari í Laugavegshlaupinu 2025 12.07.2025

Viðtal við Andreu Kolbeinsdóttur eftir sigur í Laugavegshlaupinu 2025.

Elísa Kristinsdóttir - 2. sæti í Laugavegshlaupinu 2025 12.07.2025

Viðtal við Elísu Kristinsdóttur eftir Laugavegshlaupið 2025.

Þorbergur Ingi - 2. sæti í Laugavegshlaupinu 2025 12.07.2025

Viðtal við Þorberg Inga eftir Laugavegshlaupið 2025.

Þorsteinn Roy - Sigurvegari Laugavegshlaupsins 2025 12.07.2025

Viðtal við Þorstein Roy eftir sigur í Laugavegshlaupinu 2025.

50. Hvernig vinnuru Laugaveginn? 10.07.2025

Sterkasta ráslína sumarsins verður samankomin í virtasta utanvegahlaupi landsins. Hver vinnur? Hvernig? Verður brautarmet slegið? Er 10 ára Íslandsmet Þorbergs Inga í hættu? Er komið að Þorsteini? Á einhver séns í Andreu? Hverjir eiga mest inni? Fáum við nýtt fólk á pallinn? Hvað fara margir undir 5? Öllu svarað og meira til.

49. Caleb Olson, WSER winner: "How the worst race of my life changed my running forever" 04.07.2025

“Podium would be way cooler than 5th.” Caleb wrote, after the fastest debut in history at Western States 2024. He made it to the podium this year, and then some. Caleb generously sits down with us just 6 days out from his incredible victory at WSER, where he finished less than two minutes short of Jim Walmsley's legendary course record and beat a stacked field of competitors. We discuss: The worst...

48. Norwegian Method, lágt testósterón, pottur vs. sauna, Kilian Jornet, hjól fyrir hlaup, WSER og not Breaking4 - Guðfinna og Latsi 03.07.2025

Guðfinna Kristín og Latsi ræða af manískum áhuga um vísindin, viðburðina og hugmyndafræðina sem ráfar um úthaldsíþróttaheiminn í dag: Noregur er mættur aftur The Norwegian Method - uppruni, útskýring og fyrir hvern? Lionel Sanders greinir sig með REDs: risvandamál, tíð veikindi, lélegur svefn, beinmeiðsli Hitaþjálfun - heitur pottur eða sauna? Breaking4 - Faith Kipyegon á betra skilið Ótrúlegar se...

47. Western States – Það er að sjóða uppúr! 26.06.2025

Mest spennandi ultra hlaup síðari ára á sér stað um helgina. Guðfinna kemur í settið til að greina keppnina og segja sögurnar á bakvið sterkustu keppendurna - ásamt ótrúlegri tengingu íslensks afrekshlaupara við mögulegan sigurvegara WSER 2025.

46. Nýjar leiðir að árangri: Hitaþjálfun og hákolvetnainntaka – Sigurður Örn Ragnarsson 16.06.2025

Siggi TRI er einn besti þríþrautarmaður okkar Íslendinga með manískan áhuga á bætingum. Hann er bæði vísindamaðurinn og tilraunadýrið og í þættinum förum við yfir nýstárlegar leiðir að árangri sem eru að ryðja sér til rúms í úthaldsíþróttaheiminum: Fyrir hvern er hitaþjálfun? Hitaþjálfun fyrir íþróttamann í tímaþröng Hvað varð um low-carb og að 'taka hlutina á fitunni'? Hákolvetna inntaka, af hver...

45. Vinsæll hlaupari vs. góður hlaupari, verðlaun í hlaupum, hitaþjálfun, hver mætir í Laugaveginn? – Egill Örn & Guðlaugur Ari 04.06.2025

Smekksneisa í dag. Gulli og Egill mæta sjóðheitir og rjóðir í kinnum eftir hitaþjálfun dagsins. Við gagnrýnum og setjum út á allt frá markaðssetningu hlaupara, línuna á milli vinsælda og getu hlaupara, Bakgarðinum, "DQ" Hlyns á Smáþjóðaleikunum, mætingunni í Laugaveginn, WSER, frammistöðu Yngvild Kaspersen í Mýrdalshlaupinu til ITRA stiga og óáreiðanleika þeirra. Egill og Gulli rekja ein...

44. Yngvild Kaspersen - 10 years on top: Highs, lows and lessons. 30.05.2025

“Only 20 years old! These guys are the future (and present) of the sport!” said Kilian Jornet, in 2015, about Yngvild Kaspersen and Remi Bonnet - and man was he right. Yngvild quit the Norwegian national soccer team to pursue running, with great results. She was 21 years old when she won Zegama, placed 1st in CCC 2023, 5th in WSER 2024 and is ranked #3 female trail runner in the world. Like that w...

43. Næsta bylting í íþróttum er... íslensk? Frá Harvard til Team Visma, Kilian Jornet og Norska Ólympíusambandsins. 28.05.2025

Arnar Lárusson og teymið hans kepptu gegn Boston Dynamics í keppni á vegum DARPA (klikkuðu þróunardeildinni sem leitar að mörkum hins mögulega á vegum bandaríska hersins) um að bæta skilvirkni og orkunotkun mannslíkamans með utanáliggjandi stoðgrind (glöggir hlauparar eru strax farnir að tengja þessa flóknu skilgreiningu við carbon skó). Teyminu tókst að bæta hagkvæmni líkamans og við mælingar á r...

42. "Ekki bestur... betri!" – Sigurbjörn Árni Arngrímsson 15.05.2025

Ekki bara lýsandinn Sigurbjörn Árni heldur doktorinn í lífeðlisfræði, skólameistarinn og 40x-faldur Íslandsmeistari í hlaupum. Sigurbjörn stundaði verulega áhugaverðar rannsóknir við doktorsnám sitt í Bandaríkjunum. Niðurstöðurnar eru nýttar í tengslum við hámarksframmistöðu íþróttamanna á hæsta getustigi úti um allan heim. Sömuleiðis gerði hann ýmsar tilraunir á sjálfum sér með t.d. sodium bicarb...

Backyard BBQ #3 - Áhugalæknir/atvinnuhlaupari, 200km múrinn, besti Íslendingurinn í Bakgarðinum? 11.05.2025

Sunnudagur til sælu. Oddur og Mari brjóta 200km múrinn, Egill Trausti fer úr hlaupafötunum yfir í crew-gallann og Andri Guðmunds greinir og veitir góða innsýn í Bakgarðinn. Í boði Hlaupár, Sjóvá, Bodylab, Kia og NOW!

Backyard BBQ #2 – Hálf lungu, „Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum!“, örmögnun og CPH maraþon 11.05.2025

Bjarni Ármanns kallar þetta gott, Pétur Ívars gefur okkur innsýn í CPH maraþonið (þar sem Andrea gerði atlögu að Íslandsmeti nú í morgun), "Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum", Mari fær orku út úr því að leiða aðra í gegnum þjáninguna og Ósk Gunnars deilir með okkur ástæðunni og hvatanum á bakvið Bakgarðinn sinn. Í boði NOW, Sjóvá, Hlaupár, Bodylab og Kia EV3!

Backyard BBQ #1 - Mari með mækinn, Bjarni Ármanns reiðubúinn í 111 hringi, ketó-bakgarður og Elísabet Margeirs. 10.05.2025

Sein útsending frá Bakgarðinum! Mari Jaersk stendur undir nafni, Bjarni Ármanns gerir grein fyrir áformum sínum (111 hringir?), Egill Trausti reyndi við Ketó-Bakgarð og Elísabet Margeirs mun taka Bakgarð þegar hún nennir því. Fylgið okkur á Instagram og fylgist með hér á Spotify, við verðum að alla helgina í boði Kia EV3, Hlaupár, Bodylab, Sjóvá og NOW!

Ascultă podcastul LANGA - hlaðvarp în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice