HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.heilsuerla.is

Autor

HeilsuErla

Categorie

Health

Site-ul podcastului

www.heilsuerla.is

Cel mai nou episod

25 sept. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson 25.09.2026

Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum.  Erla og Kristján ræða einnig um heildr...

127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir. 12.09.2026

Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það...

Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49) 10.09.2026

Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa Edda Bj...

Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48) 05.09.2026

Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald? Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega sterkur líkami 💪🏻 sterkur hugur 🧠 sterk næring 🌱 sterk tengsl 🫶 = Sterk heild! Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt. Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni. Prentaðu út blaðið Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í...

126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir 30.08.2026

Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur.  Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan...

125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson 16.08.2026

Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm. Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki...

124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir. 11.08.2026

Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega. Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfing...

Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47) 04.08.2026

Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta! Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju? Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir. Við hugsum oft um stórar ákvar...

123. Ekki láta samviskubitið éta þig. (Uppeldi, mörk, samskipti, skjánotkun og hegðunarvandi). Jasmín Guðrún Abu Libdeh 25.07.2026

Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall.  Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni. Sérstakar þakkir fá...

Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46) 15.07.2026

Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlí...

122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson 10.07.2026

Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira.  Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt. Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er s...

121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir 27.06.2026

í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu.  Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma. Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðein...

Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45) 19.06.2026

Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni.  Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun e...

120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir 12.06.2026

Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  💙 - HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.  🌱  - SPÍRAN ....

Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44) 10.06.2026

Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur.  „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum i...

119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni 05.06.2026

In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self. Pia Marangoni...

118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir 29.05.2026

Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.  Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinhei...

117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko 25.05.2026

In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health.  Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance. She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-lov...

116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir 15.05.2026

Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic . Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira.  Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja...

Næringarpælingar og heilsulæsi (Heilsumoli 43) 13.05.2026

Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu.   Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama s...

115. Hvernig lifum við lengur? (Næringarlæsi, gjörunnin matvæli, trefjar, hugleiðsla og bláu svæðin). Helga Arnardóttir 01.05.2026

Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi. Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið ho...

Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42) 29.04.2026

Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum.  Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir 18.04.2026

Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið.  Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum....

113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman 11.04.2026

In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years. Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and...

112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir 03.04.2026

Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira. Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis...

Ascultă podcastul Með lífið í lúkunum în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice