RÚV Hlaðvörp
Kaflaskil
Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar að sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið að fá inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum – nema að nemandinn sé með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst að skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskó...
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: feeds.acast.com
Autor
RÚV Hlaðvörp
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
14 mai 2025
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
6. þáttur: Bekkjarkerfi eða áfangakerfi 14.05.2025 43:00
Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur...
5. þáttur: Samstarf á milli skólastiga 14.05.2025 42:14
Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill meirihluti þeirra sem ljúka grunnskólanámi velur bóknám þegar kemur að framhaldsskólanum en verknám hefu...
4. þáttur: Hvað ef þú passar ekki í boxið? 14.05.2025 42:08
Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið...
3. þáttur: Góður kennari er gulli betri 11.05.2025 41:42
Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma mikilvægi læsis og lesskilnings á öllum stigum grunnskólans. Viðmælendur í þættinum eru: Gunnar Gíslason,...
2. þáttur: Samræmt námsmat og einkunnaverðbólga 04.05.2025 43:38
Nýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er staðreynd en Ísland er ekkert eyland þar. Viðmælendur í öðrum þætti Kaflaskila eru: Brynhildur Sigurðardóttir, Freyja Birgisdóttir, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Sigrún Blöndal, Sigurg...
1. þáttur: Aðalnámskrá og hæfniviðmið 27.04.2025 43:39
Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á aðalnámskrá grunnskóla enda fékk hún falleinkunn í úttekt sem unnin var fyrir sex árum. Endurskoðuð aðalnámskrá tekur gildi næsta haust og þar hafa greinasvið og hæfni- og matsviðmið þeirra verið endurbætt og einfölduð. Í fyrsta þætti Kaflaskila er fjallað um aðalnámskrá og hæfni- og matsviðmið. Viðmælendur eru: Auður Bára Ólafsdóttir, Brynhildur Sig...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice