RÚV

Heimskviður

News IS ↓ Episoade: 355

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

News

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

10 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

127| Fjölmiðlakeisarinn Murdoch og milliríkjadeila um númeraplötur 03.12.2022

Donald Trump ætlar að reyna að verða aftur forseti Bandaríkjanna. Hann tilkynnti þetta með pompi og prakt á heimilinu sínu í Florida, Mar-O-Lago, um miðjan síðasta mánuð. Marolago er muniði sama hús og alríkislögreglan réðst inn í á dögunum og tók fullt af skjölum sem Trump hafði tekið heldur ófrjálsri hendi í forsetatíð sinni. En, það sem vakti ekki síður athygli þegar Trump lét vita af áformum s...

126| Jarðsprengjur í Úkraínu, kókaínfjall í Evrópu og ofbeldi í Afríku 26.11.2022

Rússar eru sagðir hafa breytt kornökrum víða um Úkraínu í jarðsprengjuakra. Talið er að svæði sem er jafnstórt og rúmlega eitt og hálft Ísland sé þakið þessum skaðræðisvopnum. Sérfræðingur segir að það eigi eftir að taka tuttugu ár að hreinsa jarðveginn. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið og ræðir meðal annars við Alistair Moir sem hefur yfir tíu ára reynslu af umsjón með sprengjuleit, svo...

125| Heimsmeistaramótið í Katar 19.11.2022

Það hefur líklega ekki farið fram hjá nokkrum einsta manni að heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst á morgun. Þátturinn í dag verður helgaður Katar og mótinu sem þau halda. Jón Björgvinsson fer með okkur til Katar, þessarar 300 þúsund manna þjóðar í harðbýlu en vellauðugu landi. Þá segir Arnar Björnsson okkur frá upplifun sinni af Katar og hvaða veruleika leikmennirnir standa frammi fyrir, að tak...

124| Framtíðarhorfur í loftslagsmálum og kosningar í Bandaríkjunum 12.11.2022

27. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna er yfirstandandi en henni lýkur í lok næstu viku. Og þar fer eins og venjulega mikið fyrir háleitum markmiðum um að draga úr losun og aðgerðir kynntar til að svo verði en þetta skilar sér ekki. Losun er enn að aukast og hefur aukist frá því Parísarsamkomulagið var samþykkt 2015. En er fólk að missa trú á þessi markmið náist? Bjarni Pétur Jónsson ræddi við...

123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku 05.11.2022

Meira en 150 manns, lang mest ungt fólk, krömdust til dauða í miðborg Seúl, höfuðborgar Suður Kóreu, um síðustu helgi. Fólkið var að fagna hrekkjavökunni, höfðu klætt sig upp í búninga að því tilefni og planið var að vera þar sem stuðið var mest. Itaewon hverfið í Seúl er lifandi djammsuðupottur, stútfullt af börum, skemmtistöðum og veitingastöðum - þar eru líka þröngar og sjarmerandi götur eins....

122| Lobbíistar, pólitík og Kanye West 29.10.2022

Í Svíþjóð hafa nokkrir fyrrverandi stjórnmálmenn og áhrifamenn í stjórnmálum hagnast gríðarlega undanfarin ár, með því að staðsetja sig á mörkum stjórnmála og atvinnulífs. Sumir hafa grætt á einkavæðingu sem þeir stóðu sjálfir að. Aðrir hafa farið að starfa sem lobbýistar nær strax og þeir hættu í stjórnmálum. Óljós mörk stjórnmálaþátttöku, hagsmunagæslu og fyrirtækjareksturs hafa verið gagnrýnd í...

116 | Bill Browder og Elísabet Englandsdrottning 17.09.2022

Það eru næstum sjö mánuðir liðnir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og það eru allskonar afleiðingar að koma betur og betur í ljós. Orkukreppan og verðbólgan í mörgum ríkjum Evrópu er til dæmis bein og óbein afleiðing af þessum átökum, orkukreppan vegna þeirra viðskiptaþvingana og refsiaðgerða sem Evrópusambandið og önnur vestræn ríki, Ísland þar með talið, hafa sett, bæði á stjórnvöld í Rússlandi...

115 | Kosningar í Svíþjóð og sambúðin við Rússa. 10.09.2022

Það verður gengið til kosninga í Svíþjóð á morgun. Afar mjótt verður á mununum ef marka má skoðanakannanir. Kosið er í þremur kosningum í einu - þingkosningum, sveitarstjórnarkosningum og kosningum til héraðsstjórna. Og því er allt undir - frá heilbrigðis- og menntakerfinu til aðgerða í loftslagsmálum, hvernig stemma eigi stigu við glæpum, afstöðu í utanríkismálum, innflytjendamálum og svo mætti l...

114 | Vígbúnaðarkapphlaup til tunglsins og Kevin Spacey 03.09.2022

NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, ætlar síðar í dag að skjóta á loft geimflaug, þeirri lang öflugustu sem smíðuð hefur verið, og þar með má segja að Artemis verkefnið sé komið á fullt en helsta markmið þess er að koma mönnuðu geimfari til tunglsins og síðar til Mars. Tólf karlmenn stigu fæti á tunglið á aðeins tæpum fjórum árum, frá 1969 til 1972. Og nú á að endurtaka leikinn. Eða það átti að...

113 | Sundrung í Bandaríkjunum og Mormónar í Utah 27.08.2022

Ótal fréttir hafa verið sagðar undanfarin misseri af sundrungu í bandarískum stjórnmálum og samfélagi. Skotvopnaeign, löggjöf um þungunarrof, lögregluofbeldi gegn svörtum, brottflutningur bandaríska hersins frá Afganistan, innrásin í þinghúsið í Washington og um það bil allt sem Donald Trump segir og gerir. Já þau hafa verið ófá þrætueplin þar vestra. Sundrung í Bandaríkjunum hins vegar er ekki ný...

112 Sádarnir og golfið og kosningar í Kenía 20.08.2022

Í þessum fyrsta Heimskviðuþætti nýrrar þáttaraðar verður komið víða við. Framtíð keppnisgolfs er í mikilli óvissu eftir að ný mótaröð, sem Sádar fjármagna, kom fram á sjónarsviðið. Þeir ausa fé í íþróttir um allan heim og vonast til að morð og mannréttindabrot gleymist í stjörnufans og allsnægtum íþróttanna. Bjarni Pétur Jónsson kynnti sér málið. Niðurstöður nýafstaðinna forsetakosninga í Kenía vo...

111 | Lokaþáttur - Jón Björgvinsson 04.06.2022

Það er komið að lokaþætti Heimskviða þetta misserið. Viðmælandi þáttarins er ekki af verri endanum. Sjónvarpsáhorfendur hafa séð fréttir frá Jóni Björgvinssyni frá öllum heimshornum. Jón hefur flutt fréttir frá Sómalíu, Írak, Afganistan, Kólumbíu, Nepal, Íran, Mið-Afríkulýðveldinu, Pakistan, Sýrlandi, Indónesíu, Mexíkó, Úganda, Rúanda og Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt. Jón og félagar hans voru þe...

Leyndarmálin í Herlufsholm og mun nýr Albenese bjarga Ástralíu? 28.05.2022

Anthony Albanese varð ljóst á sunnudag að hann yrði næsti forsætisráðherra Ástralíu, en hvað þýða stjórnarskiptin fyrir framtíð Ástralíu? Níu ára valdatíð bandalags Frjálslyndra og Þjóðarflokksins er lokið, og hinn umdeildi Scott Morrison, sem hefur gengt embætti forsætisráðherra síðastliðin fjögur ár, stígur til hliðar. Albanese hefur boðað tíma framfara og breytinga, og þá einna helst í loftslag...

Lesia Vasylenko og breytt heimsmynd eftir Covid-19 21.05.2022

Við byrjum Heimskviður þessa vikuna á því að fara til Úkraínu, nánar tiltekið til Kiev. Úkraínska þingkona Lesia Vasylenko hefur verið áberandi í heimspressunni bæði í aðdraganda innrásar Rússa í Úkraínu, og eins eftir. Hún er í stjórnarandstöðu og var áður ötull gagnrýnandi stijandi forseta, Volodymir Zelenskys, en síðustu vikur hefur úkraínskur þingheimur allur fylgt sér á bakvið forsetann. Guðm...

108 | Eftirspurn eftir úkraínskum konum og dauðarefsingar í Íran 14.05.2022

Þar sem er stríð, þar er kynferðislegu ofbeldi sömuleiðis beitt. Það virðist því miður vera einhverskonar lögmál, meira að segja enn þann dag í dag þrátt fyrir að aðgerðir gegn kynferðisofbeldi séu meira í umræðunni. Hluti af hjálparstarfi vegna stríðsins í Úkraínu miðar eingöngu að því að hjálpa konum á flótta undan mögulegu mansali, vændi eða öðru kynferðisofbeldi, og alveg ljóst að ekki er vanþ...

107 | Neyðarástand á Sri Lanka og Transnistría 07.05.2022

Rétt rúmur mánuður er líðinn frá því að neyðarástandi var lýst yfir á Srí Lanka í Indlandshafi vegna fjölmennrar mótmælaöldu. Þar er sögð dýpsta efnahagskreppa frá því að eyjan fékk sjálfstæði frá bretum árið 1948. Þau sem mótmæla krefjast þess að forseti landsins, Gotabaya Rajapaksa, ásamt ríkisstjórn segi af sér vegna meintrar spillingar og vanhæfni. Mótmælin hafa verið afar hörð. Lögreglan beit...

106 | Operation Mincemeat og Elon Musk 30.04.2022

Hvað eiga Adolf Hitler, heimilislaus maður sem lést eftir að hafa innbyrt rottueitur, augnhár og Ian Flemming, höfundur James Bond, sameiginlegt? Þau koma öll við sögu hernaðaraðgerð sem er talin ein sú best heppnaða í sögu síðari heimsstyrjaldarinnar. Nýlega var frumsýnd bíómyndin Operation Mincemeat, sem byggir á þessari sögu. Sögu sem á eiginlega meira skylt við kvikmyndir heldur en raunverulei...

105 | Símtalið frá Maríupol og hvað einkennir góða forsetafrú? 23.04.2022

Við hefjum Heimskviður í dag í hinni stríðshrjáðu Maríupol, og ræðum við Sergej Artamonov, sem ólst upp í Maríupol en hefur verið búsettur í Reykjavík undanfarinn áratug. Systir Sergejs, Natasha, varð eftir í Maríupol þegar rússneski herinn réðist inn í borgina og heyrði Sergej ekkert frá systur sinni í 56 daga. Þrjár bandarískar forsetafrúr eru í sviðsljósinu í nýrri þáttaröð úr smiðju danska lei...

104 | Ferðasaga frá Póllandi og hæstráðendur í Serbíu og Ungverjalandi 09.04.2022

Arnar Þór Ingólfsson, fréttamaður hjá Kjarnanum, fór á dögunum í fréttaferð til Póllands til að milja sögum af vettvangi, frá flóttafólki frá Úkraínu og sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum til að taka vel á móti þeim. Við heyrum áhugaverða ferðasögu Arnars Þórs í þættinum. Þeir Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands og Alexander Vucic, forseti Serbíu, gleðjast þessa dagana. Síðastliðna...

103 | Kvenréttindi í Afganistan og forsetakosningar í Frakklandi 02.04.2022

Heimskviður halda í dag til Afganistan og Frakklands. Talibanar skerða nú réttindi kvenna í Afganistan með reglulegum lagabreytingum, þvert á loforð um hið gagnsstæða þegar þeir náðu aftur völdum í landinu í ágúst í fyrra. Stúlknaskólum hefur verið lokað og konur mega ekki lengur ferðast með flugvélum án þess að hafa karlkyns ættingja með í ferð. Þróunin er einmitt í þær áttir sem mörg óttuðust, a...

102 | Af húðhvíttun og sögu Úkraínu 26.03.2022

Húðhvíttun á sér afar langa sögu þó aðferðir og áherslur í því að láta húð verða ljósari hafi tekið breytingum í gegnum aldirnar. Enn þann dag í dag er þetta iðnðaður upp á um átta milljarða Bandaríkjadala ár hvert og gangi spár sérfróðra eftir verður umfangið enn meira á næstu árum. En fórnarkostnaðurinn er umtalsverður, mikið af kremunum sem notuð eru í húðhvíttunarskyni innihalda hætturleg eitu...

101 |Dúgín, hið heilaga Rússland og bann við hinseginfræðslu í Flórída 19.03.2022

Stríðið í Úkraínu er sem fyrr helsta fréttaefni dagsins í dag. Mikið hefur verið rætt og ritað um afleiðingar þess og þær milljónir úkraínumanna sem hrakist hafa frá heimilum sínum, sem og að er virðist þá óskiljanlegu ákvörðun Rússlandsforseta að ráðast inn í fullvalda ríki. Minna hefur verið rætt þá menningarlegu, sögulegu, og ekki síst trúarlegu hugmyundafræði sem kann að liggja hér að baki. Gu...

100 | Hringferð um heiminn 12.03.2022

Í hundraðasta þætti Heimskviða höldum við í hringferð um heiminn, Við förum frá Skandinavíu til Suður-Ameríku, frá Ástralíu til Mið-Austurlanda, til Rússlands og Bretlands, og til Afríku og Asíu. Og fjöllum sem fyrr, um það sem gerist ekki á Íslandi. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjó...

100 | Hringferð um heiminn 12.03.2022

Í hundraðasta þætti Heimskviða höldum við í hringferð um heiminn, Við förum frá Skandinavíu til Suður-Ameríku, frá Ástralíu til Mið-Austurlanda, til Rússlands og Bretlands, og til Afríku og Asíu. Og fjöllum sem fyrr, um það sem gerist ekki á Íslandi. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjó...

99 | Herskylda og staðgöngumæður í Úkraínu og danskur njósnaskandall 05.03.2022

Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra herliðsins í Úkraínu hafa ótal Úkraínumenn rifið sig upp með rótum og lagt á flótta. En leiðir margra fjölskyldna hafa skilið vegna þess að stríðið kallar á hermenn. Víða hafa ættingjar þurft að kveðja nákominn karl...

Ascultă podcastul Heimskviður în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice