RÚV

Heimskviður

News IS ↓ Episoade: 355

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categorie

News

Site-ul podcastului

www.ruv.is

Cel mai nou episod

10 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

154| Náttúruhamfarir í Afríku, kosningar í Póllandi og Novo Nordisk 16.09.2023

Í Heimskviðum í dag förum við víða eins og venjulega, náttúruhamfarir í Afríku, pólitík í Póllandi og fjöllum svo um verðmætasta fyrirtæki Evrópu. Íbúar Norður-Afríku máttu þola tvenns konar náttúruhamfarir á þremur dögum um síðustu helgi. Mikið manntjón varð eftir jarðskjálfta í Marokkó og flóð í Líbíu og íbúar kvarta undan því að neyðaraðstoð berist ekki nógu hratt. Bjarni Pétur ræddi við Jóhann...

153| Heimsreisa án flugvéla og tíð valdarán í Afríku 09.09.2023

?Yfir 13 þúsund manns hafa hjólað Tour de France. Fleiri en sex þúsund sem hafa komist á tind Everest. Yfir 550 hafa komist út í geim. En það innan við 300 manns hafa heimsótt öll lönd heimsins. Þau eru fjögur sem hafa heimsótt öll lönd í heiminum tvisvar. Tveir hafa komið til allra landa í heiminum í einni og sömu ferðinni, það er án þess að fara heim á milli. Daninn Torbjørn Pedersen er annar þe...

152| Uppgjör við fortíðina í Chile og óspennandi kosningar í Rússlandi 02.09.2023

Líkt og fjallað hefur verið töluvert um í fréttum verða forsetakosningar í Bandaríkjunum eftir rúmt ár. Bandaríkin eru þó ekki eina stórveldið sem heldur slíkar kosningar á næsta ári því að í mars verða forsetakosningar í Rússlandi. Það er óhætt að segja að það ríki ekki mikil spenna varðandi það hver hljóti flest atkvæði í Rússlandi. Það eru ekki aðeins við fréttamenn sem fylgjumst spennt með því...

151| Áhrif kjarnorkusprengjunnar og arfleifð Megan Rapinoe 26.08.2023

Bíóaðsókn fór fram úr björtustu vonum í sumar þegar fólk víða um heim flykktist í kvikmyndahús til að sjá bæði Barbie, sem við heyrðum í áðan og svo myndina um ævi og uppfinningar Oppenheimers, föður kjarnorkusprengjunnar. Myndin hverfist um eðlisfræðinginn J. Robert Oppenheimer, sem fór fyrir Manhattan-verkefni Bandaríkjastjórnar. Myndinni verður ekki spillt þó að hér sé sagt, að ætlunarverkið tó...

Argentína og Óperudraugurinn 19.08.2023

Fjallað um stjórnmálaástandið í Argentínu og síðustu sýningar söngleiksins Óperudraugsins (Phanton of the Opera) á Broadway.

150 | Mansal og söngleikir 03.06.2023

Mansal og söngleikir eiga fátt ef nokkuð sameiginlegt, kannski annað en það en að vera umfjöllunarefni þáttarins í dag. Evrópulögreglan, Europol, greindi frá því í fyrradag að rúmlega 200 hafi verið handtekin í aðgerð gegn skipulögðum glæpahópum sem tengjast mansali. Um 13 þúsund lögreglumenn leituðu í fjörutíu og fjórum löndum, í íbúðarhúsum, lestarstöðvum, flugvöllum og víðar. Rúmlega 14 hundruð...

149 |Skuldaþakið og barneignir 27.05.2023

Stífar samningaviðræður um hækkun skuldaþaksins í Bandaríkjunum hafa staðið yfir undanfarið. Oddur Þórðarson rýndi í þetta fyrirbæri, hvað er skuldaþak og til hvers er það? Og hvers vegna er settur á svið samkvæmisleikur og samningaviðræður þegar kemur að nauðsynlegri hækkun skuldaþaksins. Fólk í dag eignast töluvert færi börn nú en fyrir 50 árum. Fæðingartíðnin í löndum OECD er nú komin niður fyr...

148 |Gjaldþrot VICE og hryllingurinn í Shakahola skógi 20.05.2023

Fjölmiðlahrun í Ameríku og fjöldamorð í Afríku eru á dagskrá í Heimskviðuþætti vikunnar. Bandarísk/kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Vice Media er gjaldþrota og söluferlið er hafið. Þótt Vice hafi upp á síðkastið verið virt vörumerki í fréttaheiminum, fyrir sína beinskeittu vettvangsblaðamennsku kemur gjaldþrotið ekki alveg á óvart. Fyrirtækið hefur í nokkurn tíma barist í bökkum í breyttu landslagi s...

147|Úkraínska moldin og argentínska silfrið 13.05.2023

Við komum við í Úkraínu og Argentínu í Heimskviðum þessa vikuna. Innrás Rússa hefur ekki aðeins lagt líf fólks í rúst, heldur líka náttúruna og auk allra morðanna sem Rússar eru sakaðir um eru þeir einnig sakaðir um vistmorð. Alveg eins og það er óljóst hvort fólkið í Úkraínu eigi nokkurn tíma eftir að jafna sig eftir voðaverk Rússa, þá gildir það sama um náttúruna. Vegna sprengjubrota, sprengjugí...

146|Kosningar í Póllandi og Ólympíuleikar í París 06.05.2023

Við byrjum þáttinn í Póllandi, þar sem þingkosningar verða haldnar í haust, kosningar sem gætu verið afdrifaríkar. Stærsti stjórnmálaflokkurinn, sem á pólsku kallast Lög og réttlæti, hefur ráðið lögum og lofum í Póllandi undanfarin átta ár en togstreita innan flokksins, og gagnvart smærri samstarfsflokkum á hægri vængnum, hefur að vissu leyti veikt stöðu pólsku ríkisstjórnarinnar. Stjórnarandstaða...

145| Borgarastríð og misskilinn Dalai Lama 29.04.2023

Í þættinum í dag eru umfjöllunarefnin tvö, annars vegar borgarastyrjaldir og hins vegar meintur misskilningur á hvað átti sér stað þegar trúarleiðtoginn Dalai Lama bað ungan dreng að sjúga á sér tunguna á dögunum. Nokkur óeining hefur ríkt síðustu misseri um framtíðarstjórnskipan eins stærsta og fjölmennasta ríkis Afríku, Súdan. Súdanar eru því vanir, enda eru valdarán og stríðsátök reglulegir við...

144| Flóttamannavandi Ítala og ofbeldi í kvennafangelsum Bandaríkjanna 22.04.2023

Flóttamannastraumurinn frá Norður-Afríku, yfir Miðjarðarhafið og til Ítalíu hefur fjórfaldast síðan í fyrra og kostað gífurlegan fjölda mannslífa. Orsakar straumsins er að leita í verra ástandi í þessum löndum, einkum Túnis. Og þetta allt saman veldur miklum vandræðum á Ítalíu. Stjórnvöld þar, sem hafa á stefnuskránni að draga úr þessum flóttamannastraumi, hafa lýst yfir neyðarástandi og segjast e...

143| Gagnaleki og Biden á Írlandi og sambúð Moldóvu og Rússlands 15.04.2023

Fjögurra daga heimsókn Joe Bidens bandaríkjaforseta til Írlands og Norður-Írlands lauk í gær en afar óvenjulegt er að bandaríkjaforsetar staldri svo lengi við í opinberum erindagjörðum. Biden hefur svo gott sem staðfest að hann ætli að berjast fyrir endurkjöri eftir rúmt ár og tímasetning heimsóknarinnar heppileg til að afla vinsælda í kosningabaráttunni, en friðarsamkomulagið á Írlandi, sem banda...

142| Bankar í vandræðum og spennandi kosningar í Finnlandi 01.04.2023

Það kerfishrun, sem varð á alþjóðlegum fjármálamörkuðum haustið 2008, er með því stærsta orðið hefur síðastliðna öld. Hrun bankakerfisins hér á landi í framhaldinu er síðan einn afdrifaríkasti atburður í Íslandssögunni. Það hefur löngum verið deilt um áhrif erlendis frá, á þá atburðarás sem leiddi til hruns íslenskra banka 2008, og þá hversu mikil þau voru. Það verður hins vegar ekki um það deilt...

141| Uppgangur Kína og framtíðarborg byggð á sandi 25.03.2023

Xi Jinping varð nýlega sá fyrsti í áratugi til að vera kjörinn forseti Kína þriðja kjörtímabilið í röð. Stefna hans í utanríkismálum hefur verið að berjast gegn því sem hann hefur talið vera viðleitni Bandaríkjamanna til að halda aftur af Kína. Og til að einangrast ekki frá Vesturlöndum er mikilvægt fyrir Kína að vera í tengslum við Rússland. Kínverjar hafa reynt að tala fyrir friði í Úkraínu en l...

140| Ferðasögur frá Úkraínu 18.03.2023

Við helgum þáttinn Úkraínu og stríðsátökunum rúmu ári eftir að Rússar réðust þar inn. Jón Björgvinsson fréttamaður hefur dvalið þar mánuðum saman á þessu ári. Hann er nýkominn frá Lviv í vesturhlutanum og segir að þar sé að verða til einhvers konar stríðstúrismi, þar sem kaffibollar í úkraínsku fánalitunum og skeinipappír með myndum af Pútín rússlandsforseta selst eins og heitar lummur, og söluágó...

139| Konurnar og ISIS liðarnir og háleynilegur hálsmenafundur 11.03.2023

Hvernig má það vera að samtök sem eru einna helst þekkt fyrir hrottalegt ofbeldi, hryðjuverk og illa meðferð á konum heilli konur sem búa á Vesturlöndum? Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, hið alræmda ISIS, lokkuðu til sín metfjölda kvenna frá vestrænum ríkjum - miðað við sambærilega hópa. En hvaða konur voru þetta? Voru þetta upp til hópa ungar áhrifagjarnar konur sem létu gelpj...

138| Kosningar í Nígeríu og umsvif Rússa í Afríku 04.03.2023

Nígeríumenn fá líklega ekki þær breytingar og endurnýjun sem svo margir höfðu kallað eftir. Bola Tinubu var sigurvegari kosninganna þar í vikunni, en hann er úr sama flokki og Buhari fráfarandi forseti. Tinubu hefur verið lengi í stjórnmálum og slagorð hans í kosningabaráttunni var - nú er komið að mér. Átti að vera tákn mikilla breytinga en það er mjög ólíklegt að af þeim verði. Nígería er eitt f...

137| Plastmengun á Norðurslóðum og málsókn Nígeríumanna gegn Shell 25.02.2023

Þó plastmengun í hafi sé heldur lítil á Norðurslóðum miðað við til dæmis Miðjarðarhafið þá er hún að aukast. Og hvaðan kemur þessi plastmengun á svæðinu sem sárafáir búa á? Það er mikið til úr sjávarútveginum, en sömuleiðis áhrif frá okkur, til dæmis úr dekkjakurli og í plastþráðum úr útivistarfatnaði sem losna úr þeim við þvott og komast þannig út í umhverfið. Hallgrímur Indriðason var á ráðstefn...

136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika 18.02.2023

Þemaþættir Heimskviða halda áfram og að þessu sinni er sjónum beint að svæði sem er hinum megin á jarðkringlunni, Nýja Sjálandi og eyríkinu Tuvalu. Stjórnmálakonur sem hafa notið mikillar hylli alþjóðlega hverfa nú á braut ein af annarri, og segja álagið og atganginn sem fylgi nútímastjórnmálum helstu ástæðuna. Við ætlum að rýna í stöðu kvenleiðtoga og ástæður þess að aðeins tíu prósent þjóðarleið...

135 | Sprenging í Líbanon og jarðskjálftar í Tyrklandi og Sýrlandi 11.02.2023

Í næstu þáttum ætlum við að einbeita okkur að ákveðnum svæðum á kortinu, hafa eins konar þemu, sem eru annað hvort landfræðileg eða hugmyndafræðileg. Þetta er fyrsti Þema-þáttur Heimskviða og við færum okkur suðaustur á bóginn. Til miðausturlanda, þar sem óútreiknanleg plánetan sýndi ógurlega krafta sína í byrjun vikunnar, með skelfilegum afleiðingum. Við förum til Tyrklands, Sýrlands, Sádí Arabíu...

134 | Erdogan í kosningaslag og saga LEGO 04.02.2023

Erdogan Tyrklandsforseti ætlar sér að ná aftur kjöri í kosningum í maí, en stjórnarandstaðan hefur enn ekki komið sér saman um frambjóðanda gegn honum. Erdogan hefur verið forseti síðan 2014, var áður forsætisráðherra í ellefu ár, og þar áður borgarstjóri í Istanbúl, Arftaki hans þar, gæti orðið hans helsti keppinautur í kosningunum í maí. Flokkur hans hefur dalað í skoðanakönnunum en Erdogan er s...

133 | Mótmæli í Perú og sívaxandi spenna Armeníu og Aserbaísjan 28.01.2023

Það hefur verið glundroði í stjórnmálunum í Perú undanfarin ár. Spilling hefur verið landlæg og mótmæli tíð. Eftir misheppnaða tilraun forseta til að leysa upp þingið í desember, og brottrekstur þessa sama forseta í kjölfarið, hefur hins vegar soðið upp úr. Fjölmenn mótmæli hafa verið barin niður af hörku og á fimmtug tug hefur látið lífið. Ástæðu þessara átaka má hins vegar rekja áratugi og jafnv...

131| Dauðarefsingar og harðlínustjórn í Ísrael 14.01.2023

Bann við palestínska fánanum á almannafæri, fleiri landtökubyggðir á landsvæði Palestínumanna og umdeild yfirhalning á dómskerfinu eru á meðal þess sem ný ríkisstjórn í Ísrael hefur boðað. Benjamín Netanjahú er snúinn aftur sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem er sögð mesta harðlínustjórn í sögu Ísraels. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, um...

129| Heimskviður ársins 2022 17.12.2022

Í þessum síðasta Heimskviðu-þætti ársins rifjum við upp allt það helsta sem gerðist úti í heimi á árinu sem senn er á enda. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Ascultă podcastul Heimskviður în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice