Óli Gneisti Sóleyjarson
Gneistaflug
Efnisval Gneistaflugs er handahófskennt. Hlaðvarpið fjallar um það sem umsjónarmanni þáttarins, Óla Gneista, dettur í hug að tala um í einræðum sínum hverju sinni. En þeir sem þekkja Óla Gneista sem bloggara vita að sum þemu eru honum hugleikin. Það má því búast við reglulegum pistlum um samspil tækni og menningar. Þið getið treyst því að Óli tali um sjónvarpsþætti sem hann er að horfa á og bækurnar sem hann les. Það er ekki ólíklegt að hann tjái sig um stjórnmál, þó ekki í flokkspólitískum skilningi heldur út frá hugsjónum hans um mannréttindi og jafnrétti. Óli Gneisti Sóleyjarson er þjóðfræð...
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: truflun.net
Autor
Óli Gneisti Sóleyjarson
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
12 dec. 2023
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Sorglegt og hræðilegt glimmer 12.12.2023 5:59
Gæti verið að það sé sorglegt og hræðilegt að kasta glimmer á ráðherra eða er þetta kjánalega ýkt tilraun til að gera valdafólk að fórnarlömbum.
Neil Gaiman á Reykjavík Noir 20.11.2023 10:34
Þáttur um heimsókn Neil Gaiman á Iceland Noir og upplifun Óla Gneista á hátíðinni
Neil Gaiman og Sandman (þáttur frá 2013) 05.08.2022 26:07
Umfjöllun um ævi og feril Neil Gaiman með sérstakri áherslu á The Sandman.
Fasistar í Washington 06.01.2022
Forsetatíð Donald Trump varð til mikilla deilna um hvers eðlis pólítík hans væri. Var þetta lýðskrum? Var þetta fasismi? Var þetta bæði? Þegar stuðningsfólk hans réðist á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar 2021 má segja að svarið hafi endanlega fengist þó líklega hafi það aldrei verið sérstaklega vel falið.
Desmond Tutu (1931-2021) 26.12.2021 17:04
Desmond Tutu barðist gegn aðskilnaðurstefnunni í heimalandi sínu. En hann var margbrotinn. Barátta hans var ekki bara gegn einu formi kúgunar heldur kúgunar í breiðu samhengi. Í þessum þætti (eða bloggi ef þú kýst frekar texta) fer Óli yfir feril erkibiskupsins og bendir á nokkur atriði sem gætu orðið útundan í minningargreinum sem eru nú að birtast.
„Ég átti sko transvin“ 22.12.2021 15:42
Nýlega kom nýtt uppistand með Dave Chappelle á Netflix. Þar eyðir Chappelle miklu púðri í að tala um transfólk og auðvitað skapaðist mikil umræða um málið. Aðdáendum grínistans fannst þetta allt alveg frábært. Ætli Óli sé sammála?
Hinsta andvarp bloggarans? 15.12.2021 14:05
Vefurinn er undir sífelldri árás stórfyrirtækja sem vilja stjórna honum. Þessi fyrirtæki vilja taka það sem er opið og aðgengilegt og loka það inni. Á tímabili voru blogg öflugur hluti vefsins en samfélagsmiðlar hafa nú náð stjórn á dreifingu efnis. Hvað er til ráða?
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice