Gímaldið
Gímaldið
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: gimaldid.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll 15.05.2026 50:54
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk. Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þ...
Eru tölur í kosningabaráttu til að upplýsa eða sannfæra? 14.05.2026 42:47
Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða? Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu...
Á borgin að fela einkaðilum verkefnin eða sjá um þau sjálf? 13.05.2026 26:03
Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila. Hvaða flokkar vilja fela einkaaðilum verkefnin í Reykjavík? Hvaða flokkar vilja að borgin vinni öll verk sjálf? Kostnaður við útvistun verkefna er oft vanmetinn og sparnaður ofmetinn Eftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant Kjörnir fulltrúar mi...
Hinsegin bókmenntir í brennidepli á bókmenntahátíðinni Queer Situations 13.05.2026 24:04
Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur hefur sérhæft sig í hinsegin bókmenntum. Hún segir bókmenntir ekki hlutlausar heldur sýni þær okkur ákveðna mynd af samfélaginu. Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations fer fram í maí og þar er Ásta með erindi sem ber yfirskriftina: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi . Erla Hlynsdóttir ræðir við...
Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum 11.05.2026 29:40
Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, hvort sem litið er til Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga borgarinnar, eða íbúa á landsbyggðinni. Þetta sýna niðurstöður Þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Rúnar Vilhjá...
Gísli Marteinn: Reykjavík á að bera sig saman við aðrar höfuðborgir 09.05.2026 53:27
Margt kemur Gísla Marteini Baldurssyni spánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík. Í þættinum Börn og Bílastæði er rætt við Gísla Martein um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir og þau öngstræti sem umræðan um skipulagsmál er komin í í aðdraganda kosninga. Er raunhæft að bera Reykjavík saman við aðrar borgir? Hvernig væri Reykjavík ef þéttingin væri eins og í París? A...
Bannorðin í stefnuskrám flokkanna og sundlaugar ofar Sundabraut 06.05.2026 33:24
Rýnt í stefnuskrár flokkanna í borginni. Eru þær innantóm loforð eða fullar fyrirheitum um það sem koma skal? Þættinum stýra Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir. Fjallað er um: Sundlaugar oftar nefndar en Sundabraut í stefnuskránum Nokkur bannorð virðast vera í stefnum flokkanna Allir vilja bæta leikskóla en greinir á um það hvort rekstrarform leysir vanda Flokkar sem hafa stutt samgöngu...
Sirkabát #16: Mælingar á atvinnuleysi 04.05.2026 27:22
Hvort eru atvinnulausir rúmlega níu þúsund eða nálega átján þúsund talsins? Tvær stofnanir hafa umsjón með að telja fjölda hverju sinni, Vinnumálastofnun og Hagstofa Íslands. Mælingar beggja stofnana á atvinnuleysi fylgjast venjulega að. Nú ber hins vegar svo við að munur á mælingunum hefur aukist mikið á sama tíma og fólki án vinnu hefur fjölgað vegna kólnunar í hagkerfinu.
„Það er enginn að segja að allir eigi að hætta að keyra“ – Bílastæði og borgarumhverfi 02.05.2026 51:30
Tölum um bílastæði! Bílastæði hafa verið í brennidepli í kosningabaráttu á höfuðborgarsvæðinu. En hvað eru bílastæði? Hvaða tilgangi þjóna þau í borgarumhverfi og hvaða áhrif hefur það ef við fjölgum þeim stöðugt? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við sérfræðinga um fyrirbærið bílastæði og skoðar hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig við líðan íbúa og heilsu. Vi...
Er umræðan um borgina á villigötum? – Kosningaþátturinn Börn og bílastæði hefur göngu sína 28.04.2026 26:22
Kosningaþáttur Gímaldsins rúllar af stað. Hann heitir Börn og bílastæði ! Stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði! Í þáttunum verða málefnin í forgrunni en frambjóðendur fá frí. Í fyrsta þætti fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fjöl...
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið 18.04.2026 38:19
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum. Í þættinum, sem Gímald...
Sigríður Andersen ræðir ESB-tillögu stjórnarinnar og stöðuna í stjórnarandstöðu 14.04.2026 24:24
Sigríður Á Andersen formaður þingflokks Miðflokksins segir ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar þurfa að taka breytingum í meðförum þingsins en telur að þingmenn meirihlutans séu of háðir ráðherrum sínum. Hún býst við átökum í utanríkismálanefnd á lokaspretti þingvetrar.
Birgir Ármannsson tekur til máls um fundarstjórn forseta 09.04.2026 43:09
Hvaða herrum þjónar forseti Alþingis og hver ræður dagskrá þingsins í raun og veru? Hvernig býr meirihlutinn sig undir málþóf og hvernig heldur forseti sönsum þegar allt verður vitlaust? Þessum spurningum og mörgum öðrum svarar Birgir Ármannsson, fyrrverandi þingforseti í viðtali um leikjafræðina á Alþingi.
Þjálfuð til að berjast gegn eigin þjóð: Þórdís Kolbrún segir frá skipulögðum barnsránum 02.04.2026 32:09
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ræðir skipulögð barnsrán Rússa í Úkraínu; Um börnin sem numin hafa verið á brott og eru rænd uppruna sínum með heilaþvotti, hvernig unnið er að endurheimt þeirra og hvernig Evrópa og alþjóðasamfélagið geti og eigi að bregðast við. Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi hér
Heppinn að geta einbeitt sér að loftslagsmálum 28.03.2026 18:47
Verðlaunablaðamaðurinn Kjartan Kjartansson ræðir hvernig hann nálgast fréttaskrif, áhugann á vísindum og hvernig fjölmiðlaumfjöllun um loftslagsmál hefur þróast.
Sirkabát #15: Skoðanakannanir 25.03.2026 26:29
Rík þörf er á umræðu um gæði þeirra skoðanakannana sem birtast víða í opinberri umræðu. Þetta segir Ólafur Þór Gylfason, sviðstjóri markaðarannsókna hjá Maskínu, en hann settist niður með þáttastjórnendum Sirkabát og ræddi um úrtaksrannsóknir hér á landi og erlendis og þær breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum áratugum. Hann segir sérstöðu Íslands í þessum efnum að hverfa og ræðir áskoran...
Pawel Bartoszek: Stuðningsfólk ESB geti lært af baráttunni gegn Brexit 07.03.2026 19:49
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, ræðir Evrópumálin, sigursögu Póllands og Brexit. Hann telur óttann við að glata fullveldinu í viðskiptabandalögum fela í sér minnimáttarkennd. Öflug fullvalda ríki innan ESB beri vott um hið gagnstæða. Pawel segist ekki kvíða umræðu næstu mánaða. Ísland sé rótgróið lýðræðisríki og þjóðin eigi sér langa og ríka umræðuhefð. Aða...
Davíð Þorláksson: Það verður engin sátt um Borgarlínu fyrr en hún byrjar að virka 06.03.2026 31:19
Davíð Þorláksson segist sjaldan heyra nýja spurningu eða hugmynd sem tengist Borgarlínunni. Vangaveltur og ýmis konar gagnrýni sem fram komi um Borgarlínuna sé almennt eitthvað sem hafi fyrir löngu verið svarað. Hann segir eðlilegt að fólk spyrji spurninga og það sé líka eðlilegt að verkefnið sé ekki endilega sérlega vinsælt. Innviðaverkefni, af þeirri stærðargráðu sem Borgarlínan er, njóti almenn...
Sirkabát #14: Hvað er verðbólga eiginlega að mæla? 05.03.2026 25:25
Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega – og hvernig er verðbólga mæld? Ásta Jenný Sigurðardóttir, teymisstjóri vísitölu neysluverðs á Hagstofunni, útskýrir hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma. Ef þú sérð tölu í fréttum og vilt vita meira, sendu o...
Sálfræðilegi samningurinn á íslenskum fjölmiðlamarkaði 02.03.2026 26:50
Þorsteinn Hjálmsson ræðir meistaraverkefni sitt í mannauðsstjórnun við HÍ: „Nei, en ég vinn á Ríkisútvarpinu. Það eru hinir sem eiga erfiðara.“ Upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum. Þorsteinn segir að samningurinn sé sterkur í faginu en hann mótist á ólíkan hátt eftir því hvort blaðamennirnir starfa á RÚV eða einkareknum fjölmiðlum.
Bókapressan: Anna Lea Friðriksdóttir nýr formaður FÍBÚT 02.03.2026 19:07
Bækur hafa alltaf verið stór þáttur í lífi Önnu Leu Friðriksdóttur sem nýverið var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda fyrst kvenna. „Við vitum það að bóklestur fer minnkandi. Það er mest rætt um börnin og þeirra bóklestur. En ég held að yngstu börnin séu í raun meiri fyrirmyndir fyrir fullorðna heldur en fullorðnir fyrir börnin,“ segir Anna Lea í viðtali við Bókapressuna. Hún segir að...
Sirkabát #13: Hvernig notum við gögn í afbrotafræði? 28.02.2026 30:58
Hvernig eru afbrot í samfélaginu mæld og metin? Fjölbreyttum upplýsingum er safnað um afbrot sem gefa vísbendingar um fjölda og þróun þeirra í samfélaginu. Haldið er utan um fjölda handtaka, ákærðra og fjölda sem sitja í gæsluvarðhaldi eða afplána dóm í fangelsi. Þrátt fyrir það ná gögn sem til eru ekki yfir nema brot af þeim afbrotum sem framin eru hverju sinni, flest afbrot eru hvergi tilkynnt...
Sirkabát #12: Afbrot og innflytjendur 24.02.2026 19:08
Tölur um ákærur á hendur erlendum ríkisborgurum hér á landi hafa verið nokkuð til umræðu eftir að dómsmálaráðuneytið sendi frá svar við fyrirspurn þingmanns sem reyndist innihalda reiknivillu, líkt og Gímaldið sagði frá í frétt um málið . Hvað má lesa úr þessum tölum og hvaða aðferðum er hægt beita til að skoða gögnin í réttu samhengi? Þetta er rætt í nýjasta þætti Sirkabát. Gímaldið er nýr áskrif...
Pólitík og fjölmiðlar – vikuspjall 21.02.2026 12:44
Blaðamenn Gímaldsins fara yfir mál sem fjallað hefur verið um í vikunni. Væringar innan VG og rekstrarstuðningur við fjölmiðla eru meðal þess sem er til umfjöllunar. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift, hægt er að lesa eða hlusta
Nágrannar: „Við erum svona lukkudýr“ 18.02.2026 34:47
Nágrannar eru nýir hlaðvarpsþættir Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Gestur hennar að þessu sinni er Anna Ólafsdóttir Björnsson sem hefur átt fjölmarga nágranna í gegn um tíðina, jafnvel þó hún hafi nú búið á sama stað í 45 ár. Anna talar um sig sem ákveðið lukkudýr í nágrannamálum og aldrei átt leiðinlega nágranna, ekki einu sinni nágranninn sem hún var fyrirfram vöruð við en reyndist síðan...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice