Gímaldið

Gímaldið

News IS ↓ Episoade: 107

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: gimaldid.is

Autor

Gímaldið

Categorie

News

Site-ul podcastului

gimaldid.is

Cel mai nou episod

13 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Akademíski armur Áfram Ísland og Brexit-bragur á lokasprettinum 17.08.2026

Hvenær er fundur fræðilegt innlegg í umræðu og hvenær er hann pólitískur áróðursfundur? Gímaldið hefur birt umfjöllun um fund nei- hreyfingarinnar Áfram Ísland með svissneskum lögfræðingi og fyrrverandi prófessor og dómara, Carl Baudenbacher, en sagan af einni lítilli bókun á sal innan Háskóla Íslands er með nokkrum ólíkindum svo ekki sé meira sagt, eins og rætt er um í þættinum.  Tvær vikur eru í...

Formaður Vinstri grænna segir JÁ í ágúst 09.08.2026

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu. Samkvæmt könnunum ætlar yfirgnæfandi meirihluti kjósenda flokksins að segja já í atkvæðagreiðslunni. Rósa Björk segir forystu flokksins verða að leggja við hlustir og bregðast við viðhorfsbreytingunni í flokknum. Aðalheiður Ámu...

Lifir þjóðin ágúst af eða deyr hún úr leiðindum? 06.08.2026

Ritstjórn Gímaldsins tekur stöðuna á kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnun, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og nei-hreyfinganna, hvort þjóðin sé orðin þreytt á málinu og hvort þögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í umræðunni sé skynsamleg. Eitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland því stuðningur við nei...

Sér tækifæri fyrir landsbyggðina 29.07.2026

Reinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, segir að ný eyjastefna Evrópusambandsins, sú fyrsta sinnar tegundar, geti reynst mikilvægt innlegg fyrir Ísland í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún taki sérstaklega á aðstæðum sem eigi vel við íslenskan veruleika: einangrun, háum flutningskostnaði og litlum heimamörkuðum.  Erla Hlynsdóttir ræðir við Reinhard um byggðamál í tengslum við fyrirhugaða þjó...

„Skemmdarverk á lýðræðislegri umræðu“ – Gauti B. Eggertsson um staðreyndir og rangfærslur 23.07.2026

Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hann fór að leggja sig fram um að leiðrétta rangfærslur í umræðu um Evrópumál og þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann hefur á undanförnum mánuðum birt greinar og útreikninga sem varpa ljósi á fullyrðingar í umræðunni sem ekki standast skoðun. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Gauta um þessa sta...

Ekki íþróttakeppni þar sem stórþjóðir valta yfir smáþjóðir 18.07.2026

Er samstarf Evrópuþjóða eins og íþróttakeppni þar sem litlar þjóðir sitja alltaf eftir en þær stærri taka bikarinn? Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti sem meðal annars hefur starfað sem forstöðumaður lagaskrifstofu EFTA, segir að sú mynd standist ekki skoðun. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Dóru um hvernig hlutirnir virka í Brussel: muninn á EES og EFTA, tveggja stoða kerfið,...

Er bannað að tala um álagningu á Íslandi? 15.07.2026

Samkeppniseftirlitið er nú með verðhækkanir á matvöru og eldsneyti til skoðunar en hagsmunasamtök kveinka sér undan því í stað þess að hvetja til þess að verð lækki og þar með verðbólgan. Eyrún Magnúsdóttir og Helga Arnardóttir, nýr liðsmaður Gímaldsins, ræða um hátt matvöruverð, methagnað matvörurisanna og af hverju enginn virðist geta sagt upphátt að álagning þurfi að lækka. Matvöruverð á Ísland...

„Aðgangur að húsinu en ekki öllum herbergjum“ í styrkjakerfi ESB 07.07.2026

Evrópskir styrktarsjóðir eru langstærsta alþjóðlega uppspretta styrkja inn í íslenskt vísinda-, mennta- og menningarsamfélag og aðgangur Íslands að þeim er vel tryggður í gegnum EES-samninginn. Ísland hefur þó enga formlega aðkomu þegar áætlanir eru mótaðar, en það myndi breytast með inngöngu í ESB. Þetta segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, í viðtali við hlaðvarp Gímaldsins. Rann...

Kosningabaráttan: Geta gervimenni klofið þjóðina? 03.07.2026

Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir fara yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna atkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þær ræða nýjar baráttuhreyfingar, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu. Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki um aðild? Hvaða þýðingu hafa nýju já- og nei- hreyfingarnar fyri...

Borgin, Bretland og Brexit á röngunni 27.06.2026

Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, tíu ára afmæli Brexit og óróa í breskum stjórnmálum, nýjan liðsmann Gímaldsins, áherslu á neytendaumfjöllun og nýja stjórnsýsluúttekt um Græna gímaldið. Hvað kemur í staðinn fyrir alla upplýsingafulltrúa borgarinnar? Verður upplýsingamiðluninni útvistað og mega borgarbúar búast við fleiri „lab...

Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur 24.06.2026

Hvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn...

Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já 20.06.2026

Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um:  Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræður mikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virk mótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefn...

Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB 18.06.2026

Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka...

Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina 16.06.2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu.  Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust?  Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands?  Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum?  Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá? Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að...

Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB 13.06.2026

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu.  Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gag...

Stóru samtökin þegja: ASÍ og SA munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 11.06.2026

Stór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Sólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍ Félag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðu Íslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til a...

Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild 09.06.2026

„Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða...

Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir 03.06.2026

Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök.  Þáttastjórnandi er Eyrún Mag...

Sirkabát #17: Dýrtíð á Íslandi 01.06.2026

Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá...

Áhrif ESB-aðildar fyrir budduna og bókhaldið 25.05.2026

Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um:  Aukin viðskipti og umsvif Breytingar á verðla...

Gímaldið kíkir í pakkann: Samningsmarkmið utanríkismálanefndar 23.05.2026

Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið  aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra.   Meðal umræðuefna í þættinum:   Dramatís...

R-listinn með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn 19.05.2026

Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum: Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en Sjálfstæðisflokkurinn Velgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir...

Kosningaúrslitin: Lesið á milli línanna 17.05.2026

Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta: Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreynd Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar...

Næsti kafli í Reykjavík og það sem við hefðum átt að tala meira um 15.05.2026

Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar.  Töfratalan 12 sem allt snýst um Sviptingar í síðustu könnun fyrir kosningar Meirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnar Hvernig munu hæ...

Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll 15.05.2026

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk.  Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þ...

Ascultă podcastul Gímaldið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice