Nói Klose

Fólkið Á Bakvið Nafnið

Í hlaðvarpinu Fólkið Á Bakvið Nafnið eru tekin viðtöl við áhugavert fólk með einstakar sögur og lífsreynslu. Markmiðið er að læra af þeirra ferðalagi og deila innblæstri, fróðleik og allskonar lífssjónarhornum með hlustendum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: podcasters.spotify.com

Autor

Nói Klose

Categorie

Education

Site-ul podcastului

podcasters.spotify.com

Cel mai nou episod

3 apr. 2025

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#10 - Sirrý Arnardóttir 03.04.2025

Hvernig lærum við að tjá okkur betur? Í þessum þætti spjalla ég við Sirrý Arnardóttur – fjölmiðlakonu til 30 ára, rithöfund og stjórnendaþjálfara sem hjálpar fólki að koma fram af öryggi og krafti. Lærdómsríkt, hvetjandi og virkilega skemmtilegt spjall.

#9 - Dóra Júlía 11.03.2025

Dóra Júlía hefur skapað sér einstakan feril á mörgum sviðum – hún er DJ, samfélagsmiðlastjarna, fjölmiðlakona, pilates & barr þjálfari, hinsegin fyrirmynd og mikil tískukona sem er óhrædd við að fylgja sínu eigin flæði, byggja upp sinn stíl og lifa lífinu á sínum eigin forsendum.

#8 - Gísli Garðar & Alex Orri 01.03.2025

Þeir Gísli Garðar og Alex Orri eru vinir sem kynntust í MR og fóru fljótt að forrita saman. Árið 2024 hófu þeir að þróa gervigreindar lausn fyrir heilbrigðisgeirann sem forgangsraðar og greinir eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu. Lausnin er hönnuð til að létta álag af heilbrigðiskerfinu með því að hjálpa starfsfólki m.a. að vinna hraðar og að skila betri þjónustu.

#7 - Ragnhildur Ágústsdóttir 26.02.2025

Ragnhildur Ágústsdóttir, oft þekkt sem Lady Lava er meðal annars er konan á bakvið Lava Show, einu sýninguna í heiminum þar sem þú getur séð raunverulegt bráðið hraun flæða beint fyrir framan þig. Við fórum við í alla söguna – frá því hvernig hugmyndin kviknaði yfir í öll heimsins klúður á leiðinni, sem og alla stórkostlegu sigrana. Við spjölluðum líka um markaðssetningu, framtíðarsýn Lava Show og...

#6 - Matti Ósvald 24.02.2025

Í þessum þætti fæ ég til mín Matta Ósvald, oft kallaður markþjálfi Íslands. Við ræddum það meðal annars hvað markþjálfi gerir, hvernig hann hjálpar fólki að vinna að sínum markmiðum og byggja upp sjálfsvirðingu og sjálfstraust. Einnig fórum við í það hvernig maður breytir neikvæðu hugarfari í jákvætt og hvað þau sem ná lengst í lífinu eiga öll sameiginlegt. Mjög eflandi og lærdómsríkt spjall!

#5 - Ágúst Wigum 19.02.2025

Ágúst Wigum er ungur leikari sem hóf ferilinn sjö ára í Borgarleikhúsinu og hefur síðan leikið í ýmsum sýningum, myndum og þáttum, m.a. Ljósbrot og Vigdísi . Við ræddum meðal annars ferilinn, vöxt hans sem leikara og hvernig leiklistarnám ýtir manni út fyrir kassann.

#4 - Tobias Klose 16.02.2025

Tobias Klose / pabbi, er ævintýramaður sem hefur lifað skemmtilegu lífi, allt frá barnæsku þar sem hann ólst upp í Þýskalandi til þess að verða fyrirtækjastjórnandi í ferðaþjónustu hér á Íslandi. Við ræddum viðskipti, stjórnun, ævintýraþrá, orku og fullt fleira!

#3 - Brynjar Barkarson 13.02.2025

Brynjar Barkarson er tónlistarmaður, skapari, húmoristi og fullt fleira. Í þessum þætti förum við dýpra en bara í tónlistina – ræðum trú, lífssýn og listina að skapa. Hann deilir sögum úr bransanum, hvernig ClubDub byrjaði, segir frá bestu giggunum og fullt fleira. Skemmtilegur, einlægur og innblásandi þáttur!

#2 - Eva Mattadóttir 21.01.2025

Í þessum þætti fáum við að kynnast Evu Mattadóttur, kraftmikil athafnakona sem hefur skapað sér nafn meðal annars með hlaðvarpinu Normið. Hún er meðeigandi í Boheme Húsinu en hefur líka mikla reynslu sem Dale Carnegie þjálfari. Hún deilir með okkur  áhugaverðum lærdómi og innblástri í þessum þætti.

#1 - Ólafur Stefánsson 08.01.2025

Ólafur Stefánsson er einn besti handboltamaður sögunnar og góður leiðtogi. Í þættinum ræðum við barnæsku hans, atvinnumennsku, hvernig hann tekst á við stress og mistök, og hvað skilgreinir góðan leiðtoga. Einnig förum við í áhugaverð málefni eins og psychedelics og lífið eftir handboltaferilinn.

Ascultă podcastul Fólkið Á Bakvið Nafnið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice