Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: solviaskrift1210105.libsyn.com
Autor
Sölvi Tryggvason
Categoria
Site do podcast
Último episódio
27 de set de 2026
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#188 Sigmundur Stefánsson með Sölva Tryggva 16.05.2023 45:42
Sigmundur Stefánsson hefur hlaupið tugi maraþonhlaupa eftir að hafa fengið hjartaáfall og síðar krabbamein. Hann segir læknana fyrst hafa sagt sig ruglaðan, en nú sé hann notaður sem skólabókardæmi um það sem er mögulegt. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um ótrúlegar þrekraunir, hugarfar, leiðir til að sigrast á erfiðleikum og fleira.
#187 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 14.05.2023 1:10:12
Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, kerfin, lýðræði, geðheilsu þjóðarinnar og margt fleira.
#186 Guðni Gunnars snýr aftur 10.05.2023 1:03:25
Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Hann hefur svo áratugum skiptir unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Í þættinum ræða hann og Sölvi um andlega og líkamlega heilsu, vegferð Guðna, helstu verkefni fólks í átt að betra lífi og margt fleira.
#185 Sigmundur Davíð með Sölva Tryggva 07.05.2023 1:22:42
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um menningarstríð, stjórnmálamenn, að þora að segja hug sinn og margt fleira.
#184 Krummi mínus með Sölva Tryggva 03.05.2023 1:24:55
Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Krummi um magnaðan feril Krumma, rokkið, lífsstílinn, hæðirnar og lægðirnar. Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson er betur þekktur sem Krummi í Mínus. Eftir ótrúlega velgengni rokksveitarinnar Mínus um allan heim kom harkaleg lending eftir misjafnan lífsstíl í kringum rokkið. Í þættinum ræða Sölvi og Krummi meðal annars um tónlistina, djammið, ótrúlegan lífsstíl í kr...
#183 Tryggvi Hjalta með Sölva Tryggva 30.04.2023 1:31:15
Tryggvi Hjaltason, greinandi og gagnasérfræðingur hefur vakið mikla athygli í þjóðmálaumræðunni undanfarið. Í þættinum ræða Tryggvi og Sölvi um menntakerfið, snjallsímanotkun, aga, trú og trúarbrögð og margt fleira.
#182 HJ Elite með Sölva Tryggva 23.04.2023 45:00
Hlynur Jónsson er hótelstjóri og skemmtikraftur sem hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtileg innslög á samfélagsmiðlum. Í þættinum ræða Hlynur og Sölvi um álit annarra, ferðalög, baráttu Hlyns við bakkus og margt fleira.
#181 Hallgrímur Helgason með Sölva Tryggva 20.04.2023 1:45:46
Hallgrímur Helgason er einn þekktasti rithöfundur Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti ræða Hallgrímur og Sölvi um magnaðan feril Hallgríms, samfélagsmál, listsköpun og margt fleira.
#180 Guðjón Heiðar snýr aftur 16.04.2023 1:18:59
#180 Guðjón Heiðar snýr aftur Guðjón Heiðar Valgarðsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir skoðað alls milli himins og jarðar þegar kemur að samsæriskenningum. Í þættinum ræða Sölvi og Guðjón um allt það helsta sem er að gerast í upplýsingaflæði fyrir utan meginstraumsfjölmiðlana.
#179 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva 10.04.2023 1:05:19
Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félags fanga. Hann sat sjálfur í fangelsi í 16 ár fyrir fíkniefnasmygl, bæði í Danmörku og á Íslandi, en er nú frjáls maður. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um fangelsi og fangelsismál og hliðar samfélagsins og mannlegs eðlis sem fæstir vilja skoða. Þeir fara yfir sögu Guðmundar sjálfs, hvernig hann endaði á rangri braut og hvað við getum gert til...
#178 Einar Bárða með Sölva Tryggva 06.04.2023 1:38:44
Einar Bárðason er löngu orðinn landsþekktur sem lagasmiður og umboðsmaður. Þessum fjölhæfa manni er margt til lista lagt. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Einar yfir feril Einars, getuna til að sigrast á erfiðleikum, að finna neistann og margt margt fleira.
#177 Helgi Áss með Sölva Tryggva 02.04.2023 1:15:09
Helgi Áss Grétarsson varð stórmeistari í skák aðeins 17 ára gamall. Hann er lögfræðingur og hefur vakið athygli fyrir sterkar skoðanir á samfélagsmálum sem oft ganga gegn meginstraumnum.
#176 Ferðin til Tansaníu 29.03.2023 53:47
Sölvi fór nýverið til Tansaníu, þar sem hann tók meðal annars viðtal við athafnamann sem fæddist þar í landi, flúði svo land til Bretlands þar sem hann bjó um tíma í almenningsgörðum og á meðal útigangsfólks. En smám saman náði hann að koma sér út úr erfiðleikunum og í dag á hann og rekur hótel og veitingastaði bæði á Ítalíu og Zanzibar.
#175 Halldór Einarsson með Sölva Tryggva 26.03.2023 1:19:43
Halldór Einarsson oft kenndur við Henson er athafnamaður af lífi og sál sem hefur át ótrúlega viðburðarríkt líf. Í þættinum fer hann yfir magnaðar sögur úr öllum heimshornum og helstu sorgir og sigra í gegnum tíðina.
#174 Hemmi Hreiðars með Sölva Tryggva 24.03.2023 1:39:02
Hermann Hreiðarsson er einn þekktasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Hemmi yfir magnaðan feril Hermanns, sögur úr bransanum og margt margt fleira.
#173 Lukka Pálsdóttir með Sölva Tryggva 19.03.2023 1:27:53
Lukka Pálsdóttir er eigandi Greenfit, sem sérhæfir sig í heilsufarsmælingum. Lukka er menntaður sjúkraþjálfari sem hefur oftar en einu sinni skipt um takt í lífinu og tekið stökkið til að elta ástríðuna. Í þættinum fara Sölvi og Lukka yfir stórmerklegt lífshlaup Lukku, fyrirtækjarekstur, að þora að taka áhættur og auðvitað allt það helsta í lífsstíl og heilsu.
#172 Þór Guðna snýr aftur 15.03.2023 1:45:26
Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, menningarheima til forna, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.
#171 Einar Carl með Sölva Tryggva 12.03.2023 1:28:24
Einar Carl Axelsson er stofnandi Primal Iceland. Einar er einnig fyrrverandi landsliðsmaður í Taekeondo, sem skipti um takt eftir að hafa hryggbrotnað á 5 stöðum. Hann neyddist til að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega á ný. Það ferðalag endaði með stofnun Primal Iceland, þar sem unnið er með alla þætti heilsu.
#170 Fiskikóngurinn með Sölva Tryggva 05.03.2023 1:06:31
Kristján Berg, oft kallaður Fiskikóngurinn hefur í áratugi verið einn stærsti fisksali Íslands. Í þættinum ræða Kristján og Sölvi um andlega heilsu, vinnusemi, reskstur fyrirtækja og auðvitað fiskinn.
#169 Iva Adrichem með Sölva Tryggva 26.02.2023 1:28:19
Iva Marín Adrichem er söngkona og lögfræðinemi sem segir skoðanir sínar umbúðalaust. Iva, sem hefur verið blind frá fæðingu, var nýverið slaufað af Ferðamálastofu fyrir skoðanir sínar. Í þættinum ræða Iva og Sölvi um pólariseringu, hatursorðræðu, minnihlutahópa, frelsi til skoðana og margt fleira.
#168 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 22.02.2023 1:10:33
Brynjar Níelsson er lögfræðingur, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt fleira.
#167 Evert Víglunds með Sölva Tryggva 19.02.2023 1:11:51
Evert Víglundsson er eigandi Crossfit Reykjavík og hefur í áraraðir unnið við allt sem snýr að hreyfingu og heilsu. Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
#166 Vilhjálmur Andri með Sölva Tryggva 15.02.2023 1:08:10
Vilhjálmur Andri Einarsson gjörbreytti lífi sínu með kælingu og öndun eftir að hafa verið orðinn illa haldinn af stanslausum verkjum, þunglyndi og mikilli notkun lyfja og áfengis. Í þættinum ræða Sölvi og Vilhjálmur ótrúlega sögu Vilhjálms, leiðina að bata og vinnuna við að hjálpa öðrum.
#165 Sara Pálsdóttir með Sölva Tryggva 12.02.2023 1:11:46
Sara Pálsdóttir er menntaður lögfræðingur sem var komin langt inn í fíkn, stöðuga verki og sjálfshatur þegar hún fann leiðina út. Eftir það var ekki aftur snúið og í dag hefur hún lagt lögfræðistörfin á hilluna og vinnur nú við að hjálpa fólki.
#164 Gummi Emil með Sölva Tryggva 09.02.2023 55:00
Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Hann gjörbreytti lífi sínu eftir að hafa endað á spítala og glímt við erfið veikindi. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum og segist brenna fyrir það að hjálpa öðrum.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos