Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: solviaskrift1210105.libsyn.com
Autor
Sölvi Tryggvason
Categoria
Site do podcast
Último episódio
27 de set de 2026
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#163 Sveinn Hjörtur með Sölva Tryggva 05.02.2023 1:00:47
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson hefur marga fjöruna sopið. Sem barn upplifði hann morð á bróður sínum, sem markaði allt framhaldið. Hann fékk köllun til að hjálpa öðrum og starfaði lengi sem varðstjóri hjá 112, þar sem hann sá og upplifði hluti sem flestir sjá aldrei. Óafgreidd áföll enduðu svo með því að hann var orðinn 200 kíló og kominn í hjólastól. En eftir að hafa gjörbreytt lífi sínu hefur hann a...
#162 Arnar Þór með Sölva Tryggva 31.01.2023 1:42:50
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um hlutverk ríkisnis, Mikilvægi þess að vera hugrakkur, fasisma, frelsi og fleira.
#161 Ásdís Olsen með Sölva Tryggva 29.01.2023 1:11:47
Ásdís Olsen hefur um árabil starfað við fjölmiðla, kennslu og fleira. Hún er þekkt fyrir að fara óhikstað sínar eigin leiðir og varpa ljósi á minna þekktar hliðar samfélagsins. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um fjölmiðlana, getuna til að fara eigin leiðir, samfélagsmál og margt fleira.
#160 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 2) 24.01.2023 1:00:22
Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem þurfti að gjörbreyta lífi sínu eftir mikla erfiðleika. Í þættinum ræða Sölvi og Þórarinn ótrúlegt ferðalag Þórarins til bata, skömm hjá karlmönnum, frelsi frá áliti annarra og margt fleira.
#159 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 1) 23.01.2023 55:53
Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem var kominn algjörlega á botninn í mikla lyfjafíkn og djúpt þunglyndi. Í þættinum lýsir hann ótrúlegri atburðarrás sem á endanum varð til þess að hann spyrnti sér frá botninum og náði bata.
#158 Axel Pétur með Sölva Tryggva 22.01.2023 1:14:35
Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru talsvert langt fyrir utan boxið. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta í samsæriskennigum. Allt frá stofnun seðlabankanna, hátíð aflanna sem ráða og ríkasta eina prósentinu yfir í næstu spádóma Axels.
#157 Eva Hauks og Jón Steinar með Sölva Tryggva 16.01.2023 1:09:13
Eva Hauksdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson eru bæði lögmenn og þekkt fyrir að gefa engan afslátt á sannfæringu sinni. Í þættinum ræða þau um réttarkerfið, getuna til að standa með sannfæringu sinni, hætturnar við lögregluríki og alræði og margt fleira.
#156 Matti Ósvald með Sölva Tryggva 11.01.2023 1:05:12
Matti Ósvald er markþjálfi og heilsuráðgjafi. Í þættinum ræða Sölvi og Matti um sögu Matta, karlmennsku í nútímanum, leiðir til að ná jafnvægi og margt fleira.
#155 Erla Bolladóttir með Sölva Tryggva 08.01.2023 1:04:18
Erla Bolladóttir sat mánuðum saman í gæsluvarðhaldi og eingangrun sem ung kona vegna eins umtalaðasta sakamáls Íslandssögunnar, Geirfinnsmálsins. Íslenska Ríkið greiddi henni nýlega miskabætur vegna málsins. Í þættinum fer Erla yfir málið allt, lífshlaup sitt, sátt við örlögin og fleira.
#154 Sara María með Sölva Tryggva 04.01.2023 1:09:50
Sara María Júlíusdóttir er fatahönnuður og lífsstílsráðgjafi sem stundar nú mastersnám í hugvíkkandi efnum, fyrst Íslendinga. Í þættinum ræða Sara María og Sölvi um byltinguna sem er í gangi bæði hér og í heiminum öllum.
#153 Sigurjón Ernir með Sölva tryggva 01.01.2023 1:25:16
Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
#152 Herbert Guðmundsson með Sölva Tryggva 26.12.2022 1:05:24
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, ótrúlegt lífshlaup hans og margt fleira.
#151 Geir H.Haarde með Sölva Tryggva 18.12.2022 55:07
Geir H.Haarde er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Geir og Sölvi um hrunið, landsdómsmálið, fundina með Pútín og Trump, pólariseringu í samfélaginu og margt fleira.
#150 Óttar og Jóhanna með Sölva Tryggva 13.12.2022 1:11:39
Hjónin Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir höfðu þekkst í áratugi þegar þau urðu par. Í þættinum ræða þau um lykilinn að farsælu sambandi, hvað gefur lífinu gildi, pistla Óttars og margt fleira.
#149 Hannes Hólmsteinn með Sölva Tryggva 11.12.2022 1:17:03
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er háskólaprófessor og rithöfundur. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugrmyndafræði í stjórnmálum, stöðu upplýsingamiðla, nýja bók Hannesar og margt margt fleira.
#148 Sara Odds með Sölva Tryggva 08.12.2022 1:47:59
Margrét Sara Oddsdóttir er lögfræðingur, yogakennari og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig, stöðu drengja og margt fleira.
#147 Geir Ólafs með Sölva Tryggva 05.12.2022 1:03:00
Geir Ólafs kom inn í íslenskt tónlistarlíf með krafti, svo að eftir var tekið. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um feril Geirs, sönginn fyrir Pútín, tengingarnar við Kólombíu, kvíða, náungakærleik og margt fleira.
#146 Wayne Paul með Sölva Tryggva 01.12.2022 1:27:22
Wayne Paul er sérfræðingur í hreyfingu og rekur nú Movelab, sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að bæta hreyfigetu sína. Wayne kom upphaflega til Íslands sem ferðamaður, en varð ástfanginn af landinu og settist hér að. Í þættinum ræða hann og Sölvi um hreyfingu, heilsu, leiðir til að bæta sig og margt fleira.
#145 Einar Kárason með Sölva Tryggva 29.11.2022 1:32:07
Einar Kárason er einn farsælasti rithöfundur Íslands og hefur gefið út ógrynni bóka sem notið hafa mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Einar og Sölvi um HM í fótbolta, ristkoðun í listum og bókmenntum, feril Einars og margt fleira.
#144 Kristján Einar með Sölva Tryggva 25.11.2022 44:23
Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til Íslands eftir að hafa setið 8 mánuði í fangelsi á Spáni. Í fangelsinu upplifði hann hræðilega hluti sem flestir geta bara ímyndað sér úr bíómyndum. Í þættinum segir hann söguna alla.
#143 Inga Sæland með Sölva Tryggva 21.11.2022 1:05:06
Inga Sæland er formaður Flokks fólksins. Í þættinum ræðir hún um hvað þarf að laga í íslensku samfélagi, hvað gerist á bakvið tjöldin á Alþingi, sorgina eftir að hafa misst 3 unga ástvini og margt margt fleira.
#142 Nicolai Engelbrecht með Sölva Tryggva 16.11.2022 1:48:23
Nicolai Engelbreght er ungur maður sem um áraraðir var fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, en fann svo leiðina út og hjálpar nú föngum og öðrum við að bæta líf sitt. Í þættinum fer hann yfir árin í undirheimunum, hvernig hann hefur reynt að bæta fyrir brot sín, karlmennsku og margt fleira.
#141 Hjalti Úrsus með Sölva Tryggva 14.11.2022 1:07:10
Hjalti Úrsus Árnason er einn öflugasti aflraunamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræðir hann um gullaldarárin í kraftasportinu, æfingarnar og ferðalögin með Jóni Páli og réttarmorðið á syni hans, sem nýlega lést aðeins 29 ára að aldri.
#140 Margrét Friðriksdóttir með Sölva Tryggva 09.11.2022 1:03:09
Margrét Friðriksdóttir rekur fréttamiðilinn frettin.is. Hún hefur verið mjög umdeild fyrir skoðanir sínar á undanförnum árum. Í þættinum ræðir hún föðurmissirinn, tímann þegar hún flakkaði um Indland í leit að svörum, hvatvísina og margt fleira.
#139 Kristján Jóhannsson: Um ástina, fjölmiðlahneykslið og stærstu stundirnar 07.11.2022 57:08
Kristján Jóhannsson er þekktasti óperusöngvari Íslandssögunnar. Hann hefur sungið í mörgum af stærstu listahúsum heims í áratugi. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján ótrúlegan feril Kristjáns, árin áður en stóra tækifærið kom, fjölmiðlatryllinginn í kringum styrktartónleikana um árið og margt margt fleira.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos