Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: solviaskrift1210105.libsyn.com
Autor
Sölvi Tryggvason
Categoria
Site do podcast
Último episódio
27 de set de 2026
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#214 Gísli Gíslason með Sölva Tryggva 10.09.2023 1:07:17
Gísli Gíslason athafnamaður hefur átt ótrúlega viðburðaríkt líf. Maðurinn sem kom með Teslu til Íslands, hefur ferðast til 70 landa og er á leiðinni upp í geim. Í þættinum ræða Sölvi og Gísli um magnað lífshlaup Gísla, frumkvöðladrifkraftinn, hamingjuríkt líf og margt margt fleira.
#213 Páll Magnússon með Sölva Tryggva 03.09.2023 1:20:00
Páll Magnússon er einn reyndasti fjölmðlamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræða Sölvi og Páll um magnaðan feril Páls, sögur í gegnum tíðina, stöðu fjölmiðla, baráttuna við Bakkus og margt fleira.
#212 Þór Guðnason með Sölva Tryggva 29.08.2023 1:26:00
Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, stöðuna í samfélaginu, rétttrúnaðinn, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.
#211 Birkir Vagn með Sölva Tryggva 27.08.2023 57:31
Birkir Vagn Ómarsson er einkaþjálfari og íþróttafræðingur. Í þættinum ræða Sölvi og Birkir um heilsu, samfélagsmál, Covid-tímabilið, feril Birkis og margt fleira.
#210 Arnar Þór með Sölva Tryggva 20.08.2023 1:10:14
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir hugrekki og að hiksta ekki við að tala um mál sem aðrir snerta ekki á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um fasisma, frelsi, hlutverk ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.
#209 Magnús Skjöld með Sölva Tryggva 13.08.2023 55:44
Magnús Árni Skjöld Magnússon er stjórnmálafræðingur og háskólakennari. Í þættinum ræða Magnús og Sölvi um það hvernig Magnús endaði sem yogakennari í Kabúl í Afghanistan, nýja bók Magnúsar, samfélagsmál og margt fleira.
#208 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva 07.08.2023 1:10:14
Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Sigursteinn um feril Sigursteins, Sönn íslensk sakamál, íslenskt samfélag og margt fleira.
#206 Sebastian Prentice með Sölva Tryggva 25.07.2023 54:03
Sebastian Prentice er 25 ára gamall íþróttamaður sem varð að þroskast mjög hratt vegna fjölskylduaðstæðna. Hann á og rekur líkamsræktarstöð í Cape Town í Suður Afríku. Nýlega hljóp hann 100km utanvegahlaup og tók 180 kílógrömm í bekkpressu á sama tíma, sem er afrek sem aðeins örfáir jarðarbúar gætu leikið eftir. Í þættinum ræða Sölvi og Sebastian um heilsu, hugarfar, samfélagsmál og margt fleira.
#205 Óskar Hallgrímsson með Sölva Tryggva 23.07.2023 1:18:15
Óskar Hallgrímsson er ljósmyndari og listamaður sem á einum degi varð stríðsfréttaritari Íslands í Úkraínu. Hann og konan hans búa í höfuðborg Úkraínu og ákváðu að vera áfram í borginni þegar stríðið byrjaði. Í þættinum ræða Sölvi og Óskar um ótrulega hluti sem Óskar hefur upplifað eftir að hafa farið á verstu svæðin í stríðinu og í gegnum tímann síðan stríðið byrjaði, sögu Óskars og margt fleira.
#204 Bogi Ágústsson með Sölva Tryggva 19.07.2023 1:46:59
Bogi Ágústsson er líklega þekktasti fjölmiðlamaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Bogi um magnaðan feril Boga, stöðuna á fjölmiðlum nútímans, samfélagsmál og margt fleira
#203 Sorelle Amore með Sölva Tryggva 16.07.2023 1:27:29
Sorelle Amore er ung ævintýrakona sem hefur með mikilli elju og dugnaði náð milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Hún fæddist í Ástralíu en ákvað að kaupa sér flugmiða aðra leið til Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sorelle um ótrúlega vegferð Sorelle, ævintýrin í gegnum tíðina, leiðir til að elta draumana og fylgja ástríðunni og margt margt fleira.
#202 Gummi Kíró með Sölva Tryggva 09.07.2023 1:03:03
Guðmundur Birkir Pálmason eða Gummi Kíró hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og byrjaði snemma að nota óhefðbundnar leiðir til að auglýsa störf sín. Í þættinum ræða Sölvi og Gummi um heilsu, álit annarra, samfélagsmiðla og margt margt fleira.
#201 Aron Can með Sölva Tryggva 05.07.2023 52:34
Aron Can varð stjarna í íslensku tónlistarlífi sem unglingur og eftir það var ekki aftur snúið. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Aron um feril Arons, tónlistarlífið, mikilvægi þess að fylgja ástríðunni og margt fleira.
#200 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva 02.07.2023 1:08:47
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands og hefur ritstýrt fjölda miðla á áratugalöngum ferli. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um fjölmiðlun nútímans, helstu samfélagsmál, þöggun, framtíð fjölmiðlunar og margt fleira.
#199 Sölvi og Sigurjón Ernir 27.06.2023 1:20:58
Sigurjón Ernir er ofuhlaupari og sérfræðingur í heilsu. Hann settist niður með Sölva og þeir skiptu um hlutverk, þar sem Sigurjón spyr Sölva út í heilsu, bókina ,,Á Eigin Skinni", daglega rútínu og margt fleira.
#198 Gunnar Smári með Sölva Tryggva 25.06.2023 1:13:25
Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, ristjóri og samfélagsrýnir. Í þættinum stikla Sölvi og Gunnar Smári á stóru um stöðuna í samfélaginu, menningarstríðið, stéttskiptingu og margt fleira.
#197 Hafþór Júlíus með Sölva Tryggva 21.06.2023 1:14:56
Hafþór Júlíus Björnsson er aflraunamaður, leikari og samfélagsmiðlastjarna um allan heim. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Hafþór um feril Hafþórs, Game of Thrones, aflraunirnar og margt fleira.
#196 Sara Páls snýr aftur 18.06.2023 1:13:51
Sara Pálsdóttir er lögfræðingur, sem nú starfar nær eingöngu sem dáleiðari. Sara var langt leidd í fíkn, verkjum og sjálfshatri þegar hún fann leiðina út og eftir það var ekki aftur snúið. Sara snýr aftur til Sölva og fara þau yfir allt frá leiðum til að bæta andlega heilsu yfir í sögu Söru og samfélagsmál.
#195 Kalli Snæ snýr aftur 14.06.2023 1:11:54
Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem var útskúfað í faraldrinum fyrir að tala gegn línu stjórnvalda. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera og segir læknum hafa verið bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og næstu skref.
#194 Þorbjörg Hafsteinsdóttir með Sölva Tryggva 11.06.2023 1:03:25
Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira.
#193 Götustrákar með Sölva Tryggva 06.06.2023 1:01:05
Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira.
#192 Guðrún Bergmann snýr aftur 04.06.2023 1:23:25
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og margt fleira. Í þættinum fara Sölvi og Guðrún yfir samfélagsmál, heilsu, fjölmiðla, samsæriskenningar og fleira.
#191 Ben Brown með Sölva Tryggva 30.05.2023 1:01:55
Benjamin Brown er frumkvöðull sem hefur farið eigin leiðir í lífinu. Hann náði hratt nærri milljón fylgjendum á samfélagsmiðlum, en var settur í bann fyrir að gagnrýna aðgerðir í heimsfaraldrinum. Í þættinum ræða Sölvi og Ben um karlmennsku, hugrekki, breytingarnar í heiminum og margt fleira.
#190 Ólafur Halldórsson með Sölva Tryggva 28.05.2023 46:08
Ólafur Halldórsson gjörbeytti lífi sínu eftir bakpokaferðalag um Afríku sem endaði með því að hann stofnaði munaðarleysingjaheimili í Kenýa. Hann hafði í áraraðir ferðast um allan heim í leit að bestu fíkniefnum veraldar, meðal annars í Marokkó,Indlandi og Pakistan. Á ótrúlegan hátt náði hann að komast til baka úr neyslunni og í dag er líf hans helgað starfinu í Afríku.
#189 Gunnar Wium með Sölva Tryggva 21.05.2023 1:35:53
Gunnar Wium kennari og hlaðvarpsstjórnandi hefur marga fjöruna sopið. Allt frá mikilli neyslu sem sendi hann alveg á botninn yfir í andlega vakningu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stórmerkilega sögu Gunnars, lyfjafyrirtækin, hugvíkkandi efni, stöðu samfélagsins og margt fleira.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos