Snorri Másson
Snorri Másson ritstjóri
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir. Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.ritstjori.is
Autor
Snorri Másson
Categoria
Site do podcast
Último episódio
28 de mar de 2025
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Grein | Áður en þú tjáir þig – hvað heldurðu að lögreglunni finnist? 23.01.2024 4:39
Fæstir spyrja sig þessarar spurningar áður en þeir stinga niður penna, en freistast þó til að klaga í lögguna þegar önnur úrræði þrjóta. Grein: www.ritstjori.is
Grein | Bjarni sjálfur hefur brugðist 22.01.2024 2:12
Okkur leyfist sem betur fer að tjá okkur um útlendingamál, en það er grátlegt að formaður Sjálfstæðisflokksins reyni að saka „þingið“ um að bregðast. Grein á vef ritstjórans: https://www.ritstjori.is/p/bjarni-sjalfur-hefur-brugist
Fréttir vikunnar | Ritskoðun í Borgarleikhúsinu, fjölbreytileiki í flugi og sjálfstortíming 19.01.2024 34:43
Leikhúsmálin, orkumálin, eldgos í Grindavík, forval Repúblikana og ýmislegt fleira í fréttum. Samstarfsaðilar ritstjórans í fréttum vikunnar eru Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.
Fréttir vikunnar | Nýja íhaldssemin, fjárfestingar Miðflokksins og siðareglur ríkisstarfsmanna 12.01.2024 33:11
Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir ólögmætar aðgerðir matvælaráðherra og þá ómögulegu stöðu sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í, svo er vikið að erjum í Blaðamannfélagi Íslands, að sæmilegum tekjum Miðflokksins úr opinberum sjóðum og að nýjum siðareglum ríkisstarfsmanna. Í samhengi við þetta allt förum við yfir þá íhaldssveiflu sem orðið hefur á meðal ungs fólks. Hvers vegna er það?...
Grein | Leiðinlegasti maður Íslandssögunnar hefur óvart rétt fyrir sér (#42) 10.01.2024 6:35
Hvað verður um Vínbúðina þegar hún verður bara orðin hver önnur vínbúð? Dýrt að vera með óstarfhæfa ríkisstjórn. Grein af www.ritstjori.is.
Grein | Allir íbúar Svíþjóðar skulu búa sig undir stríð (#41) 08.01.2024 1:45
Grein af ritstjori.is: Sænsk hermálayfirvöld eru ekkert að grínast. Hvernig verður daglegt líf? https://www.ritstjori.is/p/allir-ibuar-svijoar-skulu-bua-sig
Fréttir vikunnar | Forsetinn á móti ættjarðarljóðum, símasjúklingamyndband og Gay rektor (#40) 05.01.2024 20:48
Við förum yfir ákvörðun sitjandi forseta um að segja þetta gott, líklega arftaka Guðna og kosti þeirra og ókosti, víkjum að stöðu íslenskrar tungu í atvinnurekstri, ræðum afsögn Claudine Gay, rektors Harvard-háskóla, og loks stöðuna í Palestínu. Samstarfsaðilar frétta vikunnar eru Þ. Þorgrímsson, Domino's Pizza og Hringdu.
Grein | Dóri DNA hugleiðir í alvöru forsetaframboð (#39) 02.01.2024 2:27
Grein af ritstjori.is: Dóri DNA er ekki að grínast með forsetaframboð, samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum ritstjórans. Við þurfum forseta sem vill vekja ljón í stað þess að leiða lömb.
Fréttir vikunnar | Lífshættulegar launahækkanir, verðbólga Sjálfstæðisflokksins og skattur dauðans (#38) 29.12.2023 25:13
Fréttir vikunnar að þessu sinni: Verðbólga í boði Sjálfstæðisflokksins, vel heppnuð áróðursherferð Samtaka atvinnulífsins, Íslendingar deyja hægt og rólega út - og svo: skattur á hina dauðu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Domino's, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.
Grein | Að deyja út, löturhægt (#37) 27.12.2023 0:59
Það hljómar ekki glæsilega, en það er þó það sem Íslendingar eru að gera. Góðu fréttirnar eru að vel er hægt að snúa dæminu við. Grein af www.ritstjori.is.
Fréttir vikunnar | Pólitískir sendiherrar, jólaleiðbeiningar Fjölmiðlanefndar og eldgos (#36) 22.12.2023 27:48
Eldgos við Grindavík ber á góma og almannavarnahlutverk RÚV í því samhengi. Því næst er farið yfir leiðbeiningar Fjölmiðlanefndar um hvernig beri að haga sér um hátíðirnar – enga upplýsingaóreiðu í jólaboðinu! Einnig: Erfið staða í Bandaríkjunum, sendiherraskipun utanríkisráðherra og málfrelsi á samfélagsmiðlum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Domino's, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.
Grein | Rofið við raunveruleikann (#35) 19.12.2023 1:17
Ritstjórinn hefur samúð með þjáningarbróður sínum í Silfrinu, en auðvitað hefur RÚV ekkert raunverulegt almannavarnahlutverk á 21. öld. Einnig: Háfreudískt tíst sonar útvarpsstjóra
Í alvöru, samt: Ekki kaupa bækur í Bónus (#34) 18.12.2023 4:34
Grein af www.ritstjori.is. Með fullri virðingu fyrir Ester í Bónus, eru aðrir líklegri til þess að halda lífi í ævafornri bókmenningu Íslendinga.
Fréttir vikunnar | Aumingjavæðing, slaufun Esterar hjá Bónus og verkfall (#33) 18.12.2023 28:18
Á dagskrá fréttavikunnar: Seinkun grunnskóla, tregða Bónus til að selja bækur um þriðju vaktina, virkjanaþrá Samfylkingar, verkfall flugvirkja og nafnleynd tæknifrömuða í Kísildal. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino’s og Hringdu.
Grein | Hvaðan koma skoðanir þínar? (#32) 14.12.2023 11:06
Það er oft þungbært að svara þeirri spurningu. En við fáum aðstoð í nýrri bók Magnúsar Sigurðssonar, framúrskarandi íslensks skálds.
Grein | Nafnlaus nörd á netinu afhjúpaður (#31) 12.12.2023 0:50
Forbes afhjúpar nafnlausan tæknifrömuð af óljósum ástæðum. Er það gott? Nýstárleg hugmyndafræði ríður húsum – og Egill Helgason mun ekki fíla hana.
Fréttir vikunnar | Jólaskatturinn, gaslýsingar og valdalaus forsætisráðherra (#30) 08.12.2023 25:43
Í fréttum vikunnar: Skattur á jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna, gaslýsingar hins opinbera, PISA-kannanir og ástæður hrunsins og loks nýjar tillögur ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino’s og Hringdu.
Grein | Myndband sem segir meira en þúsund orð (#29) 06.12.2023 6:33
Grein af ritstjori.is: Katrín Jakobsdóttir vs. Guðmundur Emil?
Grein | Nú þarf stóran galdur (#28) 05.12.2023 0:46
Grein af ritstjóra: Skólakerfið er að bregðast Íslendingum. Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.
Fréttir vikunnar | Slúður um Pírata, sjálftaka Sjálfstæðisflokksins og víkingar vakna (#27) 30.11.2023 30:22
Slúður um handtöku Pírata, afnám styrkja til stjórnmálaflokka sem Sjálfstæðisflokkurinn hagnast mest á, fullveldisdagurinn og í því samhengi: Víkingar vakna, og loks kynjamál Ríkisútvarpsins. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.
Grein | Passaðu þig hvað þú ert með í símanum (#26) 29.11.2023 4:36
Fyrirhuguð hert löggjöf um hatursorðræðu á Írlandi tekur ekki aðeins til efnis sem þú deilir, heldur líka efnis sem þú hefur í vörslu þinni. Þróunin er víti til varnaðar.
Grein | Það er eitthvað rotið í ríkinu (#25) 28.11.2023 1:06
24 milljónir í „skaðabætur“ til skrifstofustjóra. Ef við megum ekki reka neinn, verðum við eiginlega að reka alla. Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.
Fréttir vikunnar | Miðstýrt ríkishagkerfi og sannleikurinn um samfélagsábyrgð fyrirtækja (#24) 24.11.2023 27:26
Illa heppnaður áætlunarbúskapur Seðlabankans og nýr forseti Argentínu sem vill leggja niður seðlabanka. Einnig: Dagur erlendrar tungu og brellan sem er „samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja.“ Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.
Viðtal | Eiríkur Atli: Stelpur fylla í túttur, strákar fá sér hár (#23) 21.11.2023 13:09
Eiríkur Atli Hlynsson er 27 ára verkfræðingur og iðnaðarmaður með eigið fjölskyldufyrirtæki, sem fór fyrr í þessum mánuði til Tyrklands í hárígræðslu. Hann segir enga skömm að því að bregðast strax við hármissinum – og mælir heils hugar með því að leggja land undir fót.
Grein | Ekkert nýtt, nema valdarán (#22) 20.11.2023 1:21
Grein af ritstjori.is: Valdarán eru ekki lengur bara í sögubókunum. Hvað eiga Spánverjar, Argentínumenn og OpenAI sameiginlegt þessa dagana?
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos