Snorri Másson
Snorri Másson ritstjóri
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir. Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.ritstjori.is
Autor
Snorri Másson
Categoria
Site do podcast
Último episódio
28 de mar de 2025
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar 28.03.2025 1:26:09
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.
Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon. 15.03.2025 1:07:24
Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innlei...
Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu 25.01.2025 35:40
Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis. Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við vi...
Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina 19.11.2024 49:40
Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð. Últrafrjálshyggja eða hardco...
Ég býð mig fram 19.10.2024 14:51
Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“
Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín 11.10.2024 1:36:57
Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjav...
Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel 04.10.2024 1:37:19
Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happ...
Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni 27.09.2024 1:38:06
Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy...
Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara 20.09.2024 1:09:17
Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.
Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills 13.09.2024 1:29:50
Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Hap...
Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun 06.09.2024 1:41:12
Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persón...
Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar 30.08.2024 1:34:23
Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvæg...
Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið 23.08.2024 1:24:14
Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.
Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat 15.08.2024 26:08
Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate. Hér...
Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði 09.08.2024 27:17
Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þ...
Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið 02.08.2024 1:38:02
Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgr...
Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar 26.07.2024 1:38:56
Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan. Fréttir vikun...
Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund) 17.07.2024 1:12:41
Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök...
Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki 12.07.2024 23:07
Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni. Fréttir vikunnar eru...
Fréttir vikunnar | Skaðmenntun, lýðræðið og Biden (m. Jakobi Birgissyni og Bergþóri Ólasyni) 05.07.2024 1:16:07
Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru Jakob Birgisson grínisti og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins. Fréttir vikunnar eru í boði Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.
Fréttir vikunnar | Bakslag í woke fjárfestingum (með Bjarna Herrera sjálfbærniráðgjafa) 04.07.2024 1:18:35
Þessi þáttur birtist fyrst 28. júní en datt út um hríð Í fréttum vikunnar fáum við til okkar manninn á bak við hið kynjaða skuldabréf ríkissjóðs, Bjarna Herrera sjálfbærnifræðing og rithöfund, sem var að gefa út nýja bók. Við förum yfir bakslag í „ESG“-fjárfestingum, þar sem fólk er hætt að vilja fjárfesta í sjálfbærnimerktum verkefnum sem skila slæmri arðsemi. Allir í sjokki? Bjarni hefur enn trú...
Fréttir vikunnar | Valdarán millistjórnandans og PC-væðing fyrirtækja 21.06.2024 38:33
Hluti þessa þáttar er endursýnt efni frá 16. febrúar á þessu ári. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, valdarán millistjórnenda í skráðum félögum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, starfsmannabyltingar, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í...
Fréttir vikunnar | Vinstrisinnuð öfgahægrisveifla og strákar á móti „stelpum og stálpum“ 14.06.2024 26:49
Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind hjá Apple og umfjöllun um kjarna sósíalismans. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.
Fréttir vikunnar | Rök gegn virkjunum, íslenskir hagsmunir og vopnasendingar (með Sigríði Á. Andersen) 07.06.2024 1:21:35
Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar, efasemdir um orkuskipti, bókun 35, útlendingamál og stöðu íslenska hægrisins. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.
Fréttir vikunnar | Vanhæft ríki, gaslýsingar Landsbankans og nauðsynlegar upplýsingar um kosningar 31.05.2024 43:44
Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og álitsgjafi kemur að borðinu með verðugar pælingar. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og loks Rafstorm
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos