Snorri Másson
Snorri Másson ritstjóri
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir. Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.ritstjori.is
Autor
Snorri Másson
Categoria
Site do podcast
Último episódio
28 de mar de 2025
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Fréttir vikunnar | Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP um Ísland, tölvuleiki og framtíðina 24.05.2024 51:54
Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem fyrirbæri, framtíð gjaldmiðla í stafræna heiminum, verðmæt störf á Íslandi, foreldra í snjallsímum og framtíðarplön hins öfluga íslenska tölvuleikjafyrirtækis. Fréttir vikunnar eru í samstarfi v...
Fréttir vikunnar | Halla Hrund ruglast, fjallkonan og gervigreind lýgur vísvitandi að ritstjóranum 17.05.2024 38:49
Í fréttum vikunnar förum við yfir byltingar í gervigreind og átök innan eins mikilvægasta fyrirtækis heims á því sviði, við tökum gervigreindina tali (skrýtin uppákoma) við ræðum þjóðernishyggju þá og nú, nefnum þar misheppnaða bókargjöf forsætisráðherra og svo förum við yfir rugling hjá Höllu Hrund og skandala í hennar sögu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík...
Fréttir vikunnar | Leiðbeiningar fyrir nýja vinstrið, málfrelsi mótmælenda og heilagir embættismenn 10.05.2024 36:18
Í fréttum vikunnar er fjallað um draumórakenndar ráðleggingar fyrrverandi þingmanns til hins svonefnda nýja vinstris (loftslagsmál, femínismi og alþjóðahyggja koma þar við sögu), fjallað er um mótmæli gegn Ísrael vestanhafs, áskoranir kjarnafjölskyldunnar, forsetaframbjóðanda Morgunblaðsins og minnkandi lífslíkur á Íslandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myn...
Fréttir vikunnar | Velferðarkerfi og opin landamæri fara ekki saman – viðtal við David Friedman 03.05.2024 42:18
David D. Friedman er eðlisfræðingur að mennt en hefur lagt stund á lögfræði og hagfræði með áherslu á frjálsa markaði og anarkókapítalískt kerfi. Hans framlag til anarkókapítalískrar hugmyndafræði er þýðingarmikið. Faðir David var Milton Friedman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði. Í þessu viðtali fer David yfir siðferði og löggæslu í Íslendingasögunum, sem hann hefur rannsakað sérstaklega út frá hag...
Fréttir vikunnar | Órólega deild Samfylkingarinnar, enskuverðlaun og hættulegar upplýsingar 26.04.2024 36:16
Fréttir vikunnar að þessu sinni fjalla um verðlaun Byggðastofnunar fyrir stjórnsýslu á ensku, hörð viðbrögð við að gagnrýna þau verðlaun, innflytjendastefnu Samfylkingarinnar, loftslagsmál, stórhættulegar upplýsingar og skoðanir Prettyboitjokko á hefðbundnum kynjahlutverkum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.
Fréttir vikunnar | Réttlát reiði Jóns Gnarr, bestu gjaldmiðlarnir og árásir á fundafrelsið 19.04.2024 37:52
Farið er yfir „þjóðarhöll“ í fjármálaáætlun og henni att saman við íslenska tungu, Bitcoin-helmingun er tekin fyrir og ummæli bardagakappa um austurríska hagfræði, niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir, ráðstefnu National Conservatism í Brussel, Ólympíuleika án lyfjaprófa og loks deilur á milli Drake og Rick Ross. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímss...
Fréttir vikunnar | Nýtt kalt stríð, óáhugaverð ríkisstjórn og samhengislausir forsetar 12.04.2024 41:42
Ríkisstjórn, forseti, ofbeldi Bjarna Benediktssonar, orkuöflun, nýtt kalt stríð og þjóðmenning Íslendinga án þess að menn biðjist afsökunar á henni.
Fréttir vikunnar | Forsetaframbjóðendur dæmdir, dánaraðstoð Viðreisnar og hatursorðræða í Skotlandi 05.04.2024 32:25
Í fréttum vikunnar að þessu sinni er fjallað um frammistöðu forsetaframbjóðendanna hingað til, gerð athugasemd við ræðuhöld þeirra, farið yfir hugmyndir Viðreisnar um aukna dánaraðstoð, nýja hatursorðræðulöggjöf í Skotlandi, séreignastefnu á undanhaldi og stríðsrekstrarmaskínuna í Bandaríkjunum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.
Fréttir vikunnar | Innræting í grunnskólum, horfnar færslur Felix og ballið búið hjá sveitarfélögum 29.03.2024 26:37
Í fréttum vikunnar er fjallað um kynjamál sem nú er kennt í grunnskóla í Reykjavík sem réttlætismál, vikið er að horfnum færslum Felix Bergssonar og ummælum hans um þjóðtunguna, farið er yfir femínískar vopnasendingar, fjármál sveitarfélaga og hægrisveiflu í háskólanum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.
Hlaðvarp | Kjartan Þórisson um Noona, frumkvöðlalífið, gervigreind, paradís, heimsendi og geimverur 27.03.2024 1:40:29
Það er andi í Kjartani Þórissyni, sem er á meðal fremstu frumkvöðla sinnar kynslóðar í íslensku atvinnulífi. Hann er aðeins tuttugu og átta ára gamall en er framkvæmdastjóri og stofnandi Noona, fyrirtækis með viðskiptavini í yfir tuttugu löndum og samtals vel á fimmta tug starfsmanna. Í þættinum er farið um afar víðan völl, allt frá umræðum um heimsmál og gervigreind til spádóma um annaðhvort heim...
Fréttir vikunnar | Gaslýsingar kynjafræðinnar, Kristrún vs. Þórdís Kolbrún og jafnréttisskólakerfi 22.03.2024 29:08
Í fréttum vikunnar er gagnrýni sósíalistaforingja svarað, farið er yfir kaup Landsbankans á Tryggingarmiðstöðinni, farið er í saumana á breyttum viðhorfum í samfélaginu til kynjafræði sem fræðigreinar (Karlmennskan að leggja upp laupana) og svo er rætt um jafnréttishugsjónina í skólakerfinu, ásamt nýstárlegri lausn Breta við leikskólavandanum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ...
Fréttir vikunnar | Stærra ríkisvald fyrir launþega, gervilýðræði og ert þú hægripopúlisti? 15.03.2024 24:09
Í fréttum vikunnar er fjallað um þá útbreiddu afstöðu að eðlilegt sé að gefast einfaldlega upp fyrir hruninni fæðingartíðni í landinu (og að það sé „hægripopúlismi“ að gera það ekki), svo er rætt um þá reglulegu stækkun ríkisvalds sem fylgir hverjum kjarasamningi sem gerður er á almennum vinnumarkaði, epískt nýtt vélmenni sem gæti breytt heiminum, nýtt skilti Reykjavíkurborgar í Breiðholti, TikTok...
Fréttir vikunnar | Tilneyddir forsetaframbjóðendur, rasismi og óreiða í transsamtökum 08.03.2024 28:50
Í fréttum vikunnar er fjallað um stríðshauka tilneydda í forsetaframboð, stöðu Íslands ef Bandaríkin glata áhrifum sínum, „hatursatkvæði“ Í Eurovision, rasisma á íslenskum samfélagsmiðlum og nýja skýrslu upp úr gögnum sem lekið var frá alþjóðlegum transmeðferðarsamtökum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.
Grein | Af hverju er Bitcoin í hæstu hæðum? 04.03.2024 3:07
Grein á www.ritstjori.is: „Upphafið að endalokunum“ var fyrirsögn Viðskiptablaðsins um stöðu Bitcoin fyrir tæpu ári. Staðan núna: Bitcoin hefur aldrei í sögunni verið verðmætara gagnvart krónu.
Fréttir vikunnar | Hættulegir Sjálfstæðismenn í umferðinni, skordýr í matinn og Bitcoin 01.03.2024 28:40
Í fréttum vikunnar er farið yfir nauðsyn þess að koma ríkisfjármálunum í lag, farið er yfir rafmyntir og vantraust í garð Seðlabankans, styttingu framhaldsskólanna, skaðsemi nikótínpúða, skattahækkanir Sjálfstæðisflokksins og svo misheppnaðar tilraunir þess sama flokks til að „leggja niður jafnlaunavottun.“ Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.
Grein | Vituð þér enn, eða hvað? 26.02.2024 8:38
Það er bitastæð svört pilla að hætta að treysta Google. Grein af ritstjóri.is.
Fréttir vikunnar | Tvískinnungur gagnvart pólitískum ofsóknum, íslenska í leigubílum og Google endurskrifar söguna 23.02.2024 39:22
Í fréttum vikunnar er farið yfir tvískinnung manna í afstöðu til Rússa og Bandaríkjamanna þegar kemur að ofsóknum stjórnarandstæðinga, farið er yfir kostnað í hugsanalögregluátaki forsætisráðherra, heildarsýn ríkisstjórnar í útlendingamálum er skoðuð og vöngum velt yfir glóbalískri frjálslyndri verkalýðshreyfingu og loks lýsir ritstjórinn yfir áhyggjum af endurskrifun sögunnar á vegum Google. Fré...
Fréttir vikunnar | Slaufunarmenning elítusport, PC-væðing Ölgerðarinnar og vinnustaðaleikskólar 16.02.2024 37:10
Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, viðbrögð við stefnubreytingu Samfylkingarinnar í flóttamannamálum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.
Grein | Bjarni hafi opnað landamærin og kvarti nú yfir fánum á Austurvelli 13.02.2024 12:51
Einar Þorsteinsson borgarstjóri sækir í sig veðrið eftir embættistöku og skaut föstum skotum á utanríkisráðherra á Viðskiptaþingi... Hljóðbrot af Viðskiptaþingi. Meira um málið á www.ritstjori.is.
Fréttir vikunnar | Góð bóluefni, fyrirmæli forsætisráðuneytisins og 2% íbúa í fangelsi 09.02.2024 28:27
Í fréttum vikunnar er farið yfir nýtt rétthugsunarátak forsætisráðuneytisins, endurkjör forseta El Salvador, kostnað skattgreiðenda við fyrirspurnafár, bólusetningar gegn mislingum og margt fleira sérlega forvitnilegt. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.
Grein | Dregið úr latínukennslu við MR 05.02.2024 6:57
Varðhundar klassískrar menntunar hafa alltaf áhyggjur þegar þeir lesa slíkar fyrirsagnir. Hér má þó halda því fram að málið sé ekki endilega grafalvarlegt, þótt sporin hræði... (lat. vestigia terrent!)
Fréttir vikunnar | Stóri kynjaklofningurinn, vanþakklátir þingmenn og loftslagsprestar 02.02.2024 27:17
Í fréttum vikunnar er fjallað um bændamótmæli, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og loks líkurnar á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.
Grein | Listaháskólinn situr í súpunni 01.02.2024 6:19
„Jafnrétti“ lætur engan ósnortinn. Grein af www.ritstjori.is
Grein | Við erum öll í költi 31.01.2024 1:48
Er vegan trúleysingjapírati virkilega trúlaus – eða getur verið að hann sé raunar margfalt trúaðri en andlausi „kristni“ meðaljóninn í næsta raðhúsi? Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.
Fréttir vikunnar | Óttinn við 100% verðbólgu, hugmyndin um landamæri og photoshop-fíkn 26.01.2024 32:42
Í fréttum vikunnar er farið yfir flóttamannamál, ákvörðun RÚV um mögulega þátttöku í Eurovision, landamæri í nýjum skilningi Samfylkingarinnar, Grindavík og Vestmannaeyjar og svo fræga Photoshop-mynd frá því í vikunni. Samstarfsaðilar ritstjórans í fréttum vikunnar eru Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos