Myntkaup
Hlaðvarp Myntkaupa
Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: myntkaup.is
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi 26.09.2026 57:20
Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið náði BTC yfir 87k og ETH yfir 2700$. Táknvæðing heldur áfram að gegna aðalhlutverki í umræðunni og nýjar fréttir um samstarf stórra aðila vekja athygli. Þá valdi Björn einnig skemmtilega bók...
Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?" 19.09.2026 1:00:55
Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðu...
Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd? 12.09.2026 51:15
Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt sam...
Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k 05.09.2026 54:18
Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæk...
Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst 29.08.2026 1:01:01
Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður...
Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k 22.08.2026 47:43
Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump v...
Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni 15.08.2026 1:00:02
Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár 08.08.2026 52:23
Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og...
Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard 01.08.2026 55:45
Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa á...
Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans 25.07.2026 1:11:31
Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helst...
Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin 18.07.2026 1:03:09
Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni...
Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k 11.07.2026 53:48
Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli K...
Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það? 04.07.2026 1:01:31
Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsl...
Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing 27.06.2026 1:01:54
Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en sv...
Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy 21.06.2026 54:20
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar mark...
Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn? 13.06.2026 59:17
Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tv...
Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k 06.06.2026 1:00:32
Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir rey...
Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k 30.05.2026 1:04:29
Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsve...
Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný 23.05.2026 1:02:02
Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þ...
Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu 16.05.2026 59:59
Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity fr...
Ætlar Michael Saylor að selja BTC?? 09.05.2026 1:00:08
Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert og er reiknað með því að það verði að lögum á þessu ári. Helsta fréttin er hins vegar án nokkurs vafa...
Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl 02.05.2026 1:01:39
Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt fleira í þessum þætti.
Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi 25.04.2026 1:01:52
Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg verðmæti af einum rótgrónasta DeFi vettvangi markaðarins, Aave. Fjárfestar spyrja sig nú hvort raunverule...
S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k 18.04.2026 1:01:52
Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra aðila sem munu bjóða upp á Bitcoin kauphallarsjóð. Þetta og margt fleira er rætt...
Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði 11.04.2026 1:02:21
Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á markaðnum. Morgan Stanley BTC kauphallarsjóðurinn fer ágætlega af stað og Bitcoin hefur tekist ágætlega að halda sér yfir 70k. Þeir félagar Kjartan og Björn velta nokkrum stjórnspekilegum álitaefnum fyrir sér. Þá er fjallað um nýlegar kenningar um hver Satoshi Nakamoto er.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos