Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Video rekkinn
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn
Author
Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 6, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#38 - 1 dagar til Jóla- It's a wonderful life 1946 23.12.2024 1:12:14
Jú, góðir hálsar, lífið er svo sannarlega dásamlegt. Ef þið eruð í einhverjum vafa um það, gefið ykkur 2 tíma og 10 mínútur og skyggnist inn í líf Georgs Bailey og fjölskyldu hans. Ég get lofað því að vafinn hverfur út í veður og vind. Videórekkinn fjallar að þessu sinni um meistaraverkið It’s a Wonderful Life úr smiðju Frank Capra og lýkur þar með sérstakri jólaniðurtalningu. Horfið, hlustið og...
#37 - 8 dagar til Jóla- Elf 2003 16.12.2024 1:04:31
Munaðarlaus drengur skríður óvart í poka sjálfs jólasveinsins og er fluttur til Norðurpólsins, þar sem hann er alinn upp sem álfur. Í leit sinni að sínum rétta föður leggur Álfurinn af stað í gegnum jólastafaskó, yfir bómullarjökull og yfir hafið, og loks Lincoln göngin. Framhaldið af þessari sögu fjöllum við um í sjöunda þætti Video Rekkans, dömur mínar og herrar… 🧝🏻🎅🏻ELFFFFF!!!!!!!🧝🏻🎅🏻
#36 - 15 dagar til Jóla- National Lampoon's Christmas vacation 1989 09.12.2024 1:08:51
Það er desember og Clark Griswold er staðráðinn í að skapa fullkomin jól fyrir fjölskylduna sína – og gestina, bæði boðna og óboðna. Allt um þetta, jólaundirbúninginn, jólaandann og óvænt ævintýri í nýjasta þætti Video Rekkans!
#35 - 22 dagar til Jóla- The Holiday 2006 02.12.2024 59:11
✨ Amanda og Iris eru bæði búin að fá nóg af ástarsorg og ákveða að skipta um hús yfir jólin – önnur fer úr ensku sveitinni í til Los Angeles, hin úr borginni í notalegu sveitasæluna. 🔄 Það sem átti að vera rólegt frí verður allt annað þegar jólakrafturinn og ástin taka völdin! 💞🎄 Í þessum þætti Jóla Video Rekkans förum við yfir þessa dásamlegu og fyndnu jólamynd sem pakkar inn rómantík með s...
#34 - 29 dagar til Jóla- The Nightmare Before Christmas 1993 25.11.2024 1:10:23
Jack, leiðtogi Hrekkjavökubæjar, er orðinn þreyttur á hinu síendurtekna hlutverki sínu sem kóngur hrekkjavökunnar og þráir eitthvað nýtt og spennandi. Á sama tíma er Sally, sem býr undir oki skapara síns, fangelsuð af sínum eigin takmörkunum og þráir frelsi og sjálfstætt líf. Í þessum nýjasta þætti Jóla Video Rekkans fjöllum við um þessa heillandi sögu, þar sem draumar, ævintýri og andi jólanna...
#33 - 36 dagar til Jóla- Die Hard 1988 18.11.2024 1:18:55
Jólamynd, ekki jólamynd, það er spurningin....reyndar ekki ef þú spyrð okkur. Frekari lýsingar óþarfi!🎄 Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans!!
#32 - 43 dagar til Jóla- Kiss Kiss - Bang Bang 2005 11.11.2024 1:14:35
Innbrotsþjófur frá New York lendir óvart í áheyrnaprufum fyrir bíómynd og er shanghæaður til Los Angeles, þar sem ýmislegt á eftir að gerast – eiginlega svo mikið að það er erfitt að koma því í orð. En þetta er í senn ástarsaga, reifari, jólamynd og löggumynd. Hér er á ferðinni eitt af gleymdu meistaraverkunum, ein af þessum sem allir þurfa að sjá. 🎄🤶🎅🏻Allt um þetta og meira til í þessu þætt...
#31 - 50 dagar til Jóla- The Family Stone 2005 04.11.2024 58:52
Meredith Morton kemur í fyrsta sinn í jólaboð hjá fjölskyldu kærastans síns, Everett Stone. Hún er formleg, með alla hluti skipulagða og er á alla mælikvarða mjög, mjög stíf, en fjölskylda hans er eiginlega algjör andstæða. Frá fyrstu kynnum finnst Stone-fjölskyldunni erfitt að tengjast Meredith og þessi jólaferð Meredith á eftir að draga dilk á eftir sér. Hér er fyrsti þáttur sérstakrar jólaseríu...
#30 Sigourney Weaver- Alien: Resurrection 28.10.2024 1:11:39
200 árum eftir atburði Alien 3 er Ripley endurlífguð með klónatækni og hefur nú ofurkrafta. Það er sem táningsdrengur hafi fengið frjálsar hendur að skrifum handritsins og svo hafi einhver ákveðið að fá franskan listrænan leikstjóra til að taka við leikstjórninni. Það er smá snilld í gangi, smá ekki, og eitthvað þarna mitt á milli. Þetta er síðasta skipti hingað til sem Sigourney Weaver fer í hlut...
#29 Sigourney Weaver- Copycat 21.10.2024 1:04:50
Frægur réttarsálfræðingur sem sérhæfir sig í hegðun raðmorðingja verður fyrir hræðilegri árás frá einum slíkum og þróar í kjölfarið með sér víðáttufælni, sem heldur henni föngnum í eigin íbúð. Þegar nýr raðmorðingi byrjar að herma eftir glæpum fyrri morðingja, neyðist hún, þrátt fyrir eigin ótta, til að aðstoða lögregluna við að upplýsa málið. Hér er á ferðum ein af gleymdum mini smellum níunnar,...
#28 Sigourney Weaver- Dave 14.10.2024 51:34
Dave er venjulegur maður sem lendir óvart í hlutverki forseta Bandaríkjanna eftir að alvöru forsetinn, sem er tvífari hans, fær heilablóðfall. Fyrst hélt hann að þetta yrði auðvelt – bara að brosa og veifa – en fljótlega kemst hann að því að vika getur verið ansi langur tími í pólitík. Klassísk snemm-níutíu bíósmellur sem gæti hafa fallið í gleymskunnar dá! Hér er mikil pólitík, mikil sál, smá á...
#27 Sigourney Weaver- Working Girl 07.10.2024 1:07:40
Ung kona á uppleið í New York. Hér eru axlapúðar, mikið hár, mikið af litum, mikið af hjartaknúsurum, mikið af undirfötum, mikið af svikum. Hér fær áttundi áratugurinn að skína sínu allra skærasta. 👩❤️💋👨Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans.👩❤️💋👨
#26 Sigourney Weaver- Gorillas in the Mist 30.09.2024 1:08:36
Þetta er saga konu sem fer til Afríku til að rannsaka górillur. Hún verður vinur górillanna, en óvinur alls samfélagsins í kringum sig. Hér er vinátta, mannlegur harmleikur, skrítnar þráhyggjur, kurteisir Bretar, nýlendustefnan, górillur - bæði vélknúnar og af holdi og blóði. 🐵🎥Hér er ein af neglum áttunnar, en spurningin er bara, hefur hún elst vel…?🎥🐵
#25 Sigourney Weaver- Aliens 23.09.2024 1:10:10
Ellen Ripley snýr aftur til plánetunnar þar sem áhöfn hennar lenti í sinni verstu martröð, nú með sveit hermanna að vopni. Sigourney Weaver tekst á við sitt íkonískasta hlutverk ferilsins. Hér er tekist á við tilfinningar móðurhlutverksins, nýjar klippingar, vindlar nagaðir og mikið af blótandi hermönnum.
#24 Sigourney Weaver- Ghostbusters 16.09.2024 1:12:49
Dana Barrett er bara venjuleg ung kona á uppleið í New York þegar íbúðin hennar verður að miðstöð yfirnáttúrulegra atburða. Henni til happs hafir ungir frumkvöðlar nýverið stofnað fyrirtæki sem gæti mögulega aðstoðað hana. Hér eru litaðar sokkabuxur, stór permanet, skrítnar kynferðislegar fantasíur og margt margt fleira. Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Video Rekkans.
#23 Sigourney Weaver- The Year of Living Dangerously 09.09.2024 1:03:34
Ungur ástralskur blaðamaður fær sitt stærsta tækifæri til þessa þegar hann er sendur til Indónesíu til að fjalla um pólitískan óróa þar í landi. Í gegnum störf sín kynnist hann hinum trausta ljósmyndara, Billy, og fellur fyrir Jill, starfsmanni breska sendiráðsins. Allt þetta og meira í nýjasta þætti Video Rekkans!
#22 Sigourney Weaver- Alien 02.09.2024 1:15:11
Áhöfnin á geimskipinu Nostromo svarar neyðarkalli og lendir í algjörri martröð þegar óboðinn farþegi kemur um borð. Fljótlega er morðóð skepna laus í skipinu, og það er undir Ellen Ripley komið að lifa af. Spenna, skelfing og köttur.
#21 (EXTRA) Nicolas Cage - Longlegs 29.07.2024 52:54
Alríkisfulltrúin Lee Parker þarf að taka á honum stóra sínum þegar reynir að handsama goðsagnakennda, Longlegs, persónu sem leikur lausum hala. Tryllir, tár, öskur, myndvinnsla, hljóðsvinna, leiksjtórn, leikur, tilfinningar og síðast en ekki síst BÍÓ! Allt þetta og meira til í þessum sérstaka aukasumarkæting.
#20 Nicolas Cage - Heilög þrenning! 03.06.2024 1:41:08
Hér eru lýsingar óþarfi, það þekkja allir tímamótaverkin sem hér eru undir The Rock, Face Off og Con Air🔥 En nú er þetta búið í bili milli okkar og Nicolas Cage. Við kveðjum hann með þessum síðasta þætti um hann í bili, og hlökkum til að kanna önnur spennandi viðfangsefni í framhaldinu.
#19 Nicolas Cage - Bringing out the dead 27.05.2024 1:06:42
Sjúkraflutningarmaður berst við andleg veikindi vegna mikillar streitu í vinnunni. Við fylgjumst með andlegri hnignun Franks á ferðalagi sínu um götur New York borgar þar sem hann reynir sitt besta að bjarga lífum þeirra sem minna mega sín. Allt við þessa mynd ætti að segja okkur að þetta sé meistarastykki, skrifuð eftir metsölubók, handritið á gæjinn sem gerði Taxi Driver og Raging Bull, leikstjó...
#18 Nicolas Cage - The Unbearable Weight Of Massive Talent 20.05.2024 1:08:11
Kvikmyndastjarna leggur leið sína til Mallorca til að taka þátt í afmælishátíð óþekkts milljarðamærings. En allt er ekki sem sýnist; áður en langt um líður, er stjarnan komin á kaf í flókinn lygavef bandarísku leyniþjónustunnar og reynir í örvæntingu að bjarga dóttur pólitíkuss. Myndin er á sama tíma spennuþrungin hasarmynd, ævintýraferð, gamanmynd, djúpstæð drama, andrúmsþrungin spennumynd og róm...
#17 Nicolas Cage - The Pig 13.05.2024 56:30
Einsetubúi nokkur lendir í kröppum dansi þegar trufflusvíninu hans er stolið um miðja nótt, af óprúttnum aðilum, og hann neyðist til fara aftur til borgarinnar í samfélag mannanna í leit að sínu ástkæra svíni. Það mætti að segja að hér væri á ferðinni endurgerð af John Wick, nema núna er hann kokkur og leynisvopnið hans eru bragðlaukar frekar en ofbeldi.
#16 Nicolas Cage - Mandy 06.05.2024 1:07:21
Skógarhöggsmaður lendir í kröppum dansi þegar ofsatrúarhippacult fær afbriðgilegan áhuga á konunni hans. Hér blandast saman stórkostleg tónlist Jóhanns Jóhannssonar og listileg kvikmyndataka Panos Cosmatos. Hér eru ofboðslega mikið af litum, ofboðslega mikið af blóði, ofboðslega mikið af litaleiðréttingu, ofboðslega mikið að dauða og myrki. Hér er mynd sem engin hefði/ætti að láta framhjá sér fara...
#15 Nicolas Cage - Sorcerer's Apprentice 29.04.2024 1:12:32
Lærlingur Merlins fær það verkefni að finna arftaka læriföður síns, en það er eina leiðin til að bjarga heiminum frá glötun. Þetta er í senn ástarsaga og ævintýri, hvað gæti mögulega klikkað! Þið getið komist að því í nýjasta þætti Video Rekkans.
#14 Nicolas Cage - Next 22.04.2024 1:12:15
Töframaður með ofurkrafta verður miðdepill aðgerða FBI til að stöðva kjarnorkusprengju sem hryðjuverkamenn ætla að sprengja í miðborg Los Angeles. Hér er olíuborinn húð, brjóstaskorurnar halda áfram, hárið heldur áfram að vera furðulegt og síðast en ekki síst ekki örvænta, vondu kallarnir eru þýskir... Allt þetta og meira til í þessum þætti!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.