Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Video rekkinn
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn
Author
Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 6, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#113 HM hornið, bæjarhátíðir og Minions & Monsters (2026) - 5.7.2026, 18.21 06.07.2026 47:25
Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur þessa vikuna frekar en kvikmyndahlaðvarp 😂
#112 Bæjarhátíðir og Supergirl (2026 29.06.2026 49:21
Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við ræddum svo afspyrnu leiðinleg. En svona er þetta: nýr mánudagur, nýr þáttur
#111 HM í fótbolta, Cruise er góður maður og The Furious (2026) 22.06.2026 53:53
Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð.
#110 Stöð 2 heimili, útilegur, Obsession og Disclosure day (2026) 15.06.2026 1:46:28
Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta Spielberg-myndin, Disclosure Day!
#109 Listgjörningar, frægðarsól Jóhannes Hauks og Masters of the Universe (2026) 08.06.2026 1:00:14
Í þætti dagsins ræðum við listgjörninga, hetjur samtímans og hetju hvíta tjaldsins — He-Man! Mynd vikunnar er Masters of the Universe .
#108 Láréttur tjáningardans, BBQ hátíð, Útskriftir og Backrooms (2026) 01.06.2026 58:48
Í þætti dagsins fjöllum við um Listahátíð í Reykjavík, grillhátíð í Reykjavík, útskriftir í Reykjavík en svo sögur af landsbyggðinni. Að lokum fjöllum við um sálræna tryllinginn sem er Backrooms.
#107 Á Magnús Hlynur heima í Landanum?- kosningaloforð, sól og The Mandalorian and Grogu (2026) 25.05.2026 1:00:20
Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn hafi verið stofnaður honum til höfuðs á sínum tíma. Að lokum fjöllum við um hina stórskemmtilegu Star Wars mynd The Mandalorian and Grogu, mynd sem ætti ekki að svíkja neinn.
#106 Stjórnmál, landsbyggðarlíf og In the Grey (2026) 18.05.2026 59:34
Eftir óvænt hlé tökum við aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið! Í þætti dagsins ræðum við lífið síðustu vikurnar og förum yfir samskipti systkina. Við gerum kosningabaráttu undanfarinna daga góð skil og að lokum ræðum við nýjustu mynd Guy Ritchie, In the Grey – en þar er mikið um fallegt fólk í fallegum fötum! :)
#105 Vorið, bíll.is og Lee Cronins The Mummy (2026) 20.04.2026 54:56
Jæja góðir hálsar! Vorið er mætt, sumarið er handan við hornið og hryllingsmyndirnar farnar að láta á sér kræla. Við fórum á eina slíka, Lee Cronin´s The Mummy . Það er óhætt að segja að ýmislegt sé um þessa mynd að segja – og það er ekki allt fallegt 👀
#104 Umpottun, jarðtenging og I Swear (2025) 13.04.2026 39:03
Í þætti vikunnar ræðum við umpottun, jarðtengingar á Austurlandi og fólk sem er salt jarðar. En þorra þáttarins verjum við í að ræða hina frábæru I Swear, mynd sem ætti ekki að skilja neinn eftir ósnortin.
#103 Páskar, Páskar, margt fleira og Super Mario Bros Galaxy Movie(2026) 06.04.2026 41:58
Páskaþátturinn 2026 - við ræðum páska, páska og um tvo pípara sem lenda í allskins ævintýrum.
#102 Kristinfræði, bústaðarferðir og They Will Kill You (2026) 30.03.2026 49:01
Í þætti vikunnar förum við yfir ýmislegt. Í tilefni páskahátíðarinnar erum við með fróðleiksmola um pálmasunnudag og köfum ofan í það hvernig þeirri hátíð er lýst í Biblíunni. Við skoðum bústaðarferðir, þá sérstaklega muninn á stráka- og stelpubústöðum. En þorra þáttarins fjöllum við um gaman-, hryllings- og spennumyndina They Will Kill You, sem ætti ekki að valda þeim vonbrigðum sem hafa gaman af...
#101 Keppni, landsbyggð vs höfuðborg og Project Hail Mary (2026) 23.03.2026 1:02:32
Í þætti vikunnar fáum við til okkar góðan gest til að ræða samtakamátt landsbyggðarinnar. En stærsti partur þáttarins fer í umfjöllun okkar um stórmyndina Project Hail Mary, en okkur þótti myndin svo góð að okkur fannst við knúin til að fá líka gest til okkar, svo það væri sagt eitthvað af viti í þættinum. Það er enginn annar en Tómas Valgeirsson, annar þáttastjórnenda Bíófíkla.
#100 Brennum ruslið, poppstjörnur og Reminders of Him (2026) 16.03.2026 54:34
Hundraðasti þátturinn er mættur! 🎉 Við stoppum stutt við til að fagna (því við erum hreinlega glötuð að fagna áföngum) og vindum okkur beint í málið. Ruslabrennur, poppstjörnur og allt þar á milli koma við sögu, en stóra málið í dag er hjartnæma bíómyndin Reminders of Him.
#99 Snjórinn, símaöt, stunur og THE BRIDE! (2026) 09.03.2026 1:07:21
Í þætti dagsins ræðum við símaöt, snjóhatur landsmanna og hina sívinsælu Óskastund á Rás 1. Við verjum þó bróðurparti tímans í að rýna í stórmyndina The Bride!, en óhætt er að segja að hún hafi klofið kvikmyndaáhugafólk í tvær gjörólíkar fylkingar.
#98 Partístand, partískuplag, Ed Harris og How to make a killing(2026) 02.03.2026 45:29
Í þessum þætti fjöllum við um partístand og partískipulag, ræðum dásemdir Ed Harris og förum síðan aðeins á dýptina í nýjustu mynd Glen Powell, How to Make a Killing.
#97 Konudagur, hvítasta keppni í heimi og Cold Storage(2026) 23.02.2026 1:03:36
Í þætti dagsins leiðir Hildur okkur í sannleikann um löngu föstu, við fögnum dásemdum konudagsins, ræðum hvítustu keppni alheimsins og margt fleira. Að lokum förum við yfir Cold Storage, kvikmynd sem við höfðum ýmislegt við að athuga.
#96 Skynsemi eða hræðsla? og "Wuthering Heights"(2026) 16.02.2026 55:33
Í þætti dagsins fer mikil orka í að reyna að kryfja af hverju Ragga finnst ekki gaman á skautum, við fáum uppfærslu úr þorrablótsfréttum og fræðumst um villt partí guðfræðinema. En mestu púðri verjum við í umfjöllun okkar um "Wuthering Heights" sem kom út fyrir skömmu með Margot Robbie og Jacob Elordi í aðalhlutverkum. En hér er á ferðinni ein erótísk mynd🔥 ... meira um það í þættinum.
#95 Forsetapizzur, uppfærsla af þorrablóti og Shelter (2026) 09.02.2026 54:36
Í þætti dagsins fáum við fréttir af þorrablótum og ræðum ágæti Skímó og Hafdísar Huldar. Að lokum verjum við nokkrum mínútum í að ræða hina ekki svo skemmtilegu Shelter, nýjustu mynd Jason Statham.
#94 Óþolandi Danir, bensínstöðvar og Send help (2026).mp3 02.02.2026 1:01:24
Í þætti dagsins ræðum við handboltafárið í janúar, hverfandi bensínstöðvar og komumst loks til botns í því hvernig valið er í Þorrablótsnefndir. En fyrst og síðast ræðum við hina stórskemmtilegu Send Help, nýjustu mynd Sam Raimi með þeim Rachel McAdams og Dylan O’Brien.
#93 Meira gott, meira nice, margt um Óskarinn og Marty Supreme (2025) 26.01.2026 1:07:27
Í þætti vikunnar ræðum við um þorrablót, bílaauglýsingar og auðvitað Óskarinn. Að lokum fjöllum við um kvikmyndina Marty Supreme með hjartaknúsaranum Timothée Chalamet.
#92 TikTok Golden globes og 28 Years Later: The Bone Temple (2026) 19.01.2026 1:12:15
Í þætti dagsins ræðum við pólitíkusa sem eru farnir að láta á sér kræla á TikTok aftur, eftir að hafa legið í dvala frá síðustu Alþingiskosningum. Við ræðum söngva og gamanmyndina One Battle After Another og vegferð hennar á Golden Globe. Ásamt því að þáttastjórnendur fara á dýptina í samanburði á Laugarásbíó og Smárabíó. En fyrst og fremst ræðum við myndina 28 Years Later: The Bone Temple. Við br...
#91 Fimm reglur í ræktina og Greenland 2: Migration (2026) 12.01.2026 59:40
Í þætti dagsins þótti þáttastjórnendum mikilvægt að koma nokkrum óskrifuðum reglum um ræktarferðir á framfæri. Aðaláhersla þáttarins er þó á stórslysamyndina Greenland 2: Migration. Hér er nóg af hasar, sterkum tengingum við Ísland og almennt mikið af dramatík og spennu.
#90 áramótaheit, skúrkar ársins og The Housemaid (2025) 05.01.2026 54:04
Í þætti dagsins ræðum við aðeins nýafstaðin áramót, áramótaheit og margt annað skemmtilegt. En að lokum fjöllum við um erótíska spennumyndina The Housemaid.
#89 Topplistar, Völva, en fyrst og fremst Áramótabomba (2025) 29.12.2025 1:15:07
Í þessum þætti tökum við aðeins árið fyrir, ræðum við völvu um framtíð og nútíð og spjöllum bara almennt á léttu nótunum, hvað var það besta og versta sem við sáum á árinu 2025.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.