Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía

Video rekkinn

Tv IS ↓ 100 episodes

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans:https://www.facebook.com/videorekkinn

Author

Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía

Category

Tv

Podcast website

videorekkinn.podbean.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#63 Misgóðar hugmyndir af bókum, nýjar græjur og lífið bara gott - How to Train Your Dragon (2025) 16.06.2025

Í þætti vikunnar 📻 ræðum við bókmenntahugmyndirnar sem Raggi er að þróa 📚 og kíkjum á nýja upptökubúnaðinn okkar 🎙️. Við förum líka vel yfir teiknimyndastikklur 🎞️ og höfum ýmislegt um þær að segja 💭.   Að lokum segjum við frá bíóferðinni okkar í Laugarásbíó 🍿 á How to Train Your Dragon 🐉 og spjöllum um hvað okkur fannst um myndina og upplifunina í heild 🎬.

#62 Hvítasunnan, hjónaerjur, GTI bílar og fillerí í bíó - Ballerina (2025) 09.06.2025

Í stútfullum þætti vikunnar tökum við púlsinn á kristilegum gildum ✝️, veltum fyrir okkur merkingu Hvítasunnu 🕊️ og rifjum upp hvað nákvæmlega gerðist þá, eða að minnsta kosti gerum heiðarlega tilraun til þess. Við skoðum líka munin á stemningunni í laugardagsbíó vs fimmtudagsbíó 🎬 og minnumst bílamenningar unglingsáranna og alls konar karakterum úr æsku tengdum bílamenningu 🚗😅. En stærstur hlu...

#61 Sjómannadagur, VÆB, börn á háhest og The Phoenician Scheme (2025) 02.06.2025

Í þætti vikunnar 🎧 ræðum við nýliðinn sjómannadag ⚓, yfirspennta VÆB-bræður 🎤, börn á háhesti 🐎, harða heiminn sem fylgir því að eiga börn í maímánuði 👶🌷 og margt fleira 🤯.   Öllu þessu blöndum við saman við umfjöllun okkar um nýjustu mynd Wes Anderson, The Phoenician Scheme 🎬.

#60 Vísindakirkjan, Grímutilnefningar og sólin – Mission: Impossible: Final Reckoning (2025) 26.05.2025

Í dag tökum við sólina ☀️ fyrir enn og aftur — sérstaklega hvernig hún hefur áhrif á fólk og íþróttalíf ⚽️. Við ræðum drykkjuvenjur Íslendinga 🍻, hvort sem það er á menningarviðburðum 🎭 eða íþróttaleikjum 🏟️. Þá köfum við djúpt í Vísindakirkjuna 🛸 (það er eiginlega óhjákvæmilegt), og endum á nýjustu Mission: Impossible myndinni 🎬 Final Reckoning 💥.

#59 Eurovision, sólin og Final Destination: Bloodlines (2025) 18.05.2025

Í þætti dagsins kemst lítið annað að ☀️ en góða veðrið, Eurovision-pólitík 🇪🇺, klassískt menntaðir söngvarar 🎤 og dauðsföll 💀 — þar á meðal þau í Final Destination: Bloodlines 🔪.

#58 - Veðrið sveik, en bjargaði Kerry deginum? - Shadow Force (2025) 12.05.2025

Í þætti vikunnar fórum við yfir vorið 🌼, hvað það gefur, ofbeldissambandið sem við eigum við íslenskt veðurfar 🌧️ og margt fleira. Þessu öllu blöndum við saman við umfjöllun okkar um hasarmyndina Shadow Force 💥 með drottningunni Kerry Washington 👑 og franska hjartaknúsaranum Omar Sy 💘.

#57 Kvíði, hnjúkurinn, Endurskoðandinn og Thunderbolts* (2025) 05.05.2025

Í þætti dagsins förum við yfir veikindi 🤒, Bæjaraland 🏘️, prófkvíða 📚😬, kvíða almennt 😵‍💫 og fjallgöngur sem mögulega valda enn meiri kvíða 🏔️😰. Við minnumst örlítið á The Accountant 2 💼🔫, en eyðum mestu púðri í Thunderbolts ⚡— nýjustu Marvel-myndina sem við vitum lítið um 🤷‍♂️, en höfum sterkar skoðanir á engu að síður 🎬🔥.

#56 -Sjálfsafgreiðsla og sænsk sambönd - Sinners (2025) 28.04.2025

Í þætti vikunnar ræðum við sænsku leiðina í samböndum 🇸🇪💑, sumargjafir 🎁 og sólarkaffipönnukökur 🥞, sjálfsafgreiðslukassa 🤖 og eitt pirrandi vandamál sem flestir þekkja – að velja bíómynd með fjölskyldunni 🎬👨‍👩‍👧‍👦.   Að lokum vefjum við þessu öllu saman í umfjöllun okkar um hina hasarmiklu 💥, blóðugu 🩸 og erótísku 💃 Sinners (2025).

#55 Skonsutertur og kristileg gildi - Drop (2025) 21.04.2025

Í þætti vikunnar ræðum við skonsutertur 🍰, hangikjöt 🍖, kristileg gildi ✝️, annan í páskum 🐣, Melrose Place 📺 — og hvort við myndum… eða myndum ekki   🤔. Þetta allt fléttum við saman við umfjöllun okkar um bíómyndina Drop (2025) 🎬, þar sem glæsilegt fólk 😎 með úthugsaðar hárgreiðslur, 💇‍♀️ í glæsilegum fötum, 👗👔 leikur stórt hlutverk.

#54 Guð, hárblásarar og Jason Statham - A Working Man (2025) 14.04.2025

Í þætti dagsins förum við yfir kristileg gildi ✝️, uppruna dymbilviku 🐣, tuðum yfir fólki sem þurrkar á sér kynfærin með hárblásurum í almenningssturtum 💨🚿, vanþakklátu fólki sem skipuleggur ekki hluti 📅🤷‍♂️ en er samt til í að tuða yfir þeim, eru Rússar verstu vondu kallarnir í myndum? 😤— og þetta allt tengjum við hasarmyndina A Working Man 💥 með sköllótta hjartaknúsaranum Jason Statham 🧔...

#53 The Monkey (2025) 07.04.2025

Í þættinum í dag ræðum við 🌋 eldgos, stöðuna í heimsmálunum 🌍, af hverju öll sæti eru góð sæti í Laugarásbíó 🎬, og hvort það sé ekki kominn tími til að finna nýtt nafn á „walk of shame“ — sleppum skömminni 😌. Inn á milli troðum við svo Höskuldarlausri umfjöllun 🐵 um hina stórgóðu kvikmynd The Monkey.

#52 Zhang Yimou - 十面埋伏 (House of Flying Daggers) (2004) 31.03.2025

Í þætti dagsins fjöllum við um tilhneiginguna að öskra á ensku á heyrnalaust fólk 🗣️👂❌, hvað gerir skoðanir frægs fólks merkilegri en annarra 🤔🎤, og hvort tveggja lítra Coke-flaska standi við þau stórkostlegu loforð sem hún gefur 🥤✨. Síðast en ekki síst fjöllum við um sagnfræðihefðina Wuxia ⚔️🐉 og tengjum hana við meistaraverkið House of Flying Daggers 🎬🔥.

#51 Jet Li - Hero (2002) 24.03.2025

Í nýjasta þætti Video Rekkans förum við yfir það þegar barnastjörnur fullorðnast ⭐️, björtu von Íslands, Svedda Tönn 🌟, tölum óvitsmunalega um sólarganginn 🌞 og einhvers staðar þar á milli ræðum við um kínversku snilldina Hero(2002) 🎥 – stórkostlega mynd sem er svo góð að hér er um að ræða okkar fyrsta spoiler-free umfjöllun, einfaldlega a 🎙️ f því að við viljum að gjörsamlega allir sjái hana!...

#50 Richard Donner - Lethal Weapon 4 (1998) 17.03.2025

Í þessum þætti förum við yfir Berlínævintýrið 🇩🇪, raðir á flugvöllum ✈️ og nýju vopnaleitina 🔍. Svo veltum við fyrir okkur vitleysingunum sem halda að vorið sé komið í mars 🌦️🫠 og köfum ofan í páskaeggin 🍫 – hversu margar hitaeiningar eru við að tala um? 🔥 Að lokum tökum við fyrir fjórðu og síðustu Lethal Weapon myndina 🎬💥 og spyrjum stóru spurninganna: Af hverju var þetta gert? 🤔 Og hverni...

#49 Joe Pesci - Lethal Weapon 3 (1992) 10.03.2025

Í 🎙️ þætti dagsins rifjum við upp minningar af öskudegi 🎭, hættulega unglinga 😈, kristilegar tengingar sprengidagsins ⛪💥, lönguföstu ✝️ og búningapartí 🎉. Að sjálfsögðu blöndum við þessu saman við umfjöllun okkar um langbestu myndina í Lethal Weapon seríunni – hina stórkostlegu Lethal Weapon 3. 🎬🔥 Húmor 😂, vinátta 🤝, bílaeltingarleikir 🚗💨 og ómótstæðileg tónlist 🎸 gera þessa mynd að al...

#48 Danny Glover - Lethal Weapon 2 (1989) 03.03.2025

Í þætti dagsins kafar Video Rekkinn ofan í doomsday-preppið ⛺, mikilvægi þess að fagna litlu ljósgjöfunum í myrkri janúars, febrúars og mars 🕯️, og auðvitað bolludaginn 🍩 – þar sem við rýnum í deiluna um vatnsdeigsbollur vs. gerdeigsbollur 🤔. Við förum einnig dýpra í umræðu um heimsfrið ☮️ og tengjum þetta allt saman við framhaldsmyndina Lethal Weapon 2 🎬, þar sem vinátta 🤝, hefndarmorð 🔥 og...

#47 Mel Gibson - Lethal Weapon (1987) 24.02.2025

Í þessum þætti ræðum við 🍕 föstudagspizzur, hvítar sósur, jafning, upphaf Góu, lok Þorra ❄️ og ótal margt fleira. Einhvern veginn blandast þetta fullkomlega við Lethal Weapon frá 1987 – engin bringuhár, áttunda áratugar saxafónar 🎷 og, síðast en ekki síst, vinátta 🤝.   Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Video Rekkans! 🎬🔥

#46 Jason Isaacs - The Patriot (2000) 17.02.2025

📺 Í þætti vikunnar ræðum við mátt fyrirgefningarinnar, vopnaburð unglinga, smá meira um flokkunarsmánun og andlega dauðann sem fylgir því að eiga ung börn. 🎬 Samofið öllu þessu kynnum við okkur frelsisstríð Bandaríkjanna eins og það birtist í aldamótamyndinni The Patriot. Hér fléttast sögufalsanir saman við tónlist John Williams 🎻, þarna eru líka ástralskir hjartaknúsarar ❤️‍🔥 af sitthvorri ky...

#45 Sam Neill - Event Horizon (1997) 10.02.2025

Í þætti dagsins förum við yfir allt frá nágrannadeilum 🏘️ og ruslaflokkun ♻️ til nafnlausra statusa í lokuðum hópum 🕵️‍♀️. Við veltum líka fyrir okkur hvað Einar er að bralla í borginni 🌆 og hvort nýr meirihluti eða kosningar séu á leiðinni 🗳️. Að auki deilum við sögunum af svaðilför Video Rekka teymisins á Nosferatu 🧛‍♂️.   Að sjálfsögðu blöndum við þessu öllu saman við umfjöllun okkar um cult-...

#44 Dean Cundey - Jurassic Park (1993) 03.02.2025

🎙️ Í þætti vikunnar ræðum við hverfular vinnuvikur ⏳ sem líða alltof hratt, stöðuna á vinnumarkaðnum 💼 og meðalútgjöld fjölskyldu fyrir skíðaferð 🎿 til Salzburg — svo fátt eitt sé nefnt.   Um leið tengjum við Big Trouble in Little China ⚡ við nostalgíuverk eins og Jurassic Park 🦕, tæknibrellur 💥, töfra kvikmyndanna 🎥, staðalímyndir 🧓🦖 og að sjálfsögðu, risaeðlur 🦖. Allt þetta og meira í...

#43 Kim Cattrall - Big Trouble in Little China (1986) 27.01.2025

Í þætti vikunnar fjöllum við um matarboð 🍽️, búslóðaflutninga 🚚, hversu stutt er í klikkhausinn 🤯 innra með manni á íþróttamótum barnanna ⚽🎾 og stór vandamál í Litlu Kína 🏮🐉. Já, kæru vinir – synthar 🎹, hasar 💥, töfrar ✨, skrímsli 👹 og margt annað stórskemmtilegt í þessari yfirferð okkar um þessa hasar-, ævintýra-, gaman-, ráðgátu-, drauga- og skrímslamynd! 👻🎬 Hin stórkostlega Big Trou...

#42 Hugh Wilson - Police Academy (1984) 20.01.2025

Janúarþunglyndið nær hámarki 😞, svo við ræðum depurð 🫤, kvikmyndasýningar 🎥, Bob Dylan 🎸 og hvort orðið gleðikona eða m#lla eigi betur við 🤔. Meðfram þessu förum við yfir hina sígildu Police Academy frá 1984 👮‍♂️ – nostalgíuna 🕰️, skyldubrjóst áttunda áratugarins 👗 og margt fleira.   Allt þetta og meira í þessum þætti af Video Rekknum! 🎬✨

#41 Goldie Hawn - The First Wives Club (1996) 13.01.2025

Í nýjasta þætti Video Rekkans er fjallað um óvenjulega ástríðu Hildar fyrir þorrablótum 🥩🍻, endalausa janúarþungann ❄️⏳ og hina gleðilegu 90’s gamanmynd First Wives Club 🎥✨. Dívurnar þrjár fá sína umfjöllun fram og til baka, enda ekki mikið annað að gera þegar handritið er hálfgerður klúður 📄🤦‍♀️ og þorrinn af myndinni hálf leiðinlegur… 😴🎬   Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Video R...

#40 Nancy Meyers - Private Benjamin - 1980 06.01.2025

Í þessum þætti fórum við um víðan völl og ræddum að sjálfsögðu um Judy Benjamin, ofdekruðu prinsessuna hans pabba síns 👑, Henrí, frakkann sem er fullur af sjálfum sér 🇫🇷, vonda eiginmenn 😡 og hártískuna 💇‍♀️.   Auk þess voru jólin gerð upp 🎄, kalkúnadrama á gamlárs rifjað upp 🍗 og farið yfir helstu atriði sem vert er að muna í janúar 🗓️.   Allt þetta og meira til í umræðum um áttunda áratugs...

#39 - Áramótabomban - Director's Cut 30.12.2024

Eins og allir þættir sem bera vott af smá sjálfsvirðingu, erum við auðvitað með sérstakan áramótaþátt! Við förum yfir lykilatriði þess að vera gestur í áramótateiti, hvað þarf að hafa í huga við eldun kalkúns, og margt fleira. Þetta er eins og ef Vikan með Gísla Marteini og útvarpsþátturinn Milli Mjalta og Messu ættu saman barn, útkoman yrði cirka þessi þáttur👀 🦃🎉🎇   Endilega hlustið og njótið...

Listen to the Video rekkinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.