gummifel

Við búum í útlöndum

Comedy IS ↓ 16 episodes

Leikaraparið Guðmundur Felixson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir eru flutt til Prag. Þetta er í fyrsta skiptið á sinni fullorðinsævi sem þau búa í útlöndum. Þetta hlaðvarp er þeirra saga. Og svo fær Arnaldur Snær, 4 ára, auðvitað líka að vera með!

Author

gummifel

Category

Comedy

Podcast website

utlondpodcast.podbean.com

Latest episode

Oct 31, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Öskrandi í kjallara með Steiney 31.10.2025

Okkar allra besta vinkona, Steiney Skúladóttir, kom í heimsókn til Prag og að sjálfsögðu fengum við hana sem gest í poddið! Við ræðum skrítnu leiksýningarnar sem við höfum dregið hana á, hryllingshúsið sem stelpurnar fóru í, Hrekkjavökuna sem Blær er komin með ógeð á og svo blind rönkum við Prag. Orð dagsins er líka sérstaklega fyndið þessa vikuna!  Fylgið okkur á instagram: @utlondpodcast

Hvers eiga dúfur að gjalda? 19.10.2025

Í þætti dagsins tölum við um hvað við erum allt of mikið í símanum, aðallega þegar við erum að svæfa. Hrekkjavakan nálgast og Blær er að sjálfsögðu búin að skreyta allstaðar. Við förum yfir hræðileg örlög dúfunnar (sem eru í alvöru mjög sorgleg). Gummi power rankar gælunöfnin sem hann hefur yfir Blævi og Blær gerði sig að fífli við að reyna að næla sér í play-dates fyrir Arnald. Orð dagsins er að...

Tékkar eru hobbitar 09.10.2025

WE’RE BACK BABY! Rosa löng pása en við erum komin aftur. Í þætti dagsins tölum við aðeins um ferðalag sem við fórum í og hvað það er klikkað að hér vaxi bara ávextir á trjánum! Það er fallegt og smá… hræðilegt…
Gummi afhjúpar að hann er í raun Nutella fíkill. Og eru Tékkar eins og Hobbitar? Eða gamlir sjóarar? Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast 

Öll hljóð sem þú gerir í nuddi hljóma kynferðislega 10.02.2025

Síðasti þátturinn áður en Blær fór til Íslands! Við ræðum óskrifaðar reglur í nuddi og tölum um allskonar ömurleg störf sem við höfum unnið. Blær tók þátt í ólöglegri starfsemi á veitingastað og Gummi var niðurlægður af börnum og túristum.  Við erum farin í smá pásu á meðan Blær er kvikmyndastjarna á Íslandi. Heyrumst aftur í mars!  Þátturinn er í boði Alfreð!  Fylgið okkur á Instagram: @utlondpod...

Íslendingar eru vandræðaleg þjóð 31.01.2025

ATHUGIÐ! Þessi þáttur er tekinn upp í fortíðinni því Blær er í raun komin til Íslands. En við höfum af nógu að taka. Leiklistarpælingar á borð við: Eru bara til nokkrar tegundir af leikurum? Gummi segir okkur frá einhverjum skrítnustu leiksýningum sem hann hefur séð hérna úti. Hvers söknum við mest frá Íslandi? Hvenær er eitthvað list og eitthvað bull? Afhverju eru tónlistarmenn alltaf að stoppa m...

Flámælt Salka Valka 24.01.2025

Blær ætlaði að vera flámælt þegar hún lék Sölku Völku, en hætti við þegar hún fattaði að Salka Valka er ekki gamanleikur. Er það kostur eða löstur að Tékkar séu alltaf á tillanum í saununni? Orð dagsins er á sínum stað og nýr liður um listræna kjaftæðið sem Gummi er að gera í skólanum! Við elskum ykkur og söknum ykkar! Þátturinn er í boði Alfreð Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast   Gervigrei...

Bótox í hárið 17.01.2025

Blær fagnaði afmælinu sínu með því að splæsa í keratínmeðferð fyrir hárið sitt, þrátt fyrir ráðleggingar tékkneskra snyrtifræðinga um að fá sér frekar bótox í hárið. Arnaldur hefur ennþá jafnmikinn áhuga á fótbolta en því miður hættur að halda með Liverpool. Gummi kemur með nýjan kapítalískan lið sem allir hlustendur geta tekið þátt í! Og að sjálfsögðu kíkir sjálfur Alfreð í heimsókn ásamt konu si...

Hundrað bananar 10.01.2025

Það snjóaði loksins í Prag! Og eins og allir góðir foreldrar þá keyptum við TVÆR snjóþotur handa Arnaldi. Blær vill meina að öll ljóðskáld séu klikkuð en Gummi vill meina að Blær sé klikkuð því hún keypti einu sinni hundrað banana. Kostur eða löstur og orð dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað. Og Arnaldur segir okkur frábæra hugmynd um hvað hann myndi vilja endurskíra Tékkland.  Þátturinn er í bo...

Óskrifaðar reglur í sporvagni 03.01.2025

Nýtt ár, nýr þáttur! Við förum yfir áramótin í Prag, tölum um óskrifaðar reglur í sporvögnum og tölum um hættur þess að borða of mikið D-vítamín (kemur í ljós að það er alls ekki í lagi að borða bara endalaust af vítamínum) Blær frumsýnir splunkunýja Laxness-eftirhermu og orð dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað. Njótið þáttarins :)  Við búum í útlöndum er í boði Alfreð!  Fylgið okkur á Instagram...

Er prump ekki bara að tala með rassinum? 27.12.2024

Í þætti dagsins tala Gummi og Blær um veikindi sín um jólin, vítamín, lýsi og Starbucks. Við svörum fleiri spurningum hlustenda, eins og hvað er ólöglegt í Prag, brúðuleikhús og áfengi. Rigg Rigg er það gigg og orð dagsins eru auðvitað á sínum stað. Þátturinn er í boði Alfreð. Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast Oooog gervigreindarlýsingin fylgir að sjálfsögðu með:  Sæl kæru hlustendur, gleði...

Normaliserum miðlungsgóðar jólagjafir 13.12.2024

Í þætti dagsins tölum við um aðfangadag í Prag og svörum fullt af spurningum frá hlustendum! Takk fyrir frábæru spurningarnar ykkar, kæru hlustendur. Það er alltaf velkomið að senda fleiri spurningar á Instagram: @utlondpodcast.  Þátturinn er í boði Alfreð og Giggó :)  Og já, gervigreindin gerði þessa lýsingu:  Velkomin í "Við búum í útlöndum"! Í þætti dagsins förum við til Prag og njótum jólastem...

Hollustudrottningin borðar ekki strákamat 06.12.2024

Í þætti dagsins tölum við um hvað Blær er orðin mössuð (eiginlega svo mössuð að hún er hrædd um að fólki finnist það óþægilegt), við tölum líka um tékkneskar jólahefðir sem eru flóknar og skringilega trúarlegar, við skiljum þær ekki alveg. Orð dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað og svakaleg bisness hugmynd í lok þáttar. Kíkið líka á þáttarlýsinguna sem gervigreindin bjó til hér neðar, nú á íslen...

Blær er orðin andsetin af jólaandanum 29.11.2024

Í þætti dagsins ræðum við ógeðselga skítugan fisk sem Tékkum finnst gaman að borða í jólamat. Blær segir frá jólaþema ársins í ár og kennir dularfullum jólaanda um það hvað hún er mikið að kaupa jólaskraut á netinu. Arnaldur er að sjálfsögðu með orð dagsins og það er mjög fyndið þessa vikuna. En til að lesa nánar um hvað fer fram í þættinum getið þið auðvitað bara lesið AI-lýsinguna hér að neðan....

Rómantískt að vera með hor í vasanum 22.11.2024

Í þætti dagsins sköpuðust svo eldheitar umræður að það byrjaði að gjósa meðan við tókum upp! En í dag tölum við um listnám Gumma. Tékka og vasaklútana þeirra. Þráhyggjur og ótta Gumma og Blævar í margmenni. Svo er rosalegt (en að vísu rangt) Orð Dagsins. Tékkið á Alfreð og Giggó! Og fylgið okkur á Instagram: @utlondpodcast Og svona í lokin er gaman að láta fylgja með episode description sem gervig...

Fyrstu kynnin 15.11.2024

Gummi og Blær eru komin til Prag og ætla að njóta þess til hins ítrasta. Blær er að læra tékknesku en Gummi er alltaf í þessu listnámi. Hér fara þau yfir fyrstu dagana í útlöndum hvað er líkt með borgunum tveimur. Reykjavík og Prag. Svo er orð dagsins með Arnaldi Snæ að sjálfsögðu á sínum stað og einn nýr liður og TVÖ ný stef!! Það er allt að gerast!!  Þátturinn er í boði Alfreð, kíkið á Alfreð og...

Að fara út 07.11.2024

Gummi og Blær hafa búið allt sitt líf á Íslandi. Og nú búa þau í útlöndum, nánar til tekið í Prag. Í þessum fyrsta þætti fara þau yfir ákvörðunina um að flytja, flutningana sjálfa og fyrstu dagana í nýju landi. Er það ávísun á sjálfshatur að leigja út íbúðina sína? Er eðlilegt að fá fimm spurningar um piss í inntökuprófi í leiklistarskóla? Okkar allra besti maður, Arnaldur Snær er líka með liðinn:...

Listen to the Við búum í útlöndum podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.