Knattspyrnufélagið Valur - Podcast

Valur - Hljóðvarp

Sports EN ↓ 95 episodes

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: soundcloud.com

Author

Knattspyrnufélagið Valur - Podcast

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Oct 28, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Vængjum Þöndum SE3 EP5 - Birkir Már 18.03.2021

Vængirnir mínus Gettu betur stjarnan Jóhann Alfreð fengu einn okkar allra dáðasta son Birki Ma til að kikja i Toggastofu og fara yfir málin. Birkir kom a hlaupahjóli með þungarokk i eyrunum. Það styttist i 100 landsleikina hjá okkar manni en það er fátt skemmtilegra en að setjast niður með Birki og tala um fótbolta. Við fórum lika aðeins yfir stöðuna i hand- og körfubolta en aðalmalið var landslið...

Vængjum Þöndum S4EP3 - Heimir 05.02.2021

Við náðum í Heimi Guðjónsson á milli æfinga hjá karlaliði Vals í fótbolta. Valsmenn taka nú fullan vinnudag tvisvar í viku. Við forvitnuðumst um það, hvernig leikmannamálin standa og hituðum upp fyrir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins sem fram fer á morgun.

Vængjum Þöndum S4 EP2 - Finnur Freyr 17.01.2021

Finnur Freyr þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta kíkti í Toggastofu. Við fórum yfir stöðuna á liðinu, markmiðin í vetur, sóknina í körfunni á Hlíðarenda og hituðum upp fyrir stórleikinn framundan gegn KR í Dominos-deildinni.

S4 EP1 - Höll Minningana I - Bjössi og Bjarni Ólafur 14.01.2021

Enn er ekkert spilað og því göngum við inn í Höll minninganna sem er nýr liður sem verður vonandi endurtekinn reglulega. Að þessu sinni rifjum við upp sumarið 2007, þegar karlaliðið í fótbolta varð Íslandsmeistari. Við fengum tvo af máttarstólpunum þetta sumarið, fyrirliðann Sigurbjörn Hreiðarsson og Bjarna Ólaf Eiríksson sem fóru yfir ævintýrið þegar við lönduðum þeim stóra í fyrsta skipti í tutt...

S3 EP17 - Áramótauppgjör 30.12.2020

Við áramót er gott að staldra við og líta um öxl. Í þessari sérstöku áramótaútgáfu fengum við þjálfara Vals í handknattleik karla og Valsgoðsögnina Snorra Stein Guðjónsson til að líta við. Við tókum púlsinn á liðinu en stefnt er að því að byrja að spila í seinni hluta janúar og hituðum líka upp fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta sem er framundan. Þá mætti Valgeir Lunddal til okkar í kveðjuspjall...

Vængjum Þöndum - S3 EP16 - Eiður Ben 30.11.2020

Við höldum áfram að gera upp liðið tímabil í fótboltanum í Val og nú er komið kvennatímabilinu. Við fengum aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna, hann Eið Ben í gott spjall. Fórum yfir sumarið, úrslitaleikina við Blika, Evrópuleikina nú á dögunum og mögulegar hræringar í leikmannamálum.

Vængjum Þöndum S3 EP15 - Heimir Guðjóns 19.11.2020

Við gerðum upp liðið tímabil nú þegar ákveðið hefur verið að setja punkt fyrir aftan Íslandsmótið 2020. Valur er Íslandsmeistari karla og Heimir Guðjónsson, þjálfari mætti í spjall. Fórum um víðan völl, ræddum liðið tímabil, umgjörðina í Val og það sem framtíðin ber í skauti sér. Í seinni hlutanum mætti góðvinur þáttarins Stígur Helgason. Fórum yfir leik stelpnanna í meistaradeildinni gegn Glasgow...

Vængjum Þöndum S3 EP14 01.10.2020

Þær Mist Edvardsdóttir og Elísa Viðarsdóttir kíktu til okkar Vængjabræðra þar sem ýmislegt var rætt. Besta bíómyndin, kúlturinn í Val, næringuna og auðvitað komandi leik gegn Breiðablik. Úrslitaleikinn um titilinn en stelpurnar fóru í taktík í dag og á föstudag verður skipt í ungir gamlir og endað á skotkeppni en ungar hafa ekki unnið í tvö ár. Þetta er góður hálftími og gleðilegur enda stutt í sa...

Vængjum þöndum S3 E13 27.09.2020

Þeir Breki Logason og Benedikt Bóas settust niður eftir jafnteflið við Blika og ræddu þessa mögnuðu viku og þessa stórsigra sem unnust áður en bakverðirnir okkar mættu á svæðið til að fara yfir sama svið. Valgeir Lundal átti 19 ára afmæli í vikunni og Birkir Már getur ekki hætt að skora. Magnaðir báðir tveir.

Vængjum Þöndum S3E12 13.09.2020

Benedikt Bóas, Breki Logason og Stígur Helgason settust niður eftir níunda sigurleikinn í röð. Spjölluðu aðeins en þessir leikir sem byrja svona seint eru greinilega ekki gerðir fyrir Podcast því það þurfti að hætta skyndilega - enda þjófavarnakerfið að fara af stað. Það var því aðeins farið yfir leikinn og gesturinn slapp við mætingu þó við sem þekkjum skólakerfið setjum S á kappann.

Vængjum þöndum S3 E11 28.08.2020

Frábær vika að baki á Hlíðarenda. Benni Bóas og Jói Alfreð fóru yfir KR-leikinn og tóku svo á móti nýstirni Vals, bakverðinum Valgeiri Lunddal Friðrikssyni. Við ræddum fótboltasumarið fram að þessu, tíma hans í Val, að kötta inn af vinstri og draumana um atvinnumenskuna.

Vængjum þöndum S3 E10 18.08.2020

Bikarsigur og áfram skundum við í bikarnum þar sem andstæðingarnir verða HK, einhvern tímann í september. Patrick, Lasse og Einar Karl skoruðu mörkin fyrir okkur. Það lá aðeins á okkar mönnum um tíma en varnarlínan var þétt sem fyrr. Það var því við hæfi að fá Eið Aron í heimsókn eftir leik í Þorgrímsstofu, þar sem hann er einn af okkar uppáhalds. Hann fór aðeins yfir málin og talaði hreint út. Sa...

Vængjum Þöndum S3 E9 15.08.2020

Vængjabræður, Benedikt Bóas og Breki Logason, settust niður með markaskorara dagsins, Kidda Frey, eftir leikinn gegn KA. Kiddi hefur verið lengi í Val, lítur á sig sem Valsara og segir að hann sé loksins orðinn heill heilsu. Hann geti jafnvel farið í gönguferð með dóttur sína án þess að finna til verkja.

Vængjum Þöndum S3 E8 14.08.2020

Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð fengu leyfi frá Víði til að mæta og hitta formann vor, Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildarinnar, fór yfir danatenginguna, komu Gunnhildar Yrsu, Covid krísuhópinn sem aldrei varð og komandi leiki. Það er alltaf gaman að hlusta á Börk tala um fótbolta og félagið. Góða helgi.

Viðhafnarútgáfa Jón Arnór mættur 05.08.2020

Gleðifréttir, ekki aðeins fyrir Val heldur íslenskan körfubolta, sagði Svali Björgvinsson formaður körfuboltadeildarinnar þegar hann kynnti Jón Arnór Stefánsson til leiks. Jón þarf ekki mikið að kynna. Hann er jú besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið og ber sterkar taugar til Vals. Vængjamenn blésu í hátíðarlúðurinn og hittu á Jón og Finn þjálfara.

Vængjum Þöndum S3E7 23.07.2020

Benedikt Bóas mætti hás og líkari Bryan Adams en sjálfum sér, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu Birki Má Sævarsson til að fara yfir leikinn gegn Fylki. Ýmislegt skemmtilegt bar á góma eins og færið hans Patrick, Hamarby og Leeds að sjálfsögðu, Birkir er jú einn harðasti Leeds-ari landsins.

VængjumÞ20.7 20.07.2020

Breki og Benedikt Bóas hittust í hádeginu og gerðu tilraun. Óvænt innkoma Jóa frá Húsavík. Fóru yfir Blikaleikinn og komandi verkefni gegn einmitt Blikum. Örlítil tæknivandamál hafa verið að hrjá hópinn en það er þetta með kappið og fegurðina. Áfram Valur.

Vængjum Þöndum S3 E5 11.07.2020

Benni, Breki og Jóhann Alfreð settust niður yfir kaffibolla og fóru yfir það sem á dagana hefur drifið í fótboltanum í Val undanfarnar vikur.

25. júní - Ákall til stuðningsmanna 25.06.2020

Vængjum Þöndum, hlaðvarp okkar Valsmanna, eru með áhyggjur af andanum í stúkunni þessa vikuna. Þeir ákváðu því að kalla til sín einn af okkar allra sterkustu leikmönnum sem klæðst hefur Valsjakkanum. Arnór Ben var ekki sá liprasti á vellinum þegar Benedikt Bóas þjálfaði hann í 7.flokki en hann hefur vakið athygli í stúkunni. Arnór sem er raddtvífari Óskars Bjarna segist brenna fyri klúbbinn og ætl...

Vængjum Þöndum S3 E3 10.06.2020

Benedikt Bóas, Breki Loga og Jói Alfreð kíktu í Podcastherbergi Séra Friðriks. Fengu Stíg Helgason, fréttamann RÚV, óvænt í fangið og buðu hann velkominn með í sýninguna. Siggi Lár kíkti svo við.

Vængjum þöndum S3E2 26.05.2020

Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð kíktu í Valsheimilið og hittu á meistara Srdjan Tufegdzic, Túfa. Hann hefur sögu að segja og er að klára UEFA PRO gráðuna með Robbie Keane. Toppmaður. Þeir félagar spjölluðu einnig aðeins um komandi æfingarleiki gegn Keflavík og Blikum á sunnudag. Vonandi hafið þið gagn og gaman af.

Vængjum þöndum S3E1 20.05.2020

Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu loksins að kíkja við og dusta rykið af Podcastgræjunni, setjast í sófann og anda að sér sögunni. Heimir Guðjónsson, kóngurinn á hliðarlínunni, kíkti í heimsókn sem var svo skemmtileg að drengirnir héldu áfram að spjalla um allt og ekkert langt frameftir.

KóvídPod tilraun 25.03.2020

Heimamenn, settust niður og prófuðu að tala um fótbolta á þessum síðustu og verstu. Benedikt Bóas sat í Melgerðinu, Breki Logason sat við Your Day Tours og Jói Alfreð var heima hjá sér í Laugardalnum. Spjall sem fór úr einu í annað. Þetta er tilraun svo bannað að dæma mjög hart en vonandi léttir þetta einhverjum Valsmönnum lundina.

Vængjum þöndum S2 E12 20.09.2019

Áfram gakk sagði einhver snillingurinn. Titlaleikur á morgun og svo Grindavík á sunnudag. Farið yfir sviðið svona á léttu nótunum. Fínt inn í helgina. Vængjum þöndum er að sjálfsögðu í boði Session þar sem gott er að sitja og gaman er að njóta. Ofboðslega skemmtilegur og góður bar.

Vængjum þöndum S2 E11 12.09.2019

Það kom einhvern veginn bara einn maður til greina til að rúlla yfir komandi daga. Pétur Pétursson, þjálfari stelpnanna okkar. Hann fékk líka að tala í gullin míkrafón. Það var skemmtilegt. Pétur þekkti Atla Eðvaldsson, þekkir KR sem kíkir til okkar í heimsókn á mánudag og hver er betri til að ræða við um komandi stórslag á sunnudag gegn Blikum. Þar verður stuð - þar verður gaman. Vængjum þöndum e...

Listen to the Valur - Hljóðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.