Knattspyrnufélagið Valur - Podcast

Valur - Hljóðvarp

Sports EN ↓ 95 episodes

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: soundcloud.com

Author

Knattspyrnufélagið Valur - Podcast

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Oct 28, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

SE5 - EP02 - Björgvin Páll 05.02.2023

Olís deildin í handbolta er farin að rúlla af stað á nýjan leik eftir HM-hléið. Við fengum Björgvin Pál í smá heimsókn í Toggastofu og fórum yfir vertíðina framundan í handboltanum. Við ræddum aðeins heimsmeistaramótið sem er að baki, Evrópuleikina næstu vikurnar þar sem allt verður undir og taktinn að spila tvo leiki á viku í deild og Evrópu. Valsliðið er þessa stundina á ferðalagi til Flensburg...

SE5 - EP01 - Arnar Grétars 09.01.2023

Arnar Grétarsson, þjálfari okkar í fótboltanum, settist í Toggastofu eftir matarbita í Fjósinu. Trúlega hefði þetta geta verið fimm tíma spjall enda ekkert eðlilega gaman að tala um fótbolta við Arnar. Hann er hafsjór af fróðleik og metnaðurinn hreinlega lekur af honum. Hann vill gera allt til að vinna. Og hér er klukkutímaspjall um hvernig við förum upp í hæstu hæðir á ný. Leiðin þangað er grýtt...

S4 - EP11 - Áramótaþáttur - Dagur og Bjarki Sig og Pavel 30.12.2022

Áramótaþáttur Vængjum þöndum. Í Valsblaðinu sem kom út fyrir stuttu síðan mátti finna viðtal sem bræðurnir Dagur og Bjarki Sig tóku við Pavel Ermolinskij í Toggastofu. Spjallið þeirra var tekið upp og birtist nú í hlaðvarpinu í lengri útgáfu. Það er eiginlega næg kynning og engu við það að bæta. Njótið vel og gleðilegt ár kæru Valsmenn. Takk fyrir hlustanir og takk fyrir árið 2022 þar sem sex titl...

SE4 - EP10 - Snorri Steinn 21.10.2022

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Meistaraflokks karla, kom í Toggastofu, til að fara yfir þær áskoranir sem eru framundan hjá liðinu. ÍR í kvöld, FTC á þriðjudag á dúknum í Origo í Evrópudeildinni, Grótta á föstudag og loks Benedorm á laugardag. Já, það er nóg framundan og þjálfarinn talaði tæpitungulaust og fór ekki í felur með hversu stórt þetta Evrópuævintýri okkar er. Snorri er einstakur mað...

SE4 - EP9 - Björgvin Páll 06.09.2022

Það var rífandi stuð i Toggastofu þegar einn af okkar bestu félagsmönnum Björgvin Páll Gústavsson fékk sér sæti, nýkominn af sófadögum Húsgagnarhallarinnar. Bjöggi hefur komið eins og stormsveipur inn i félagið okkar og Valssporið er ein af hugmyndunum sem hann hefur verið að útfæra þar. Hann fór yfir mjög spennandi vetur sem er framundan í handboltanum og stemmninguna fyrir ævintýrinu sem er hand...

SE4 - EP8 - Elísa Viðars og Arna Sif 24.08.2022

Stórleikur framundan á laugardag. Gestir hlaðvarpsins voru þær Elísa Viðarsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir. Þær fóru yfir komandi bikarúrslitaleik og rúlluðu yfir ævintýrið í Slóveníu. Örnu leið ekkert sérstaklega vel í öllum hitanum eins og hún segir frá og Elísa gaf matnum á heilsuhótelinu sem þær gistu á ágætis meðmæli en var ekki alveg klár í að gefa honum alveg fimm stjörnur. Framundan er ek...

S4 - EP7 - Birkir Már 04.08.2022

Vængirnir flugu af stað að nýju eftir sumarfrí og settust í Toggastofu eftir dásamlegan 2:0 sigur á Fimleikafélaginu. Við fórum um víðan völl, lentum í batterísveseni og öðrum skakkaföllum en héldum okkar sjó og bulluðum okkur í gegnum allskonar. Birkir Már kom í Toggastofu og fór yfir tímann sinn hjá Hammarby en tveir áhorfendur vöktu athygli Vængjanna, klædd í grænt og öskruðu Áfram Valur. Þau v...

S4 - EP6 - Jói Skúli og draumalið erlendra leikmanna í Val 24.06.2022

Jói Skúli settist í Toggastofu og valdi besta lið erlendra leikmanna í Val. Patrick Pedersen var að sjálfsögðu sjálfkjörin en Jói ákvað að hafa liðið frá svona 1997 til dagsins í dag. Jói er hafsjór af fróðleik og Podcast hans Draumaliðið er ekkert minna en stórkostleg heimild um horfna tíma. Nýr þáttur kom einmitt út í dag um Sumarið 2013. Hann fór um víðan völl og rifjaði upp marga gamla og misg...

S4 - EP5 - Snorri Steinn og Finnur Freyr 08.06.2022

„Ég er harðasti stuðningsmaður handboltaliðs Vals“ Það hefur vart farið brosið af íslandsmeisturunum og skrifstofufélögunum Snorri Steini og Finni Frey sem kíktu til okkar í Toggastofu og fóru yfir titlana í handboltanum og körfuboltanum. Þetta er sérstök hátíðar útgáfa af Vængjunum enda fjögur ár síðan fyrsti þáttur fór í loftið og er boðið upp á sérstaklega gott hljóð að þessu sinni. Finnur vill...

S4 - EP4- Agnar Smári 17.05.2022

Hann hefur vakið verskuldaða athygli í stúkunni alla úrslitakeppnina í körfunni enda í geggjuðu formi. Hinn stórkostlegi Agnar Smári Jónsson leikmaður meistaraflokks karla í handbolti er stuðningsmaður númer eitt og kíkti í Toggastofu til okkar Vængjanna. Hann segist hafa tekið sér Birki Má Sævarsson til fyrirmyndar og reyni að mæta á flest alla heimaleiki Vals. Aggi hitar upp fyrir oddaleikinn á...

S4 - EP3 - Finnur Freyr 14.05.2022

Góðan og gleðilegan kjördag. Trúlega eru einhverjir ennþá að jafna sig eftir fimmtudagskvöldið. Þvílíkur rússibani af tilfinningum. Fyrst hjá stelpunum í handbolta og svo í körfunni hjá drengjunum okkar. Maí er dásamlegur tími til að halda með Val. Svo einfalt er það. Við í Vængjunum settumst niður með Finn þjálfara í körfunni og fengum hann aðeins til að tala við okkur um leikinn, svefnlausu nætu...

S4 - EP2 - Pavel 29.04.2022

Það var líf og fjör í Toggastofu í dag þegar sjálfur Pavel Ermolinskij settist niður og fór aðeins yfir körfuboltaveturinn og komandi úrslitaeinvígi. Pavel er orðinn gegnheill Valsari og elskar að labba um gangana og hitta aðra í Val til að ræða hlutina. Hann meira að segja stoppaði Snorra Stein til að ræða um leik FH og Selfoss. Eftir körfuboltafróðleik hitum við aðeins upp fyrir komandi menninga...

S4 - EP1 - Yfirferð og hringborð 10.03.2022

Loksins loksins var tækifæri til að setjast niður og tala um Val. En vegna ýmissa vandkvæða, þá aðallega þeirrar skæðu, höfum við verið á hóld i allt of langan tíma. En öll él styttir upp og við komum saman í sérstöku SvansStúdíói bara til að segja hæ við hvorn annan og hann Stígur Helgason hoppaði um borð. Þetta endaði reyndar í góðum klukkutíma enda langt siðan síðast. Yfirferð yfir handboltann,...

SE4 - EP16 - Lárus Sigurðsson 13.11.2021

Lárus Sigurðsson passar að höfuðstóllinn lækki aldrei. Hann stökk yfir af skrifstofunni og kikti i Toggastofuna og sagði okkur Vængjamönnum aðeins um Valsmenn Ses, uppbygginguna, pælingarnar sem eru i gangi og hvað hann vill sjá. Svo tókum við aðeins ferilinn að sjálfsögðu en Lalli lagði skóna a hilluna aðeins 27 ára. Hann fór yfir skotæfingarnar með Arnóri Guð og ýmislegt fleira i löngu og góðu s...

SE3 - EP15 14.10.2021

Finnur Freyr kikti við i Toggastofu og fór yfir körfuboltann i Val. Hann gerði upp seríuna við KR, fór yfir leikmannahópinn sem hann hefur í höndunum og hvað það sé gaman að kveikja ljós í körfuboltanum í Val - enda er það jákvætt vandamál að aðstaðan sé sprunginn.

SE3 - EP14 - Björgvin Páll 23.09.2021

Það var magnað að labba inn í Origo-höllina á þriðjudagskvöld þegar Valsmenn mættu Lemgo í hörkurimmu í Evrópukeppninni í handbolta. Veturinn ber fögur fyrirheit og við fengum einn nýjasta liðsmann okkar, landsliðsmarkvörðinn Björgvin Pál Gústavsson til að setjast niður með okkur í Toggastofu. Við fórum að sjálfsögðu yfir leikinn á þriðjudagskvöld, atvikið umdeilda og hvernig hann er að upplifa lí...

SE3 - EP13 - Titlaspjall við Fanndísi Friðriks og Elísu Viðars 27.08.2021

Þær Elísa Viðarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir mættu í Toggastofu til að fara yfir Íslandsmeistarasumarið. Þó tvær umferðir séu eftir er 124 titill okkar Valsmanna kominn í hús. Því ber að fagna og spjalla um. Þær Eyjasystur fóru um víðan völl. Stuðið um kvöldið og hvernig hægt væri að fagna þessum titli í raun þrisvar sinnum. Tapið gegn Blikum en einnig var stígið inn í kvennréttindabaráttuna....

SE3 - EP12 - Birkir Heimis 19.08.2021

Langt síðan síðast og löngu kominn tími á að setjast yfir málin í Toggastofu. Og við fengum góðan gest til okkar. Birkir Heimisson hefur vakið athygli fyrir góða spilamennsku á tímabilinu. Þessi ungi leikmaður fór yfir uppvaxtarárin í Þorpinu, tímann sinn í Hollandi og veru sína í Val í stuttu spjalli. Við gíruðum okkur auðvitað fyrir Víkingsleikinn og eftir að Birkir hvarf á braut fórum við stutt...

SE3 - EP11 - Kristinn Freyr og Túfa 12.07.2021

Það er orðið langt um liðið frá síðustu útgáfu og löngu orðið tímabært að setjast aðeins niður. Að þessu sinni hituðum við upp fyrir stórleikinn sem framundan er í Meistaradeildinni gegn Dinamo Zagreb annað kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals settist niður, fór yfir ferðasöguna til Króatíu, fyrri leikinn, spáði í spilinn fyrir leikinn á morgun og loks var aðeins farið yfir tímabils Va...

SE3 - EP10 - Óskar Bjarni 14.06.2021

Það er stór vika framundan á Hlíðarenda. Eftir dramatíska lokamínútu gegn ÍBV er meistarflokkur karla í handbolta komið í úrslitaeinvígi gegn systurfélaginu Haukum. Stórleikur á Hlíðarenda annað kvöld og við fengum engan annan en Óskar Bjarna Óskarsson, aðstoðarþjálfara liðsins í stutt spjall til að fara yfir úrslitakeppnina fram að þessu og hituðum svo upp fyrir einvígið um Íslandsmeistaratitilin...

SE3 - EP9 - Svali Björgvins 05.06.2021

Valur eru Íslandsmeistarar kvenna í körfuknattleik og karlaliðið stimplaði sig svo sannarlega inn meðal þeirra bestu í rafmögnuðu einvígi við KR-inga. Það var þess vegna góður dagur í Toggastofu á Hlíðarenda þegar við tókum á móti sjálfum Svala Björgvinssyni, formanni körfuknattleiksdeildarinnar. Við gerðum upp magnaðan en líka krefjandi vetur í körfunni í Val. Frasakóngurinn sjálfur er auðvitað h...

SE3 - EP8 - Einar Örn Jónsson 18.05.2021

,,Það er sirka 70% vinna að halda með Val þessa dagana” sagði seinni viðmælandi Vængjanna í útgáfu dagsins. Það átti vel við enda bókstaflega allt í gangi á Hlíðarenda þessa dagana. Þar af leiðandi fengum við einn af okkar allra bestu sonum, íþróttafréttamanninn Einar Örn Jónsson, í Þorgrímsstofu og fórum vítt yfir sviðið og landsslagið í íþróttunum. Það er jú nánast þannig að það er nánast full v...

SE3 EP7 - Elísa Viðars og Eiður Ben 04.05.2021

Vængirnir strikuðu niður á Hlíðarenda nú þegar rúmur sólarhringur er í fyrsta leik Vals í Pepsi Max deild kvenna. Eiður Ben, aðstoðarþjálfari og Elísa Viðarsdóttir, reynslubolti í liðinu komu í skemmtilegt spjall. Við fórum yfir komandi sumar, breytingar á hópnum, markmiðin, komandi Evrópukeppni og stöðuna í kvennaboltanum almennt. Í seinni hlutanum leit við Stígur Helgason, fréttamaður í uppgjör...

SE3 EP6 - Andri Adolphs, Arnór Smára og Tómas Þór 29.04.2021

Mótið er handan við hornið og Vængjum Þöndum tók á loft í Toggastofu með þá Andra Adolphson og Arnór Smárason enda er fyrsti leikurinn gegn ÍA á föstudag. Báðir þekkja vel til á Skaganum. Andri flutti ungur að árum upp á Skipaskaga og Arnór er uppalinn þar á bæ. Andri er að koma til baka eftir erfið meiðsli og Arnór er að verða klappaður og klár eftir að hafa verið lengi frá. Þeir fóru aðeins yfir...

Höll Minningana II - Valur-Fram 1998 29.03.2021

Vængirnir fljúga afram þótt Covid hafi sett allt annað i stopp. Höll minninga snýr aftur og nú er komið að því að rifja upp einn eftirminnilegasta titil okkar i handboltanum - bikarmeistaratitilinn 1998. Við fengum tvo af okkar dáðustu sonum Óskar Bjarna og Theódór Valsson til að rifja upp þennan magnaða leik og gullaldarárin í handboltanum á þessu tíma.

Listen to the Valur - Hljóðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.