Knattspyrnufélagið Valur - Podcast
Valur - Hljóðvarp
Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: soundcloud.com
Author
Knattspyrnufélagið Valur - Podcast
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 28, 2024
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
St 28.10.2024 36:04
St by Knattspyrnufélagið Valur - Podcast
Þorsteinn Leó kortlagður og takk Börkur! 17.10.2024 34:08
Vængjum Þöndum í uppgjaðarham með Jóa Skúla og Halla Dan. Besta deildin fer aftur af stað um helgina á "Hlutlausum" velli.
EVRÓPUDAGUR í Kaplakrika!! 15.10.2024 1:00:01
Agnar Smári og Jakob Martin hjá Vængjum Þöndum. Er hægt að hita upp EvrópuTvennu betur en með þeim? Alvarlegu nóturnar fyrst en keppni og spurningar í seinni hálfleik. Nýtt lag frumflutt seint í þættinum!
Vikan í Val: Evróputvennan í augnsýn og yfirlit yfirþjálfara 14.10.2024 53:16
Vika að baki og ný hafin. Vængjum Þöndum gerir upp liðna viku hjá Val með Fróða manninum og yfirþjálfara knattspyrnudeildarinnar, Halla Heimis.
Upphitun fyrir Evrópudeildina 08.10.2024 1:09:36
Vængjum Þöndum í upphitun fyrir Evrópudeildina í handbolta. Franzarinn og sá Fróði fóru yfir helstu liðin sem Valur og FH mæta, hringdu til Makedóníu og leynigestur frá óþekktu landi.
Áhorfendamet í sögu kvennaboltans og Evrópa að byrja í handboltanum 07.10.2024 37:37
Vængjum þöndum á mánudegi. Franzarinn, Halli Dan og Viktor Unnar fara yfir Vikuna í Val. Áhorfendamet í sögu kvennaboltans á Íslandi, Evrópa í handboltanum, 2 góðir í röð á strákunum í Bestu en bara 1 stig og Bónusdeildin er byrjuð! VÁ mikið
Úrslitaleikir framundan og ákall til Valsara! 19.09.2024 43:53
Franzarinn í hinu virta Gústa loungi með Arnari Sveini, Benna Bó og Öddu Baldurs. Fótboltinn ræddur, uppgjör á deildarkeppninni og úrslitaleikir framundan.
Fallbyssu þáttur með Evrópu, Olís og Sjónvarpi 12.09.2024 48:02
Franzarinn og sá fróði fá góðan gest upp í Gústa Loungið
Góða kvöldið Holland, Vængjum á farands fæti: SE07 - EP06 03.09.2024 23:39
Vængjum þöndum í Hollandi með meistaraflokki kvenna í knattspyrnunni í Champions League fýling. Franzarinn fær Öddu og Gísla til sín í kvöldchatt.
Valsmenn negldir niður og Bjöggi æfir með derhúfu - SE07/EP05 30.08.2024 20:40
Jói Skúli og Halli Dan kíkja á Franzarann upp í Lenovo-stúku, orð eru óþarfi.
Upphitun fyrir handboltan - Gaupi og Baldvin Fróði, SE07 - EP04 26.08.2024 54:13
Gaupi og Baldvin Fróði kíkja á Daníel Franz og hita vel upp fyrir handbolta tímabilið hjá Val. Evrópukeppni comming up, Meistarar meistaranna og margt fleira í máli og tali.
Bikarmeistarar og Champions League, SE07 - EP03 23.08.2024 17:51
Daníel Franz fær Öddu Baldur, Hallgrím Heimisson og Lillý Rut í heimsókn og ræðum um bikarleikinn og undankeppni Champions League.
Óskar Bjarni í hetjuviðtali um Evrópudrauma Valsara, SE07 - EP02 21.08.2024 35:29
Daníel Franz og Benni Bó fá Evrópumeistarann Óskar Bjarna í heimsókn og kryfja Evrópudrauminn okkar í smáeindir. Þetta var sko enginn venjulegur draumur.
SE07 - EP01 Úrslit Mjólkurbikars kvenna og Tufa tekinn við 14.08.2024 26:06
Benni, Danni og Jói í Lenovo Stúkunni Úrslit Mjólkurbikarsins, Arnar Rekinn og Tufa inn, stórleikur gegn blikum karlamegin.
SE06 - EP02 08.05.2024 31:45
Stutt og skorinort kvölddropp. Gósentíð í félaginu. Þvílíkt og annað eins. Stelpurnar okkar að fara í úrslitaeinvígið við Hauka á morgun, strákarnir unnu Njarðvík í körfunni í gær og leiða nú einvígið. Í fótboltanum kemur KA í heimsókn á afmælisdaginn á laugardag og stelpurnar voru suður með sjó í kvöld. Svo er það Afturelding í handboltanum og handan við hornið er úrslitaeinvígi um Evrópubikarinn...
SE06 - EP01 - Björgvin Páll og Tommi Steindórs 10.04.2024 49:47
Þá rúllum af stað með nýtt season af Vængjum þöndum enda ærinn ástæða til, þegar allt er að fara á fullt í félaginu okkar. Við tókum upp í hádeginu í spánýju Kók-stúdíói og hlökkum til að færa ykkur þáttinn reglulega næstu misseri og allskyns skemmtilegt framundan. Það stendur til að stækka teymið á bak við Vængjum þöndum sem mun skila sér í enn betri gæðum og fleiri þáttum. Við fórum að sjálfsögð...
SE05 - EP09 - Óskar Bjarni og Haukur Páll 01.12.2023 36:58
Vængirnir hófu sig til flugs á ný og við tókum lauflétta yfirferð yfir það helsta sem hefur verið að gerast í okkar ástkæra félagi og þeir Haukur Páll og Óskar Bjarni á línunni. Gerist varla betra. Óskar talaði um stemninguna í Val þessa dagana en hann einbeitir sér nú fyrst og fremst að meistaraflokki karla meðan einn af okkar dáðustu sonum Anton Rúnarsson, fer fyrir yngri flokka starfinu. Það st...
SE5 - EP09 - Sá besti í sumar og Patrick á línunni 11.10.2023 44:33
Í tilefni af lokum tímabilsins hjá karlaliðinu í fótbolta var blásið til uppgjörsþáttar í Vængjum þöndum. Við fengum góðan gest til að fara yfir sumarið. Jóhann Skúli kom einbeittur til leiks beint frá borg Englanna, Los Angeles. Við fórum aðeins yfir leik stelpnanna í í meistaradeildinni í gær áður en tekið var til við viðurkenningar. Hringborðið valdi besta leikmann sumarsins að sínu mati og sá...
SE5 - EP08 - Gústi Jó og Finnur Freyr 27.09.2023 38:23
Stúdíó Borgó tók vel a móti löskuðum Vængjum en Jóhann Alfreð komst ekki vegna anna við upptaka a auglýsingu. En Benni og Breki settust niður og heyrðu hljóðið i okkar dásamlegu þjálfurum, Gústa Jóh og Finn Frey. Ágúst er að fara etja kappi við rúmenska ofurliðið Dunarea en stúlkurnar okkar stoðu vel i hárinu a stjörnupryddu liði. Finnur Frey var svo með sitt lið i generalprufu i leiknum meistarar...
SE5 - EP07 - Fanndís, Addi Grétars og Björgvin Páll 13.09.2023 47:37
Þvílíkur dagur fyrir þetta dropp! Við hófum okkur til flugs í hádeginu enda nóg um að vera í félaginu nú þegar handboltinn er kominn á fulla ferð. Við hreinlega lágum í símanum í tæpan klukkutíma. Slógum meðal annars á þráðinn til Fanndísar Friðriksdóttur og spurðum hana út í ferðalag stelpnanna til Albaníu, leikina þar og dráttinn á föstudag sem er framundan í Meistaradeild kvenna. Við ræddum lík...
SE5 - EP06 - Elísa Viðars - Þáttur frá 30. ágúst 13.09.2023 42:13
Eftir sumarleyfi, tæknivesen og golfbakteríu mættum við vængstífðir og uppveðraðir á fjalir Borgarholtsskóla eða President Borgó eins og hann hefur verið kallaður. Nýtt stúdíó og ný hljóðmynd kynnt til leiks! Og það var heldur betur margt að ræða! Meðal annars var hringt í Elísu Viðars en stelpurnar okkar i fótboltanum eru að fara til Albaniu a mánudag i Evrópukeppnina og þá heyrðum i Valsara viku...
SE5 - EP05 - Allt í gangi, afmælisdagur og Birkir Már 11.05.2023 39:51
Afmæli félagsins okkar í dag og það eru margar gjafirnar sem má gleðjast yfir þessa dagana. Af því tilefni fengum við einn okkar dáðasta son í spjall, Birkir Már settist i Toggastofu til að fara yfir hlutina og það var af nógu af taka. Maí er kannski okkar skemmtilegasti mánuður þar sem barist er á nánast öllum vígstöðvum og Birkir og fjölskyldan daglegir gestir í Valsheimilinu. Birkir átti stórle...
SE5 - EP05 - Fyrsti leikur í bestu og úrslitakeppnirnar innanhúss 12.04.2023 27:16
Arnór Ben, einn harðasti stuðningsmaður Vals settist niður með Vængjunum að loknum leik Vals og Stjörnunnar í Origo í úrslitakeppninni í körfu karla. Við höfðum nauman tíma áður en húsinu var lokað en ræddum stórsýningu Kára Jónssonar í leiknum, stöðuna í einvíginu við Stjörnuna og Hauka kvennamegin í körfunni og mögulegan þríhöfða hjá okkur Völsurum á sunnudaginn næstkomandi þegar Valur spilar me...
SE5 - EP04 - Farið yfir sviðið og Arnar Grétars í spjalli 20.03.2023 38:31
Við settumst niður í Toggastofu í dag og reyndum að fara yfir allt það helsta sem snýr að okkar ástkæra félagi þessa dagana og þar er að nógu af taka! Líkt og flestir hafa áttað sig á þá er marsmánuður senn á enda sem þýðir yfirvinna á Valsara og útsjónarsemi með dagatalið. Við fórum aðeins yfir bikarúrslit kvenna í handbolta nú um helgina, undanúrslitin í Lengjubikarnum, og stöðuna hjá meistarflo...
SE5 - EP03 - Hitað upp fyrir leikinn gegn PAUC - Fúsi, Gaupi og Dagur Sig 20.02.2023 25:47
Hér er dottinn inn sérstakur upphitunarþáttur fyrir stórleikinn í Evrópudeildinni í handknattleik annað kvöld þegar Valsmenn mæta franska liðinu Pauc. Af þessu tilefni var farið á sérstakan Evrópurúnt í hlaðvarpinu Vængjum þöndum. Við byrjuðum í Skipholtinu hjá Sigfúsi Sigurðssyni en hann afgreiddi af miklum móð fiskibollur í tilefni dagsins. Fúsi hefur að sjálfsögðu ekki látið sig vanta á leikina...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.