Sigurjón Sturluson
UltraForm Hlaðvarp
UltraForm er hlaðvarp sem snýr fyrst og fremst að heilsu og hollu líferni. UltraForm er einnig líkamsræktarstöð í Grafarholti í eigu þáttastjórnanda Sigurjóns Ernis og fjölskyldu. Markmið með þáttunum er að auka skilning og þekkingu hlustenda að hinum ýmsu heilsutengdu málefnum og reyna í sameiningu að komast að því hvað Ultraform er í raun og veru er.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
041 - Snorri Björnsson - Einn af okkar bestu ultrahlaupurum og ótrúlegar bætingar á stuttum tíma 12.08.2023 2:14:09
Snorri Björnsson er í dag heldur betur búin að stimpla sig inní hlaupaheiminn hér á Íslandi með ótrúlegum árangri í hlaupum núna undanfarið og hefur átt ótrúleg góð hlaup núna undanfarið með þvílíkri neglu í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í Austurríki. Sigurjón og Snorri fara yfir keppnir, æfingar og svo margt fleira. Snorri er einnig ansi góður á myndavélina og vinnur við það í dag samhlið...
040 - Einar Sigurjónsson - Hreyfing, þríþraut, hita,- og kuldaþjálfun og meira til 04.08.2023 2:37:45
Einar Sigurjónsson er sannkallaður hafsjór af fróðleik, Sigurjón og Einar fara yfir víðan völl í spjallinu og taka fyrir mörg heilsutengd málefni og kafa aðeins í fræðina bak við virkni líkamans. Einar fer júpt í missmunandi æfingarzone (þjálfunarstig), mjólkursýruþröskuld, langa og stutta vöðvaþræði og margt, margt fleira. Einar er giftur og á tvö börn, hann útskrifaðist sem sjúkraþjálfari árið 2...
039 - Reynslusögur frá Karl Hrannari og Guðrúnu Ágústu 29.07.2023 1:19:11
Sigurjón spjallar við Karl Hrannar sem æfir í UltraForm á Akranesi og hefur losnað við langvinna magaverki/truflanir sem ágerðust hægt og rólega frá 2013. Eftir að hafa gengið milli lækna og annara sérfræðinga prófaði hann Ketó sem gerði heilmikið og loks Carnivore sem leysti allt heila vandamálið og hjálpaði Karli að bæta á sig 10 kg af vöðvum á aðeins 11 mánuðum. Guðrún Ágústa var lengi leytandi...
038 - Konur og Carnivore - Reynslusaga frá Mjöll Barkar 23.07.2023 53:34
Í þessum þætti fer Sigurjón aðeins yfir eigin reynslu á Carnivore, les upp reynslusögu frá stúlku í hlaupafjaþjálfun UltraForm sem tók 10 daga á carnivore og loks deilir Mjöll Barkar Barkardóttir sinni lífsstílssögu undanfarin ár og ýmsum tilraunum í sinni næringu og lífsstíl. Mjöll er í þjálfarateymi UltraForm á Akranesi og er UltraForm ótrúlega þakklát fyrir að hafa hana í þjálfarateyminu. S...
037 - Reynslusögur frá Sigga Bjössa og Sigmundi Einari 16.07.2023 1:28:59
Það er alltaf gaman að heyra góðar reynslusögur frá fólki sem er að bæta sinn lífsstíl og gera breytingar í átt að bætri heilsu. Í þætti 37 spjallar Sigurjón við Sigga Bjössa og Sigmund Einar um ansi vígalega heilsufarsbreytingu sem erfitt er að leika eftir. Þáttastjórnandi Sigurjón Ernir hefur sjálfur nokkrum sinnum tekið 2-3 vikur á samskonar mataræði og strákarnir tækluðu og var þeim innan hand...
036 - Hafsteinn Ægir Geirsson - Hjólreiðar, keppnir, næring, endurheimt og margt fleira 10.07.2023 1:42:14
Hafsteinn Ægir Geirsson er í dag einn fremsti hjólari Íslands og hefur margoft unnið fjölmargar hjólakeppnir hér á landi. Hafsteinn hefur breitt svolítið áherslum á sínum líffstíll gegnum árin og er í dag að eigin sögn í sínu besta formi bæði á hjólinu jafnt sem í sinni daglegu rútínu. Sigurjón og Hafsteinn fara um víðan völl og ræða margt tengt hjólasportinu jafnt sem mikilvæga þætti sem gott er...
035 - Geir Ómarsson - Þríþraut, næring, æfingar og svo margt fleira 02.07.2023 1:56:15
Geir Ómarsson er ein af bestu þríþrautaköppum hér á landi og á í dag hraðasta tíma íslendings í þríþraut sem hann tók í Barcelona 2017, en þar kláraði hann 3.9 km sund - 180 km hjól og 42,2 km hlaup á 8:34:39 klst. Hann kláraði sundið á 58:31 min - hjólið á 4:38:42 klst og hjóp svo maraþon á 2:57:11 klst. Sigurjón og Geir fara yfir víðan völl og ræða æfingar, næringu og margt fleira í hlaðvarpsþæt...
034 - Þorbjörg Hafsteinsdóttir - Heilsufrumkvöðull, hjúkrunarfræðingur, næringarþerapisti, lífssstílsþjálfi, rithöfundur og jógakennari. 24.06.2023 1:30:36
Þorbjörg er frumkvöðull, heilsu- og næringarþerapisti, lífsstílsþjálfi, jógakennari, rithöfundur og móðir. Þorbjörg Hafsteinsdóttir er stofnandi The Health Revolution í Danmörku og framkvæmdarstjóri vörumerkisins Thorbjörg. Hún skrifaði sínu fyrstu bók 10 árum yngri á 10 vikum 2008, sem er metsölubók og hefur selst eins og heit (heilsu) lumma á Íslandi, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og...
033 - Þorleifur Þorleifsson - Bakgarðshlaup og allt sem þeim fylgir 17.06.2023 1:48:44
Þorleifur Þorleifsson hefur heldur betur stimplað sig inn í ultrahlaupin með glæsilegum árangri í bakgarðshlaupum hér á landi undanfarin ár og núna síðast í stórri bakgarðskeppni í Þýskalandi sem heitir Race of the champions Backyard masters . Í þeirri keppni gerði hann sér lítið fyrir og rúllaði 50 bakgarðshringi (6,7 km hringurinn) sem telja 335 km og setti þar nýtt íslandsmet !!! Við Þorleifur...
032 - Sölvi Tryggva - Á eigin skinni og 11.06.2023 1:23:14
Sölvi er vel þekktur hér á landi eftir mörg ár í sjónvarpi og fréttamennsku og núna undanfarið fyrir hið geisivinsæla podcast Sölva sem heitir podcast með Sölva Tryggva. Fyrir áratug hrundi heilsa sjónvarpsmannsins Sölva Tryggvasonar bæði líkamlega og andlega. Eftir þrautagöngu milli lækna og annarra sérfræðinga, endalausar rannsóknir og lyfjameðferðir án þess að hann fengi bót meina sinna ákvað h...
031 - Pétur Ívarsson, Maraþon hlaup og hlaupahópurin HHHC 03.06.2023 1:31:58
Pétur Ívarsson er vel þekktur í hlaupaheiminum hjá okkur og hefur hlaupið allnokkur maraþon hlaup, það er óhætt að segja að samhliða vinnu í Boss búðinni er helsta áhugamálið maraþonhlaup og allt sem kemur að undirbúningi fyrir slíkt hlaup. Pétur heldur utan um hlaupahópinn HHHC en sá hlaupahópur er opin öllum sem ráða við lengri æfingar á hreppshraða (5:00 pace) eða Ríkishraða (4:45 pace). Sigurj...
030 - Hildur Kristín Sveinsdóttir: Sjúkráþjálfari og eigandi Sjúkrasport 28.05.2023 1:44:26
Hildur Kristín hefur ekki einungis verið stoð og stytta fyrir Sigurjón í sinni heilsuvegferð heldur á hún einnig mikið í þeirra ákvörðun Sigurjóns að opna UltraForm eftir ófá spjöll á bekknum hjá Hildi í Sjúkrasport. Hildur er með gífurlega mikla þekkingu virkni líkamans og hvernig á að halda honum bestum og fyrirbyggja álagstengd einkenni og meiðsli, jafnt sem koma tilbaka frá þeim. Eftir að Sigu...
029 - Dr. Erla Björnsdóttir - Betri svefn 21.05.2023 1:13:31
Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Erla lauk B.A prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2007 og kandídatsprófi frá Háskólanum í Árósum 2009. Erla lauk svo doktorsprófi í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands í janúar 2015. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla hefur sérhæft sig í hugrænni atferlism...
028 - Tryggvi Hjaltasson - Herinn, agi, fastan, trúin, langlífi og svo margt fleira 14.05.2023 1:54:42
Tryggvi Hjaltasson er ótrúlega áhugaverður einstaklingur og sannkallaður viskubrunnur þegar kemur að heilsutengdum málefnum. Fólk heyrði eflaust fyrst af Tryggva þegar grein birtist á fjölmiðlum um mannin sem ætlaði að verða 200 ára. Tryggvi varð í kjölfarið þekktur fyrir föstur þar sem hann tæklaði 11 daga vatnsföstu og bjó til facebook hópinn Ofurheilsa sem náði miklum vinsældum á stuttum tíma...
027 - Anna Lind Fells - Dýraafurðir, vegan og alhliða heilsa - Þáttur 2/2 08.05.2023 1:49:25
Anna Lind er Functional Medicine heilsuráðgjafi, lærð í hreyfivísindum, jóga, nuddi og fleiru. Hún rekur fyrirtækið Holistic ehf sem býður upp á heilsuráðgjöf, nudd, einkaþjálfun og netnámskeið. Sjá nánar á www.holistic.is Anna Lind hefur haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri. Og telur mikilvægt að skoða rót heilsunnar en ekki einungis bæla niður einkennin....
026 - Anna Lind Fells - Dýraafurðir, vegan og alhliða heilsa - Þáttur 1/2 01.05.2023 58:47
Anna Lind er Functional Medicine heilsuráðgjafi, lærð í hreyfivísindum, jóga, nuddi og fleiru. Hún rekur fyrirtækið Holistic ehf sem býður upp á heilsuráðgjöf, nudd, einkaþjálfun og netnámskeið. Sjá nánar á www.holistic.is Anna Lind hefur haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri. Og telur mikilvægt að skoða rót heilsunnar en ekki einungis bæla niður einkennin....
025 - Ágúst Kvaran - Utanvegahlaup og ýmsar ultra áskoranir 23.04.2023 1:14:45
Ágúst Kvaran hefur hlaupi lengur en flestir hér á landi og býr að mikilli þekkingu og reynslu í hlaupunum. Ágúst er í fullu fjöri 70 ára gamall og er enþá að keppa í krefjandi keppnishlaupum. Sigurjón og Ágúst fara yfir víðan völl allt frá fyrstu hlaupatúrum hjá Ágústi yfir í maraþon og Ultramaraþon á boð við UTMB, áfangahlaup í Sahara eyðimörkini og margt fleira. Facebook hjá Ágúst Kvaran https...
024 - Sigurjón og Símona - Fyrirtækjarekstur, Þolraun á sambandið eftir barn, mataræði og meira til 17.04.2023 1:26:26
Sigurjón Ernir og Símona ræða fyrirtækjarekstur eftir UltraForm, erfiða tíma í sambandi eftir barnsburð, þróun á mataræði og meira til. Hér deilum við okkar vegferð og lítum tilbaka og förum yfir daginn og veginn ---------------------------------------------- Instagram hjá Sigurjóni: https://www.instagram.com/sigurjonernir/ Instagram hjá Símonu: https://www.instagram.com/simonavarei/ UltraForm æfi...
023 - Ultraform hlaðvarp - Sigurjón og Símona = kynni, uppeldi, hlaup og UltraForm 10.04.2023 51:02
Sigurjón Ernir og Símona ræða hér æsku, uppeldi og þróun í hreyfingu. Þau fara yfir hlaup, styrktarþjálfun og hvernig UltraForm varð til gegnum hlaupafjarþjálfun hjá Sigurjóni sem er en í fullu fjöri. Sigurjón og Símona fara einnig yfir hópatíma UltraForm og hvernig fyrirkomulag er í tímum jafnt sem skokkhóp og hlaupafjarþjálfun. ---------------------------------------------- Instagram hjá Sigurjó...
022 - Andri Iceland - Kuldi, öndun og líkamleg jafnt sem andleg heilsa 01.04.2023 2:14:22
Andri Iceland er hefur heldur betur áhugaverða sögu að segja. Andri lenti í slæmu slysi 13 ára gamall sem varð til þess að Andri var stöðugt kvalin í mörg ár og fékk lítið af svörum þrátt fyrir fjölda margar rannsóknir. Andri leytaði ýmsa leiða án árangurs þar til hann fór að vinna með hreyfiflæði, kulda og öndun. Sigurjón og Andri fara yfir lífið eftir slysið og hvernig kuldinn og öndun breyttu l...
021 - Númi Snær Katrínarsson = Hreyfing, næring, andleg heilsa og svo margt fleira 25.03.2023 1:31:10
Númi Snær Katrínarsson var hér áður einn af okkar öflugustu sundmönnum og færði sig svo úr sundinu yfir í Crossfit og er í dag komin úr keppnisgeiranum í crossfit og er farinn að sérhæfa sig í að aðstoða annað fólk við að hámarka sína heilsu andlega jafnt sem líkamlega. Númi hefur á sinni vegferð lært ótrúlega margt sem viðkemur heilsu og fara þeir Sigurjón yfir ferilinn í sportinu jafnt sem vinn...
020 - Kristjana Hildur Gunnarsdóttir - Hyrox og hinar ýmsu þrekkeppnir og áskoranir 18.03.2023 1:08:28
Kristjana Hildur Gunnarsdóttir er íþróttafræðingur, kennar, þjálfari og mikil keppnismanneskja. Kristjana hefur náð gríðarlega góðum árangri í þrekkeppnum sem reyna á samhæfingu, úthald, styrk og snerpu. Kristjana á í dag einn besta árangur konu í sínum aldursflokk í þrekkeppni sem kallast Hyrox. Sigurjón og Kristjana fara yfir allt frá æsku og uppeldi yfir í þrekmótarröðina sem var vinsæl hér á Í...
019 - Vala Mörk - Ketilbjölluþjálfari og heimsókn til langlífustu þjóða heims 14.03.2023 1:05:17
Vala Mörk er í dag einn reynslumesti kettilbjölluþjálfari Íslands. Vala Fór frá því að kenna kettilbjöllutíma í Mjölni yfir í að opna eigin æfingar,- og þjálfunaraðstöðu heimafyrir í Mosó með manninum sínum Guðjóni Svanssyni, en stöðin þeirra hjóna heitir í dag Kettlebells Iceland. Vala fór einnig með hluta af sinni fjölskyldu í 5 mánaða ferðalag um langlífustu ríki/þjóðir heims og kannaði hvað væ...
018 - Evert Víglundsson - CrossFit Reykjavík, hreyfing, næring, heilsa, svefn og fasta 04.03.2023 1:42:45
Evert Víglunds er sannkallaður frumkvöðull í heilsurækt hér á Íslandi og er mikil fyrirmynd þegar kemur að heilsu og hreysti. Evert var var með þeim fyrstu (ásamt Leifi Geir) að koma CrossFit til Íslands og byrja að þjálfa það jafnt sem æfa sjálfur. Þau Evert, Hrönn, Ívar og Annie Mist reka í dag CrossFit Reykjavík. Evert hefur komið ansi víða við í sinni heilsuvegferð og saman fara Sigurjón og E...
017 - Indíana Nanna Jóhannsdóttir - Gomove Iceland 26.02.2023 1:15:19
Indíana Nanna Jóhannsdóttir er þjálfari, móðir og stofnandi GoMove Iceland. Hún leggur áherslu á ánægjulegar og raunhæfar leiðir, bæði í hreyfingu og mataræði, en sinni þekkingu hefur hún miðlað síðustu ár í þjálfun og á netnámskeiðum. Indíana hefur farið um víðan völl í sinni heilsuvegferð og í hlaðvarpinu fara Sigurjón og Indíana yfir allt það helsta. Indíana gerði sér svo lítið fyrir og opnaði...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.