Sigurjón Sturluson

UltraForm Hlaðvarp

Health IS ↓ 100 episodes

UltraForm er hlaðvarp sem snýr fyrst og fremst að heilsu og hollu líferni. UltraForm er einnig líkamsræktarstöð í Grafarholti í eigu þáttastjórnanda Sigurjóns Ernis og fjölskyldu. Markmið með þáttunum er að auka skilning og þekkingu hlustenda að hinum ýmsu heilsutengdu málefnum og reyna í sameiningu að komast að því hvað Ultraform er í raun og veru er.

Author

Sigurjón Sturluson

Category

Health

Podcast website

ultraform.is

Latest episode

Apr 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

091 - Ofurparið Rakel María og Guðmundur Lúther - Ultrahlaup, heimsreisur, skotbardagar og margt fleira !! 13.04.2025

Rakel og Gummi eru seint að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur !! Milli þess sem þau sigrast á hverju Ultrahlaupinu á fætur öðru þá ferðast þau um heiminn á framandi staði og skoða mismunandi menningarheima út um allan heim. Sigurjón fer yfir vinnu, æfingar, hlaupin, ferðalögin og meira til með þeim Rakeli og Gumma. Þessir ultra hlauparar kunna bæði að þjást og njóta sem eru jú tveir mjög mi...

090 - Blue Trail Tenerife - Fyrir, yfir og eftir hlaup 30.03.2025

í Hlaðvarpsþætti 90 komum við til ykkar frá Tenerife þar sem fjölmargir Íslendingar kepptu í fjallahlaupinu Bluetrail þar sem keppt er í 24 km, 47 km, 73 km og 110 km með mismikilli hækkun. Í hlaðvarpinu spjölluðum við við keppendur fyrir hlaupið, Sigurjón fór yfir stöðuna á hlaupurunum yfir hlaupið sjálft (á/gegnum drykkjarstöðvum) og svo heyrðum við loks í keppendum eftir áskorunina og spurðum þ...

089 - Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir - Ein hraustasta kona landsins !!! 20.03.2025

Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir og Sigurjón kynnast í Boot Camp og keppa svo í einstaklings, para og líðakeppni í þrekmótaröðinni í allnokkur ár. Arnfríður gerði sér lítið fyrir og sigraði þrekmótaröðina í kvenna flokki 2015 og hlaut þar titilinn hraustasta kona landsins. Líkt og Sigurjón þá kemur Arnfríður Gígja úr sveitinni þar sem lífið snérist mikið um hreyfingu samhliða því að sinna helstu stö...

088 - Martha Lind - Best í sportinu, aukakílóin, vinamissir, mikil veikindi og UltraForm 26.02.2025

 Martha Lind var alltaf öflug í hreyfinu á yngri árum og í raun svo öflug að hún æfði fullmargar íþróttir samtímis þar til hún var vinsamlegast beðin um að velja sér færri greinar til að æfa :P  Líkt og gengur og gerist þá dróg hægt og rólega úr hreyfingu þegar Martha færðist yfir á fullorðinsárin og fyrir rest var lítil hreyfing samhliða ekki svo góðu mataræði og aukakílóin fóru að læðast á hana...

087 - Jóhanna = Ofurmóðirin sem var allt í öllu þar til líkaminn sagði stopp !!! 07.02.2025

Sigurjón og Jóhanna kynnast í íþróttafræði á Laugarvatni og deila saman miklum áhuga á hreyfingu og heilsu. Líkt og gengur og gerist þá skildu leiðir eftir námið og lífið tók við hjá bæði Sigurjóni og Jóhönnu. Jóhanna Marín var hinn sannkallaða ofurmóðir sem var með allt á hreinu, alla bolta á lofti og sló hvergi slöku við. Hún var í námi, í vinnu, hreyfði sig alla daga, borðaði öllu jafna hollt o...

086 - Heilsu Erla - Gefumst ekki upp þó á móti blási 26.01.2025

Erlu Guðmundsdóttur þarf vart að kynna fyrir mörgum þar sem hún hefur hjálpað fjölmörgum að bæta heilsu sína með hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum, með heilsumarkþjálfun í Sjúkrasport, og heilsumolum á Instagram, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Erla leitar stöðugt leiða til þess að bæta eigin heilsu og heilsurútínu og eftir smá burnout tengt mörgum þáttum lífsins tók hún heilsuna ennþá fastari tökum e...

085 - Melkorka Kvaran - Íþróttafræðingur, næringafræðingur og hjúkrunarfræðingur sem fræðir okkur um heilsu 12.01.2025

Melkorka Árný Kvaran hefur unnið við hreyfingu og lífstíl meira og minna allt sitt líf og klárað nám í íþróttafræði, næringafræði og hjúkrunarfræði og hefur því mikla þekkingu á mörgu sem viðkemur heilsu. Sigurjón og Melkorka fara um víðan völl og ræða hennar nám, vinnu, hreyfingu og alveg yfir í hryðjuverkaáras í maraþonhlaupi sem breytti hennar fókus á hreyfingu og yfir í starf hennar í dag sem...

084 - Helgi og Hlynur - Úr erfiðum aðstæðum/stað yfir í frábært stand !!! 01.01.2025

Helgi Halldórsson og Hlynur Þór Þorleifsson hafa báðir áhugaverða sögur að segja frá sinni heilusvegferð. Þeir voru báðir komnir á frekar slæman stað sem rekja má til margra þátta en það er óhætt að segja að þeir sneru alveg við blaðinu og komu sér í ótrúlega gott stand líkamlega jafnt sem andlega á stuttum tíma með réttum áherslum. Þeir eru svo sannarlega komnir í mikið UltraForm í dag og sigrast...

083 - Fyrirtækjarekstur, álagið, stressið, hindranir, frelsið og allt ferðalag UltraForm til þessa 20.12.2024

Sigurjón og Símona ræða hér fyrirtækjarekstur UltraForm alveg frá því að Sigurjón byrjaði með hópaþjálun í bílskúrnum yfir í hóptímastöð sem varð til þessa að Sigurjón og Símona fóru fljótt í fulla vinnu fyrir UltraForm, þau ræða allt sem getur fylgt því að reka fyrirtæki, stress, hindranir, stór verkefni, stóru og glitlu sigranir, skipulagið, fjölskyldulífið og margt fleira. Hér deilum við einnig...

082 - Garpur Ingasons - Fjallaklifur, fjallahlaup og bak við tjöldin hjá okkar UltraFólki 09.12.2024

Garp þarf ekki mikið að kynna fyrir þeim sem fylgjast með flestum Ultra áskorunum hér á landi, ef hann er ekki bak við myndavélina eða að taka viðtöl við fólk þá er hann sjálfur mættur á startlínuna. Garpur er einnig mikill fjallagarpur þegar kemur að því að klífa hinn ótrúlegustu fjöll og tinda og Sigurjón og Garpur fara yfir víðan völl í skemmtilegu spjalli. -------------------------------------...

081 - Siggi Deluxe - Deluxe Iceland, fyrirtækjarekstur og heilsa 24.11.2024

Sigurður Sindri Magnússon hefur svo sannarlega látið draum sinn rætast í fyrirtækjarekstri og með mikilli vinnu hefur hann stofnað Deluxe Iceland  þar sem hann og hans fyrirtæki þjónustar kröfuharða viðskiptavini sem vilja upplifa það besta á Íslandi.   Sigurður er einnig með fókus á heilsuna og passar vel uppá að huga að líkamlegri jafnt sem andlegri heilsu samhliða sínu fyrirtækjarekstri og gerð...

080 - Daði Erlingsson - Meðal bestu í enduro/þolakstri, lendir í slysi á hjólinu sem breytti öllu !!! 08.11.2024

Daði hefur undanfarin ár verið meðal bestu keppenda í enduro/þolakstri hér á landi en lenti í mjög slæmu slysi á hjólinu ekki alls fyrir löngu og hefur verið að ná sér tilbaka eftir það atvik. Daði deilir með okkur góðum minningum úr æsku, uppeldi, skólagöngu, hjólasportinu, námi í Grikklandi og loks slysinu og bataferlinu eftir slys sem er búið að vera ótrúlega krefjandi verkefni. Sigurjón og Dað...

079 - Sveinn Atli - Boot Camp, Spartan Race, ólympískar lyftingar, hlaup og meira til 01.11.2024

Sveinn Atli og Sigurjón fara langt aftur og hafa tekist á við hinar ýmsu áskoranir saman. Sveinn Atli hefur þjálfað Boot Camp í mörg ár, æft og þjálfað ólympískar lyftingar, tekið þátt í hinum ýmsu Spartan keppnum og loks tekist á við hin ýmsu ultrahlaup. Sveinn var að skipta um starfsvettvang eftir mörg ár í Boot Camp í Sporthúsinu og þjálfar núna í Elite þjálfun samhliða hlaupafjarþjálfuninni si...

078 - Tímamót hjá UltraForm og farið yfir komandi keppnir og hlaupasumarið 18.10.2024

Sigurjón og Símona fara yfir flutninga UltraForm í Gylfaflöt 10, Grafarvog þar sem planið er að hafa mjög flotta stöð með stærri og flottari sal, saunu, köldum pottum og fleiru. Þau skutuhjúin fara einnig yfir komandi hlaup hjá UltraForm sem eru 5 og 10 km hlaup á braut, Akrafjall Ultra, Hólmsheiðarhlaupið og Rauðavatn Ultra. Þau fara svo að lokum yfir hlaupasumarið jafnt sem þeirra heilsurútínu t...

077 - Vilborg Arna - Ótrúlegar áskoranir út um allan heim 29.09.2024

Vilborg Arna Gissurardóttir er sennilega ein mesta Ultra manneskja sem UltraForm hefur fengið í hlaðvarpið. Flestir þekkja til Vilborgar fyrir ótrúlegar áskoranir og þrekraunir á borð við Suðurpóllsgönguna (The South Poll), Tindana Sjö (Seven Summits) og margar aðrar ótrúlegar áskoranir. Vilborg býr núna í Sloveníu en þar náði Sigurjón henni einmitt í spjall þar sem hún var nýbúin að klára 50 km h...

076 - Freyr Hákonarson - Blackout !!! 19.09.2024

Freyr Hákonarson og Sigurjón hafa brallað margt saman þegar kemur að hinum ýmsu áskorunum, þrekmótaröðin, Heimsmeistaramót í Spartan keppni og margt fleira. Þeir félagar ræða aga, æfingar, næringu, lífið og tilveruna. Freyr byrjaði fyrir stuttu með nýja tíma í Reebok Fitness sem kallast Blackout og hafa hlotið áhuga margra en þar er ekkert gefið eftir og agi og harka haft í fyrrirúmi. ------------...

075 - Egill Trausti Ómarsson - Vöðvaðasti ultrahlaupari landsins ? 06.09.2024

Egill Trausti er seint þekktur fyrir að velja sér minnstu áskoranirnar í lífinu og tekur allt sem hann gerir alla leið. Egill kemur úr fótboltanum, fór yfir í frjálsar og svo yfir í Crossfit eftir stutt stopp í frjálsum. Hann tók svo góða U-beygju og er í dag komin í kaf í hlaupin samhliða styrktarþjálfun og hefur keppt ansi mikið þrátt fyrir aðeins tæplega tvö ár í hlaupunum. Egill og Sigurjón fa...

074 - Ultra konurnar Hafdís Guðrún og Elísa Kristinsdóttir 25.08.2024

Hafdís og Elísa eru miklir æfingafélagar og eru seint þekktar fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þær hafa tæklað ótrúlegar æfingar jafnt sem áskoranir saman í sumar og þar má nefna 11 Esjuferðir sem var styrktarverkefni hjá þeim vinkonum og nokkura daga æfingaferð erlendis þar sem þær hlupu daglega krefjandi leiðir með mikilli hækkun og báru allan búnað á bakinu. Ekki nóg með að þæ...

073 - Jákastið: Sigurjón og Kristján spjalla um ýmis heilsutengd málefni 18.08.2024

Sigurjón kíkti í spjall til Kristjáns sem heldur úti Jákastið hlaðvarpið og þeir félagar áttu gott spjall þar sem Sigurjón fer yfir fjölmarga þætti sem snúa að hreyfingu, mataræði, endurheimt, föstu, blóðsykri og fleiri þáttum sem snúa að heilsu. Nú þegar sumarið er langt komið og margir fara í sína hefðbundnu rútínu getur verið gott að huga að atriðum sem geta ýtt undir bætta heilsu. ------------...

072 - Lukka Pálsdóttir - Tilraunir í mataræði til bættrar heilsu og heilsa heilt yfir 01.08.2024

Lukka kom í frábært spjall í hlaðvarpsþætti 11 í UltraForm hlaðvarpinu (legg til að fólk hlusti á þann þátt fyrst) og snýr núna aftur eftir ansi vígalega tilraun í mataræði sem bæði dróst mikið á langinn og hafði ansi mikil áhrif á Líf Lukku bæði andlega jafnt sem líkamlega.   Sigurjón og Lukka kafa djúpt í mataræðið og áhrif þess á andlega jafnt sem líkamlega þætti hjá Lukku og snerta einnig á ál...

071 - Arnar Sigurðsson - Ferðast um heiminn og skorað á sjálfan sig 19.07.2024

Arnar er ekki þekktur fyrir að velja einföldustu leiðina í lífinu og hefur gaman af krefjandi áskorunum og hefur sem dæmi tæklað: 7x7 róður, Concept Iron Man, farið í gegnum eina erfiðustu Spartan Race Ultra keppni sem fyrirfinnst og margt fleira. Arnar hefur búið með sinni fjölskyldu víða í heiminum og við förum yfir mismunandi menningarheima og upplifun Arnars á þeim. Arnar býr í Belgíu í dag á...

070 - Anna Berglind Pálmadóttir - Ótrúleg endurkoma eftir slæmt slys á Esjuni 05.07.2024

Anna Berglind Pálmadóttir hefur lengi verið í fremri röð hlaupara hér á landi og sínt sig og sannað á brautinni jafnt sem í utanvegahlaupum. Sigurjón og Anna fara um víðan völl í spjallinu og fara yfir hennar íþróttaferil sem byrjaði í þolfimi í ræktinni, færðist yfir í Crossfit og keppti svo í 5 km hlaupi sér til gamans þar sem hún rúllaði undir 20 min líkt og ekkert væri sjálfsagðara. Anna lenti...

069 - Sólveig Kristín - Búlemía, þunglindi, sjálfsvígshugsanir, lipidimía - Bætt heilsa til sigurs 21.06.2024

Sólveig Kristín hefur heldur betur áhugaverða sögu að segja. Bulemía, þunglindi, sjálfsvíshugsanir, slæm meltingarvandamál og libidimía eru allt vandamál sem getur verið mjög erfitt bæði að greina, fá aðstoð við og hvað þá sigrast á. Með bættum lífstíl og mjög sterku hugarfari náði Sólveig að sigrast nánast alveg á sínum heilsufarskvillum og er komin á órtúlega góðan stað í dag. Sólveig segir sína...

068 - Heimsmeistaramótið í Hyrox og Hengill Ultra 2024 09.06.2024

Hlaðvarpsþáttur 68 er tekin upp í Frakklandi í þetta skiptið og það daginn eftir heimsmeistaramótið í HYROX 2024. Við ræddum við Íslenska keppendur á heimsmseistaramótinu Kristjönu sem hafnaði í 2 sæti í sínum aldursflokk (Kíkiði endilega á þátt 20 með henni), Jóhönnu Júlíu sem var 7 í sínum aldursflott og síðast en ekki síst Ástu og Árdísi sem urðu heimsmeistarar í paraflokk kvk 60-69 ára rúmum 4...

067 - Kristján Svanur - Reglulega út fyrir þægindaramann og þvílíkar bætingar í götuhlaupum 24.05.2024

Kristján Svanur verður seint þekktur fyrir að fara bara einföldustu leiðina í lífinu !!! Kristján er ófeimin við að prófa sig áfram og flutti ekki alls fyrir löngu til Barcelona með lítið sem ekkert langtímaplan en dass af jákvæðni og gott hugarfar. Kristján er búin að koma sér vel fyrir úti og var ekki lengi að finna sér góða stúlku og æfir þar hlaup af kappi, Hann hefur stórbætt sína tíma í hels...

Listen to the UltraForm Hlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.