Tveir kallar
Tveir kallar
Tveir kallar með podcast. tveirkallar.is @tveirkallar á Instagram
Author
Tveir kallar
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 22, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
50: Éttu skít 22.06.2026 1:39:29
Tveir kallar fagna tímamótum í sérstökum hátíðisþætti. Á boðstólum er bakkelsi úr bakaríinu (ekkert vegan) og gestirnir eru hinir íslensku meðalkarlmenn. Athyglissjúki introvertinn sér um skemmtiatriði og í sérstökum lið þarf Þorsteinn að þegja allan tímann (spoiler: það mistekst). Annar kallinn er síðan tekinn fyrir á sviðinu og að lokum velta kallarnir fyrir sér framtíð þáttarins. Svo vill annar...
49: Helvítis lúpínan 08.06.2026 1:18:35
Tveir kallar ganga um í grænni náttúrunni þar til hún hættir að vera græn og verður fjólublá, setja fyrrverandi kærustur (ekki) í minningakassann, ræða skólakerfið út frá kynjum og furða sig á blaðamanni. Svo reyna þeir að hlúa að þeirri litlu geðheilsu sem þeir eiga eftir.
48: Aftur til fortíðar 25.05.2026 1:06:37
Tveir kallar hverfa aftur til ársins 1995 (það er tveimur árum áður en prumpulagið kom út en samt býr ennþá skrítinn kall í Vesturbænum) og… æi, það skiptir engu máli því hinn kallinn er alltaf að rembast við að skrifa hérna þrælhnyttnar og gáskafullar lýsingar á þáttunum en svo kom í ljós að þið eruð bara ekkert að lesa þær. ;(
47: Kosið í borginni 11.05.2026 1:30:10
Tveir kallar detta í að tala um kosningabaráttuna í þætti sem átti að koma út eftir kosningar en ákveða á síðustu stundu að breyta til og flýta útgáfu, segja frá tengslum við samsærisnöttara og Sjálfstæðisflokkinn, hafa engan tíma fyrir hlustendur og finna á endanum gleðina í heimi hörmunga. E.S. Vegna framkvæmda í stúdíóinu er ekkert vidjó með þessum þætti og því engin mynd af tveimur köllum.
46: Skammarþríhyrningurinn 04.05.2026 1:20:29
Tveir kallar fara í leikhús, hringja í kerlingu og læra ekki nafnið á neinum sem þeir hitta. Þeir bjóða í matarboð en muna ekki alveg hvernig bróðir þeirra lítur út.
45: Þetta verður allt í lagi 20.04.2026 1:20:54
Skilaboð berast frá Hollandi og trufla tvo kalla við að rifja upp menntaskólaárin þegar annar þeirra var fótboltasjomli og hinn dauðarokkari. Þeir snúa bökum saman og reyna að róa fíl í postulínsbúð, fá hataða hópa til að hata minna og svara að lokum spurningu áður en hún berst.
44: Ótrúlega óheppnir karlar 06.04.2026 1:21:49
Nokkrir alveg ótrúlega óheppnir karlar fara saman í ferðalag, halda þriðja í páskum heilagan, gefa gjafir, fara í golf og hafa gaman en brjóta engin lög (svo sannað sé). Síðan fá þeir ofnæmi fyrir heiminum, stíga til hliðar og hefja störf við umönnun.
43: Núna má allt 23.03.2026 1:34:28
Tveir kallar eiga við ýmis heilsufarsvandamál að etja svo þeir fara í rannsóknir og tala um rannsóknir og láta stinga sig til blóðs. Í sjúkrarúmunum horfa þeir á heimildarmyndina Inside the manosphere og ræða hana. Sverrir Bergmann kemur ekki í heimsókn á sjúkrahúsið. Þeir hrósa hver öðrum enn einu sinni (er ekki komið nóg af þessari vitleysu?), drulla á sig og sýna af sér hvatvísi í hvívetna en h...
42: Margar pælingar 09.03.2026 1:13:40
Tveir kallar ropa án þess að segja afsakið, eru eitthvað pirraðir og reka hlaðvörp í umvörpum. Tveir kallar kalla kallakalla kallakalla en vita ekki alveg hvað þeir eiga að kalla kallakallapælingar dagsins svo þeir ákveða að njóta lista, lesa skáldskap og hringja í gamla vini sem þeir gleymdu.
41: Bein pæling 23.02.2026 1:26:19
Tveir kallar taka hlaðvarp í beinni útsendingu, hlustendum dagsins rignir inn í símtölum og báðir fara á trúnó. Ekkert eitthvað. Ging gang gúllí gúllí.
40: Ekki er allt sem sýnist 09.02.2026 1:16:42
Tveir kallar tala um þumalputtablöðrur (ekki spyrja) og ógleymanlegar tölur, horfa á fræga kvikmynd sem fjallar ekki um það sem við héldum og ákveða síðan að gerast eltihrellar konu sem er ekki til. Síðan finna þeir sér sálfræðing. Ekki veitir af.
39: Dauðinn 26.01.2026 1:15:09
Tveir kallar deyja ungir og hefja eftirlífið þar sem þeir ræða óhjákvæmilega um trú og tilfinningar. Þeir verða vegan en eru svo umkringdir af konum yfir fimmtugt. Þá teleporta þeir sig í burtu. Minnum á umræðuhópinn okkar á Facebook , Instagrammið okkar og upptökur af þáttunum á tveirkallar.is
38: Pillur 22.01.2026 1:09:21
Tveir kallar mislesa aðstæður og mistekst að halda uppi kurteislegum samræðum svo þeir flýja land og skoða sig um í Japan. Þeir finna pillur og gamlar glósubækur og nagandi ótti um óuppgerð mál grípur um sig. Finnið okkur á Instagram , tveirkallar.is og svo er umræðuhópur á Facebook.
37: Vítahringur fordóma 15.01.2026 1:22:06
Tveir kallar mæta í skítakulda í fordómabygginguna, segja „sæll, vinur“ og gefast upp á kennslu. Þeir velta fyrir sér hvort það sé í raun og veru hægt að taka samtalið við kollega og svo mála þeir sig.
36: Útkall – Gísli Björgvin 05.01.2026 1:08:36
Útkall, útkall! Annar kallinn er vant við látinn svo hinn kallinn kallar út enn annan kall, svokallaðan útkall, sem svarar kallinu. Þessir tveir kallar lenda í myglu svo þeir setja ilmefnafrítt rúðupiss á bílinn og bruna í barnaafmæli, gefa léleg ráð og ýta á vitlausa takka.
35: Viðkvæmir karlar 29.12.2025 1:00:18
Tveir kallar gera samfélagsmiðlatilraunir í fortíð og nútíð og eflaust framtíð líka, skoða karla og umhverfi þeirra og neita að fara að sofa. Svo flytja börnin þeirra að heiman.
34: Aukakall – Jólasveinninn 22.12.2025 49:01
Í sérstökum jólaþætti fá tveir kallar óvænta heimsókn frá Gáttaþefi og spyrja hann út í heimilisstörf í hellum, goðsögnina um barnaát, jólalagatexta sem eru bara eitthvert bull, kartöflurækt á fjöllum og af hverju sum fá lengur eða meira í skóinn en önnur. Athugið að þátturinn ER við hæfi barna. Gleðileg jól og verið góð hvert við annað.
33: Upp og niður 15.12.2025 1:19:17
Tveir kallar festast í lyftu og bíða þess aldrei bætur, týna frisbígolfdisk og furða sig á verkalýðsleiðtoga. Síðan segja þeir siðspilltum stórfyrirtækjum stríð á hendur. Instagram @tveirkallar tveirkallar.is
32: Á bak við tjöldin 08.12.2025 1:17:53
Tveir kallar fá flugfreyju og sjómann til að hjálpa sér, verða grasekklar, pakka í spítalatöskuna, eru gerðir útlægir, leiðrétta málfræði hvor annars (nei ok, bara á annan veginn) og hringja í flugmann á Tenerif. E.
31: Ströggl og stolt 01.12.2025 1:17:31
Tveir kallar leita bæði þriggja fyrrverandi fylgjenda og sökudólgsins sem ber ábyrgð á lækkaðri fæðingartíðni og Valgeir Dór kemur úr felum en lýsir skömmustulegur ströggli við atvinnuleit og krefst svara fyrir hönd reiðra karla. Brjálað að gera.
30: Eldurinn kæfður 24.11.2025 1:37:50
Tveir kallar eru boðnir í partí og mæta ekki því þeir vilja frekar horfa á sjónvarpið. Mesti rasisti og mesta karlremba landsins hafa samband en verra er að Tveir kallar lenda í small talki úti í búð. Síðan þarf að kjósa hver verður rekinn úr samfélaginu. Horfðu á tveirkallar.is
29: Grái fiðringurinn 17.11.2025 1:05:21
Tveir kallar kaupa sér sportbíl og bruna af stað. Á leiðinni fara þeir í „hvort myndirðu frekar“, greiða úr flækjum, gubba, fara í kulnun, læra að smíða, finna gömlu vopnin sín og þrífa stór heimilistæki eins og
28: Költ fyrir karla 10.11.2025 1:05:52
Tveir kallar ætla að ganga í leynireglu fyrir karla en mega ekki vera memm svo þeir fara óboðnir í afmæli í staðinn. Óvænt símtal á sér stað og þeir gerast bæði leiðtogar í költi og ráðherrar. Tveirkallar.is Tveir kallar á Instagram
27: Aukakall – Páll Óskar 03.11.2025 1:42:30
Þátturinn ætti náttúrulega að heita Aðalkall því þetta er Páll Óskar. Þetta er ekki viðtalsþáttur heldur tekur Palli þátt í hefðbundnum dagskrárliðum með Tveimur köllum. Saman ræða þeir að sjálfsögðu um fótbolta (ha?), bakslagið, framlengingarsnúrur, kyndilbera minnihlutahópa, ókynslóðabundna tónlist og veiðileyfi á trans fólk. „Við getum víst lifað saman undir sama þaki, í sama herbergi. Við ge...
26: Þegar karlar verða feður 27.10.2025 1:04:46
Tveir kallar eignast fyrsta barnið sitt og lífið tekur stakkaskiptum – sem endar með skilnaði og ósköpum. Þeir ranka við sér í aftursætinu hjá mömmu að borða normalbrauð og leita sér að fyrirmyndum því þegar allt kemur til alls eru þeir bara litlar karlrembur að reyna að skilja heiminn og finna tóninn sinn. Horfðu tveirkallar.is Fylgstu með á Instagram
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.