Tveir kallar

Tveir kallar

Society EN ↓ 51 episodes

Tveir kallar með podcast.  tveirkallar.is  @tveirkallar á Instagram

Author

Tveir kallar

Category

Society

Podcast website

tveirkallar.podbean.com

Latest episode

Jun 22, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

25: Þriðja kryddið 20.10.2025

Tveir kallar lenda í þýskum heimildarþætti svo þeir raka sig og halda afmæli, stilla upp air fryer og nota nóg af MSG. Trúnó dagsins er svo nokkuð sem hlustendur hafa beðið eftir frá fyrsta þætti Tveggja kalla.   Horfðu á tveirkallar.is Fylgstu með á Instagram  

24: Konur manosphere-karlanna 13.10.2025

Tveir kallar skamma hvor annan, komast að því að náinn vinur hefur stundað hatursorðræðu, tala um konur karlanna sem sogast inn í manosphere-ið og í Hlustanda dagsins er alveg bannað að snúa út úr sem minnir mig á frænda minn sem fékk einu sinni bronkítis á siglingu inn í Svartahafið.   Horfðu tveirkallar.is

23: Skjátími fullorðinna 06.10.2025

Tveir kallar fá hótun frá nágranna, lenda í fábreytnibyltingunni, gleyma sér í símanum og ættleiða barn. tveirkallar.is

22: Fjölgun örvhentra 29.09.2025

Tveir kallar skoða gröf og greiningar, trans og tölfræði, fylgni og fjöldatölur. Fyrst tala þeir þó að sjálfsögðu um dauðann. Eftir að þeir hafa velt fyrir sér hvers vegna örvhentu fólki hefur farið fjölgandi svarar annar þeirra kollega sem hefur farið með fleipur um hann. Í lokin keyra þeir hringveginn og deila uppskriftum með hlustendum. Eðlilega.   Tveir kallar á Instagram Horfðu á tveirkallar....

21: Þar liggur hundurinn grafinn 22.09.2025

Tveir kallar fara til tannlæknis og dýralæknis en þegar það á að fara að draga þá til sálfræðings líka þykir þeim nóg komið og fara að horfa á sjónvarpið. Síðan grafa þeir hund.   Tveir kallar á Instagram tveirkallar.is  

20: Aukakall – Björgvin Franz 15.09.2025

Tveir kallar fá Björgvin Franz Gíslason til liðs við sig til að svara því hvort það megi ekkert grínast lengur. Þeir leggja leið sína í piparsveinsíbúð í miðbænum þar sem Björgvin trúir þeim fyrir nokkru sem hann hefur nánast engum sagt áður og fara svo á sportbar þar sem þeim berst óvænt ástarjátning.

19: Skoðanir eru ekki staðreyndir 08.09.2025

Tveir kallar læra um muninn á staðreyndum og skoðunum, fara í fýlu í mörg mörg ár og ætla sko aldrei aftur að tala við vin sinn en fá síðan óvænta gjöf sem þeir þola ekki. Þökkum áheyrnina og þiggjum endurgjöf hér eða á Instagram. @tveirkallar og tveirkallar.is 

18: Verndarar götunnar 01.09.2025

Tveir kallar fara víða í þessum þætti, kíkja meðal annars á djammið, taka þátt í eftirlitsferð óbreyttra borgara og fara svo beint á AA-fund.

17: Kynin hafa aldrei verið bara tvö 25.08.2025

Tveir kallar telja tröppur og tala um trans fólk en fara svo að pissa og hitta einhvern sem heilsar þeim innilega en þeim finnst þeir aldrei nokkurn tíma hafa séð hann áður.

16: Þungir karlar 18.08.2025

Tveir kallar bregða sér á leik í amerískum fótbolta í Fíladelfíu og yfir löðrandi (vegan) cheesesteak í hálfleik fara þeir á trúnó um þunglyndi sem lét lítið á sér kræla en hafði ógnvekjandi áhrif þegar til kastanna kom. Þátturinn er ekki í boði Sertral.

15: Andlega ruslatunnan 11.08.2025

Tveir kallar fara á ströndina með börnin, velta fyrir sér hvort þeir noti konuna sína sem andlega ruslatunnu og fela sig svo inni á klósetti til að hlaða félagslega batteríið.   Tveir kallar á YouTube Tveir kallar á Instagram tveirkallar.is 

14: Aukið ofbeldi í samfélaginu 04.08.2025

Tveir kallar fara á miðilsfund, velta fyrir sér hvort ofbeldi sé að aukast í samfélaginu og redda í algjöru stressi afmælisgjöf fyrir 11 ára frænku.

13: Hvað er karlmennska? 28.07.2025

Tveir kallar eru á leiðinni til Hollywood, fara á trúnó um heimilisstörfin og skilgreina það sem kollegar hafa þráspurt um: Hvað er karlmennska?

12: Óvænt pub quiz 20.07.2025

Öðrum kallinum er komið á óvart með snúnum barsvarsspurningum, stressaður fyrirlesari opnar sig og Tveir kallar segja frá því hvað varð til þess að þeir urðu femínistar.

11: Heimgreiðslur til mæðra 14.07.2025

Tveir kallar eru á leiðinni til læknis þegar það springur dekk. Þeir fara létt með að skipta og ræða á meðan um heimgreiðslur til mæðra.

10: Manosphere 07.07.2025

Tveir kallar detta of snemma og of djúpt í trúnó, kíkja inn í mannhvelið (e. manosphere) og velta fyrir sér muninum á uppeldi drengja þá og nú.

9: Gagnræðunámskeið 30.06.2025

Tveir kallar skorast ekki undan áskorunum og fóru því á námskeið um fyrirbæri sem heitir gagnræða. Í þættinum setja þeir frá því og fara svo að þrífa símann hans Steina með sterkum hreinsiefnum á meðan þeir reyna að svara áleitinni spurningu sem sótt hefur á karla frá aldaöðli: Má ekkert lengur?

8: Þungarokkarinn 23.06.2025

Tveir kallar fara í gönguferð um landið og hlusta á róandi árniðinn og harðasta þungarokk sem Steini hefur heyrt. Síðan ákveða þeir að það þurfi að breyta lógóinu þeirra.

7: Uppeldi stráka 16.06.2025

Tveir kallar ræða um uppeldi stráka, rifja upp vandræðalegt blogg og játa svo óheppilegan atburð að þeir hreinlega meika ekki að taka fyrir hlustanda dagsins. Sjáumst á Instagraminu Tveir kallar. Þar geturðu sent okkur áskorun fyrir hlustanda dagsins og séð á bakvið tjöldin. Þú getur líka horft á þennan þátt á tveirkallar.is 

6: Truflun 10.06.2025

Þessi þáttur er um … við munum það eiginlega ekki alveg því það ruddist einhver kall inn í stúdíóið og sló okkur alveg út af laginu. En það var eitthvað þarna um stráka og hægrið, mann í netrifrildameðferð og hrútskýringar.

5: Bílslys 02.06.2025

Tveir kallar prófa að manifesta, tala um nafnlausa netkalla og lenda í bílslysi.   Instagram: Tveirkallar Horfðu: Tveirkallar.is

4: Heilsa karla 26.05.2025

Í þættinum velta Tveir kallar fyrir sér af hverju annar þeirra sé svona asnalega smámunasamur, skoða tölfræði um heilsu karla og pakka ofan í leikskólatösku. Horfðu á tveirkallar.is eða skoðaðu meira á Instagram-inu @tveirkallar.

3: Fyrirvinnan 20.05.2025

Í þættinum bregða Tveir kallar sér til Danmerkur, ræða um fyrirvinnu heimilisins og hvað fari í taugarnar á þeim í fari hins kallsins. Horfðu á þáttinn á  tveirkallar.is  

2: Afsökunarbeiðni 12.05.2025

Tveir kallar tala um getnaðarvarnir, biðja þjóðþekktan femínista afsökunar í gufubaði og setja upp Barnaloppubás.   Horfðu: http://www.tveirkallar.is/  

1: Vinasambönd karla 02.05.2025

Tveir kallar með podcast (þetta hefur aldrei verið gert áður). Í fyrsta þætti ræðum við vinasambönd karla, förum í bátsferð og gefum út yfirlýsingu.   Umsjón: Haukur Bragason og Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Pétur Jónsson   Instagram: @tveirkallar Heimasíða: tveirkallar.is  [í vinnslu]    

Listen to the Tveir kallar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.