Tveir á toppnum
Tveir á toppnum
Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu. „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“ - Morgunblaðið 1987 - tveiratoppnumpodcast@gmail.com.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#66 - Goðafræði Saurons og Marvel trogið 05.09.2024 55:23
Sullað í yfirfullu trogi af kaótísku goðafræðigríni, svartagalli Saurons með óvæntu dassi af John Carpenter. Arnar Tómas Valgeirsson mætir með heitustu teikin.
#65 - Blink Twice og allskonar 30.08.2024 1:00:56
Óformleg dagskrá. Blink Twice umræða án spilla! Fyrsta leikstjórnarverkefni Zoe Kravitz. Big. Líka: Oasis. Formúla 1 í Hollandi. Drive to Survive á Netflix. Heimavinna Odds Ævars. Fargo og Godfather trílógía þar sem nýjasta myndin hefur verið uppfærð. Only Murders in the Building og Rings of Power.
#64 - Alien: Romulus 21.08.2024 1:01:45
Síðdegisumferðarteppa í Reykjavík, dramatískar en að mestu innistæðulausar in the moment fullyrðingar. Stóra Blake Lively málið. Alien, saga bálksins. Saga Rómulusar og Remusar.
#63 - Trap 15.08.2024 57:49
Nýrnasteinsköst og kókdrykkja, leyndardómshjúpurinn í kringum Apple TV+, Hannibal blæti Donald Trump, ferill M. Night Shamalyanananan. Trap, án spilla! Brotthvarf og endurkoma Josh Hartnett.
#62 - House of the Dragon vertíð 2 06.08.2024 1:07:35
Samúel Karl Ólason og Theodóra Björk Guðjónsdóttir, helstu sérfræðingar þjóðarinnar í hugarheimum George R.R. Martin mæta og kryfja nýjustu vertíðina úr sjónvarpsheimum Game of Thrones.
#61 - Deadpool & Wolverine 01.08.2024 1:08:42
Robert Downey Jr. mætir aftur til leiks í Marvel kvikmyndabálkinn nú sem Doctor Doom. Deadpool & Wolverine, X-Men myndasagnabálkurinn og framtíð Marvel. Sérstakur gestur: Tómas Valgeirsson, kvikmyndaséní með meiru.
#60 - The Boys vertíð 4 25.07.2024 1:04:13
Karen Kjartansdóttir mætir og ræðir nýjustu og næstsíðustu seríuna af ofurhetjuþáttunum vinsælu.
#59 - Star Wars: The Acolyte 22.07.2024 1:29:32
Umdeildustu þættir seinni tíma og bardagavöllur hins víðfræga menningarstríðs teknir fyrir í sérstökum þætti. Hvað var svona umdeilt? Eru þetta góðir þættir? Þetta og fleira ásamt Geir Finnssyni og Starra Reynissyni.
#58 - 1000 barna faðir í Netflix-heimum (og allt hitt í þægilegum nærbuxum) 18.07.2024 1:22:09
Púlsinn tekinn á heitustu þáttunum og narsisískum 1000 barna föður og undursamlegar nærbuxur mátaðar í sérstökum þætti í boði Comfyballs.is.
#57 - Beverly Hills Cop: Axel F 10.07.2024 1:03:24
Fjórða myndin um Beverly Hills lögguna. Staðan tekin á síkjum Amsterdam. Sérstakur gestur: Svanur Már Snorrason, blaðamaður.
#56 - Pulp Fiction 03.07.2024 52:05
Fjölmiðlakonan og plötusnúðurinn Dóra Júlía mætir og ræðir Pulp Fiction, stórmynd Quentin Tarantino sem fagnar þrjátíu ára afmæli í ár.
#55 - Donald Sutherland og stóra Acolyte rifrildið 26.06.2024 58:46
Hvíl í friði Donald Sutherland. The Boys, fyrstu fjórir þættirnir. Fyrstu tveir af House of the Dragon. Stóra rifrildið um Star Wars Acolyte, sérstaklega fjórða þátt. Sérstakur gestur: Arnar Tómas Valgeirsson, fyrsti maðurinn með Prime Video á Íslandi.
#54 - Eurotrip 19.06.2024 56:47
Bandaríska grínmyndin um Scott Thomas og félaga sem kom út fyrir svo gott sem sléttum tuttugu árum upp á dag og varð síðar cultural phenomenon. Fyrsti gestastjórnandi Tveggja á toppnum: Bjarki Sigurðsson, fréttamaður á Stöð 2 og helsti Eurotrip sérfræðingur þjóðarinnar.
#53 - Hit Man og Mad Max: Furiosa 12.06.2024 1:02:02
Gestalausir í fyrsta sinn í langan tíma. Acolyte og incelarnir enn og aftur. The Boys. House of the Dragon. Hit Man í boði Netflix og óskiljanlegar óvinsældir Max Max: Furiosa.
#52 - The Idea of You 05.06.2024 53:32
Rómantíska gamanmyndin með Anne Hathaway sem byggir á bók húsmóður sem lét sig dreyma um ástarævntýri með Harry Styles. Sérstakur gestur: Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir fréttakona Stöðvar 2.
#51 - Forseta- og stjórnmálamyndir 30.05.2024 1:08:13
Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur Íslands er sérstakur gestur í þætti þar sem myndir og þættir um forseta og stjórnmál eru settar á oddinn í tilefni af forsetakosningum 2024.
#50 - Snerting 23.05.2024 57:44
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er sérstakur gestur fimmtugasta þáttar Tveggja á toppnum og talar um nýjustu mynd sína, Snertingu, stíl sinn og kvikmyndagerð, samstarfið við Egil Ólafsson og augnablikið þegar hann fann yngri útgáfuna af persónu Egils í Pálma, syni sínum. Tíðindi af Jason Statham og ýmsum öðrum járnum sem hann er með í eldinum fljóta með.
#49 - Shogun og sjónvarpssumarið mikla 15.05.2024 1:01:50
Sjónvarpssumarið framundan er ótrúlegt. Stiklur úr House of the Dragon og LOTR: Rings of Power sería 2. Aðeins aftur um eitt eista og Comfyball(s). Shogun og sagan þar að baki. Sérstakur gestur: Samúel Karl Ólason, blaðamaður.
#48 - Challengers og kynlíf í bíómyndum þá og nú 09.05.2024 56:32
Aðeins um eitt eista, ófyndin Seinfield, saga kvikmyndahúsa á Íslandk, forsetaframbjóðendur vinsamlegast hafið samband, tennis mynd Zendayu (nf. Zendaya). Þegar Oddur sagði Vilhjálmur Bretaprins meinti hann Karl (sorrí). Kynlíf í bíómyndum, the return?
#47 - 2EXTRA: Star Wars - May the Fourth 04.05.2024 1:16:58
Sérstakur hátíðarþáttur í tilefni af alþjóðlega Star Wars deginum. Sérstakir gestir: Geir Finnsson og Bríet Blær.
#46 - Baby Reindeer 01.05.2024 1:00:15
Ugla Stefanía kynjafræðingur og baráttukona fyrir réttindum trans fólks og Thelma Rún van Erven sálfræðingur mæta og ræða umtöluðustu þætti dagsins.
#45 - Fallout 25.04.2024 57:04
Óvænt bestu þættir ársins? Ræðum Fallout seríuna með þeim Walton Goggins, Ellu Purnell og okkar manni Aaron Clifton Moten. Sérstakur gestur: Stefán Pettersson.
#44 - Civil War 18.04.2024 1:08:39
Civil War nýjasta kvikmynd Alex Garland með Kirsten Dunst ofl. rædd í þaula. Viktor Orri Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði greinir ástandið og líkurnar á að myndin verði að veruleika.
#43 - Allt, alls staðar á sama augnabliki 11.04.2024 1:11:28
Stútfullur frjáls tími með prinsi sem svitnar ekki, Godzillu og King Kong í faðmlögum, ómætstæðilegu hasar rusli og Apamanni sem fer hamförum í geggjuðu aksjón dæmi með óvenju mikilli dýpt sem er sjaldséð í slíkum myndum. Að ógleymdum mjög áhugaverðum transvinkli.
#42 - 3 Body Problem 04.04.2024 1:13:08
Illugi Jökulsson mætir til leiks og kafar með okkur ofan í eðlisfræðina og kínverskan bakgrunn 3 Body Problem á Netflix.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.