Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Tilveran
Þetta verður allt í góðu, við finnum út úr þessu saman! Tilveran er hlaðvarp fyrir miðaldra konur í tilvistarkreppu! Sjálf hætti ég að skilja lífið fyrir nokkrum árum og í stað þess að ráða mér hreinlega aðstoðarmanneskju ákvað ég að taka völdin í mínar hendur og stofna hlaðvarp þar sem gæti rætt við einstaklinga sem ég lít upp til og búa yfir reynslu eða vitneskju sem ég veit að mun nýtast mér og okkur öllum.
Author
Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
May 27, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fróðleiksmolar um breytingaskeiðið 29.10.2025 1:08:39
Í þessum þætti fékk ég Hönnu Lilju Oddgeirsdóttur, eiganda Gyna Medica, til þess að tala um allt sem breytingarskeiðinu viðkemur.
„Ætla ekki að hugsa; ég hefði átt.. “ 22.10.2025 1:12:37
Í þessum þætti fékk ég Kristínu Þórsdóttur, kynlífsmarkþjálfa, til þess að tala um makamissinn, sorgina, kynlífsmarkþjálfun, lífið með ADHD, breytingaskeiðið og mikilvægi þess að rækta ástarsambandið sitt.
Kynningarþáttur 15.10.2025 8:15
Í þessum stutta og krúttlega kynningarþætti fer ég yfir það hvernig hugmyndin að Tilverunni kviknaði og af hverju ég tel hana eiga erindi.
„Lífið er eins og stórt slönguspil" 15.10.2025 55:46
Í þessum þætti fékk ég Guðrúnu Hafþórs, markþjálfa, til þess að tala við mig um veikindi sem hún lenti í vegna myglu, flókið föðursamband, föðurmissinn, breytingaskeiðið og það hversu flókið það getur verið að vera fullorðin manneskja.
Frá örmögnun til upprisu 15.10.2025 1:12:38
Í þessum þætti fékk ég Önnu Sigurðardóttur, eiganda Samkenndar heilsuseturs, til þess að ræða um örmögnun, barnsmissinn, heilsubrestinn í kjölfarið, líkamlega verki, sjálfsuppbyggingu og mikilvægi samkenndar í eigin garð.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.