Þjóðmál

Þjóðmál

Society IS ↓ 439 episodes

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Author

Þjóðmál

Category

Society

Podcast website

www.thjodmal.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#14 – Villi Árna vill vekja Suðurlandið til lífsins 22.05.2021

Vilhjálmur Árnason alþingismaður sækist eftir því að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í Hlaðvarpi Þjóðmála fer hann yfir áskoranirnar og tækifæri í kjördæminu, uppbygginu fjölbreytts atvinnulífs, það hvernig stefna heilbrigðisráðherra hefur skert þjónustu og loks hvernig hægt er að boða nýja hluti þrátt fyrir að hafa setið átta ár á þingi.

#13 – Albert Jónsson fer yfir stöðuna í alþjóðakerfinu og ólíka hagsmuni stærstu ríkjanna 19.05.2021

Albert Jónsson , fv. sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í utanríkismálum, fjallar um ráðherrafund Norðurskautsráðsins sem nú fer fram á Íslandi, heimsókn og fund utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands, samskipti þeirra ríkja og stirð samskipti stórra ríkja í alþjóðakerfinu. Við ræðum einnig um það hvort og þá hvaða hlutverki Ísland gegnir í samstarfi vestrænna þjóða, um áskorani...

#12 – Ákvörðun dómsmálaráðherra breytti öllu – Birna Ósk og Jóhannes Þór ræða stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar 12.05.2021

Þó svo að það sé erfitt ár að baki hjá ferðaþjónustunni þá er ákveðin bjartsýni í greininni. Ferðmenn eru byrjaðir að koma til landsins og fljúga yfir lifandi eldgos þegar þeir lenda í Keflavík. Þau Birna Ósk Einarsdóttir , framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair, og Jóhannes Þór Skúlason , framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræða í Hlaðvarpi Þjóðmála um stöðu og framtíð ferðaþj...

#11 – Guðrún Hafsteinsdóttir – Hagsmunabarátta er ekki feimnismál 07.05.2021

Guðrún Hafsteinsdóttir , fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og markaðsstjóri Kjörís, býður sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í samtali við hlaðvarp Þjóðmála fer hún yfir aðdraganda þess að hún ákvað að gefa kost á sér í stjórnmálum, pólitískar áherslur sínar, hvort rétt hafi verið að ljúka aðildarviðræðum að ESB eða ekki og margt fleira. Hún fjallar einn...

#10 – Brynjar Níelsson – Duglegastur allra þingmanna 05.05.2021

Brynjar Níelsson alþingismaður fjallar um aðförina að Samherja, misbeitingu valds af hálfu Seðlabankans í gjaldeyrismálum, mikilvægi þess að standa vörð um réttarríkið, stöðuna í stjórnumálum, það handónýta plagg sem hin svokallaða nýja stjórnarskrá er, vinnubrögð sín í þinginu og það hvort hann hyggist gefa kost á sér á ný. Þá svarar hann þeim pólitísku andstæðingum sem sakað hafa hann um leti í...

#9 – Uppgjörið – Fjölbreyttar túlkanir á orðum Ásgeirs – Ekki eru allir viðhlæjendur vinir – Öll börn dreymir um að verða ríkisstarfsmenn 30.04.2021

Hörður Ægisson , ritstjóri Markaðarins, og Stefán Einar Stefánsson , fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, fjalla um ummæli Ásgeir Jónssonar seðlabankastjóra um hagsmunahópa og rangtúlkanir á þeim sem vörðu í tæpa viku, um hækkandi laun ríkisstarfsmanna, hvaða afleiðingar hærri verðbólga hefur, það hvort að stjórnmálamenn falli á stöðugleikaprófinu þegar nær dregur kosningum og margt fleira áhug...

#8 – Pólitíkin – Andrés og Jóhanna Vigdís fara yfir pólitíska landslagið á lokaspretti kjörtímabilsins. 28.04.2021

Andrés Magnússon , blaðamaður á Morgunblaðinu, og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir , fréttamaður á RÚV, fara yfir pólitíska landslagið, nýafstaðin og komandi prófkjör og uppstillingar á lista, stjórnarsamstarfið og síðustu vikurnar á þinginu. Kratarósin liggur í jörðinni og enginn virðist ætla að taka hana upp, íhaldið er í vandræðum með endurnýjun en það er slagur framundan í Reykjavík, Viðreisn þarf...

#7 – Hannes Hólmsteinn – Frjálshyggjumenn eiga ekki að hata ríkisvaldið 26.04.2021

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fjallar um nýútkomna bók sína um frjálslynda íhaldsmenn, hugmyndir um hið frjálsa markaðshagkerfi og viðhorf frjálshyggjumanna til ríkisvaldsins, það hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið varð til og hvernig það hefur bætt hag landsmanna, átökin um samkeppni hugmyndanna sem búið er að úthýsa úr háskólasamfélaginu, vondar hugmyndir um alþjóðlega sk...

#6 - Stefnan í heilbrigðismálum skerðir lífsgæði – Óli Björn Kárason fer yfir hættuna á tvöföldu heilbrigðiskerfi og stöðuna á síðustu mánuðum kjörtímabilsins 16.04.2021

Óli Björn Kárason , þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fjallar um það hvernig stefna heilbrigðisráðherra skerðir lífsgæði hér á landi, hættuna af tvöföldu heilbrigðiskerfi, mikilvægi þess að fólk fái þá þjónustu sem það á rétt á að fá og möguleika á auknu atvinnufrelsi og fjölbreytni í heilbrigðiskerfinu. Þá fjöllum við um síðustu mánuði kjörtímabilsins, það sem áunnist hefur og það sem miður hefur f...

#5 - Við fengum hjarðhegðun í stað hjarðónæmis – Björn Ingi og Viggó Jónsson ræða sóttvarnaraðgerðir og umræðuna sem fæstir vilja taka vegna Covid-faraldursins. 13.04.2021

Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður og Viggó Jónsson ráðgjafi ræða um aðgerðir í sóttvörnum, umræðuna í kringum sóttvarnir og aðgerðir yfirvalda, hverjir það eru sem stýra landinu í raun og veru og hversu lengi þetta ástand mun hafa áhrif á líf okkar.

#4 - Efnahagsmál – Ásdís Kristjánsdóttir og Jón Bjarki Bentsson fara yfir stöðuna 07.04.2021

Það eru rúmlega 20 þúsund manns á atvinnuleysisskrá, tekjur ríkisins eru um 60% af útgjöldum og skuldir ríkisins hækka verulega og við vitum ekki hvenær hagkerfið tekur við sér. Ásdís Kristjánsdóttir , aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Jón Bjarki Bentsson , aðalhagfræðingur Íslandsbanka, ræða stöðuna í efnahagsmálum og útlitið framundan, það hvort að aðgerðir hins opinbera hafi g...

#3 - Viðtal - Katrín Atladóttir 31.03.2021

Katrín Atladóttir , borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, ræðir um það hvernig það kom til að hún tók sæti á lista flokksins, hvernig það er að vera í minnihluta, pólitískar hugsjónir sínar, samgöngumál og ósætti milli ólíkra borgarhluta, hvernig það er að vera kölluð samfylkingarkona í eigin flokki og stöðu ungs fólks í stjórnmálum.

#2 - Uppgjörið – Bólusetningarklúðrið, spurningarnar sem ekki má spyrja og brandarabók Samkeppniseftirlitsins. 26.03.2021

Hörður Ægisson , ritstjóri Markaðarins, og Stefán Einar Stefánsson , fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, ræða um bólusetningaklúðrið hér á landi, spurningar sem ekki má spyrja um aðgerðir stjórnvalda og loks um skringilega hegðun Samkeppniseftirlitsins gagnvart atvinnulífinu og háar greiðslur til óháða kunnáttumannsins.

#1 - Viðtal - Halldór Benjamín Þorbergsson 23.03.2021

Halldór Benjamín Þorbergsson , framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), er gestur í fyrsta þætti Þjóðmála hlaðvarps. Í þættinum ræðir Halldór um hlutverk SA í samfélaginu, hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum, mikilvægi þess að styðja við frjálst markaðshagkerfi, samkeppnishæfni Íslands og margt fleira.

Listen to the Þjóðmál podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.