Þjóðmál

Þjóðmál

Society IS ↓ 468 episodes

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.thjodmal.is

Author

Þjóðmál

Category

Society

Podcast website

www.thjodmal.is

Latest episode

Oct 20, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#68 – Bergmálshellar fjölmiðla – Friður rofinn í Evrópu 01.04.2022

Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um stöðu og hlutverk fjölmiðla, hver það er sem skráir söguna og út frá hvaða forsendum, hvort að nýir miðlar minnki vægi hefðbundinna fjölmiðla, hvort að fjölmiðlar njóti í dag ritstjórnar og margt fleira sem snýr að fjölmiðlum. Þá er einnig rætt um stjórnmálaumræðu í kringum aðild að NATO og ESB í kjölfar átaka í Úkraínu.

#67 – Pólitískir leikþættir vekja meiri athygli en alvöru rökræður 25.03.2022

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur stundum lýst sér sem sérlegum varðhundi allra lasta. Hún ræðir hér um það hversu langt ríkisvaldið á að teygja sig í búa til dagmömmuríki til að gæta okkar fyrir okkur sjálfum, hvernig reglur um áfengisverslun og tæknifrjóvgun eru langt á eftir samfélagslegri þróun, hvort að yngri kynslóðir geri óeðlilegar kröfur til hins opinbera og það...

#66 – Það vill enginn vera í reiða liðinu - Don't Get High On Your Own Supply 14.03.2022

Friðjón Friðjónsson, sem sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, og Katrín Atladóttir, sem mun í vor láta af störfum sem borgarfulltrúi, fara yfir málefni Reykjavíkurborgar, hvernig vinstri meirihlutinn er með sömu kosningaglærur og fyrir fjórum árum en með breyttum ártölum, það hvort að borgarlínan sé mál sem þurfi að ræða aftur og aftur og margt annað sem sn...

#65 – Úrslit í prófkjörum krufin með kampavíni – Bókhaldsbrellur í borginni – Framboð í beinni útsendingu 08.03.2022

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson frá Morgunblaðinu fara yfir úrslit úr öllum helstu prófkjörum sem búið er að halda, hver unnu og hver töpuðu, hvaða áhrif niðurstöðurnar hafa, hvers má vænta úr þeim prófkjörum sem eftir eru og undirbúning sveitarstjórnarkosninga í vor. Þá er fjallað um bókhaldsbrellur Reykjavíkurborgar sem eiga að fegra slæman fjárhag borgarinnar, hvort það hafi verið í...

#64 – Vesturlönd þurfa að standa með Úkraínu í orði og á borði – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 25.02.2022

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, hefur fylgst með alþjóðastjórnmálum í áratugi. Hann ræðir hér um innrás Rússa inn í Úkraínu, brjálaðar hugmyndir Pútíns um afturhvarf til keisaratíma, stöðu og áhrif vestrænna ríkja sem munu þurfa að bregðast við innrásinni, áhrifin á samstarf ríkja í Evrópu, áhrifin sem þetta ástand kann að hafa hér á landi og hvaða hlutverki Ísland getur gegnt. Þá svarar hann einni...

#63 – Verbúðin – Lokakafli og uppgjör – Hvernig varð kvótakerfið til? 18.02.2022

Þjóðin hefur legið yfir sjónvarpsþáttunum Verbúð á síðustu vikum, enda verður ekki annað sagt en að þættirnir séu frábært afþreyingarefni. Í framhaldi af því má þó velta fyrir sér hvernig þessi saga varð til. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, fara yfir það hvernig og hvenær fiskveiðistjórnunarkerfið – sem við í...

#62 – Hiti í hagkerfinu og kulnun í umferðinni – Helgarvaktin fer yfir málin 11.02.2022

Konráð Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis sjóða, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur sem gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, fara yfir stöðu mála í hagkerfinu, það hvort að vextir Seðlabankans hafi lækkað of hratt og séu að hækka of mikið, hvaða áhrif stuðningsaðgerðir ríkisins hafa haft í heimsfaraldri og hvaða áhrif það mun hafa þegar og ef...

#61 – Brynjar Níelsson – Maður sátta og samlyndis, svona að mestu 08.02.2022

Brynjar Níelsson, sem nú starfar sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, mætir sprækur eftir erfitt haust. Í þessum þætti fjallar hann um þær afleiðingar sem felast í því að færa réttvísina úr réttarsal yfir á samfélagsmiðla, um þá gagnrýni sem kom fram þegar Brynjar var valinn aðstoðarmaður, hvort að tíðarandi hafi áhrif á réttarfar, ólöglega framlengingaráætlun ríkisstjórnarinnar í sóttvarnarmálum o...

#60 – Vágesturinn sem verðbólgan er og framlengingaráætlun sóttvarna 31.01.2022

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræða um áhrif verðbólgu á efnahagslífið, möguleg áhrif á kjarasamninga, það hvort að Seðlabankinn sé á réttri braut, hvort að sveitastjórnarkosningar kunni að hafa neikvæð áhrif á hagkerfið, ákvörðun stjórnvalda um að framlengja sóttvarnarráðstöfunum – og hvaða áhrif þetta all...

#59 – Mannréttindi geta ekki verið gulrót fyrir góða hegðun í Covid 22.01.2022

Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum og fær til sín þingmennina Sigmar Guðmundsson og Vilhjálm Árnason. Í þættinum er fjallað um það hvort að við séum komin langt fram úr meðalhófi með því að skikka um 25 þúsund manns í sóttkví og einangrun, með hvaða hætti stjórnmálin eiga að koma að málum þegar fjallað er um sóttvarnarráðstafanir, efnahagslegar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar, stöðu atvinnulíf...

#58 – Leikþáttur stjórnvalda heldur áfram en hvar er þingið? 14.01.2022

Sigríður Á. Andersen og Þorsteinn Víglundsson fjalla um nýjustu aðgerðir stjórnvalda í sóttvarnarmálum, spurningarnar sem enginn er að spyrja, hlutverk stjórnmálamanna þegar tekist er á við faraldur, hvort og þá hvaða hlutverki Alþingi á að gegna í þessari vegferð, hversu mikið þetta er að kosta okkur, þróun lýðræðisríkja og margt fleira.

#57 – Stjórnkerfi Reykjavíkurborgar of stórt og of dýrt 07.01.2022

Eyþór Arnalds hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á ný á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Eyþór fjallar hér um ástæðu þess að hann ákveður að hætta í stjórnmálum í bili, um væntanlegt mótframboð sem hann fékk áður en hann tilkynnti ákvörðun sína og um meinta óeiningu í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þá fjallar Eyþór um fjárhagslega stöðu borgarinnar, sem er vægast s...

#56 – Úr auga stormsins yfir í hollenskt ævintýri – Birna Ósk kveður (í bili) 03.01.2022

Birna Ósk Einarsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá Icelandair og mun nú í byrjun árs flytja til Hollands þar sem hún tekur við starfi framkvæmdastjóri markaðssviðs APM Terminals, dótturfélags skipafélagsins Maersk. Birna Ósk starfaði áður sem framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs hjá Landsvirkjun og sem framkvæmdastjóri hjá Símanum um árabil....

#55 – Kampavín og kapítalismi – Árið 2021 gert upp 30.12.2021

Með úrvals kampavín við hönd gera Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson upp árið 2021 í hlaðvarpi Þjóðmála. Við fjöllum um ómálefnalega umræðu vegna sóttvarnaraðgerða, áskoranir ríkisstjórnarinnar, það hvort að Sjálfstæðisflokkurinn hafi selt sig ódýrt í stjórnarsamstarfinu, stöðu mála í borginni og mögulega leiðtogakrísu þar, gott ár viðskiptalífsins, undarlega hegðun lífeyrissjóða gagnvart...

#54 – Vítíslogar sem vonandi loga aldrei aftur og hlutverk Íslands í Seinni heimsstyrjöldinni 26.12.2021

Magnús Þór Hafsteinsson fjallar um bókina Vítislogar – Heimur í stríði 1939-1945 eftir breska blaðamanninn Max Hastings. Bókin kom nýlega út á íslensku. Fjallað er um einstaka þætti í sögu Seinni heimsstyrjaldarinnar, sjónarhorn og upplifun almennings sem gerð er góð skil í bókinni og margt fleira. Þá fjallar Magnús Þór, sem skrifað hefur nokkrar bækur um stríðið, um hlutverk Íslands á þeim tíma s...

#53 – Desember er mánuður jómfrúarsona – Jakob á Jómfrúnni fjallar 25 ára afmæli Jómfrúarinnar 20.12.2021

Jakob Einar Jakobsson, eigandi og framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar, fjallar um sögu veitingastaðarins sem nú fagnar 25 ára afmæli, bókina sem hann gaf út í tilefni afmælisins sem og rekstur og horfur veitingageirans. Þá er fjallað um viðbrögðin við Covid-faraldrinum, viðhorf stjórnvalda til veitingageirans, kjaramál og margt fleira.

#52 – Albert Jónsson og Bogi Ágústsson fjalla um ástæður og aðdragandann að hruni Sovétríkjanna fyrir 30 árum 16.12.2021

Albert Jónsson, fv. sendiherra, og Bogi Ágústsson fjölmiðlamaður fara yfir ástæður og aðdraganda þess að Sovétríkin riðuðu til falls fyrir 30 árum síðan, haustið 1991. Þar með lauk um 70 ára sögu hins kommúníska alræðisríkis. Þeir fara einnig yfir flókin samskipti Rússa við vesturvöld, stöðu og hlutverk Íslands í þessari sögu og margt fleira.

#51 - Viðskiptaverðlaun Innherja 15.12.2021

Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir fjalla um viðskiptaverðlaun Innherja. Alls voru veitt verðlaun í sjö flokkum en auk þess að fjalla um þau fyrirtæki og einstaklinga sem hlutu verðlaun er jafnframt fjallað um þau sem voru tilnefnd. Í lok þáttarins er einnig fjallað um aukastörf ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins sem virðist vanta fleiri verkefni.

#50 – Það verða allir að hafa einn skratta – Máni Pétursson fjallar um nýja bók sína um að vera ekki aumingi 10.12.2021

Þorkell Máni Pétursson fjallar um bók sína, Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi. Í spjalli við Hlaðvarp Þjóðmála ræðir hann um tilefni þess að hann skrifaði bókina og aðdragandann að henni, hina svokölluðu fórnarlambavæðingu, hvort það sé rétt að tala um aumingjavæðingu, reiðina á samfélagsmiðlum, pólitískar skoðanir, brostna drauma, raunverulegan árangur og margt fleira.

#49 – Er Jón Gunnars að stela jólunum? – Ríkisstjórnin fann lægsta samnefnarann og komst í jólaskap 06.12.2021

Andrés Magnússon blaðamaður ræðir um fyrstu daga stjórnarsamstarfsins, hvort að hægri menn eigi að vera ánægðir eða ósáttir við stjórnarsáttmálann, það hvort að stjórnmálin þurfi að finna lægsta samnefnarann til að geta starfað, hvort að Jóni Gunnarssyni sé statt að sitja sem ráðherra og hvort að hin „vökula“ umræða (e. woke) hafi fæst rætur hér á landi. Þá er rætt um hina þunnu línu sem skilur að...

#48 – Ríkið stækkar og ráðherrastólarnir með – Allt sem þú þarft að vita um nýja ríkisstjórn 28.11.2021

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir allt það helsta sem snýr að nýrri ríkisstjórn, ráðherraskipan, stjórnarsáttmálanum, stöðu stjórnarandstöðunnar, samstarfinu á milli þessara ólíku flokka, það hvort að ný ríkisstjórn sé ríkisstjórn höfuðborgarinnar á kostnað landsbyggðarinnar, hvort að það sé eitthvað raunverulegt innihald í löngum stjórnarsáttmála eða hvort hann sé froðukenndur, þ...

#47 – Peningar vaxa ekki á trjánum, eða hvað? – Björn Berg fjallar um Peninga 19.11.2021

Björn Berg Gunnarsson , deildarstjóri Greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka ræðir um nýútkomna bók sína, Peningar . Fjallað er um skemmtilegar sögur í bókinni, sögulega – og jafnvel óvænta - atburði sem tengist peningum, hvort nóg sé til af peningum í heiminum, hvernig nýjar kynslóðir skapa nýjar tekjur og fleira áhugavert sem fram kemur í þessari skemmtilegu og áhugaverðu bók. Þá er einnig rætt...

#46 – Það vantar leiðtoga á ríkisspítalann - Hver ætlar að leiða okkur út úr Covid? 16.11.2021

Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og Örn Arnarson, pistlahöfundur og fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðsins, ræða um stöðuna og þær takmarkanir sem eru í gildi vegna kórónuveiru-faraldursins, vanmátt ríkisspítalans til að takast á við þau vandamál sem við blasa, lélega stjórn spítalans, ómarkvissar aðgerðir sóttvarnaryfirvalda og annað sem tengist þessum óboðna gest sem dregið hefur...

#45 – Kertið logar í hlýjum ráðherrabústað en á skrifstofu Eflingar er allt brunnið til grunna – Björn Bjarnason fer yfir málin 09.11.2021

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fjallar um myndun nýrrar ríkisstjórnar, stöðu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnarsamstarfinu, helstu ágreiningsefnin sem þarf að leysa og veika stöðu stjórnarandstöðuflokkanna. Þá er fjallað um málefni Eflingar þar sem sósíalistar hafa skilið eftir sig sviðna jörð. Loks er fjallað um það hvaða áhrif, ef einhver, loftlagsráðstefnan í Glasgow mun hafa.

#44 – Allir og amma þeirra í Glasgow – Þarf að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum? 03.11.2021

Sigurður Már Jónsson blaðamaður fjallar um loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP26) sem nú fer fram í Glasgow í Skotlandi. Fjallað er um þær lausnir sem þar eru boðaðar, hvort og þá hvaða áhrif svona ráðstefna hefur og hvaða hlutverki Ísland gegnir þegar horft er til loftslagsmála.

Listen to the Þjóðmál podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.