Árni Björn og Guðrún Ósk
Taboo hlaðvarp
Taboo er hlaðvarp þar sem við, Árni og Guðrún, köfum djúpt í málefni sem oft eru sögð ”ekki við hæfi” - eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd, OnlyFans o.fl. Í hverjum þætti opnum við á einlægar samræður þar sem við deilum okkar eigin reynslu og spyrjum hvort annað að spurningum sem fáir þora að spyrja og ögrum þar af leiðandi ríkjandi hugmyndum. Við erum hjón sem höfum verið saman í 15 ár og þar af gift í 10 ár og höfum eflaust gengið í gegnum flest allt sem hægt er að ganga í gegnum í hjónabandi. Við elskum andleg málefni og setjum heilsuna okkar í fyrsta sætið. Við erum forel...
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: ibpn7xc8drxvs.podbean.com
Author
Árni Björn og Guðrún Ósk
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 2, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir 02.10.2026 1:17:15
Hæ og velkomin í þátt númer 10 í annarri seríu af Taboo. Bjargey Ingólfsdóttir er sennilega mörgum kunn enda hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún er félagsráðgjafi að mennt, jógakennari, fyrirlesari og fararstjóri en umfram allt bara ótrúlega opin og skemmtileg manneskja sem er óhrædd við að tala um lífið eins og það er. Við fengum Bjargeyju til okkar í vir...
Þáttaröð 2 - Þáttur 9. - Helgi Jean Claessen 25.09.2026 1:12:22
Hæ elskurnar Þessi þáttur var algjör negla! Við fengum til okkar Helga Jean aka KakóHelgi aka Graðasti maður íslands. Við áttum ótrúlega skemmtilegt spjall og fengum að heyra söguna hans Helga og hvar hann er staddur í dag í sínu ferðalagi. Ræddum um fjölástir, kynlíf, hugvíkkandi ferðalög, Kakóserimóníur, Kakókastalann ofl. ofl. Njóttu vel!
Þáttaröð 2 - Þáttur 8. - Gott kynlíf? 14.09.2026 51:07
Velkomin í nýjan þátt af Taboo. Við förum svolítið um víðan völl en ræðum aðallega hugtakið "gott kynlíf". Hvað er það og hvað þarf til? Er til eitthvað eitt rétt "gott kynlíf" eða er þetta afstætt. Er hægt að vita með vissu að maður sé góður í kynlífi? Skemmtilegar pælingar. Njótið vel!
Þáttaröð 2 - Þáttur7. - Matilda Gregersdotter 07.09.2026 52:55
Í þessum þætti fengum við frábæran gest eða hana Matildu Gregersdotter. Matilda er MCC markþjálfari með yfir 20 ára reynslu sem markþjálfi. Hún er líka mikil áhugamanneskja um Tantra, kynlíf og hinn andlega heim. Hún kom að stofnun Wild Love hátíðarinnar sem hefur verið haldin árlega undanfarin á hér á Íslandi og hún skrifaði líka bókina "Daily Sex" sem er hálfgerð dagbók þar sem hún talar um þá á...
Þáttaröð 2 - Þáttur 6. - Kynorka = Lífsorka 10.06.2026 43:42
Hæ öll Í þessum þætti tölum við um kynorkuna og hvernig það er hægt að nýta hana sem lífsorku og drifkraft í lífinu. Njótið vel!
Þáttaröð 2 - Þáttur 5. - Kara og Viktor aka Lovetwisted 29.05.2026 1:00:26
Velkomin aftur! Í þessum þætti fáum við í fyrsta skipti gesti til okkar! Mikil tímamót fyrir Taboo :) Við spjöllum við parið Köru og Viktor sem ganga undir nafninu Lovetwisted bæði á SDC, onlyfans og fleiri vettvöngum á netinu. Þau eru virk í lífsstílnum, eru í opnu sambandi og hafa haldið stærstu swing party á Íslandi. Ótrúlega gaman að fá þau í spjall til okkar. Njótið vel.
Þáttaröð 2 - Þáttur 4. - Að taka skrefið 21.05.2026 48:32
Hæ og velkomin aftur! Í þessum þætti ræðum við aðeins um hvernig það er að taka skrefið og byrja að explore-a hluti saman sem par, hvort sem það er swing, opin sambönd etc. Þetta getur verið erfitt og tricky og við förum aðeins yfir okkar sögu og okkar lærdóm af þessu. Njótið vel
Þáttaröð 2 - Þáttur 3. - Snapchat og samfélagsmiðlar 11.05.2026 50:19
Hæ þið! Í þessum þætti ræðum við um taboo hliðina af Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum. Snapchat er ákveðið fyrirbæri útaf fyrir sig sem okkur fannst mjög gaman að ræða um. Ef þið viljið fylgja okkur á snapchat þá finnið þið okkur undir @taboo.parid Njótið vel
Þáttaröð 2 - Þáttur 2. - Viðurkenning 24.04.2026 42:58
Hæ hó og velkomin aftur Í þættinum í dag spjöllum við um viðurkenningar og þá aðallega þörfin á að fá viðurkenningu frá öðrum. Hvaðan það kemur og hvernig það snertir við okkur. Njótið vel.
Þáttaröð 2 - Þáttur 1. - $ex Workers 17.04.2026 42:27
Hæ elsku bestu! Við erum mætt eftir smá frí og verðum vikulega næstu vikurnar. Mikið af spenanndi þáttum framundan í þáttaröð 2. Við ætlum að kafa dýpra í ákveðin málefni eins og opin sambönd og swing sem dæmi en í þættinum í dag ræðum við um $ex Workers. Ótrúlega áhugavert viðfangsefni að okkar mati. Njótið vel.
Þáttur 24. - Að hössla 04.03.2026 29:21
Fyndinn þáttur þar sem við spjöllum um hvað það getur verið skrýtið og steikt að reyna hössla annað fólk þegar maður er í opnu sambandi. Stutt og laggott en skemmtilegt. Erum ennþá að prufa okkur áfram með nýjar græjur, vonandi eru hljóðgæðin í lagi :)
Þáttur 23. - Power play / Dom og Sub / Valdaleikur 16.02.2026 38:47
Hæ og verið velkomin aftur :) Í þessum þætti ræðum við um það sem kallast "power play" eða "power exchange" sem er eitt form af "kink" og er oft sett undir eitt af þeim kinkum sem eru undir BDSM. Förum aðeins yfir okkar reynslu og hvernig við erum að fikra okkur áfram. Okkur finnst þetta ótrúlega spennandi og hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst!
Þáttur 22. - Virðing í samskiptum 23.01.2026 45:43
Hæ hó elsku hlustendur! Í þætti 22 köfum við í smá pælingar í tengslum við virðingu í samskiptum og hvernig okkar samskipti og hlutverk hafa breyst innan sambandsins í gegnum árin. Njótið vel.
Þáttur 21. - Misræmi um langanir í samböndum 14.01.2026 47:18
Jæja þá erum við komin aftur eftir stutta pásu yfir hátíðirnar. Við mætum tvíefld aftur til leiks. Í þessum þætti ræðum við um misræmi um langanir í samböndum og hvernig við höfum tæklað það hjá okkur. Njótið vel :)
Þáttur 20. - anal kynlíf 19.11.2025 50:23
Hæ og verið velkomin í Taboo! Í þættinum í dag förum við aðeins yfir það hvað er lifandi hjá okkur þessa stundina. Helst er það nýja meðferðarrýmið okkar, Kjarninn, þar sem við munum bjóða upp á nudd, markþjálfun ofl ofl. Ásamt því tölum við aðeins um Onlyfans síðuna okkar og hvernig það gengur en þið getið fundið okkur þar undir @icelandiccouple. Svo köfum við djúpt, mjög djúpt inn í anal kynlí...
Þáttur 19. - sjálfsfróun/sjálfsunaður 12.11.2025 49:27
Hæ elsku bestu! Í þessum þætti förum við á flug og ræðum um sjálfsfróun, sjálfsunað, að rúnka sér og allt þar á milli :) Vonandi njótið þið vel!
Þáttur 18. - Sex dates og Check-ins 24.10.2025 47:12
Í þessum þætti förum við yfir "sex dates" og check-ins sem hefur hjálpað okkur gífurlega. Tölum um okkar reynslu og hvernig við gerum þetta. Vonandi njótið þið vel!
Þáttur 17. - að vera öðruvísi 16.10.2025 38:50
Í þessum þætti tölum við um það hvernig það er að vera öðruvísi og að lifa óhefðbundnum lífsstíl. Förum út um víðan völl. Njótið vel!
Þáttur 16. - Onlyfans 30.09.2025 52:55
Í þessum þætti ræðum við um Onlyfans og muninn á klámi og kynþokkalist. Við tölum um afhverju við byrjuðum með Onlyfans og addressum slúður og mynddreifingar á netinu sem hefur komið upp. Mjög þörf umræða og eitthvað topic sem við brennum heitt fyrir. Vona að þið njótið!
Þáttur 15. - Kynlífsspurningaspil 26.09.2025 51:57
Verið velkomin í Taboo! Pínu óhefðbundinn þáttur í dag en við förum yfir kynlífsspil og hvernig það hefur hjálpað okkur að opna á allskonar skemmtilegar umræður. Við skiptumst á að spyrja hvort annað að djúsí spurningum. Opnuðum á alls konar pælingar. Vonandi njótið þið vel!
Þáttur 14. - Pegging 18.09.2025 46:22
Í þessum þætti tölum við um pegging sem er heldur betur hot topic. Pegging er í miklu uppáhaldi hjá okkur og hefur nokkrum sinnum komið upp hjá hlustendum sem topic sem við ættum að ræða. Vonandi hafið þið gaman að þessum þætti og ekki hika við að senda á okkur ef það koma upp spurningar eða vangaveltur :) Njótið vel!
Þáttur 13. - Rifrildi 11.09.2025 46:25
Í þrettánda þætti förum við yfir eitthvað sem öll pör lenda í.... rifrildi! Við förum yfir hvernig rifrildin hjá okkur hafa þróast í gegnum tíðina og hvernig við reynum að tækla það þegar það er uppi ágreiningur. Njótið vel!
Þáttur 12. - Afbrýðisemi 05.09.2025 51:42
Í þætti 12 tökum við fyrir risastórt viðfangsefni sem er afbrýðisemi. Afbrýðisemi á sér svo margar hliðar og hefðum við geta rætt um þetta í marga klukkutíma. Hér förum við yfir hvernig við höfum tæklað afbrýðisemi í okkar sambandi. Njótið vel.
Þáttur 11. - Kynlíf 28.08.2025 55:47
Risastór þáttur þar sem málefnið er kynlíf....... ekki beint lítið topic! Við förum um víðan völl og þetta er klárlega vol. 1 um kynlíf og munum við tækla þetta aftur seinna, ekki spurning! Njótið vel!
Þáttur 10. - Q&A spurningar 21.08.2025 50:32
Til að fagna 10 þáttum þá ákváðum við að opna fyrir spurningar frá hlustendum. Ótrúlega skemmtilegur þáttur og okkur finnst svo gaman að frá feedback og spurningar frá hlustendum. Vonandi skemmtið þið ykkur jafn vel og við gerðum!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.